DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Baby 21-1
DROPS Design: Mynstur nr BM-038-by
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
150-200-200 (250-250) g litur nr 03, ljós gulur
50-50-50-(50-50) g litur nr 04, gulur

DROPS HRINGPRJÓNN NR 3 (60 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PRJÓNAR NR 2,5 – fyrir kant með garðaprjóni

DROPS HEKLUNÁL 3 – fyrir heklaðan kant

DROPS TRÉTALA LJÓS NR 503: 4 st

SOKKAR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2) ára
Lengd fótar: 10-11-12 (14) cm

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
50-50-50-(50) gr litur nr 04, gulur
50-50-50-(50) gr litur nr 03, ljós gulur

DROPS PRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 52 umferðir með garðaprjóni og 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

DROPS HEKLUNÁL NR 2 – fyrir heklaðan kant

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

STUTTAR UMFERÐIR:
* Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir 24-24-26 (28-28) kantlykkjur að framan, prjónið 2 umferðir garðaprjón einungis yfir síðustu 12-12-13 (14-14) lykkjur. ATH: Í hvert skipti sem snúið er við mitt í umferð er 1. lykkja tekin óprjónuð. Herðið á þræði og prjónið síðan eins og áður. Þetta er gert til að koma í veg fyrir göt í skiptingunum *.

HNAPPAGAT:
Peysan er tvíhneppt og fellt er af fyrir 4 hnappagötum í hægri kanti að framan.
1 HNAPPAGAT = Prjónið fjórðu og fimmtu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í sömu umferð er einnig prjónuð fjórða og fimmta SÍÐASTA lykkja í kanti að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir 2 hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ 1/3 MÁN: 14 og 19 cm.
STÆRÐ 6/9 MÁN: 16 og 21 cm.
STÆRÐ 12/18 MÁN: 18 og 24 cm.
STÆRÐ 2 ÁRA: 20 og 27 cm.
STÆRÐ 3/4 ÁRA: 22 og 30 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Byrjað er á öðru framstykkinu, lykkjur eru fitjaðar upp fyrir ermi og prjónað er upp að öxl. Hitt framstykkið er prjónað og síðan eru bæði framstykkin sett saman á hringprjóna og prjónað er niður yfir bakstykkið.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Fitjið upp 43-47-51 (56-59) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 24-24-26 (28-28) kantlykkjur við miðju að framan) á prjón 2,5 með litnum ljós gulur Baby Merino. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið sléttprjón, en 24-24-26 (28-28) kantlykkjur við miðju að framan halda áfram í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan (umferð 1 = frá röngu). Endurtakið frá *-* 1 sinni í 4. hverjum cm þar til stykkið mælist 19-21-24 (27-30) cm, endurtakið síðan frá *-* 1 sinni í öðrum hverjum cm til loka.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16-17-20 (23-25) cm fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá röngu (að hlið fyrir ermi): 6 lykkjur 2-2-3 (3-3) sinnum, 8 lykkjur 1-1-1 (2-3) sinnum og 21-22-22 (25-26) lykkjur 1 sinni = 84-89-99 (115-127) lykkjur fyrir öxl/ermi. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar allar lykkjur hafa verið fitjaðar upp er haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður JAFNFRAMT eru síðustu 10 lykkjur á ermi einnig prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 27-29-33 (37-40) cm setjið eitt prjónamerki = mitt á öxl. Setjið nú 24-24-26 (28-28) kantlykkjur við miðju að framan á þráð. Fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar frá réttu (að hálsmáli), endurtakið útaukningu í næstu umferð við hálsmál = 64-69-77 (91-103) lykkjur á prjóni. Prjónið 1 umferð frá röngu. Setjið allar lykkjur á þráð.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og vinstra framstykki nema gagnstætt. Að auki er fellt af fyrir HNAPPAGAT meðfram kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. ATH! Lykkjur eru settar á þráð á eftir síðustu umferð með útaukningu (þ.e.a.s. síðasta umferð = frá röngu).

BAKSTYKKI:
Prjónið inn vinstra framstykki á hringprjón, fitjið upp 16-16-18 (20-20) nýjar lykkjur (= aftan í hnakka) og prjónið inn hægra framstykki á hringprjóninn = 144-154-172 (202-226) lykkjur.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT frá PRJÓNAMERKI Á ÖXLUM.
Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni yst á hvorri ermi, fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 8½-9½-10 (10-11) cm byrjar úrtaka á ermum. Fækkið lykkjum í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 21-22-22 (25-26) lykkjur 1 sinni, 8 lykkjur 1-1-1 (2-3) sinnum og 6 lykkjur 2-2-3 (3-3) sinnum = 62-70-76 (84-90) lykkjur á prjóni. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist ca 26-28-32 (36-39) cm – brjótið stykkið saman tvöfalt við prjónamerkin á öxlum og passið uppá að bakstykkið sé jafn langt og framstykki niður að garðaprjóni, skiptið yfir á prjón 2,5 og prjónið 6 umferðir garðaprjón, fellið síðan af.

FRÁGANGUR:
Saumið erma- og hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í.

HETTA:
Prjónið upp ca 102-106-112 (118-122) lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði að framan – ATH: Ef prjónaðar eru upp fleiri/færri lykkjur en þetta er fækkað/aukið jafnt yfir í umferð 1. Haldið áfram í garðaprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT í hvorri hlið í öðrum hverjum cm eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan. Fellið af þegar hettan mælist ca 21-23-25 (27-28) cm. Saumið hettuna saman fallega á toppnum – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant í kringum alla peysuna.
Byrjið neðst á hægra framstykki og heklið með 2 þráðum í litnum gulur með heklunál 3 þannig: Heklið 1 fastalykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, hoppið yfir ca ½ cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-*.
Heklið alveg eins kant í kringum opið á ermum.

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan og saumað saman í lokin.

SOKKUR:
Fitjið upp 48-52-56 (56) lykkjur á prjóna nr 2,5 með 2 þráðum í litnum gulur. Takið frá annan þráðinn og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5-6-6-7 (7) cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu jafnframt er fækkað um 14-14-18 (14) lykkjur jafnt yfir = 34-38-38 (42) lykkja. Í næstu umferð er umferð yfir hæl prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* og endið á 1 lykkju slétt. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Setjið síðustu 12-13-13 (15) lykkjur í hvorri hlið á þráð (ofan á fæti). Prjónið 4 - 4½ - 5½ (6½) cm sléttprjón yfir hællykkjur 10-12-12 (12) lykkjur. Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið upp 10-11-13 (16) lykkjur hvoru megin við hæl = 54-60-64 (74) lykkjur á prjóni. Prjónið 3-4-5 (5) cm í sléttprjóni í hverri umferð yfir allar lykkjur jafnframt eftir 1½ - 2 - 2½ (3) cm er lykkjum fækkað í annarri hverri umferð til loka þannig: Fækkið um 1 lykkju í byrjun og enda stykkis og prjónið 2 lykkjur slétt saman hvoru megin við 2 miðju lykkju.
Fellið af og saumið saman undir fætiog upp að aftan yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

SNÚRA:
Klippið 3 þræði í litnum ljós gulur ca 1 meter, tvinnið þá fast saman, leggið þræðina saman tvöfalt og látið þá snúast aftur saman, hnýtið hnút í báða enda. Þræðið snúruna upp og niður í gataumferðina á sokknum.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant efst á sokknum með heklunál nr 2 í litnum ljós gulur þannig: Heklið 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju hoppið yfir ½ cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju á sokknum *, endurtakið frá *-* og endið á 1 keðjulykkju í fastalykkju í byrjun á umferð.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.07.2014
Nýtt efnismagn í stærð: 6/9 mán, 2 og ¾ ára. Efni: DROPS BABY MERINO frá Garnstudio 150-200-200 (250-250) gr litur nr 03, ljós gulur.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (275)

country flag Sy wrote:

Ich muss leider sagen, das ich diese Anleitung sehr verwirrend finde.\r\nDie Anleitung macht für mich keinen Sinn.\r\nZ.B. verkürzte Reihe, warum und wie? Wird die Jacke in einen Stück gestrickt?\r\nWird beim Halsausschnitt Maschen abgenommen ?\r\nDanke

30.07.2020 - 14:04

DROPS Design answered:

Liebe Sy, die Arbeit wird auf einer Rundnadel hin und zurück gestrickt. Am Vorderteil anfangen, für den Ärmel aufnehmen und bis zur Schultern stricken. Danach das zweite Vorderteil stricken. Die Teile zusammenhängen und das Rückenteil nach unten stricken. Wenn man kraus rechts strickt, braucht mann mehr Reihen in der Höhe als für glatt rechts, deshalb wird man die VERKÜRZTE REIHEN stricken. Viel Spaß beim stricken!

30.07.2020 - 15:43

country flag Christina Peeters wrote:

Wat een leuke babypatronen... Ik ga ze eerst uitgebreid bestuderen , kiezen en materiaal bestellen. Sper....

18.07.2020 - 10:49

country flag Maripola wrote:

Hallo! Ich verstehe nicht, wie ich 102 Maschen um den Halsausschnitt (kleinste Größe) aufnehmen soll. Ich habe 24 l. kraus +16 am Nacken+24 r. = 64M, nicht 102, und "um den Halsausschnitt" ist das auch nicht. Wenn ich an den Vorderkanten 43 l.+16 am Nacken +43 r. aufnehme, dann kann ich zwar "um den Halsausschnitt" auf 102M. stricken, aber die Krausrichtung ist dann nicht die gleiche wie vorne, sondern quer! Das kann also nicht gemeint sein; aber wie komme ich dann richtig auf 102 Maschen?

21.04.2020 - 23:15

DROPS Design answered:

Liebe Maripola, diese 102 M sollen Sie um den Halsausschnitt aufnehemen: die stillgelgeten 24 Maschen + noch weitere Maschen (in den neuen angeschlagen Maschen (2 x 2 M) gegen Hals) + 16 M am Hals Rückenteil und einige Maschen in den neu angeschlagenen Maschen vom li. Vorderteil + die 24 stillgelegten Maschen = ca 102 M, wenn Sie aber weniger Maschen aufgenommen haben, ist es auch nicht schlimm, einfach Zunahmen regelmäßig verteilt bei der 1. Reihe stricken. Viel Spaß beim stricken!

22.04.2020 - 08:33

country flag Anne-marie JOUGLEUX wrote:

1/Il est indiqué (en rouge) que ce modèle a fait l\\\'objet de corrections, je ne les ais pas trouvées.\\r\\n\\r\\n2/ Quel est l\\\'intérêt de l\\\'aiguille circulaire ?

16.03.2020 - 15:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Jougleux, si vous avez imprimé les explications après la date des corrections, elles sont justes, si vous les avez imprimé avant cette date, vous pouvez les imprimer à nouveau ou vérifier les corrections concernées. On tricote en allers et retours sur aiguille circulaire pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles. Bon tricot!

16.03.2020 - 15:56

country flag Birgit wrote:

Also die rechte Seite stricken, dann in der Rückreihe noch die Blende stricken und dann 2 Maschen zunehmen,die Blende stillegen, wieder rechte Seite stricken und in der Rückreihe direkt am Anfang 2 Maschen zunehmen? Stehe leider gerade auf dem Schlauch. Verstehe teilweise die übersetzten Begrifflichkeiten wie gegen den Hals nicht. Lieben Dank für die lieben , kompetenten Antworten.

03.03.2020 - 11:36

DROPS Design answered:

Liebe Birgit, also nein nicht genau, beim linken Vorderteil muss man so stricken: am Anfang einer Rückreihe die ersten 24-28 M (siehe Größe) (= Blendemaschen) stricken und diese Maschen stilllegen, die Reihe bis zur Ende stricken, wenden und die Hinreihe stricken, am Ende dieser Hinreihe nehmen Sie 2 neuen Maschen an = 64 bis 103 M, wenden die nächste Rückreihe stricken und alle diese Maschen stilllegen (Entschuldiung, ich war schon am rechten Vorderteil :) Viel Spaß beim stricken!

03.03.2020 - 11:49

country flag Birgit wrote:

Folgendes verstehe ich nicht. Wo müssen die 2 Maschen zugenommen werden? Was bedeutet gegen Vorderseite?Jetzt die 24-24-26 (28-28) Blendenm auf einen Hilfsfaden legen. Weiter am Schluss der R., gegen Vorderseite 2 neue M. anschlagen (gegen den Hals). Bei der nächsten R. wiederholen = 64-69-77 (91-103) M. 1 R. auf der Rückseite stricken und danach die M. auf einen Hilfsfaden legen.

03.03.2020 - 03:32

DROPS Design answered:

Liebe Birgit, die 2 neuen Maschen sollen gegen Halsausschnnitt angeschlagen werden (diese Maschen sind für den Hals am Rückenteil), dh beim rechten Vorderteil werden diese 2 Maschen am Ende einer Rückreihe angeschlagen. Viel Spaß beim stricken!

03.03.2020 - 10:46

country flag Rosemiek wrote:

Er staat bij het patroon van de slofjes ( bijna op het eind van de beschrijving) : minderen tot het werk klaar is. Dit vind ik onduidelijk: wanneer is het klaar? waarom staat er niet hoeveel naalden of hoeveel centimeter?

10.02.2020 - 18:40

DROPS Design answered:

Dag Rosemiek,

In de regel er boven staat dat je 3-4-5 (5) cm moet breien in ribbelsteek. In dit stuk minder je de hele tijd tot je die lengte hebt gebreid.

12.02.2020 - 20:56

country flag VERONIQUE wrote:

Bonjour, je suis entrain de tricoter la capuche; pour la taille 3, il est dit de rabattre après 25 cm de hauteur; cette dimension est prise au niveau du milieu du dos ou sur le coté de la bordure,là où il y a les rangs raccourcis??? merci pour cette précision.

28.07.2019 - 16:25

DROPS Design answered:

Bonjour Veronique! Cette dimension est prise là où il y a les rangs raccourcis (au bord). Bon tricot!

29.07.2019 - 17:36

country flag Millie wrote:

Meet ik het voorpand aan de kant van de voorbies of aan de andere kant. Door de verkorte is de voorbies kant namelijk langer dan de andere kant. Dankjewel!

26.05.2019 - 10:17

DROPS Design answered:

Dag Millie,

Je meet deze inderdaad niet over de voorbies maar meer aan de zijkant.

31.05.2019 - 16:23

country flag Sadie wrote:

Im still quite new to aspects of knitting and so, this may sound like a silly question but, what is meant by band sts? Ive tried looking online but dont know whats right.

08.05.2019 - 23:26

DROPS Design answered:

Dear Sadie, the band stitches are the stitches on the side of the jacket towards opening, where you will work buttonholes (right front piece) and then sew buttons (left front piece), - these stitches are worked in garter stitch, depending on the size you will work 24-26 or 28 sts in garter stitch for the front bands. Happy knitting!

09.05.2019 - 11:09