DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Baby 21-39
DROPS Design: Mynstur nr Z-084-by
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
200-200-250 (250-300) gr litur nr 8120, gallabuxnablár

DROPS PRJÓNAR NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 34 umf með garðaprjóni með 2 þráðum verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA NR 521: 5-5-5 (6-6) st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚTAUKNING (á við um hálsmál):
Aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 kantlykkju með garðaprjóni. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. að prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan þannig að ekki myndist gat).
ATH: Síðasta lykkja í hálsmáli er prjónuð aðeins fast svo að kanturinn verði fallegur.

HNAPPAGAT:
1. hnappagat = fellið af 1 l og sláið 1 sinni uppá prjóninn í næstu umf yfir þá l sem felld var af.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá hlið, frá ermi að ermi.

HÆGRI ERMI:
Fitjið laust upp
26-28-28 (30-30) l (= neðst á hægri ermi) á prjóna nr 5 með 2 þráðum Alpaca.
Prjónið GARÐAPRJÓN- sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 l hvoru megin, endurtakið þetta í öðrum hverjum cm alls 6-6-8 (9-11) sinnum = 38-40-44 (48-52) l. Þegar stykkið mælist 17-18-20 (24-28) cm fitjið laust upp 27-29-34 (39-42) nýjar l í byrjun og lok umf fyrir fram- og bakstykki = 92-98-112 (126-136) l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 9-10-11 (12-13) cm frá þeim stað þar sem fitjað var upp fyrir fram- og bakstykki (stykkið mælist 26-28-31 (36-41) cm frá uppfitjunarkanti neðst á ermi).
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið slétt yfir fyrstu 46-49-56 (63-68) l á prjóni (= framstykki) og setjið 46-49-56 (63-68) l sem eftir eru á þráð (= bakstykki). Setjið prjónamerki í síðustu umf, bakstykkið er nú mælt héðan.

FRAMSTYKKI:
= 46-49-56 (63-68) l. Snúið við og fellið af fyrstu 6-6-6 (7-7) l á prjóni fyrir hálsmáli. Fellið nú af fyrir hálsmáli í hverjum cm: 1 l alls 3 sinnum – fellið af með því að prjóna saman 2 l innan við 2 kantlykkjur = 37-40-47 (53-58) l á prjóni. Prjónið þar til breiddin á framstykki = 12,5-14-15,5 (17-18,5) cm. Í næstu umf er fellt af 5-5-5 (6-6) fyrir HNAPPAGAT jafnt yfir – sjá útskýringu að ofan – ATH: Efsta hnappagatið við hálsmál er fellt af eftir 2 l frá kanti í hálsmáli. Prjónið nú 4 umferðir garðaprjón og fellið af.

BAKSTYKKI:
Setjið til baka þær 46-49-56 (63-68) l af þræði á prjóninn og prjónið slétt í hverri umf þar til stykkið mælist 7-8-9 (10-11) cm frá prjónamerki á bakstykki.
Geymið stykkið og prjónið vinstra framstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið laust upp 37-40-47 (53-58) l á prjóna nr 5 með 2 þráðum Alpaca. Prjónið slétt í hverri umf þar til stykkið mælist 4-4,5-5 (5,5-6) cm. Aukið áfram út í vinstri hlið í hverjum cm: 1 l alls 3 sinnum – lesið ÚTAUKNING! Þegar stykkið mælist 6-6,5-7 (7,5-8) cm eru fitjaðar upp 6-6-6 (7-7) l í vinstri hlið = 46-49-56 (63-68) l .
Þegar búið er að auka út allar l fyrir hálsmáli eru stykkin prjónuð saman – sjá FRAM- OG BAKSTYKKI – að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið inn þær 46-49-56 (63-68) l frá bakstykki á sama prjón og vinstra framstykki = 92-98-112 (126-136) l á prjóni. Setjið 1 nýtt prjónamerki í stykkið – héðan er nú mælt! Prjónið áfram þar til stykkið mælist 9-10-11 (12-13) cm. Fellið laust af í byrjun næstu 2 umf 27-29-34 (39-42) l á hvorri hlið = 38-40-44 (48-52) l eftir á prjóni fyrir vinstri ermi – héðan er nú mælt. Þegar stykkið mælist 2-3-1 (3-3) cm fellið af 1 l í hvorri hlið, endurtakið í öðrum hverjum cm alls 6-6-8 (9-11) sinnum = 26-28-28 (30-30) l á prjóni. Fellið laust af þegar ermin mælist 17-18-20 (24-28) cm (stykkið mælist ca 59-64-71 (82-93) cm frá ermi til ermi).

HÁLSMÁL:
Prjóni upp frá réttu ca 40 til 50 l í kringum hálsmál á prjóna nr 5 með 2 þráðum. Prjónið 3 umf slétt fram og til baka, fellið síðan laust af.

FRÁGANGUR:
Brjótið saman stykkið tvöfalt á öxlum og saumið erma- og hliðarsauma í eitt yst í lykkjubogann þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið tölur í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 27.09.2012
Engin villa í mynstri en það hafa verið gerðar breytingar til þess að einfalda verði að skilja mynstrið: HÆGRI ERMI: Setjið prjónamerki í síðustu umf á bakstykki – héðan er nú mælt. BAKSTYKKI: Setjið til baka þær 46-49-56 (63-68) l af bandi á prjóninn og prjónið sléttprjón í hverri umf þar til stykkið mælist 7-8-9 (10-11) cm frá prjónamerki á bakstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið laust upp 37-40-47 (53-58) l á prjóna nr 5 með 2 þráðum af Alpaca. Prjónið slétt í hverri umf þar til stykkið mælist 4-4,5-5 (5,5-6) cm. Aukið áfram út á vinstri hlið í hverjum cm: 1 l alls 3 sinnum – lesið ÚTAUKNING! Þegar stykkið mælist 6-6,5-7 (7,5-8) cm eru fitjaðar upp 6-6-6 (7-7) l á vinstri hlið = 46-49-56 (63-68) l . Þegar búið er að auka út allar l fyrir hálsmáli eru stykkin prjónuð saman – sjá FRAM- OG BAKSTYKKI – að neðan.
Yfirfarið á vefsvæði: 31.05.2019
Leiðrétting - FRAMSTYKKI: Prjónið nú 4 umferðir garðaprjón og fellið af.

Mynstur

symbols = prjónastefna
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Grey Gosling

Esther, Netherlands

B21-39 Grey Gosling

Thundymac, Australia

Babyoutfit

Wolkje, Åland Islands

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-39

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (109)

country flag Melanie wrote:

Hallo, eine sehr schöne Jacke die ich gerne nachschicken möchte. Ich verstehe nur nicht warum mit 2 Fäden am Ärmel begonnen wird, wird die ganze Jacke mit doppelter Wolle gestrickt? Oder nur das Bündchen? Kann sie alternativ auch mit Merinowolle gestrickt werden? Danke!

13.06.2018 - 08:56

DROPS Design answered:

Liebe Melanie, die ganze Jacke wird mit 2 Fäden gestrickt - siehe Maschenprobe. Gerne können Sie auch mit 2 Fäden BabyMerino oder 1 Faden BigMerino stricken - benutzen Sie unseren Garnumrechner. Viel Spaß beim stricken!

13.06.2018 - 12:02

country flag Novello wrote:

Please would you add extra diagrams to help with this pattern. I am an experienced knitter but I’m finding this pattern terribly confusing. It is not explained clearly enough. It would help enormously if extra diagrams were added to show exactly how this is knitted and how it fixes together. I am half way through knitting it at the moment and I’m scratching my head trying to figure out how this will work.

04.04.2018 - 09:04

DROPS Design answered:

Dear Mrs Novello, this jacket is worked sideways starting from the right sleeve. You increase for sleeve then cast on new sts on each side for front and back piece. Then continue working only on front piece sts (put the sts for back piece on a st holder). When sts for front piece have been cast off, slip sts for back piece back on needle and work 7-11 cm (see size) and put aside. Work now left front piece and work then left front piece together with back piece until side: cast off sts for front and back piece and continue with left sleeve with dec to the wrist. Happy knitting!

04.04.2018 - 09:13

country flag Dani Toole wrote:

Just finishing the left front and getting ready to attach to the body..which is the right side?? Are the increases on the left or right side???

11.01.2018 - 16:19

DROPS Design answered:

Hi Dani, When you have the left front piece on a table, flat in front of you, the left hand side of the piece will have the increases for the neck if you are looking at the right side. Happy knitting!

12.01.2018 - 07:51

country flag Ria De Klerk wrote:

In het patroon Baby 21-39 zit er volgens mij een fout bij de beschrijving van de tweede mouw. Er staat elke cm 1 steek minderen aan weerszijden. Bij de beschrijving van de eerste mouw staat dat gemeerderd moet worden elke 2 cm. Dus moet m.i. bij de tweede mouw elke 2 cm geminderd worden.

14.12.2017 - 12:25

country flag Dirk wrote:

Ich habe eben angefangen, die Jacke zu stricken in Größe 12-18 Monate Und habe schon mit dem Ärmel Probleme Nach 5 cm soll man links und rechts eine Masche zunehmen, und dann 8 mal wieder holen, alle 2cm, macht für mich 16 cm cm. Plus die 5 cm macht es 21 cm. Nun soll man nach 20cm aber auch schon dies Maschen für das Vorder - und Rückenteil. Wie soll das denn gehen?

15.10.2017 - 17:56

DROPS Design answered:

Lieber Dirk, die 1. Zunahmen wird nach 5 cm gestrickt, dann nehmen Sie noch 7 x alle 2 cm, dh: nach 7 cm, nach 9 cm, usw die letzte Zunahme wird beim 19 cm sein. Viel Spaß beim stricken!

16.10.2017 - 09:59

country flag EW wrote:

Hei! En ymmärrä miten vasen etu- ja takakappale yhdistetään.. Jos otan kaikki 126 silmukkaa samalle puikolle ja alan neulomaan niin vasemmasta puolesta tulee tuplasti pidempi kuin oikeasta..?

29.07.2017 - 21:39

DROPS Design answered:

Hei, olen tarkistanut ohjeen ja mitat täsmäävät, eli etukappaleista tulee yhtä pitkät. Kiinnitä aina merkit työhön ohjeen mukaan ja ota mitat merkeistä, kuten ohjeessa opastetaan.

30.08.2017 - 14:19

country flag Amanda wrote:

Hello. I have just finished the left front piece and am getting ready to add the stitches from the body. Should the left front piece be be facing or back side? I'm just confused about how to add the body section. Thank you

15.03.2017 - 18:37

DROPS Design answered:

Dear Amanda, when left front piece is done, work sts on left front piece from RS, then work the sts from back piece = all sts are now worked, insert a marker and continue back and forth on all sts. Happy knitting!

16.03.2017 - 08:38

country flag Meta wrote:

Kan jag använda Big Merino till detta mönster? Alltså sticka med enkel tråd? MVH Meta

31.01.2017 - 10:04

DROPS Design answered:

Hej Meta. Ja, det kan du sagtens, men strik en pröve först saa du har strikkefastheden i orden

31.01.2017 - 15:24

country flag Schön wrote:

Liebes Drops Team, wenn ich für die Jacke das Garn Big Merino nehme, brauche ich doch nur die Hälfte, oder?

31.01.2017 - 08:09

DROPS Design answered:

Liebe Schön, 2 Fäden Alpaca können durch 1 Faden Big Merino erszetzt werden, hier lesen Sie mehr wieviel Garn Sie dann brauchen. Viel Spaß beim stricken!

31.01.2017 - 09:32

country flag René wrote:

Bonjour je suis arrivé au dos et je ne comprend pas comment faire pour laisser le dos en attente ..et tricoter le devant gauche ? mon devant droit manche droite est faite merci

20.01.2017 - 13:20

DROPS Design answered:

Bonjour René, vous glissez maintenant les mailles du dos sur un fil (cf vidéo ci-dessous) et tricotez maintenant seulement les mailles du devant droit jusqu'à la fin du devant. Reprenez ensuite les mailles du dos et tricotez la partie encolure dos et mettez de nouveau ces mailles en attente. Tricotez maintenant le devant gauche, et quand le devant est fait jusqu'à l'épaule, reprenez les mailles du dos sur la même aiguille pour terminer les 2 pièces ensemble jusqu'à la 2ème manche. Bon tricot!

20.01.2017 - 16:43