Sweet Evelina |
|
|
|
Sett með: Vafningspeysu, sokkum og húfu fyrir börn. Settið er prjónað úr DROPS Delight.
DROPS Baby 20-1 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (á við um húfu): Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið er út 1 lykkju á undan og 1 lykkju á eftir prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan). ÚRTAKA (á við um húfu): Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkað er um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki. Setjið 1 lykkju á hjálparprjón aftan við stykkið, takið 1 lykkju óprjónaða (= l með prjónamerki), prjónið næstu lykkju og lykkjur á hjálparprjóni slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á öðru framstykkinu, lykkjur fitjaðar upp fyrir ermi og prjónað er upp að öxl. Hitt framstykkið er prjónað og síðan eru bæði framstykkin sett á sama hringprjón og prjónað er niður yfir bakstykkið. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið laust upp 29-34-38 (41-44) lykkjur á hringprjón 3 með Delight. Prjónið slétt í hverri umferð – JAFNFRAMT í umferð 2 er fitjuð upp 1 ný lykkja við miðju að framan. Endurtakið útaukningu til skiptist í annarri hverri umferð og í 3. hverri umferð alls 18-20-24 (28-30) sinnum = 47-54-62 (69-74) lykkjur. Eftir síðustu útaukningu eru prjónaðar 10 umferðir slétt. Stykkið mælist ca 11-12-15 (17-18) cm. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju við miðju að framan með því að prjóna 2 síðustu umferðir slétt saman. Endurtakið úrtöku í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu): alls 0-0-7 (19-12) sinnum og síðan í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. frá réttu): alls 28-31-29 (21-32) sinnum (nú hefur fækkað um 28-31-36 (40-44) lykkjur). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-18-20 (21-23) cm eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok umferðar að hlið fyrir ermi: 6 lykkjur 2-2-3 (3-3) sinnum, 8 lykkjur 1-1-1 (2-3) sinnum og 21-22-20 (23-24) lykkjur 1 sinni. Eftir alla útaukningu og útröku eru 60-65-72 (86-96) lykkjur á prjóni fyrir öxl/ermi. Þegar stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm setjið 1 prjónamerki = mitt á öxl – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar við hálsmál, endurtakið útaukningu í næstu umferð við hálsmál = 64-69-76 (90-100) lykkjur. Setjið allar lykkjur á þráð. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstra framstykki nema gagnstætt. BAKSTYKKI: Prjónið inn vinstra framstykki af þræði á hringprjóninn, fitjið upp 12-12-16 (16-20) nýjar lykkjur (= aftan við hnakka) og prjónið inn hægra framstykki af þræði á hringprjóninn = 140-150-168 (196-220) lykkjur. MÆLIÐ NÚ STYKKI FRÁ PRJÓNAMERKI Á ÖXLUM. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka. Þegar stykkið mælist 6½-7½-8 (8½-9) cm fækkið nú ermalykkjum þannig: Fækkið lykkjum í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 21-22-20 (23-24) lykkjur 1 sinni, 8 lykkjur 1-1-1 (2-3) sinnum og 6 lykkjur 2-2-3 (3-3) sinnum = 58-66-76 (82-88) lykkjur á prjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 26-28-31 (33-36) cm – brjótið stykkið saman tvöfalt við prjónamerki á öxlum og passið uppá að framstykkin og bakstykkið séu jafn löng – fellið síðan laust af. FRÁGANGUR: Saumið hliðar- og ermasauma kant í kant yst í lykkjubogana. HEKLAÐUR KANTUR. Heklið með Delight og heklunál nr 2,5 í kringum allt opið á peysunni þannig: 1 fastalykkja, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur/4 umferðir garðaprjón, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-*, þegar komið er að horni á framstykki er hekluð snúra þannig: 1 fastalykkja í horni, heklið síðan loftlykkjur í ca 25 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju til baka, heklið síðan 1 fastalykkju aftur í hornið á framstykki, haldið áfram að hekla kant í kringum peysuna fram að horni á hinu framstykkinu, heklið snúru eins og á fyrra framstykki, heklið síðan áfram hringinn á peysunni. Heklið alveg á sama hátt neðst í kringum ermar. Heklið síðan 1 snúru samsvarandi þeirri í hvort horn að innanverðu við saum í hægri hlið og að utan verðu við saum í vinstri hlið - passið uppá að snúrurnar verði í sömu hæð og í hornum á framstykki. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónaður fram og til baka frá miðju að aftan. SOKKUR: Fitjið upp 48-52-56 (56) l á prjóna nr 2,5 með 2 þráðum af Delight. Takið frá annan þráðinn og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt/ 2 lykkjur brugðið) i 5-6-6 (7) cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu jafnframt er fækkað um 14-14-18 (14) lykkjur jafnt yfir = 34-38-38 (42) lykkjur. MEÐ GATAUMFERÐUM: Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, *2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* og endið á 1 lykkju slétt. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. ÁN GATAUMFERÐA: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og umferð brugðið frá röngu. Setjið nú fyrstu og síðustu 12-13-13 (15) lykkjur í hvorri hlið á þráð. Prjónið 4 - 4½ - 5½ (6½) cm með sléttar lykkjur í hverri umferð yfir miðju 10-12-12 (12) lykkjur ofan á fæti. Setjið lykkjur af þræði til baka á prjóninn og prjónið upp 10-11-13 (16) lykkju hvoru megin við miðjustykki = 54-60-64 (74) lykkjur á prjóni. Prjónið 3-4-5 (5) cm með slétt yfir hverja umferð yfir allar lykkjur JAFNFRAMT eftir 1½ - 2 - 2½ (3) cm byrjar úrtaka í annarri hverri umferð til loka þannig: Fækkið um 1 lykkju í byrjun og lok umferðar og prjónið saman 2 lykkjur slétt hvoru megin við 2 miðjulykkjur. Fellið af og saumið sauminn undir fæti og upp við miðju að aftan. Saumið yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Þræðið silkiborða í gegnum gataumferðir. Prjónið annan sokk á sama hátt. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka – prjónað er slétt í öllum umferðum (= garðaprjón). HÚFA: Fitjið upp 119-127-135 (139-145) lykkjur á prjóna nr 2,5 með Delight. Prjónið 6 umf garðaprjón (umferð 1 = rétta). Setjið nú 7 prjónamerki í stykkið (frá réttu) þannig: 1. prjónamerki í 1. lykkju á prjóni. 2. prjónamerki í lykkju nr 22-24-26 (28-31). 3. prjónamerki í lykkju nr 43-47-51 (55-61). 4. prjónamerki í lykkju nr 60-64-68 (70-73). 5. prjónamerki í lykkju nr 77-81-85 (85-85). 6. prjónamerki í lykkju nr 98-104-110 (112-115). 7. prjónamerki í síðustu lykkju á prjóni. Prjónið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT í umferð 1 byrjar útaukning og úrtaka – LESIÐ ÚTAUKNING og ÚRTAKA að ofan! Aukið út um 1 lykkju Á EFTIR 1. prjónamerki í annarri hverri umferð. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 2. prjónamerki í annarri hverri umferð. Aukið út um 1 lykkju Á UNDAN 3. prjónamerki í annarri hverri umferð. Aukið út um 1 lykkju Á EFTIR 3. prjónamerki í 4. hverri umferð. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 4. prjónamerki í 4. hverri umferð. Aukið út um 1 lykkju Á UNDAN 5. prjónamerki í 4. hverri umferð. Aukið út um 1 lykkju Á EFTIR 5. prjónamerki í annarri hverri umferð. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 6. prjónamerki í annarri hverri umferð. Aukið út um 1 lykkju Á UNDAN 7. prjónamerki í annarri hverri umferð. Þegar stykkið mælist 13-15-16 (18-19) cm (mælt neðst við odd við 2. eða 6. prjónamerki) prjónið næstu umferð frá réttu þannig: * 1 lykkjur slétt, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* JAFNFRAMT sem fellt er af. FRÁGANGUR: Bakstykki á húfu = affellingarkantur, þ.e.a.s. 2 heil horn og 2 hálf horn. Miðjan á 3 heilu hornunum í gagnstæðri hlið á stykki (= uppfitjunarkantur) nær niður á ennið að framan. Saumið húfuna saman kant í kant með 1 spori í hverja l meðfram affellingarkanti þannig: Saumið fyrsta hálfa hornið saman við helminginn á fyrsta heila horninu. Saumið síðan hinn helminginn af fyrsta hálfa horninu saman við fyrri helming af öðru heila horninu. Saumið síðan annan helminginn af seinna heila horninu saman við síðasta hálfa hornið. Að lokum er húfan saumuð saman við miðju að aftan – passið að sauma kant í kant þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. SNÚRA: Fitjið upp 4 lykkjur á prjóna nr 2,5 með Delight. Prjónið þannig: * Prjónið 1 lykkju slétt, færið þráðinn að framhlið á stykki (að þér), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, færið þráðinn aftur að bakhlið (frá þér) *, endurtakið frá *-* umferðina út og í öllum umferðum. Núna myndast hringlaga snúra. Fellið af þegar snúran mælist ca 20-22-24 (26-28) cm. Prjónið aðra snúru á sama hátt. Saumið snúrurnar neðst í tveimur hornunum í hliðum. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (68)
Drops Design wrote:
Jo målene stemmer men det er MEGET vigtigt at du har 48p retstrik på 10 cm i højden, ellers vil du nå målene i højden inden du bliver færdig med alle ud og indtagninger.
12.09.2011 - 09:37Silja Schmelling wrote:
Opskriften passer ikke ift. antal m og mål af arb på forstk. Har valgt 0-3 mdr. Der skulle være 28 indtagelser, men ikke nået til endnu, arb måler allerede over 17 cm. Og ift. efter 28 indtagelser, skulle der laves nye masker til ærme og arbejdet ser allerede rimelig lang ud ift placering af ærmet. Er opskriften målt korrekt?
11.09.2011 - 17:16Drops Design wrote:
Jo det stemmer, der hvor der står 0 gange går du jo bare videre i opskriften og fortsætter indtagningerne på hver 2.p
13.04.2011 - 12:01Margrete Bech wrote:
Der er en fejl i opskriften til forstykket til jekken. Antallet af masker der skal tages ind er angivet som: 0-0-7 (19-17) det kan vist ikke være rigtigt. Jeg vil blive meget glad for at få oplyst det rigtige antal. Venlig hilsen
13.04.2011 - 10:45Susanna wrote:
Kiitos, näin arvelinkin!
04.04.2011 - 19:34DROPS wrote:
Etukappaleen lisäykset tehdään kyllä etureunassa. Myöhemmin etureunassa kavennetaan silmukoita, jolloin etukappaleen keskelle muodostuu kärki.
04.04.2011 - 11:17Susanna wrote:
Kuuluisiko etukappaleen alun lisäykset tehdä kappaleen toisessa reunassa? Ohjeessa lukee, että lisäykset tehdään keskelle eteen, mutta eihän kappaleesta silloin tule kuvan mukainen.
03.04.2011 - 10:50Karina wrote:
Vilka fina mönster du har
24.01.2011 - 19:13