First Snow |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Sett með prjónaðri peysu fyrir börn með hringlaga berustykki og háu hálsmáli, húfu og sokkum með norrænu mynstri úr DROPS Merino Extra Fine
DROPS Baby 19-2 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1-M.4 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið 2. og 3. l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 MÁN: 2, 8, 14, 20 og 26 cm. STÆRÐ 6/9 MÁN: 2, 8, 15, 21 og 28 cm. STÆRÐ 12/18 MÁN: 2, 8, 14, 20, 26 og 32 cm. STÆRÐ 2 ÁRA: 2, 9, 16, 23, 30 og 36 cm. STÆRÐ 3/4 ÁRA: 2, 10, 17, 25, 32 og 39 cm. Fellið einnig af fyrir 1 hnappagati í kant í hálsmáli. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-5 (6-6) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-5 (6-6) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 4-4-4 (5-5) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 4-4-4 (5-5) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 7-9-9 (9-9) l eru eftir á prjóni. ÚRTAKA (á við um sokka): Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 119-133-145 (159-171) l (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3,5 með litnum ljós brúnn. Prjónið 1 umf br frá röngu (þær 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – til loka). Prjónið síðan stroff þannig; frá réttu: 4 kantlykkjur að framan, * 1 l sl /1 l br *, endurtakið frá *-* og endið á 1 l sl og 4 kantlykkjum að framan – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan. Þegar stroffið mælist 4 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 1 umf sléttprjón (kantur að framan er áfram prjónaður í garðaprjóni) JAFNFRAMT er fækkað um 12-14-14 (16-16) l jafnt yfir (ekki er lykkjum fækkað yfir kant að framan) = 107-119-131 (143-155) l. Prjónið síðan M.1 með 4 kantlykkjum að framan í hvorri hlið. Eftir M.1 er prjónað sléttprjón og 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið með litnum ljós brúnn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-26) cm – passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu – prjónið næstu umf þannig: prjónið 26-29-32 (35-38) l (= framstykki), fellið af 6 l fyrir handveg, prjónið 43-49-55 (61-67) l (= bakstykki), fellið af 6 l fyrir handveg, prjónið 26-29-32 (35-38) l (= framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 34-36-38 (38-38) l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum ljós brúnn. Prjónið 1 umf slétt, síðan er prjónað stroff = 1 l sl/1 l br. Þegar stroffið mælist 4 cm er skipt yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 4-6-2 (2-2) l jafnt yfir = 30-30-36 (36-36) l. Prjónið síðan M.1. Eftir M.1 er prjónað sléttprjón með litnum ljós brúnn. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu í 4.-4.-6. (6.-6.) hverri umf 5-7-6 (8-10) sinnum = 40-44-48 (52-56) l. Þegar stykkið mælist 14-16-18 (22-26) cm (útaukningu á nú að vera lokið) fellið af 6 l mitt undir ermi = 34-38-42 (46-50) l á prjóni. Leggið stykkið til hliðar og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 163-183-203 (223-243) l. Prjónið síðan fram og til baka þannig: Prjónið 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 7-11-7 (11-7) l jafnt yfir (ekki er lykkjum fækkað yfir kant að framan) = 156-172-196 (212-236) l. Prjónið 0-1-2 (3-4) cm sléttprjón með litnum ljós brúnn. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan, M.2A yfir næstu 144-160-184 (200-224) l, M.2B (= 4 l) og endið á 4 kantlykkjum að framan. Haldið svona áfram með mynstur, JAFNFRAMT er l fækkað í M.2. Þegar M.2 er lokið eru 81-89-101 (109-121) l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf br frá röngu (kantur að framan eins og áður). Næsta umf er prjónið frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan, * 1 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* og endið á 1 l sl og 4 kantlykkjur að framan. Þegar stroffið mælist 1 cm er öllum 3 l br fækkað í 2 l br. Þegar stroffið mælist 2 cm er öllum 2 l br fækkað til 1 l br = 45-49-55 (59-65) l á prjóni. Peysan mælist nú 28-30-34 (38-41) cm upp að öxl og haldið er áfram með 1 l sl/ 1 l br fyrir hálsmáli (kantar að framan eins og áður). Þegar allt stroffið mælist 6-7-7 (8-8) cm (munið eftir að fella af fyrir síðasta hnappagati á kant að framan þegar stroffið mælist 5-6-6 (7-7) cm) fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring neðan frá og upp. HÚFA: Fitjið upp 88-94-98 (104-106) l á hringprjóna nr 3,5 með litnum ljós brúnn. Prjónið stroff = 1 l sl/ 1 l br þar til stykkið mælist 4-5-5 (6-6) cm. Prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 10-10-14 (14-16) l jafnt yfir = 78-84-84 (90-90) l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5. Setjið 6 prjónamerki í stykkið með 13-14-14 (15-15) l á milli prjónamerkja. Prjónið M.3A. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og með litnum ljós brúnn. JAFNFRAMT er l fækkað hægra megni við öll prjónamerkin með því að prjóna 2 l slétt saman (= 6 l færri í umf). Endurtakið úrtöku (með 1 l færri á milli skipta sem úrtakan er) að auki í annarri hverri umf 3 sinnum = 54-60-60 (66-66) l. Á eftir síðustu umf með úrtöku er prjónað M.3B. Síðan er haldið áfram í sléttprjóni og með litnum ljós brúnn JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hægra megin við öll prjónamerki (= 6 l færri). Prjónið 1 umf án úrtöku og endurtakið síðan úrtöku = 42-48-48 (54-54) l. Prjónið M.3C. Haldið síðan áfram í sléttprjóni með litnum ljós brúnn til loka – JAFNFRAMT er lykkjum aftur fækkað hægra megin við öll prjónamerki. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 3-3-4 (4-5) sinnum = 24-30-24 (30-24) l á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem efir eru og herðið að. DÚSKUR: Gerið einn dúsk með litnum natur að þvermáli ca 4 cm. Saumið dúskinn efst á húfuna. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 34-34-40 (40-40) l á sokkaprjóna nr 3 með litnum ljós brúnn. Prjónið stroff = 1 l sl, 1 l br í 4-4-5 (5-6) cm. Prjónið síðan 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 4 l jafnt yfir = 30-30-36 (36-36) l. Prjónið nú M.4. Eftir M.4 eru prjónaðar 4 umf sléttprjón með litnum ljós brúnn – JAFNFRAMT í umf 1 (á eftir M.4) er fækkað um 2-0-4 (2-0) l jafnt yfir = 28-30-32 (34-36) l. Eftir 4 umf sléttprjón er haldið eftir fyrstu 15-17-17 (19-19) l á prjóni fyrir hæl og hinar 13-13-15 (15-17) l eru settar á þráð (= ofan á fæti). Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hæl-l í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið 1 prjónamerki. Héðan er nú prjónuð HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 7-8-9 (9-10) nýjar l hvoru megin við hæl og l af þræði ofan á fæti eru settar til baka á prjóninn = 34-38-42 (42-46) l. Haldið áfram í sléttprjóni hringinn yfir allar l með litnum ljós brúnn – JAFNFRAMT í umf 1 er lykkjum fækkað þannig: Þær 2 síðustu l á undan 13-13-15 (15-17) l ofan á fæti eru prjónaðar snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) og 2 fyrstu l á eftir 13-13-15 (15-17) l ofan á fæti eru prjónaðar slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 4-6-6 (6-6) sinnum = 26-26-30 (30-34) l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 8-9-9½ (11½-12½) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 2-2-2½ (2½-3½) cm til loka). Setjið 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 13-13-15 (15-17) l bæði ofan á fæti og undir fæti. Fækkið nú lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA: Fækkið l í annarri hverri umf: 2-2-3 (3-5) sinnum og síðan í hverri umf: 3-3-3 (3-2) sinnum = 6 l eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið. Fóturinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (92)
Irene wrote:
Hey, bei Passe wird von M2 gesprochen bei den man Maschen abnimmt. Wo ist das M2?
15.10.2019 - 17:01DROPS Design answered:
Liebe Irene, beide Diagramme M.2A und M.2B finden Sie am Ende der Anleitung; es wird mit 5. Symbol gezeigt, wo man 1 Masche abnimmt (2 M re zs) in beiden Diagramme. Viel Spaß beim stricken!
15.10.2019 - 17:35Meri wrote:
Hola, escribo desde Chile. Estoy en la pechera con el diagrama M2 y me preocupa que las mangas vayan a quedar cortas considerando que uní las mangas de18cms al cuerpo 21cms. Está bien el patrón? El modelo es de cuerpo largo? Gracias!!
11.10.2019 - 18:44DROPS Design answered:
Hola Meri. La mayoria de los patrones para bebés son de cuerpo largo. El patrón y las medidas son correctas.
13.10.2019 - 22:42Giuseppina wrote:
SVP Avez vous la tradution en italien ou en francais ? Merci bien. Giuseppina
04.10.2019 - 19:37DROPS Design answered:
Bonjour Giuseppina. Vous trouvez ici les explications en français. Bon tricot!
05.10.2019 - 08:49Carrie wrote:
I made this sweater set for my latest granddaughter. Using the same colours as posted. It is BEAUTIFUL!
17.02.2019 - 03:48Ann Mürer wrote:
Kan ikke få mønster på bærestykke til at passe. På slut pind 1 i M2A og M2B endes med (efter 2 ret sammen i M2B) 4 m i grundfarven inden forkant. Hvis pind 2 (start af venstre side af blusen) efter forkant strikkes med 4 m inden en natur, kommer naturmasken til at være lige over den fra pind 1 og ikke 1 m før. Der er 5 m i grundfarven efter forkant på højre side af blusen - hvad er galt?
25.10.2018 - 23:21DROPS Design answered:
Hej Ann, de 4 masker strikkes i grundfarven hele pinden rundt. Næste pind strikkes med mønsterfarven x hele pinden rundt og sidste pind i M.2 strikkes i skiftevis grundfarve og mønsterfarve x hele vejen rundt. God fornøjelse!
30.10.2018 - 10:45Guðrún wrote:
Hæhæ. Í peysu uppskriftinni þá er hálsmálið 55 lykkjur ( 12/18 ) en ég er að gera peysuna lokaða svo að spurningin er, er nóg að hafa 55 lykkjur í hálsmálið á lokaðri peysu? Takk fyrir.
26.06.2018 - 17:02DROPS Design answered:
Blessuð Guðrún. Ég myndi hafa nokkrar lykkjur til viðbótar svo að hálsmálið verði ekki of þröngt.
28.06.2018 - 11:37Katka Pataky wrote:
Dorby vecer, chci se jeste zeptat jestli vzory pleteni metodou fair isle vypletani vzoru se rubova strana jenom preplete obratce nebo se take plete vzor i v rubove strabe. Dekuji za odpoved
16.04.2018 - 21:51DROPS Design answered:
Dobrý večer, Katko, záleží na rozložení vzoru - v tomto případě jsou ve schématu zakresleny lícové i rubové řady, pleteme tedy vzor i z rubu; lícové řady pleteme hladce, rubové obrace, barvy střídáme dle rozkresu vzorku. Hodně zdaru! Hana
27.04.2018 - 21:55Katkapataky wrote:
Dobry vecer, kdyz jdu plest vzor M2A a M2B u svetru to je stridam nebo na zacatku pletu MA2 opakovat a pak na konec jednou M2B nebo jako s tymto mam problem. Dekuji za odpoved.
16.04.2018 - 21:25Line wrote:
Quelle est la différence dans le M2A et M2B ? Il me semble que le motif apparaît selon la même suite ?
11.12.2017 - 05:26DROPS Design answered:
Bonjour Line, le diagramme M2B est plus etroit et en plus il y a une certaine difference en haut (derniers rangs). Bon tricot!
11.12.2017 - 09:56Line Larose wrote:
En fait ma question était : est-ce que je dois tricoter 2 fois les 2 premières mailles de chaque côté de la bordure pour ainsi passer de 212 m à 200 ( sans inclure la bordure bien sûr).
08.12.2017 - 16:35DROPS Design answered:
Bonjour Mme Larose, vous tricotez les 212 m ainsi: 3 cm jersey avec 4 m point mousse de chaque côté, puis: 4 m point mousse, 25 x M.2A (= au-dessus des 200 m suivantes, soit 25 x 8 m), 1 x M.2B (= 4 m), et 4 m point mousse. En même temps, au 1er rang de M.2, vous diminuez 1 m dans M.2B et 1 m dans chacun des motifs de M.2A, comme le montre le diagramme. Bon tricot!
08.12.2017 - 17:27