Frosty the Bookman |
|
|
|
Heklað bókamerki / snjókarl úr DROPS Alpaca. Þema: Jól
DROPS Extra 0-737 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrstu fastalykkju er skipt út fyrir 1 loftlykkju og hver umferð endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. Snúið er við í hverri umferð með 1 loftlykkju. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 fastalykkju í hvorri hlið með því að hekla 2 fastalykkjur í næst ystu lykkju í hvorri hlhið. 2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN: Fækkið um 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í fastalykkju og sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu fastalykkju og sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BÓKAMERKI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er höfuðið heklað, síðan er haldið áfram niður á við með búkinn. Hendur, hattur, nef og hálsklútur er síðan heklað. Allt er heklað með 1 þræði og með heklunál 2,5. HÖFUÐ: Heklið 4 loftlykkjur með litnum hvítur DROPS Alpaca og tengið í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: 8 fastalykkjur um loftlykkjuhring – lesið HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* = 32 fastalykkjur. Heklið síðan 8 umferðir með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 13: * 2 fastalykkjur, heklið saman 2 fastalykkjur – lesið 2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN – að ofan *, endurtakið frá *-* = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 14: * 1 fastalykkja, heklið saman 2 fastalykkjur *, endurtakið frá *-* = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 15: * heklið saman allar fastalykkjur 2 og 2 = 8 fastalykkjur. Setjið inn smá vatt í höfuðið, heklið síðan opið saman í neðri kanti með því að hekla 4 fastalykkjur í gegnum bæði lögin – ekki klippa þráðinn heldur haldið áfram með búkinn. BÚKUR: Haldið áfram að heklað með litnum hvítur fram og til baka. Fyrsta er hekluð 1 umferð með 2 fastalykkjum í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur. Í næstu umferð er hekluð 1 fastalykkja í hverja fastalykkju jafnframt því sem aukið er út um 1 fastalykkjju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í hverri umferð 2 sinnum til viðbótar og síðan í annarri hverri umferð 3 sinnum = 20 fastalykkjur. Heklið áfram með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til búkurinn mælist 5 cm. Í næstu umferð er fækkað um 1 fastalykkju í hvorri hlið með því að hekla saman 2 næstu ystu lykkjurnar – lesið útskýringu að ofan! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 5 sinnum = 10 fastalykkjur. Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Í næstu umferð er aukið út um 1 fastalykkju aftur í hvorri hlið, endurtakið útaukningu í hverri umferð 3 sinnum til viðbótar og síðan í annarri hverri umferð 5 sinnum = 28 fastalykkjur. Heklið áfram með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til búkurinn mælist alls 15 cm. Í næstu umferð er fækkað um 1 fastalykkju í hvorri hlið, endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð 4 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umferð 4 sinnum = 10 fastalykkjur. Heklið 1 umferð þar sem allar fastalykkjur eru heklaðar saman 2 og 2 = 5 fastalykkjur. Klippið frá og festið þráðinn. HÖND: Heklið 3 fastalykkjur með litnum svartur efst meðfram annarri hlið á búk, heklið síðan 3 fastalykkjur á bakhlið á þessum = alls 6 fastalykkjur. Haldið áfram að hekla í hring og með 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til höndin mælist 6 cm. Heklið síðan 3 fastalykkjur í gegnum bæði lögin. Ekki klippa þráðinn frá heldur haldið nú áfram með fingurna þannig: 5 loftlykkju, snúið, hoppið yfir fyrstu loftlykkju og heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 loftlykkjum, festið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju efst á hendi, * 7 loftlykkjur, snúið, hoppið yfir fyrstu loftlykkju og heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 6 loftlykkjum, 1 keðjulykkja í næstu fastalykkju efst á ermi *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið síðan 1 fingur sem síðasta eins og fyrsti, þ.e.a.s. með 5 loftlykkjum, að lokum er þessi fingur festur í sömu fastalykkju og næst síðasti fingur. Nú eru 4 fingur, klippið og festið þráðinn. Heklið aðra hönd á sama hátt í hinni hliðinni á búknum. HATTUR: Heklið 4 loftlykkjur með litnum svartur og tengið í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: 8 fastalykkjur um loftlykkjuhringinn – lesið LEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 4: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju – ATH. Í þessari umferð er einungis heklað í aftari lykkjubogana þannig að það myndist lítill kantur þar sem kollurinn endar. Heklið síðan 6 umferðir með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju (nú er heklað í gegnum báða lykkjubogana eins og venjulega).7 UMFERÐ 11. Heklið 3 loftlykkjur, síðan 2 stuðla í hverja fastalykkju umferðina hringinn = 48 stuðlar. Klippið og festið þráðinn. Setjið smá vatt í hattinn og saumið niður efst á höfuðið. NEF: Heklið 6 loftlykkjur með litnum appelsína og tengið í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: 6 fastalykkjur um loftlykkjuhringinn. UMFERÐ 2-3: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju. UMFERÐ 4: Heklið saman fyrstu 2 fastalykkjur, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, heklið saman næstu 2 fastalykkjur, 1 fastalykkja í síðustu fastalykkju = 4 fastalykkjur. UMFERÐ 5: Heklið saman allar fastalykkjur 2 og 2 = 2 fastalykkjur. Klippið þráðinn. Setjið smá vatt í nefið og saumið mitt á höfuðið. ANDLIT: Saumið út augu og munn með litnum svartur. HÁLSKLÚTUR: Heklið 4 loftlykkjur með litnum appelsína, snúið og heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 3 loftlykkjum. Heklið síðan rendur þannig: * 2 umferðir með litnum svartur, 2 umferðir með litnum appelsína *, endurtakið frá *-* þar til hálsklúturinn mælist ca 20 cm, klippið þráðinn. Hnýtið hálsklútinn í kringum hálsinn á snjókarlinum. Pressið stykkið létt þannig að búkurinn verði flatur. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (3)
Loredana wrote:
L'ho realizzato, molto bello, spiegazioni chiarissime
22.07.2013 - 15:04DROPS Design wrote:
Det skal være: 28 fm x 38 rader
10.10.2011 - 11:34Marit wrote:
Er heklefastheten den samme som på nissebokmerket? Hvis ikke; hva er den?
06.10.2011 - 08:44