DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Baby 21-18
DROPS Design: Mynstur nr ME-055-by
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærði í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
100-100-100 (150-200) g litur nr 11, rauður
50-50-50 (100-100) g litur nr 25, bleikur
50-50-50 (100-100) g litur nr 17, kirsuber

DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5 (60 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4 (60 cm) – fyrir stroff.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5 – fyrir ermi.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) til að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 108-120-132 (144-156) lykkjur með litnum rauður á hringprjón 4.
Prjónið síðan stroff þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* í 3-3-3 (4-4) cm. Skiptið síðan yfir á hringprjón 4,5 og haldið áfram í sléttprjóni til loka. Þegar stykkið mælist 4-6-4 (6-6) cm, setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og eitt prjónamerki eftir 54-60-66 (72-78) lykkjur (= hliðar) og látið prjónamerkin fylgja með stykkinu upp úr. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú M.1 alls 2-2-3 (3-4) sinnum á hæðina. Prjónið síðan umferð 1-6 í M.1 1-1-1 (1-0) sinnum og umferð 1-3 í M.2 (stykkið mælist ca 17-19-21 (23-25) cm). Í næstu umferð (= umferð 4 í M.2) eru felldar af 10 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 5 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki), nú skiptist stykkið og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 44-50-56 (62-68) lykkjur. Héðan er nú mælt. Næsta umferð (= rétta) er prjónuð þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón (= kantlykkja), prjónið 5. umferð í M.2 þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, endið með 1 lykkju garðaprjón. Haldið áfram með M.2 með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 7-8-9 (10-11) cm (ATH: Haldið áfram með sléttprjón með litnum kirsuber á eftir síðustu umferð í M.2 til loka). Fellið af miðju 16-18-20 (20-22) lykkjunum fyrir hálsmáli og hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 13-15-17 (20-22) lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 9-10-11 (12-13) cm fellið af allar lykkjur (bakstykki mælist ca 26-29-32 (35-38) cm á lengdina).

FRAMSTYKKI:
= 44-50-56 (62-68) lykkjur. Héðan er nú mælt. Prjónið síðan M.2 með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 5-6-7 (7-8) cm fellið af miðju 14-14-16 (16-18) lykkjur fyrir hálsmáli og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Fellið síðan af í næstu umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 1 lykkju 2-3-3 (3-3) sinnum = 13-15-17 (20-22) lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 9-10-11 (12-13) cm fellið af allar lykkjur.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 28-30-32 (34-36) lykkjur með litnum rauður á sokkaprjón 4. Prjónið síðan stroff þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* í 3-3-3 (4-4) cm. Skiptið síðan yfir í sokkaprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð slétt jafnframt því sem aukið er út um 2-0-4 (2-0) lykkjur jafnt yfir í umferð = 30-30-36 (36-36) lykkjur. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Haldið áfram með sléttprjón þar til stykkið mælist 4-4-6 (7-6) cm. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi) og látið prjónamerkin fylgja með stykkinu áfram upp úr. Prjónið síðan M.1 upp úr. Þegar stykkið mælist 5-5-7 (8-7) cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING að ofan = 2 nýjar lykkjur sem eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Endurtakið útaukningu með 8½-5-6½(4-3½) cm millibili alls 2-4-3 (5-7) sinnum = 34-38-42 (46-50) lykkjur. Prjónið M.1 alls 3-3-3 (4-5) sinnum á hæðina. Prjónið síðan umferð 1-6 í M.1 0-1-1 (0-0) sinnum og umferð 1-3 í M.2. Skiptið nú yfir á hringprjón 4,5 jafnframt því sem prjónuð er 4. umferð í M.2, nú skiptist stykkið við prjónamerki og prjónað er áfram fram og til baka. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin á stykki (= 1 kantlykkja í garðaprjóni), haldið áfram með M.2 á milli kantlykkja og upp til og með umferð 11 í M.2 (merkt með ör í teikningu). Nú eru allar lykkjur felldar af í næstu umferð með litnum kirsuber (stykkið mælist ca 22-24-26 (29-33) cm).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma og saumið ermar í. Prjónið upp meðfram kanti í hálsmáli ca 60-70 lykkjur með litnum rauður á sokkaprjón 4. Í næstu umferð er prjónað slétt jafnframt því sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 60-62-66 (70-74) lykkjur. Prjónið síðan stroff þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* í 3-3-3 (4-4) cm, fellið síðan af allar lykkjur með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Brjótið stroffið niður tvöfalt með sauminn inn og saumið niður á bakhlið.

Mynstur

symbols = rauður
symbols = bleikur
symbols = kirsuber
symbols = 11. umferð í mynsturteikningu M.2
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (36)

country flag Joni wrote:

I love this pattern and want to knit it up for my 18mo daughter. I have some Baby Merino yarn that I want to use up, could I use it for this pattern or would it totally screw up the size? I'm a relatively new knitter.

22.11.2017 - 03:08

DROPS Design answered:

Liebe Joni, this pattern is worked with Merino extra fine that belongs to Yarn group B, while Baby Merino belongs to Yarn group A - you can browse all patterns worked with yarn group A here. Happy knitting!

22.11.2017 - 09:13

country flag Marianne Ålstig wrote:

Varför svarar ni inte på mina frågor?

19.01.2017 - 12:35

DROPS Design answered:

Hej Marianne. Vi pröver at svare alle saa hurtigt vi kan, men i travle perioder kan der vaere ekstra ventetid. Vi skal se paa det saa hurtigt vi kan. Du kan ogsaa altid spörge i din DROPS butik :)

19.01.2017 - 14:19

country flag Marianne Ålstig wrote:

Hej! Jag förstår inte hur ärmen ska sys fast på tröjan? Eftersom arbetet skulle delas vid markören och stickas fram och tillbaka så får jag en öppning längst upp på ärmen. Ska den sys igen eller? Jag förstår inte hur ärmen ska passa till tröjan? Det står också fel i mönstret......byt till rundsticka 4 1/2 och sticka fram och tillbaka??

12.01.2017 - 16:43

DROPS Design answered:

Hej. Resår stickas på sticka 4 och övrigt på sticka 4,5 (enl. mönster) Efter att du har avmaskat 10 m i varje sida så stickas fram och bakstycket färdigt för sig. När det är klart stickar du ärmarna. Under MONTERING ser du att du ska sy axelsömmarna och sy i ärmarna. Lycka till!

22.02.2017 - 12:02

country flag Linn-Evy wrote:

ER det riktig at det skal holde med 150 g rød i str 3-4 år ? Får det får ikke jeg til å gå opp, strikker jeg altfor løst mon tro ?

28.05.2016 - 12:06

DROPS Design answered:

Hej Linn-Evy. Jeg er enig i det nok er lige paa graensen i denne str naar jeg sammenligner med lignende modeller. Jeg skal rette det til.

17.11.2016 - 15:33

country flag Nele wrote:

Ik ben bezig met de mouw in de 2e maat. Ik heb 38 steken op mijn naalden en moet nu M2 beginnen breien. Dit is echter een telpatroon van 12 steken, en 38 is niet deelbaar door 12. Hoe moet ik het patroon over de steken verdelen?

01.03.2016 - 08:34

DROPS Design answered:

Hoi Nele. Je breit 3 complete herhalingen van M2 (= 36 st) en brei dan de laatste 2 st als de 2 eerste st van M2

08.03.2016 - 16:28

country flag Linda wrote:

Bonjour, j'ai choisi ce modèle de pull pour mon petit-fils mais j'ai un problème pour faire suivre les fils. Vu qu'il se tricote avec une aiguille circulaire donc pas de rang tricoté à l'envers, alors est-ce que je dois faire suivre mes fils tout le tour de mon tricot et ça à chaque rang?

03.01.2016 - 22:55

DROPS Design answered:

Bonjour Linda, effectivement, quand on tricote du jacquard en rond, on tricote toujours sur l'endroit, tricotez comme vous en avez l'habitude en faisant suivre les fils sur l'envers (à l'intérieur). Bon tricot!

04.01.2016 - 10:11

country flag Margreeth wrote:

Ik brei deze trui in maat 80/86. De opgegeven hoeveelheid wol in rood is 100 gr. Nu heb ik na het breien van het lijf en 1 mouw geen rode wol meer en moet een extra bol nabestellen. Het is echt nodig om voor deze maat 150 gr aan te geven.

29.11.2015 - 12:29

country flag Jonna wrote:

Hej, Jag håller just nu på med att sticka första ärmen. Har stickat nästan hela med har kört fast vid "sedan delas arb vid markören och det stickas vidare fram och tillbaka på st." Vad menas med detta? Och hur stickar jag vidare efter det? Hittar ingen instruktionsvideo.

01.04.2015 - 19:10

DROPS Design answered:

Hej Istället för att sticka ärmen runt på rundstickor så stickas den nu i fortsättningen fram och tillbaka på "vanliga stickor", fram och tillbaka från markören. Lycka till!

15.05.2015 - 09:47

country flag Linn Maria wrote:

Hei😄 Jeg har akkurat strikket denne genseren, og den ble kjempefin. Nå gjenstår bare å sy på ermene, men jeg er usikker på hvordan jeg skal gjøre det slik at det blir penenst mulig. Skal jeg sy på retten eller på vrangen?

07.01.2015 - 16:45

DROPS Design answered:

Hei Linn. Der er flere maader at sy sammen paa, det er at tage den som du ogsaa selv synes giver det bedste resultat. Men hvad med den her:

08.01.2015 - 15:46

country flag Maja wrote:

Emilia spørger, om M2 ikke skal forskydes, når man har 56 masker på forstykket. Da 56 ikke er deleligt med 12, har man 8 masker til overs. Derfor er man nødt til at forskyde mønsteret og strikke således: Start med de 2 sidste rækker i M2, strik 4 hele M2 og slut med de 6 første rækker i M2. På denne måde passer mønstret bedre, om man får et rosa kryds midt for i stedet for en smule forskudt. Håber dette giver mening.

25.02.2014 - 22:07