DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9350.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Alaska Cables

Prjónuð peysa úr DROPS Snow með kaðlamynstri við miðju að framan. Stærð S-XXXL.

DROPS 117-18
DROPS Design: Mynstur nr EE-280
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
850-950-1050-1150-1250-1350 gr litur nr 41, milli bláfjólublár.

DROPS PRJÓNAR nr 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l og 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 cm) nr 7 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9350.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá teikningar M.1, M.2 og M.3 – mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu, í mynstri M.2 er lykkjufjöldi frá 17 til 27 l.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

FRAMSTYKKI.
Fitjið upp 61-69-75-83-89-97 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 7 með Snow.
Prjónið þannig (umf 1 = rétta):
STÆRÐ S + L + XXL: Prjónið 1 kantlykkju með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 3 l sl, 4 l br * endurtakið frá *-*, endið á 3 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni.
STÆRÐ M + XL + XXXL: Prjónið 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 4 l br, 3 l sl * endurtakið frá *-*, endið á 4 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Þegar stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm eru allar 4 lykkjur brugðið fækkað í 3 lykkjur brugðið (séð frá réttu) = 53-59-65-71-77-83 l. Haldið áfram með sl í sl og br í br. Þegar stykkið mælist ca 8-8-9-10-10-11 cm (næsta umf prjónuð frá réttu) er skipt yfir á prjóna nr 8. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 9-12-15-18-21-24 l sl, 1 l garðaprjón, 2 l br, prjónið 2 l sl í hverja af næstu 3 lykkjum (þ.e.a.s. að 3 sléttar lykkjur verða 6 sléttar lykkjur), 3 l br, 3 l sl, 9 l br, 3 l sl, 3 l br, prjónið 2 l sl í hverja af næstu 3 l (þ.e.a.s. að 3 sléttar lykkjur verða 6 sléttar lykkjur), 2 l br, 1 l garðaprjón, 9-12-15-18-21-24 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Nú er aukið út um 6 l = 59-65-71-77-83-89 l. Prjónið 1 umf til baka sl í sl og br í br. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 9-12-15-18-21-24 l sl, 1 l garðaprjón, 2 l br, M.1 (= 6 l), M.2a (= 21 l), M.3 (= 6 l), 2 l br, 1 l garðaprjón, 9-12-15-18-21-24 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar mynstur M.2a hefur verið prjónað er haldið áfram með M.2b (M.2b er prjónað 4 sinnum á lengdina).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 25 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið frá réttu með því að prjóna 2 l slétt saman innan við 1 kantlykkju, endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 30 og 35 cm. Þegar stykkið mælist 45 cm er aukið út um 1 l hvoru megin með því að prjóna 2 l í næst síðustu l, endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 50 og 55 cm. Þegar stykkið mælist 62 cm (í öllum stærðum) er fellt af fyrir handveg í byrjun umf í báðum hliðum: Felið af 3 l 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 l 0-1-2-2-2-3 sinnum og 1 l 2-2-2-4-3-3 sinnum. Þegar búið er að prjóna M.2b 4 sinnum á lengdina mælist stykkið ca 72 cm, nú er prjónað M.2c 1 sinni yfir M.2b. Þegar mynstur M.2c hefur verið prjónað eru 49-51-53-55-57-59 l eftir á prjóni. Nú eru 17-17-19-19-21-21 miðju-l settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð fyrir sig – haldið áfram með mynstur eins og áður. Nú er fækkað um 2 l við hálsmál með því að prjóna 3 síðustu l slétt saman, endurtakið úrtöku í annari hvorri umf alls 3 sinnum = 10-11-11-12-12-13 l eru eftir á öxl. Þegar stykkið mælist ca 82-83-84-85-86-87 cm fellið.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 62-68-76-82-90-96 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 7 með Snow.
Prjónið (umf 1 = rétta) þannig:
STÆRÐ S + L + XXL: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 4 l br, 3 l sl * endurtakið frá *-*, endið á 4 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
STÆRÐ M + XL + XXXL: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 3 l sl, 4 l br * endurtakið frá *-*, endið á 3 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Þegar stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm eru allar 4 lykkjur brugðið fækkað í 3 lykkjur brugðið (séð frá réttu) = 53-59-65-71-77-83 l. Haldið áfram með sl í sl og br í br. Þegar stykkið mælist ca 8-8-9-10-10-11 cm er skipt yfir á prjóna nr 8. Haldið áfram í sléttprjóni – Fellið af 4 l jafnt yfir í fyrstu umf = 49-55-61-67-73-79 l. Þegar stykkið mælist 25, 30 og 35 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið á sama hátt og á framstykki = 43-49-55-61-67-73 l. Þegar stykkið mælist 45, 50 og 55 cm er aukið í um 1 l í hvorri hlið á sama hátt og á framstykki = 49-55-61-67-73-79 l. Þegar stykkið mælist 62 cm er fellt af fyrir handvegi í hvorri hlið á sama hátt og á framstykki = 39-41-43-45-47-49 l. Þegar stykkið mælist ca 79-80-81-82-83-84 cm (endið þannig að það eru 3 cm eftir miðað við framstykki) er fellt af 17-17-19-19-21-21 miðjulykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð fyrir sig. Fellið af 1 l í byrjun umf frá hálsmáli = 10-11-11-12-12-13 l eru eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið er jafn langt og framstykki.

ERMI
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 32-32-38-38-38-38 l (meðtalin er 1 kantlykkja á hvorri hlið) á prjóna nr 7 með Snow. Prjónið stroff = 3 l sl, 3 l br með 1 kantlykkju í hvorri hlið í garðaprjóni. Skiptið yfir á prjóna nr 8 þegar stykkið mælist 12 cm, haldið áfram í sléttprjóni – Fellið af 2-0-4-2-0-0 l jafnt yfir umf = 30-32-34-36-38-38 l. Þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu með 6.-6.-5½.-5½.-5.-4. cm millibili, alls 6-6-6-6-6-7 sinnum = 42-44-46-48-50-52 l. Þegar stykkið mælist 47-46-45-44-43-42 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) er fellt af fyrir handveg í byrjun umf hvoru megin: Fellið af 4 l 1 sinni og 2 l 1 sinni, fellið af 1 lykkju í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54 cm. Þá eru felldar af 4 l 1 sinni í hvorri hlið áður en fellt er af. Stykkið mælist nú ca 56 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma.

HÁLSMÁL:
Takið upp 60 til 72 l í kringum hálsmál (deilanlegt með 6, meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á hringprjóna nr 7. Prjónið stroff = 3 l sl, 3 l br – athugið að slétt lykkja passi við slétta lykkju í mynstri M.2 fyrir miðju að framan. Þegar hálsmálið mælist 10 cm er aukið út þannig að allar 3 l sl verða 4 l sl = 70 til 84 l. Prjónið áfram með 4 l sl, 3 l br þar til hálsmálið mælist 20 cm. Nú er aukið út þannig að allar 4 l sl verða 5 l sl = 80-96 l. Prjónið áfram með 5 l sl, 3 l br þar til hálsmálið mælist 25 cm, fellið laust af með sl í sl og br í br.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í, saumið erma og hliðarsauma saman innan við kantlykkju.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt saman, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 3 lykkjur slétt saman af kaðlaprjóni
symbols = KÚLA: Prjónið frá réttu í sömu lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= 3 lykkjur), prjónið 3 umferðir fram og til baka yfir þessar 3 lykkjur, næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru slétt saman
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, aukið út um 3 lykkjur í næstu lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, í lykkju á kaðlaprjóni er aukið út um 3 lykkjur þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 lykkja.
symbols = 2 lykkjur slétt saman.
symbols = 2 lykkjur snúnar slétt saman.
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 117-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (62)

country flag Beatriz Sztain wrote:

I do not understand the neck directions. What do I d o with the 21 stitches I placed on the holder. Do I bind them off or pick them when starting on the collar

23.02.2016 - 04:13

DROPS Design answered:

Dear Mrs Sztain, you will then work them when working collar, see "NECK" at the end of the pattern. Happy knitting!

23.02.2016 - 09:13

country flag Ingrid wrote:

Bedankt voor deze snelle reactie waar ik echt iets aan heb! Als ik het patroon korter wil maken is het dan slim om het gedeelte M2c achter wege te laten en een wat kortere boord te nemen, of is het dan beter om het patroon M2b dan maar 3x te doen in plaats van 4x?

19.01.2016 - 22:38

DROPS Design answered:

Hoi Ingrid. Ik zou M.2B een keer minder breien, maar kijk onderweg hoe het gaat en eruitziet.

22.01.2016 - 15:57

country flag Ingrid wrote:

Sorry, er is nog iets dat ik niet snap. Als ik uit ga van de op te zetten 75 steken, en de stekenverhouding is dat 11 steken 10 cm zijn, dan wordt het voorpand toch 75/11=68 cm breed? en na de eerste mindering 65 st = 59cm. Hoe zit het dan met de 54 cm bij maat L op de tekening?

18.01.2016 - 21:08

DROPS Design answered:

Hoi Ingrid. De stekenverhouding is in tricotsteek. Je breit boordsteek en kabels - dat trekt meer samen en daarom wordt de trui ook strakker.

19.01.2016 - 14:44

country flag Ingrid wrote:

Zijn de cijfers op de tekening in het patroon cm? als de mouw vanaf midden hals 56+19,5=75,5 cm is, reikt deze tot ver over mijn handen, en een lengte van 84cm lijkt inderdaad op een jurkje, en dat lijkt bij de trui op de foto niet zo. Klopt dit?

18.01.2016 - 18:20

DROPS Design answered:

Hoi Ingrid. Ja, de afmetingen zijn in cm. Het is een lange trui, maar is 84 cm te lang, dan neem een kleinere maat of brei korter. Als je een soortgelijke trui hebt, die goed past, neem dan hier de afmetingen af en vergelijk met deze.

19.01.2016 - 14:51

country flag Rianne wrote:

Is het mogelijk om dit model te breien met Cloud? Zo ja, hoeveel gram heb ik dan nodig voor maat L?

24.11.2015 - 22:50

DROPS Design answered:

Hoi Rianne. Ja, dat kan. Lees hier hoe je de hoeveelheid moet berekenen

25.11.2015 - 14:41

Yani wrote:

Ya me di cuenta de mi error. Gracias, está quedando muy lindo!

20.01.2014 - 09:16

Yani wrote:

Precioso pulover! Estoy estancada en el cuello delantero. Estoy tejiendo la talla "S", si dejo en espera 17 pts, luego disminuyo 3 veces 3 en cada hombro, serían 18 + 17= 35 ptos disminuídos. Entonces 49 - 35 = 14, entonces quedarían 7 pts para cada hombro y no 10 pts, no es un poco estrecho? Gracias

14.01.2014 - 18:30

DROPS Design answered:

Hola Yani. Cuando cerramos 3 pts 3 vcs para la forma del escote no disminuimos 9 pts a cada lado sino 6 (unimos 3 pts en uno cada vez). Así que los 17 pts centrales + 6 pts a cada lado = 29 pts. Nos quedaría 49-29 = 20 pts, es decir 10 pts para cada hombro.

16.01.2014 - 09:31

country flag Medina wrote:

Je ne comprends pas l'explication du devant : après les côtes taille M 59 mailles. ensuite après ( 2 x 6 ) comment les tricoter? merci

09.11.2013 - 22:58

DROPS Design answered:

Bonjour Medina, pour tricoter 2 m end dans chacune des 3 m suiv et ainsi augmenter 2 fois 6 m, tricotez chacune des 3 m indiquées en piquant alternativement dans le brin avant et le brin arrière comme dans la vidéo ci-dessous. Bon tricot!

11.11.2013 - 10:38

country flag Linda wrote:

Jeg kan godt se nu at det diagram der ligger online nu ikke er den samme som jeg har. Jeg har bare gjort flere forandringer end jer for at få det til at passe.

14.04.2013 - 11:49

country flag Linda wrote:

Jeg er i gang med at strikke denne flotte sweater. Men har opdaget fejl i diagram M.2b. jeg kan se at der burde være et nyt diagram i jeres rettelser, men hvis det er den i har online nu er den også forkert. For at passe med maske antalet er der 4 for mange snoninger til den yderste ring og der er også flyttet rundt på nogle krydser inde i ringen, omgangen efter de første indtagninger.

14.04.2013 - 10:57