Country Dream |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Hekluð tunika úr DROPS Safran. Stærð S - XXXL.
DROPS 136-25 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ST-UMFERÐIR: Hver umf með st byrjar með 3 ll (ekki talið með sem 1. st), heklið 1 st í 1. l, síðan 1 sl í hverja l, snúið. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1. 1 mynstureining M.1 = 10 st á breiddina og 7 umf á hæðina. ÚRTAKA: Heklið 1 st, geymið að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið nú næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni = 1 l færri. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l í hvorri hlið á stykki með því að hekla 2 st í fyrstu og síðustu l í umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka. BAKSTYKKI: Heklið laust 102-102-122-122-142-142 ll með heklunál nr 3,5 með Safran. UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, síðan 1 st í hverja ll, snúið = 99-99-119-119-139-139 st (= 9-9-11-11-13-13 mynstureiningar í M.1 + 9 l). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið nú 3-3-4-4-5-5 ST-UMFERÐIR - sjá útskýringu að ofan = 4-4-5-5-6-6 st-umferðir á hæðina. Heklið nú M.1 þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, 1 fl í 1. st, * 3 ll, hoppið yfir næstu 3 st, í næsta st er heklað þannig: Heklið 1 st, 3 ll, 1 st, síðan 3 ll, hoppið yfir næstu 3 st, 1 fl í hvern af næstu 3 st (= 3 fl) *, endurtakið frá *-* út umf. Þegar endurtekið er frá *-* í síðasta skiptið eru heklaðar 3 ll, hoppið yfir næstu 3 st, og 1 fl í síðasta st, snúið. UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, 1 fl í 1. fl, * 3 ll, hoppið yfir næsta ll-boga, 7 st um næsta ll-boga (milli 2 st), 3 ll, 1 fl í miðju fl frá UMFERÐ 1 *, endurtakið frá *-* út umf. Þegar endurtekið er frá *-* í síðasta skiptið er heklað 3 ll og 1 fl í síðustu fl, snúið. UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, 1 fl í 1. fl, 4 ll, * 1 fl í hvern af næstu 7 st (= 7 fl), 5 ll *, endurtakið frá *-* út umf, endið með 4 ll og 1 fl í síðustu fl, snúið. UMFERÐ 4: Heklið 3 ll, 1 st um 1. ll-boga, * 3 ll, 1 fl í hverja af miðju 3 fl frá UMFERÐ 3 (= 3 fl), 3 ll, [1 st, 3 ll, 1 st] um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf. Þegar endurtekið er frá *-* í síðasta sinn er heklað 3 ll og 1 st um síðasta ll-boga, snúið. UMFERÐ 5: Heklið 3 ll, 3 st um 1. ll-boga, * 3 ll, 1 fl í miðju fl frá UMFERÐ 4, 3 ll, hoppið yfir næsta ll-boga, 7 st um næsta ll-boga (milli 2 st) *, endurtakið frá *-* út umf. Þegar endurtekið er frá *-* í síðasta sinn er heklað 3 ll, 2 st um síðasta ll-boga og 1 st í 3. ll frá UMFERÐ 4, snúið. UMFERÐ 6: Heklið 1 ll, 1 fl í hvern af næstu 3 st (= 3 fl), * 5 ll, 1 fl í hvern af næstu 7 st (= 7 fl) *, endurtakið frá *-* út umf. Þegar endurtekið er frá *-* í síðasta sinn er hekluð 1 fl í hvern af síðustu 3 st (= 3 fl), snúið. UMFERÐ 7: Heklið 1 ll, 1 fl í 1. fl, * 4 fl, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl í hvern af miðju 3 fl frá UMFERÐ 6 (= 3 fl) *, endurtakið frá *-* út umf. Þegar endurtekið er frá *-* í síðasta sinn eru heklaðar 4 ll og 1 fl í síðustu fl, snúið. Heklið nú 1 umf með fl þannig: Heklið 1 ll, 1 fl í 1. fl, * 4 fl um næsta ll-boga, 3 fl um næsta ll-boga, 1 fl í hverja af næstu 3 fl *, endurtakið frá *-* út umf. Þegar endurtekið er frá *-* í síðasta sinn er hekluð 1 fl í síðustu fl = 99-99-119-119-139-139 fl. Heklið að auki 4-4-5-5-6-6 st-umferðir, síðan M.1 1 sinni á hæðina, og síðan 1 umf fl á sama hátt – JAFNFRAMT er fellt af 1 l í lok umf – Lesið ÚRTAKA að ofan = 98-98-118-118-138-138 l. Nú mælist stykkið ca 20-20-22-22-24-24 cm. Heklið nú 2-3-2-3-2-3 st-umferðir (stykkið mælist ca 22-23-24-25-26-27 cm). Í næstu umf eru fækkað um 4 l jafnt yfir = 94-94-114-114-134-134 st. Haldið áfram með st-umferðir þar til stykkið mælist 27-28-29-31-32-33 cm. Í næstu umf er aukið út um 1 l í hvorri hlið á stykki – sjá ÚTAUKNING að ofan. Endurtakið útaukningu 1 sinni til viðbótar þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm. Þegar stykkið mælist 40-41-42-44-45-46 cm er aukið út um 1 l í lok umf = 99-99-119-119-139-139 st. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm er heklað frá réttu þannig: Heklið M.1 1 sinni og 1 umf fl eins og áður. ATH: Setjið prjónamerki í hvora hlið í stykkið í umf 1 í M.1 (hér byrjar handvegur). Haldið áfram með st-umferðir þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. Heklið nú 1 st-umferðir yfir síðustu 35-34-43-42-51-50 l í hvorri hlið (þ.e.a.s. ekki er heklað yfir miðju 29-31-33-35-37-39 l (= háls), fellið nú af 1 l í næstu umf við hálsmál = 34-33-42-41-50-49 l eftir á öxl. Klippið frá og festið enda, nú mælist stykkið ca 62-64-66-68-70-72 cm. FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 42-44-45-47-48-50 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Í næstu umf frá réttu er heklað hálsamál þannig: Heklið 49-49-59-59-69-69 st (= 4-4-5-5-6-6 mynstureiningar M.1 + 9 l), snúið. Haldið áfram með st-umferðir. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm er heklað M.1 (byrjið frá réttu) 1 sinni á hæðina. ATH: Setjið merki í vinstri hlið (séð frá réttu) í umf 1 í M.1 (hér byrjar handvegur). Heklið nú 1 umf með fl eins og áður = 49-49-59-59-69-69 fl. Í næstu umf frá réttu er heklað við hálsmál þannig: Heklið þar til eftir eru 8-8-9-9-10-10 l í umf, snúið. Fækkið nú lykkjum í hverri umf við hálsmál þannig: Fækkið um af 2 l 2 sinnum – Lesið ÚRTAKA að ofan, 1 l 3-4-4-5-5-6 sinnum = 34-33-42-41-50-49 l eftir á öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm, klippið frá og festið enda. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 50-50-60-60-70-70 st. Í næstu umf er fækkað um 1 l í byrjun umf = 49-49-59-59-69-69 st. Heklið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd. ERMI: Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið 42-42-42-52-52-52 ll með heklunál nr 3,5. Umferð 1 (= rétta) er hekluð þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, síðan 1 st í hverja ll, snúið = 39-39-39-49-49-49 st ( = 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar í M.1 + 9 l), snúið. Heklið nú 2 st-umf = 3 st-umf á hæðina. Heklið nú M.1 1 sinni og 1 umf með fl = 39-39-39-49-49-49 fl. Í næstu umf eru heklaðir st – JAFNFRAMT er aukið út um 1 l í hvorri hlið á stykki. Haldið áfram með st-umferðir og endurtakið útaukningu með 4½-3½-2½-3½-2½-2½ cm milliblili alls 9-11-13-10-12-13 sinnum = 57-61-65-69-73-75 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 49-50-46-47-43-44 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. Saumið ermarnar í á milli merkja í hvorri hlið. Saumið hliðar – og ermasauma í eitt. HEKLAÐUR KANTUR – FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklað er hringinn meðfram neðri kanti á stykki þannig: UMFERÐ 1: Byrjið á vinstri hliðarsaumi, heklið 1 ll, 1 fl í hvern st – JAFNFRAMT er aukið út um 2 fl jafnt yfir í umf = 200-200-240-240-280-280 fl (fjöldi l er deilanlegur með 8), endið með 1 kl í 1. fl. UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, 1 fl í 1. fl, * 3 ll, hoppið yfir 3 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 3 ll, hoppið yfir síðustu 3 fl og 1 kl í 1. fl. UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, um 1. ll-boga er heklað þannig: Heklið 1 fl, 3 ll, 1 fl, * um næsta ll-boga er heklað þannig: Heklið 3 st, 3 ll, 1 kl í 1. ll, 3 st um næsta ll-boga er heklað þannig: Heklið 1 fl, 3 ll, 1 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í 1. fl, klippið frá og festið enda. HEKLAÐUR KANTUR - ERMI: Heklað er kantur kringum ermi að neðan þannig: Stærð S – L: UMFERÐ 1: Við byrjun á ermasaumi, heklið 1 ll, 1 fl í hvern st – JAFNFRAMT er aukið út um 1 l í lok umf = 40-40-40 fl (fjöldi l er deilanlegur með 8), endið með 1 kl í 1. fl. UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, 1 fl í 1. fl, * 3 ll, hoppið yfir 3 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf, endið með 3 ll, hoppið yfir síðustu 3 fl og 1 kl í 1. fl. UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, um 1. ll-boga er heklað þannig: Heklið 1 fl, 3 ll, 1 fl, * um næsta ll-boga er heklað þannig: Heklið 3 st, 3 ll, 1 kl í 1. ll, 3 st, um næsta ll-boga er heklað þannig: Heklið 1 fl, 3 ll, 1 fl *, endurtakið frá *-* út umf, endið með 1 kl í 1. fl, klippið frá og festið enda. Stærð XL - XXXL: UMFERÐ 1: Við byrjun á ermasaumi, heklið 1 ll, 1 fl í hvern st – JAFNFRAMT er fellt af 1 l í lok umf = 48-48-48 (fjöldi l er deilanlegur með 8), endið með 1 kl í 1. fl. UMFERÐ 2 og 3 er hekluð eins og stærð S – L. Heklið á sama hátt og hinni erminni. HEKLAÐUR KANTUR – HÁLSMÁL: Heklið kant fram og til baka meðfram hálsmáli þannig: UMFERÐ: Byrjið neðst niðri við opi á hálsmáli við miðju að framan, heklið 1 ll, 21-21-21-17-17-17 fl meðfram opi á hægra framstykki (fjöldi l er deilanlegur með 4 + 1), síðan 83-83-91-91-99-99 fl meðfram hálsmáli, endið með 21-21-21-17-17-17 fl meðfram opi á vinstra framstykki = 125-125-133-125-133-133 fl alls, snúið. UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, 1 fl í 1. fl, * 3 ll, hoppið yfir 3 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf, snúið. UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, um 1. ll-boga er heklað þannig: Heklið 1 fl, 3 ll, 1 fl, * um næsta ll-boga er heklað þannig: Heklið 3 st, 3 ll, 1 kl í 1. ll, 3 st, um næsta ll-boga er heklað þannig: Heklið 1 fl, 3 ll, 1 fl *, endurtakið frá *-* út umf, klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (35)
Gladys wrote:
Gracias por las creaciones tan hermosas que comparten con nosotras. Dios les bendiga. Me gusto mucho este modelo
02.03.2012 - 19:27Saara wrote:
I like this really. Great to see beautiful crochet patterns here!
16.01.2012 - 15:37Ulla wrote:
Tälläisen haluaisin tehdä kesäksi.
16.01.2012 - 15:13Jeanette wrote:
Denne gleder jeg meg til å lage.
14.01.2012 - 22:00Mervi wrote:
Kaunis kuvio kesäpaidaksi
11.01.2012 - 10:34Anja wrote:
Gefällt mir sehr - her mit der Häkelnadel
10.01.2012 - 09:51Raffaella wrote:
Di solito i golf all'uncinetto non mi piacciono molto, ma questo è molto carino
04.01.2012 - 22:00Magda wrote:
...und das auch
28.12.2011 - 09:48Petra wrote:
Leuk en luchtig voor de zomer en een mooie lengte.
27.12.2011 - 13:41Miranda Radford wrote:
Useful and feminine. hope itcomesina large size as well.
24.12.2011 - 18:01