DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8448.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Celtic Ballad

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Lima eða DROPS Merino Extra Fine með perluprjóni og laskalínu. Stærð S - XXXL.

DROPS Extra 0-851
DROPS Design: Mynstur nr li-015
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL

GARN:
DROPS LIMA frá Garnstudio
600-650-750-800-800-900 g litur nr 0100, natur

Eða notið:
DROPS Merino Extra Fine frá Garnstudio
600-650-750-800-800-900 g litur nr 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: Lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8448.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Frá réttu:
Byrjið 3 lykkjum á undan merki: 2 lykkju brugðið saman, 2 lykkjur slétt (merki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), 2 lykkjur snúnar brugðið saman.
Frá röngu:
Byrjið 3 lykkjum á undan merki: 2 lykkjur snúnar brugðið saman, 2 lykkjur brugðið (merkið situr á milli þessa 2 lykkja), 2 lykkjur slétt saman.

LEIÐBEININGAR:
Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast þá kemur laskalínan til með að verða of stutt og handvegur of lítinn. Hægt er að jafna þetta til með því að prjóna 1 auka umferð án úrtöku með jöfnu millibili á milli úrtökuumferðar.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 232-252-272-296-320-360 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Lima eða DROPS Merino Extra Fine.
Prjónið stroff 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið í 4 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 4, næsta umferð er prjónuð slétt, JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað jafnt yfir 48-52-56-60-64-72 lykkjur jafnt yfir = 184-200-216-236-256-288 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 merki í hvora hlið = 92-100-108-118-128-144 lykkjur á milli merkja. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði merkin (= 4 útaukningar). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm og 24-25-26-27-28-29 cm = 196-212-228-248-268-300 lykkjur. Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm er prjónað eftir A.1, þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er prjónað eftir A.2. Prjónið A.2 í 10 cm, síðan er prjónað A.1 1 sinni. Haldið áfram með A.2. Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm fellið af 4 lykkjur hvoru megin við hvort merki = 90-98-106-116-126-142 lykkjur á framstykki og bakstykki. Leggið stykkið til hliðar og prjónið ermar.

ERMI.
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 68-68-72-72-76-76 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með DROPS Lima eða DROPS Merino Extra Fine. Prjónið stroff 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið í 4 cm.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4, næsta umferð er prjónuð slétt, JAFNFRAMT er fækkað um 14-12-14-12-14-12 lykkjur jafnt yfir = 54-56-58-60-62-64 lykkjur. Setjið 1 merki í byrjun umferðar = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merki. Endurtakið útaukningu með 11-8-7-6-4-3½ cm millibili 4-5-6-7-10-11 sinnum til viðbótar = 64-68-72-76-84-88 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 37-37-36-36-35-35 cm prjónið eftir mynsturteikningu A.1, þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er prjónað eftir A.2. Prjónið A.2 í 10 cm, síðan er prjónað A.1 1 sinni. Haldið áfram með A.2 – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þegar stykkið mælist 55-55-54-54-53-53 cm styttra mál í stærri stærðum vegna breiðar axla), stillið af þannig að prjónað sé í sömu umferð í A.2 og á fram- og bakstykki, fellið af 4 lykkjur hvoru megin við merki = 56-60-64-68-76-80 lykkjur. Leggið stykkið til hliðar og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM!
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = 292-316-340-368-404-444 lykkjur. Prjónið áfram A.2, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm byrjar úrtaka fyrir LASAKLÍNA – lesið útskýringu að ofan og lesið LEIÐBEININGAR!
Setjið 1 merki í allar skiptingar á milli erma og fram- og bakstykki (= 4 merki).
1. merki = skipting á milli vinstri ermi og framstykkis.
Lykkjum er fækkað mismunandi á fram- og bakstykki og ermum.
Fækkið lykkjum á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki (= úrtaka á ermum).
Fækkið lykkjum í 4. hverri umferð 7-7-6-6-4-2 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 12-14-17-19-25-29 sinnum.
Fækkið lykkjum á eftir 1. og 3. merki og á undan 2. og 4. merki (= úrtaka á framstykki og bakstykki).
Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 24-24-25-25-25-22 sinnum, síðan í hverri umferð 3-5-6-9-12-21 sinnum.

HÁLSMÁL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm fellið af miðju 10-14-18-22-26-30 lykkjur á framstykki og stykkið er prjónað áfram fram og til baka. Haldið áfram með mynstur og laskalínu, JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli í hvorri hlið í annarri hverri umferð 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 4 sinnum.
Eftir alla úrtöku og affellingu fyrir laskalínu og hálsmáli eru 82-86-90-94-98-102 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-14-16-18-20-22 lykkjur jafnt yfir = 70-72-74-76-78-80 lykkjur á prjóni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Stykkið er prjónað í hring.
Prjónið upp 54-56-58-60-62-64 lykkjur í kringum hálsmál á sokkaprjóna 3,5 = 124-128-132-136-140-144 lykkjur á prjóni. Prjónið 2 umferðir slétt og 2 umferðir brugðið, síðan er prjónað stroff 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram og fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 3,5 cm (alls með fyrstu 4 umferðunum).

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-851

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (145)

country flag Lidiah wrote:

Grazie per il chiarimento, era quello che intendevo dire nella mia prima domanda.

07.06.2022 - 09:31

country flag Lidiah wrote:

Buongiorno, ma se si continua a lavorare il motivo grana di riso anche nei ferri in cui non ci sono le diminuzioni, come fa ad uscire la "striscia" a maglia rasata del raglan? grazie

06.06.2022 - 22:58

DROPS Design answered:

Buonasera Lidiah, deve lavorare a diritto le maglie ai lati del segnapunti: ci dev'essere 1 maglia diritto, segnapunti, 1 maglia diritto. Buon lavoro!

06.06.2022 - 23:23

country flag Lidiah wrote:

Buongiorno, Durante la realizzazione del raglan, nei ferri senza diminuzioni come si devono lavorare le maglie vicino al segnapunti? Rovescio-due maglie dritto (il segnapunti è tra queste due)-rovescio?

04.06.2022 - 14:00

DROPS Design answered:

Buonasera Lidiah, deve continuare a lavorare il motivo. Buon lavoro!

06.06.2022 - 22:52

country flag Eva-Britt wrote:

Förstår inte minskningen på oket. Raglan ok men ska det minskas mer än så och på olika varv? Minskningen enligt mönstret står i två avsnitt ....blir förvirrad. Jag gissar att det minskas tätare på framstycket stämmer det?

07.02.2022 - 18:31

DROPS Design answered:

Hej Eva-Britt, jo du minskar bara till raglan! P ærmerne minsker du først på hver 4.varv og så på hver 2.varv. Samtidigt minskar du på ryg & forstykke på hver 2.varv og sist på hvert varv. Lycka till :)

09.02.2022 - 11:20

country flag Leonie wrote:

Liebes Team, ich verstehe den Teil mit dem Abketten im Halsausschnitt nicht. Da steht, man soll "in jeder 2. R 2 x 2 M und 4 x 1 M abketten". Was heißt das? Wenn ich in der selben Runde 2x2=4 Maschen abkette und 4x1=4, dann habe ich doch einfach pro Seite vorne 4 Maschen abgekettet. Die Anleitung hilft mir hier nicht weiter. Könnt Ihr mir sagen, wie ich weiterstricken soll? Liebe Grüße

23.01.2022 - 23:09

DROPS Design answered:

Liebe Leonie, wenn die mittleren Maschen für den Halsausschnnitt stillgelegt sind, dann stricken Sie in Hin- und Rückreihen ab Hals weiter; am Anfang jeder Reihe (Hin- sowie Rückreihen) so abketten: 2 Maschen am Anfang der nächsten 4 Reihen (= 2 Mal bei den Hin- + 2 Mal bei der Rückreihen) und 1 Maschen am Anfang der nächsten 8 Reihen (= 4 Mal beidseitig) - Raglanabnahmen aber wie zuvor weiterstricken. Viel Spaß beim stricken!

24.01.2022 - 10:15

country flag Carine Van Hecke wrote:

Ik begrijp niet dat de raglan begint bij 47 cm als de panden al 55 cm lang zijn voor je aan de pas begint. Kun je me di even uitleggen ?

24.07.2021 - 21:02

DROPS Design answered:

Dag Carine,

Bij een hoogte van 45 cm voor het lijf kant je steken af aan elke kant van de markeerdraad. Bij een hoogte van 47 cm ga je minderen voor de PAS. Dit is dus de hoogte van het lijf, niet van de mouw.

26.07.2021 - 16:49

country flag Claudia wrote:

Tengo una duda, ya voy a comenzar a tejer la pechera. En las vueltas que no hay que hacer disminuciones, ¿como se teje el raglán?

09.05.2021 - 18:38

DROPS Design answered:

Hola Claudia, el raglán se trabaja según el patrón sin las disminuciones.

09.05.2021 - 19:53

country flag Darla wrote:

Sorry, found the answer at the beginning of the pattern

02.03.2021 - 19:59

country flag Darla wrote:

Hello, after cast off for neck, stitches are worked back and forth on needle, so can you please explain what stitch should be used for raglan decrease when working from the wrong side. Thanks Thanks

02.03.2021 - 19:26

DROPS Design answered:

Dear Darla, since you will have to decrease in every other or every 4th stitch, you will only have to do them on RS rows, as described in the text. As for the two stitches at each raglan lne, they are knitted with a stocking stitch (knit on the RS, and purl on the WS). Happy Knitting!

03.03.2021 - 03:07

country flag Mimi wrote:

Ouf, voilà enfin le pourquoi je dois encore refaire. Ce qui me manquait c'était le en même temps. Donc merci beaucoup et en avant le bon raglan.

24.11.2020 - 17:36