Litte William`s Body |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð samfella fyrir börn með lasakalínu og norrænu mynstri úr DROPS BabyMerino eða DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS Baby 21-32 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- SNÚIN LYKKJA: Prjónað er í aftari lykkjubogann í stað fremri. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju á undan og á eftir lykkju með prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt. ÚRTAKA-1 (á við um framstykki og bakstykki): Fækkið lykkjum frá réttu um 1 lykkju á eftir og á undan 1 kantlykkju í hvorri hlið þannig: Á eftir kantlykkju: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Á undan kantlykkju: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum frá röngu um 1 lykkju á eftir og á undan 1 kantlykkju í hvorri hlið þannig: Á eftir 1 kantlykkju: 2 lykkjur brugðið snúnar saman. Á undan 1 kantlykkju: 2 lykkjur brugðið saman. ÚRTAKA-2 (á við um ermi): Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, (prjónamerki), prjónið næstu 2 l slétt saman. MYNSTUR Á BERUSTYKKI: Sjá mynsturteikningu M.1-A.3. Prjónið fyrst M.1, M.2 og M.3 1 sinni á hæðina, síðan M.2 að auki 0-0-0 (1-1) sinnum = 25-25-25 (30-30) umf alls. MYNSTUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI/ERMI: Sjá mynsturteikningu M.4 og M.5. Prjónið fyrst M.4 og síðan M.5 1 sinni á hæðina. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SAMFELLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka og síðan í hring. Prjónað er ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 49-57-65 (73-81) l á hringprjóna nr 2 með litnum brúnn. Prjónið stroff fram og til baka (umf 1 = rétta) þannig: * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*, prjónið síðustu l slétt. Þegar stroffið mælist ca 1 cm er næsta umf prjónuð frá röngu slétt – JAFNFRAMT er aukið út um 7-9-11 (13-15) l jafnt yfir í umf = 56-66-76 (86-96) l. Í næstu umf (= rétta) er skipt yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónað þannig: 1 l sl (= miðja að aftan), 7-9-12 (14-16) l sl (= hægra bakstykki), 1 l sl, setjið eitt prjónamerki í þessa l, 8-9-8 (9-10) l sl (= hægri ermi), 1 l sl, setjið eitt prjónamerki í þessa l, 20-24-30 (34-38) l sl (= framstykki), 1 l sl, setjið eitt prjónamerki í þessa l, 8-9-8 (9-10) l sl (= vinstri ermi), 1 l sl, setjið eitt prjónamerki í þessa l, 7-9-12 (14-16) l sl (= vinstra bakstykki), 1 l sl (= miðja að aftan) = alls 4 l með prjónamerki á undan laskalínu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið síðan sléttprjón – JAFNFRAMT er aukið út í næstu umf frá réttu 1 l hvoru megin við hverja l með prjónamerki = 8 nýjar l í hverri útaukningu. Endurtakið útaukningu frá réttu í annarri hverri umf alls 12-12-12 (13-15) sinnum, síðan í 4. hverri umf alls 2-3-4 (4-4) sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-4-5 (5-6) cm frá uppfitjunarkanti er prjónað MYNSTUR Á BERUSTYKKI – lesið útskýringu að ofan. ATH: Nýjar l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þegar stykkið mælist 8-9-9 (10-10) cm frá uppfitjunarkanti eru fitjaðar upp 4 l í lok næstu umf frá röngu (= lykkjur neðst í opi í hálsmáli eru prjónaðar inn í mynstur) – Héðan er prjónað í hring. Þegar MYNSTUR Á BERUSTYKKI hefur verið prjónað til loka (öll útaukning á nú að vera lokið) eru 172-190-208 (226-252) l á prjóni. Framstykki = bakstykki = 48-54-62 (68-76) l. Setjið l á ermar og l með prjónamerki (38-41-42 (45-50) l fyrir hvorri ermi) á þráð. Nú skiptist stykkið, framstykki/bakstykki og ermar eru prjónaðar til loka fyrir sig. FRRAM- OG BAKSTYKKI: Framstykki + bakstykki = 96-108-124 (136-152) l. Prjónið áfram í hring á hringprjóna (umf byrjar í hlið). Í næstu umf er umf 1 prjónuð í M.4 þannig: Fitjið upp 4 l fyrir handveg, prjónið 48-54-62 (68-76) l (= framstykki), fitjið upp 8 nýjar l fyrir handveg, prjónið 48-54-62 (68-76) l (= bakstykki), fitjið upp 4 l fyrir handveg = alls 112-124-140 (152-168) l á prjóni. Í næstu umf (= umf 2 í M.4) er aukið út um 0-4-4 (8-8) l jafnt yfir = 112-128-144 (160-176) l. Haldið áfram með M.4 og síðan M.5 1 sinni á hæðina. Prjónið síðan sléttprjón með litnum brúnn þar til stykkið mælist 15-17-19 (21-23) cm frá handveg (þegar stykkið mælist ca 26-29-32 (35-38) cm alls). Nú skiptist stykkið og fram- og bakstykki er prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 56-64-72 (80-88) l. Prjónið nú fram og til baka (umferð 1 = rétta) í sléttprjóni og fækkið l fyrir opi fyrir fætur þannig: 1 l sl (= kantlykkja), fækkið um 1 l – lesið ÚRTAKA-1 að ofan, prjónið þar til 3 l eru eftir, fækkið um 1 l – lesið ÚRTAKA-1 að ofan, 1 l sl (= kantlykkja). Haldið áfram í sléttprjóni, endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu (= í annarri hverri umf) innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið alls 20-23-27 (30-34) sinnum = 16-18-18 (20-20) l eftir. Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 2 og prjónið stroff (1 l sl, 1 l br) í 1½ cm, fellið LAUST af allar l. FRAMSTYKKI: = 56-64-72 (80-88) l. Prjónið síðan fram og til baka (umferð 1 = rétta) með sléttprjóni og fækkið l fyrir op fyrir fætur þannig: 1 l sl, fækkið um 1 l – lesið ÚRTAKA-1 að ofan, prjónið þar til 3 l eru eftir, fækkið um 1 l – ÚRTAKA-1 að ofan, 1 l sl. Haldið áfram í sléttprjóni og endurtakið úrtöku í hverri umf innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið alls 6-6-8 (8-10) sinnum, síðan í hverri umf frá réttu (= í annarri hverri umf) alls 14-17-19 (22-24) sinnum = 16-18-18 (20-20) l eftir. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2 og prjónið stroff (1 l sl, 1 l br). Í næstu umf frá réttu er fellt af fyrir 3 hnappagöt þannig: Prjónið 1 l , * sláið uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l slétt saman, prjónið 4-5-5 (6-6) l *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l slétt saman, prjónið síðustu l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn. Þegar stroffið mælist ca 1½ cm fellið LAUST af allar l. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður. Setjið inn l af þræði á sokkaprjóna nr 2,5 = 38-41-42 (45-50) l, og fitjið upp 8 l mitt undir ermi = 46-49-50 (53-58) l. Setjið eitt prjónamerki á undan 1. l í umf og látið það fylgja með uppúr (byrjun umf er mitt undir ermi). Haldið áfram með M.4 og síðan M.5 (byrjið á 1. l í mynstureiningu í umf 1 í M.4). Þegar ermin mælist 2-3-3 (3-3) cm er fækkað um 1 l á undan og á eftir prjónamerki – lesið ÚRTAKA-2 að ofan. Endurtakið úrtöku með 1½-1½-2(2½-2½) cm millibili alls 7-7-7 (6-8) sinnum = 32-35-36 (41-42) l. Haldið áfram þar til ermin mælist 12-15-18 (20-23) cm frá handveg. Í næstu umf er fækkað um 0-1-0 (1-0) l = 32-34-36 (40-42) l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2 og prjónið síðan stroff (1 l sl, 1 l br) í 3-3-3 (4-4) cm. Fellið LAUST af allar l. Prjónið hina ermina á sama hátt. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 21-25 l frá réttu meðfram opi á hægra bakstykki með litnum brúnn á sokkaprjóna nr 2. Prjónið stroff (1 l sl, 1 l br) fram og til baka í ca 1½ cm (= hægri kantur að framan, umferð 1 = ranga). Fellið laust af allar l. Endurtakið meðfram opi á vinstra bakstykki, en í 2. umf (= rétta) er fellt af fyrir 3 hnappagötum (1 hnappagat = sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman) jafnt yfir á kant að framan. Þegar stroffið mælist ca 1½ cm fellið laust af allar l. Leggið kant að framan með hnappagötum ofan á hinn neðst í opi í hálsmáli og saumið í gegnum bæði lögin. OP FYRIR FÓT: Prjónið upp frá réttu ca 16 l frá 5 cm meðfram öðru opinu fyrir fót innan við 1 kantlykkju með litnum brúnn á hringprjóna nr 2, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1. Í næstu umf (= ranga) er prjónað þannig: * 1 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-* og endið á 1 l br. Haldið áfram fram og til baka með stroff í 1 cm, fellið síðan laust af allar l. Endurtakið á hinu opinu. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í stroff neðst á bakstykki og í hægri kanti að framan í opi í hálsmáli. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (43)
DROPS Design NL wrote:
Je hebt gelijk. Wij hebben het aangepast. Bedankt.
12.12.2011 - 16:35Joke Serneels wrote:
In het patroon van b21-32 staan de symbolen voor de kleuren bij de telpatronen omgekeerd. In this pattern the color indications for the charts are switched.
12.12.2011 - 15:55Joke Serneels wrote:
In het patroon van b21-32 staan de symbolen voor de kleuren bij de telpatronen omgekeerd. In this pattern the color indications for the charts are switched.
12.12.2011 - 15:54