DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 139-13
DROPS Design: Mynstur nr W-436
Garnflokkur C
--------------------------------------------------------

Hæð: Ca 30 cm (að meðtöldum botni)
Ummál: Ca 80 cm

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
150 gr litur nr 17, natur
150 gr litur nr 38, kóral
100 gr litur nr 13, appelsínugulur
100 gr litur nr 14, skærgulur
100 gr litur nr 33, millibleikur

DROPS HEKLUNÁL nr 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 st verði 10 cm á breidd. 1 ferningur mælist ca 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta st í hverri umf er skipt út fyrir 3 ll.
Fyrstu fl í hverri umf er skipt út fyrir 1 ll.
Hver umf með st endar með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Hver umf með fl, endar með 1 kl í 1. ll í byrjun umf.

RENDUR:
Heklið rendur með 1 umf af hverjum lit þannig: * Kóral, millibleikur, natur, appelsínugulur, kóral, skærgulur, natur, millibleikur, skærgulur, appelsínugulur *, endurtakið frá *-*. ATH: Ekki klippa frá þráðinn, heldur látið hann fylgja með uppúr á röngunni á stykkinu.

MYNSTUR:
UMFERÐ 1: Heklið 3 ll, * 1 ll, hoppið yfir 1 l, 1 st í næstu l *, endurtakið frá *-* út umf, endið með 1 ll, hoppið yfir síðustu l, 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 2: Heklið 1 st í hvern st og hverja ll.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hvern st.
UMFERÐ 4: Heklið 3 ll, heklið nú stuðlana í kross, það er gert þannig: *Hoppið yfir 1 l, 1 st í næstu l, síðan 1 st í l sem hoppað var yfir *, endurtakið frá *-* út umf, endið með 1 st í síðasta st og 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hvern st.
UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja fl.
UMFERÐ 7: Heklið st í hverja fl.
Endurtakið umf 1 til 7.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað frá botni og uppúr. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!

TASKA:
Heklið 5 ll með litnum kóral og tengið í hring með 1 kl í fyrstu l.
Heklið RENDUR – sjá útskýringu að ofan – þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 10 st um ll-hringinn, endið með 1 kl í fyrsta st.
UMFERÐ 2: Heklið 2 st í hvern st = 20 st.
UMFERÐ 3: Heklið 1 og 2 st í annað hvert skipti í hvern st út umf = 30 st.
UMFERÐ 4: Heklið 1 st í hvern st, en í 3. hvern st eru heklaðir 2 st = 40 st.
UMFERÐ 5: Heklið 1 st í hvern st, en í 4. hvern st eru heklaðir 2 st = 50 st.
Haldið áfram að auka bilið um 1 st milli umf þar til 120 st eru eftir í umf.
Heklið nú 1 umf með st jafnframt er aukið út um 8 st jafnt yfir = 128 st. Haldið áfram með rendur jafnframt er heklað MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist ca 32 cm (mælt frá miðju hrings og uppúr), endið á 1 umf með st, klippið frá.

HEKLAÐUR FERNINGUR:
Það eru 4 mismunandi litasamsetningar á ferningunum.
Ferningur-1: Litur-1 = kóral, litur-2 = skærgulur.
Ferningur-2: Litur-1 = appelsínugulur, litur-2 = kóral.
Ferningur-3: Litur-1 = millibleikur, litur-2 = appelsínugulur.
Ferningur-4: Litur-1 = skærgulur, litur-2 = millibleikur.

Heklið 4 ll með lit-1 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, 8 fl um hringinn, endið með 1 kl í fyrstu fl
UMFERÐ 2 (Skiptið yfir í lit-2): Heklið 5 ll (= 1 fl + 4 ll), * 1 fl í næstu fl, 4 ll *, endurtakið frá *-* alls 7 sinnum og endið með 1 kl í 1. ll í byrjun umf = 8 fl með 4 ll á milli.
UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, heklið nú þannig um hvern ll-boga: 1 fl, 1 hálf-st, 2 st, 1 hálf-st og 1 fl, endið umf með 1 kl í ll í byrjun umf 8 blöð. Klippið frá.
UMFERÐ 4 (Skiptið yfir í litinn natur): Heklið 1 fl efst á fyrsta blaðinu, * 8 ll, 1 fl efst á næsta blaði, 3 ll, 1 fl efst á næsta blaði *, endurtakið frá *-* út umf, en endið með 1 kl í kl í byrjun umf.
UMFERÐ 5: * Um ll-boga í horni er heklað þannig: Heklið 5 st + 2 ll + 5 st, 4 st í næsta ll-boga * endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, endið með 1 kl í fyrsta st í byrjun umf, klippið frá. 1 ferningur = ca 10 x 10 cm.
Heklið nú 2 ferninga af hverri litasamsetningu.
Saumið þá saman kant í kant með 1 spori í hverja l í þessari röð: Ferningur-1, ferningur-2, ferningur-3, ferningur-4, ferningur-1, ferningur-2, ferningur-3 og ferningur-4 – að lokum er ferningur-4 saumaður á móti ferningi-1 svo að það myndist hringur.

AXLARÓL:
Heklið 5 ll með litnum kóral með heklunál nr 3,5 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið nú 1 fl í hverja l þar til stykkið mælist ca 75 cm. Klippið frá og festið enda. Heklið 2 alveg eins axlarólar.

FRÁGANGUR:
Saumið saman hringinn með ferningum efst á töskunni – saumið kant í kant með 1 spori í hverja l – látið rönguna á ferningunum standa út þegar saumað er saman (þetta verður brotið saman niður með töskunni síðar). Heklið 1 umf með litnum dökk bleikur og st efst á ferningunum – það eiga að vera 1 st í hvern st og 1 st í hverja ll = 16 st hver ferningur = 128 st alls. Skiptið yfir í litinn natur, heklið 1 umf með 1 st í hvern st. Klippið frá og festið enda.
Brjótið niður uppábrotnu ferningana yfir töskunna.
Festið 1 axlaról í hvora hlið á töskunni þannig (sjá einnig mynd): Þræðið endann á axlarólinni frá röngu og út í gegnum efsta hornið til vinstri á 1 ferningi, setjið 1 hnút á endann á axlarólinni, svo að hún sitjið föst. Hoppið yfir 1 ferning og þræðið hinn endann á axlarólinni frá röngu og út í gegnum efsta hornið til hægri á næsta ferningi, setjið 1 hnút.
Festið hina axlarólina á sama hátt í hina hliðina á töskunni.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 139-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Julia wrote:

I don’t understand where I’m supposed to measure the height of the bag from. I understand the instructions to mean 32 cm from the center of the ring that started the bag, but I’ve reached that height already after 34 rounds (= building up to 128 stitches + 3 x the pattern) and in the pictures the bag clearly has more rounds. My crocheting is spot on, 17 dc = 10 cm wide, circumference ca. 80 cm. Writing from Sweden, but using American instructions because I learned crochet from YouTube.

10.06.2023 - 12:24

DROPS Design answered:

Dear Julia, measure the bag from the center down (from 1st round) and stop when it measures 32 cm (even if the pattern is not done, adjust after a round with dc). The number of rounds might depend on your tension, do you have the correct tension for the square? Happy crocheting!

12.06.2023 - 09:37

country flag Annick wrote:

Ik begrijp het volgende niet bij de uitleg over de tas : Ga verder met 1 stokje meer tussen het meerderen iedere toer tot er 120 stokjes op de toer zijn ? Moet ik van 50 stokjes naar 120 stokjes gaan ? Elke toer 1 stokje meerderen ?

13.02.2022 - 12:25

DROPS Design answered:

Dag Annick,

De manier van meerderen zoals dat gedaan wordt in toer 4 en 5 zet je voort, dus je meerdert in de 6e toer 2 stokjes in iedere 5e steek, in de 6e toer meerder je 2 stokjes in iedere 6e steek, enzovoorts.

17.02.2022 - 11:45

country flag Claudia wrote:

Die Anleitung für die Träger verstehe ich leider nicht. Kann mir jemand helfen? Danke

08.09.2019 - 08:01

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, schlagen Sie 5 Luftmaschen und schliessen Sie mit 1 Kettmasche zu einem Ring; dann häkeln Sie 1 feste Masche in jede Luftmasche (= 5 fM), am Ende der 1. Runde häkeln Sie keine Kettm, sondern 1 feste Masche in die 1. feste Masche der 1. Runde, und immer so weiterhäkeln: 1 feste Masche in jede Masche bis die Träger ca 75 cm misst. Viel Spaß beim häkeln!

09.09.2019 - 08:38

country flag Rebecca wrote:

Bei den Vierecken steht dass man einen Luftmasche machen soll und dann um den Ring (welcher Ring?) feste Maschen häkeln soll?! Muss man diese 1. runde mit einem magic Ring beginnen???

20.07.2019 - 22:42

DROPS Design answered:

Liebe Rebecca, leider fehlte am Anfang der Anleitung für die Vierecke (vor der 1. Runde), dass 4 Luftmaschen angeschlagen werden und diese mit 1 Kett-Masche in die 1. Luftmasche zum Ring geschlossen werden. Dies wurde nun ergänzt. Um diesen Luftmaschenring häkeln Sie dann die 1. Runde. Viel Spaß beim Weiterhäkeln!

20.07.2019 - 23:51

country flag Rosemarie Andrews wrote:

You make it hard to order yarn I ordered a set of yarn for the Sicily bag 139-13 You sent me the wrong colors I would like to try again With the set of colors on the photo Red orange white pink raspberry yellow But you make it too hard to order

31.12.2017 - 10:58

country flag Dorien Middelkoop wrote:

Bij de gehaakte vierkantjes; welke kleur bedoelen jullie bij vierkantje D met abrikoos? Bij materiaal staat die kleur niet bij.... wel naturel, koraal, oranje, geel en roze.

16.03.2016 - 19:09

DROPS Design answered:

Hoi Dorien. Dat is een foutje en moet roze zijn. Het patroon is aangepast. Bedankt voor het melden.

23.03.2016 - 14:42

country flag Annet wrote:

De tas is bijna af.Ik moet alleen de schouderband nog. Ik snap de uitleg alleen niet :-( In de rondte gehaakt???

19.02.2014 - 22:43

DROPS Design answered:

Hoi Annet. De schouderband is een buisje. Dus je haakt inderdaad in de rondte: Haak 5 l met koraal en vorm een ring met 1 hv in de 1e l. Haak 1 v in iedere st in de rondte tot het werk ongeveer 75 cm meet.

20.02.2014 - 09:56

country flag Stine wrote:

Hvor mange garnnøgler af hver farve skal man bruge, sådan ca?

15.05.2012 - 13:17

DROPS Design answered:

Det er en fejl at der ikke står det. Det bliver lagt ud med det samme :)

25.05.2012 - 10:50

country flag Gunvor B wrote:

Mycket fin sommarväska, som kan varieras i oändlighet.

01.03.2012 - 15:02

country flag Dea wrote:

Sono contenta che il mio suggerimento per il nome sia stato scelto :) in questo modello è racchiusa (secondo me) la bellezza dei colori della Sicilia, ma anche il profumo :)

26.01.2012 - 20:36