DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 136-25
DROPS Design: Mynstur nr E-182
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
400-450-500-550-600-650 gr litur nr 06, gallabuxnablár

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til þess að 19 st og 10 umf verði 10 x 10 cm (1 mynstureining af M.1 mælist ca 5 cm á breiddina og 6 cm á hæðina).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ST-UMFERÐIR:
Hver umf með st byrjar með 3 ll (ekki talið með sem 1. st), heklið 1 st í 1. l, síðan 1 sl í hverja l, snúið.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1. 1 mynstureining M.1 = 10 st á breiddina og 7 umf á hæðina.

ÚRTAKA:
Heklið 1 st, geymið að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið nú næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni = 1 l færri.

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l í hvorri hlið á stykki með því að hekla 2 st í fyrstu og síðustu l í umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Heklið laust 102-102-122-122-142-142 ll með heklunál nr 3,5 með Safran.
UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, síðan 1 st í hverja ll, snúið = 99-99-119-119-139-139 st (= 9-9-11-11-13-13 mynstureiningar í M.1 + 9 l). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Heklið nú 3-3-4-4-5-5 ST-UMFERÐIR - sjá útskýringu að ofan = 4-4-5-5-6-6 st-umferðir á hæðina. Heklið nú M.1 þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, 1 fl í 1. st, * 3 ll, hoppið yfir næstu 3 st, í næsta st er heklað þannig: Heklið 1 st, 3 ll, 1 st, síðan 3 ll, hoppið yfir næstu 3 st, 1 fl í hvern af næstu 3 st (= 3 fl) *, endurtakið frá *-* út umf. Þegar endurtekið er frá *-* í síðasta skiptið eru heklaðar 3 ll, hoppið yfir næstu 3 st, og 1 fl í síðasta st, snúið.
UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, 1 fl í 1. fl, * 3 ll, hoppið yfir næsta ll-boga, 7 st um næsta ll-boga (milli 2 st), 3 ll, 1 fl í miðju fl frá UMFERÐ 1 *, endurtakið frá *-* út umf. Þegar endurtekið er frá *-* í síðasta skiptið er heklað 3 ll og 1 fl í síðustu fl, snúið.
UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, 1 fl í 1. fl, 4 ll, * 1 fl í hvern af næstu 7 st (= 7 fl), 5 ll *, endurtakið frá *-* út umf, endið með 4 ll og 1 fl í síðustu fl, snúið.
UMFERÐ 4: Heklið 3 ll, 1 st um 1. ll-boga, * 3 ll, 1 fl í hverja af miðju 3 fl frá UMFERÐ 3 (= 3 fl), 3 ll, [1 st, 3 ll, 1 st] um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf. Þegar endurtekið er frá *-* í síðasta sinn er heklað 3 ll og 1 st um síðasta ll-boga, snúið.
UMFERÐ 5: Heklið 3 ll, 3 st um 1. ll-boga, * 3 ll, 1 fl í miðju fl frá UMFERÐ 4, 3 ll, hoppið yfir næsta ll-boga, 7 st um næsta ll-boga (milli 2 st) *, endurtakið frá *-* út umf. Þegar endurtekið er frá *-* í síðasta sinn er heklað 3 ll, 2 st um síðasta ll-boga og 1 st í 3. ll frá UMFERÐ 4, snúið.
UMFERÐ 6: Heklið 1 ll, 1 fl í hvern af næstu 3 st (= 3 fl), * 5 ll, 1 fl í hvern af næstu 7 st (= 7 fl) *, endurtakið frá *-* út umf. Þegar endurtekið er frá *-* í síðasta sinn er hekluð 1 fl í hvern af síðustu 3 st (= 3 fl), snúið.
UMFERÐ 7: Heklið 1 ll, 1 fl í 1. fl, * 4 fl, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl í hvern af miðju 3 fl frá UMFERÐ 6 (= 3 fl) *, endurtakið frá *-* út umf. Þegar endurtekið er frá *-* í síðasta sinn eru heklaðar 4 ll og 1 fl í síðustu fl, snúið.
Heklið nú 1 umf með fl þannig: Heklið 1 ll, 1 fl í 1. fl, * 4 fl um næsta ll-boga, 3 fl um næsta ll-boga, 1 fl í hverja af næstu 3 fl *, endurtakið frá *-* út umf. Þegar endurtekið er frá *-* í síðasta sinn er hekluð 1 fl í síðustu fl = 99-99-119-119-139-139 fl. Heklið að auki 4-4-5-5-6-6 st-umferðir, síðan M.1 1 sinni á hæðina, og síðan 1 umf fl á sama hátt – JAFNFRAMT er fellt af 1 l í lok umf – Lesið ÚRTAKA að ofan = 98-98-118-118-138-138 l. Nú mælist stykkið ca 20-20-22-22-24-24 cm.
Heklið nú 2-3-2-3-2-3 st-umferðir (stykkið mælist ca 22-23-24-25-26-27 cm). Í næstu umf eru fækkað um 4 l jafnt yfir = 94-94-114-114-134-134 st. Haldið áfram með st-umferðir þar til stykkið mælist 27-28-29-31-32-33 cm. Í næstu umf er aukið út um 1 l í hvorri hlið á stykki – sjá ÚTAUKNING að ofan. Endurtakið útaukningu 1 sinni til viðbótar þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm. Þegar stykkið mælist 40-41-42-44-45-46 cm er aukið út um 1 l í lok umf = 99-99-119-119-139-139 st.
Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm er heklað frá réttu þannig: Heklið M.1 1 sinni og 1 umf fl eins og áður. ATH: Setjið prjónamerki í hvora hlið í stykkið í umf 1 í M.1 (hér byrjar handvegur). Haldið áfram með st-umferðir þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm.
Heklið nú 1 st-umferðir yfir síðustu 35-34-43-42-51-50 l í hvorri hlið (þ.e.a.s. ekki er heklað yfir miðju 29-31-33-35-37-39 l (= háls), fellið nú af 1 l í næstu umf við hálsmál = 34-33-42-41-50-49 l eftir á öxl. Klippið frá og festið enda, nú mælist stykkið ca 62-64-66-68-70-72 cm.

FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 42-44-45-47-48-50 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Í næstu umf frá réttu er heklað hálsamál þannig: Heklið 49-49-59-59-69-69 st (= 4-4-5-5-6-6 mynstureiningar M.1 + 9 l), snúið. Haldið áfram með st-umferðir. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm er heklað M.1 (byrjið frá réttu) 1 sinni á hæðina. ATH: Setjið merki í vinstri hlið (séð frá réttu) í umf 1 í M.1 (hér byrjar handvegur). Heklið nú 1 umf með fl eins og áður = 49-49-59-59-69-69 fl. Í næstu umf frá réttu er heklað við hálsmál þannig: Heklið þar til eftir eru 8-8-9-9-10-10 l í umf, snúið. Fækkið nú lykkjum í hverri umf við hálsmál þannig: Fækkið um af 2 l 2 sinnum – Lesið ÚRTAKA að ofan, 1 l 3-4-4-5-5-6 sinnum = 34-33-42-41-50-49 l eftir á öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm, klippið frá og festið enda.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 50-50-60-60-70-70 st. Í næstu umf er fækkað um 1 l í byrjun umf = 49-49-59-59-69-69 st. Heklið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd.

ERMI:
Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið 42-42-42-52-52-52 ll með heklunál nr 3,5. Umferð 1 (= rétta) er hekluð þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, síðan 1 st í hverja ll, snúið = 39-39-39-49-49-49 st ( = 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar í M.1 + 9 l), snúið. Heklið nú 2 st-umf = 3 st-umf á hæðina. Heklið nú M.1 1 sinni og 1 umf með fl = 39-39-39-49-49-49 fl. Í næstu umf eru heklaðir st – JAFNFRAMT er aukið út um 1 l í hvorri hlið á stykki. Haldið áfram með st-umferðir og endurtakið útaukningu með 4½-3½-2½-3½-2½-2½ cm milliblili alls 9-11-13-10-12-13 sinnum = 57-61-65-69-73-75 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 49-50-46-47-43-44 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma. Saumið ermarnar í á milli merkja í hvorri hlið. Saumið hliðar – og ermasauma í eitt.

HEKLAÐUR KANTUR – FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklað er hringinn meðfram neðri kanti á stykki þannig:
UMFERÐ 1: Byrjið á vinstri hliðarsaumi, heklið 1 ll, 1 fl í hvern st – JAFNFRAMT er aukið út um 2 fl jafnt yfir í umf = 200-200-240-240-280-280 fl (fjöldi l er deilanlegur með 8), endið með 1 kl í 1. fl.
UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, 1 fl í 1. fl, * 3 ll, hoppið yfir 3 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 3 ll, hoppið yfir síðustu 3 fl og 1 kl í 1. fl.
UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, um 1. ll-boga er heklað þannig: Heklið 1 fl, 3 ll, 1 fl, * um næsta ll-boga er heklað þannig: Heklið 3 st, 3 ll, 1 kl í 1. ll, 3 st um næsta ll-boga er heklað þannig: Heklið 1 fl, 3 ll, 1 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í 1. fl, klippið frá og festið enda.

HEKLAÐUR KANTUR - ERMI:
Heklað er kantur kringum ermi að neðan þannig:
Stærð S – L:
UMFERÐ 1: Við byrjun á ermasaumi, heklið 1 ll, 1 fl í hvern st – JAFNFRAMT er aukið út um 1 l í lok umf = 40-40-40 fl (fjöldi l er deilanlegur með 8), endið með 1 kl í 1. fl.
UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, 1 fl í 1. fl, * 3 ll, hoppið yfir 3 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf, endið með 3 ll, hoppið yfir síðustu 3 fl og 1 kl í 1. fl.
UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, um 1. ll-boga er heklað þannig: Heklið 1 fl, 3 ll, 1 fl, * um næsta ll-boga er heklað þannig: Heklið 3 st, 3 ll, 1 kl í 1. ll, 3 st, um næsta ll-boga er heklað þannig: Heklið 1 fl, 3 ll, 1 fl *, endurtakið frá *-* út umf, endið með 1 kl í 1. fl, klippið frá og festið enda.
Stærð XL - XXXL:
UMFERÐ 1: Við byrjun á ermasaumi, heklið 1 ll, 1 fl í hvern st – JAFNFRAMT er fellt af 1 l í lok umf = 48-48-48 (fjöldi l er deilanlegur með 8), endið með 1 kl í 1. fl.
UMFERÐ 2 og 3 er hekluð eins og stærð S – L.
Heklið á sama hátt og hinni erminni.

HEKLAÐUR KANTUR – HÁLSMÁL:
Heklið kant fram og til baka meðfram hálsmáli þannig:
UMFERÐ: Byrjið neðst niðri við opi á hálsmáli við miðju að framan, heklið 1 ll, 21-21-21-17-17-17 fl meðfram opi á hægra framstykki (fjöldi l er deilanlegur með 4 + 1), síðan 83-83-91-91-99-99 fl meðfram hálsmáli, endið með 21-21-21-17-17-17 fl meðfram opi á vinstra framstykki = 125-125-133-125-133-133 fl alls, snúið.
UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, 1 fl í 1. fl, * 3 ll, hoppið yfir 3 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf, snúið.
UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, um 1. ll-boga er heklað þannig: Heklið 1 fl, 3 ll, 1 fl, * um næsta ll-boga er heklað þannig: Heklið 3 st, 3 ll, 1 kl í 1. ll, 3 st, um næsta ll-boga er heklað þannig: Heklið 1 fl, 3 ll, 1 fl *, endurtakið frá *-* út umf, klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja
symbols = stuðull
symbols = hér byrjar 1. umferð
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 136-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Mil Chimley wrote:

Is there a size chart available to show what sizes S,M,L,XL,XXL,XXL refer to please?

21.12.2013 - 18:36

DROPS Design answered:

Dear Mrs Chimley, you will find at the bottom of the page (end of written pattern) a measurement chart with all measurements in cm. Happy crocheting!

27.12.2013 - 13:08

country flag Sarah wrote:

Ich komme jetzt an der Stelle nicht weiter, in der es am Halsauschnitt wie folgt gehen soll: 2 mal 2M., 3 mal 1 M. Soll ich da 4 Maschen zusammenfassen oder übrig lassen und wie ist die Verteilung auf die Reihen? Das verstehe ich nicht ganz. Liebe Dank für die Rückmeldung!

01.10.2013 - 18:38

DROPS Design answered:

Liebe Sarah, die Maschen werden durch Zusammenhäkeln abgenommen, damit keine "Treppe" entsteht, also über 4 M je 2 zusammenhäkeln = 2 M abgenommen. Es wird in jeder R abgenommen (siehe Anleitung).

02.10.2013 - 09:54

country flag Willy Van Bommel-Drissen wrote:

Wat is die uitleg van jullie supergoed, zelfs ik snap het!!! Met vriendelijke groeten

11.09.2013 - 15:17

country flag Hordijk wrote:

Geachte mevrouw, Is er geen omschrijving voor een V-hals? Zoals duidelijk te zien is op het voorbeeld? Een V-hals bij het M1-patroon is veel mooier dan een split. Kunt u mij hiervoor een instructie leveren? Met vriendelijke groet en dank.

08.04.2013 - 00:14

DROPS Design answered:

In het patroon staat hoe u de hals moet haken. Door de beschrijving te volgen vormt u een v-hals. Bij het afwerken haakt u ook een rand om de hals om deze helemaal af te maken.

08.04.2013 - 19:16

country flag Kati wrote:

Kiitos selvennyksestä. Eli kavennukset vaativat 10 kerrosta yhteensä. Ongelmana on myös se, että minulla tuon kuvion ja olkapään väliin jää vain 9 kerrosta, täytynee kaventaa vähän nopeammin.

23.01.2013 - 12:57

country flag Kati wrote:

Mitä tarkoittaa etukappaleen kavennus kaula-aukon kohdalla? 'Kavenna sitten pääntien reunassa joka 2. krs: 2 x 2 s ja 3-4-4-5-5-6 x 1 s' Eli kavennanko yhdellä kerroksella 4 silmukkaa? Seuraavalla 3 silmukkaa? En ymmärrä tuota 2 kertaa 2s?

18.01.2013 - 11:35

DROPS Design answered:

Päätät 2 x 2 s joka 2. krs näin: Päätä pääntien reunasta 2 s. Neulo 1 välikerros. Päätä sitten seuraavalla krs:lla uudestaan 2 s. Tee samalla tavalla myös jatkossa, eli päätä 1 s, neulo välikerros jne.

21.01.2013 - 16:40

country flag Carina wrote:

Ska det ses som ökning med 1m per varv de första ST-varven. Eller ska de 3 lm i början inte alls ses som st. Inte heller då man vänt o de är i slutet av varvet?

31.08.2012 - 09:48

DROPS Design answered:

ST-VARV: Varje v med st börjar med 3 lm (räknas inte som 1:a st), virka 1 st i 1:a m, sedan 1 st i varje m, vänd.

13.12.2012 - 12:24

country flag Marta wrote:

Sto cercando di capire come si esegue questo lavora ma non sono molto pratica e non riesco a capire alcune istruzioni. Nell'eseguire il DIETRO dopo aver lavorato le 99 m.b. sul decoro M1 e e aver continuato con le 4 ripetizioni di9 m.a. nelle istruzioni è indicato di eseguire il diagramma M1 1 volta in verticale . Cosa intendete ?

12.07.2012 - 21:16

DROPS Design answered:

Chiedo scusa per non aver risposto prima. 1 volta in verticale = il diagramma M1 deve essere lavorato 1 volta in altezza, cioè ripeterlo tutte le volta che ci vogliono orizzontalmente, ma solo una volta in altezza. Praticamente si tratta di un bordo.

18.07.2012 - 11:31

country flag Marta wrote:

Sto cercando di capire come si esegue questo lavora ma non sono molto pratica e non riesco a capire alcune istruzioni. Nell'eseguire il DIETRO dopo aver lavorato le 99 m.b. sul decoro M1 e e aver continuato con le 4 ripetizioni di9 m.a. nelle istruzioni è indicato di eseguire il diagramma M1 1 volta in verticale . Cosa intendete ?

12.07.2012 - 15:59

country flag S. Van Dijk wrote:

Volgens de fot is dit een trui met een V-hals, maar als ik het patroon goed begrijp en de tekening erbij zie dan is het een trui met een split en een ronde hals. Hoe zit dat?

25.04.2012 - 19:55

DROPS Design answered:

Het is een split en vervolgens ronde hals. De split is ca 4 cm hoog en vervolgens komen de minderingen voor de hals. Het is niet zo duidelijk te zien door de gehaakt rand - maar hij is er.

25.04.2012 - 20:24