Baby Squirrel |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Sett með prjónaðri peysu fyrir börn með hringlaga berustykki, íkornum og hjörtum ásamt sokkum og buxum með garðaprjóni úr DROPS Alpaca
DROPS Baby 17-18 |
||||||||||||||||
PEYSA: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ---------------------------------------------------------- PEYSA: FRAM- OG BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Fitjið upp 152-172-188 (208-224) l á hringprjóna nr 2,5 með ljós bleikur. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*, endið á 2 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið svona stroff í 3 cm. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 20-24-26 (30-32) l jafnt yfir = 132-148-162 (178-192) l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-18-21 (24-27) cm prjónið næstu umf þannig: 29-33-37 (41-44) l (= hægra framstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, 58-66-72 (80-88) l (= bakstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, 29-33-37 (41-44) l (= vinstra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 40-44-48 (52-56) l á sokkaprjóna nr 2,5 með ljós bleikur. Prjónið stroff = 2 l sl/2 l br í 3 cm. Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 4-6-8 (10-12) l jafnt yfir = 36-38-40 (42-44) l. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = mitt undir ermi. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-4 (5-5) cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu í 5.-5.-5. (6.-6.) hverri umf alls 7-8-9 (10-12) sinnum = 50-54-58 (62-68) l. Þegar stykkið mælist 14-16-18 (22-26) cm eru felldar af 8 l mitt undir ermi (= 4 l hvoru megin við prjónamerki) = 42-46-50 (54-60) l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 200-224-246 (270-296) l. Prjónið 1-1-3 (7-10) umf með ljós bleikur – JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 6-6-4 (4-6) l jafnt yfir = 194-218-242 (266-290) l. Prjónið síðan og fækkið l samkvæmt M.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – byrjið við ör! Þegar M.1 hefur verið prjónað til loka eru 82-92-102 (112-122) l á prjóni og stykkið mælist ca 28-30-34 (38-42) cm upp að öxl. Setjið l á þráð. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið fram og til baka á hringprjóna. Takið upp ca 76-80-88 (100-112) l (deilanlegar með 4) innan við 1 kantlykkju meðfram vinstra framstykki á hringprjóna nr 2,5 með ljós bleikur. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og haldið síðan áfram þannig (séð frá réttu): 1 l garðaprjón, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*, endið á 2 l sl og 1 l garðaprjón. Þegar stroffið mælist 2½ cm fellið af með sl yfir sl og br yfir br. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið eins og vinstri kantur nema eftir 1 cm er fellt af fyrir 4-4-5 (5-5) hnappagöt jafnt yfir – efsta hnappagatið á að vera ca 4 cm frá kanti að ofan og það neðra ca 2 cm frá kanti að neðan. 1 HNAPPAGAT = fellið af 2 l og fitjið upp 2 nýjar l í næstu umf. HÁLSMÁL: Takið upp l með ljós bleikur: 6 l yfir hægri kant að framan, síðan eru l prjónaðar af þræði inn í umf JAFNFRAMT er fækkað um 10-16-22 (28-34) l jafnt yfir. Takið síðan upp 6 l yfir vinstri kant að framan = 84-88-92 (96-100) l. Prjónið 4 umf garðaprjón og haldið síðan áfram þannig (frá réttu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*, endið á 2 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram – JAFNFRAMT þegar stroffið mælist 1 cm er fellt af fyrir einu hnappagati yfir hin á kanti að framan. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar stroffið mælist 2 cm. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum og saumið tölur í. ---------------------------------------------------------- SOKKUR HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-6-6 (7-8) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 6-6-6 (7-8) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-5 (6-7) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-5 (6-7) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 8-10-10 (10-12) l eru eftir á prjóni. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.2 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA: Fækkið l á undan prjónamerki þannig: 2 l slétt saman. Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ---------------------------------------------------------- SOKKUR: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 44-48-48 (52-56) l á sokkaprjóna nr 2,5 með ljós bleikur. Prjónið stroff = 2 l sl/2 l br í 5-5-6 (6-7) cm. Prjónið síðan 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 8 l jafnt yfir = 36-40-40 (44-48) l. Haldið síðan eftir fyrstu 18-20-20 (22-26) l á prjóni (fyrir hæl) og hinar 18-20-20 (22-22) l eru settar á þráð (ofan á fæti). Prjónið sléttprjón í 3-3½-4 (4-4½) cm yfir hæl-l og setjið síðan eitt prjónamerki. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Takið upp 8-9-10 (10-11) l hvoru megin við hæl-l og setjið til baka l af þræði á prjóninn = 42-48-50 (52-56) l. Prjónið síðan sléttprjón – JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 1 l á undan 18-20-20 (22-22) l ofan á fæti með því að prjóna 2 l slétt saman og fækkað er um 1 l á eftir 18-20-20 (22-22) l á ofan á fæti með því að prjóna 2 l snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 3-6-7 (5-7) sinnum = 36-36-36 (42-42) l. Þegar sokkurinn mælist 6-7-8 (10-12) cm frá prjónamerki á hæl er prjónað M.2. Setjið síðan prjónamerki í hvora hlið á sokknum (þ.e.a.s. þannig að það verða 18-18-18 (22-22) l ofan á fæti og 18-18-18 (20-20) l undir fæti. Haldið áfram með natur – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í hverri umf alls 7-7-7 (8-8) sinnum = 8-8-8 (10-10) l eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm. Prjónið annan sokk alveg eins. ---------------------------------------------------------- BUXUR: ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l hvoru megin við 2 l sl þar sem prjónamerki er staðsett fyrir miðju að aftan. Aukið út með því að prjóna 2 l í 1 l – útauknu l eru prjónaðar í framhaldinu inn í stroff. ÚRTAKA: Fækkið l hvoru megin við prjónamerki við miðju að framan. Fækkið l á UNDAN prjónamerki þannig: 2 l slétt saman. Fækkið l á EFTIR prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. SKÁLM: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 56-60-64 (68-72) l á sokkaprjóna nr 3 með Alpaca. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = innan á skálm. Prjónið þannig: 1 l sl, * 2 l br/2 l sl *, endurtakið frá *-* og endið á 2 l br og 1 l sl. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki með því að prjóna 2 l í 1 l – útauknu l eru prjónaðar jafnóðum inn í stroff. Endurtakið útaukningu í 5.-6.-8. (9.-12.) hverri umf alls 8 sinnum = 72-76-80 (84-88) l. Þegar skálmin mælist 16-20-23 (25-33) cm skiptist stykkið við prjónamerki og prjónað er áfram fram og til baka – JAFNFRAMT er fitjuð upp 1 ný l í hvorri hlið fyrir saum = 74-78-82 (86-90) l. Þegar stykkið mælist 18-22-25 (27-35) cm fellið af 5 l í hvorri hlið (= kantlykkja, 1 l sl, 2 l br og 1 l sl) = 64-68-72 (76-80) l. Geymið stykkið og prjónið aðra skálm alveg eins. BUXUR: Setjið skálmar á sama hringprjóna nr 3 = 128-136-144 (152-160) l. Setjið eitt prjónamerki við miðju að framan og eitt prjónamerki við miðju að aftan (bæði prjónamerki eiga að sitja mitt á milli 2 l sl). Haldið áfram með stroff = 2 l sl/2 l br – JAFNFRAMT er aukið út að aftan og l fækkað að framan þannig: ÚTAUKNING AÐ AFTAN: Aukið út um 2 l við miðju að aftan – sjá ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í 4. hverri umf alls 4 sinnum. ÚRTAKA AÐ FRAMAN: Fækkið um 2 l að framan – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf 8 sinnum. Eftir allar útaukningar og úrtöku eru 120-128-136 (144-152) l á prjóni. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 38-42-47 (52-60) cm, fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman efst að innanvörðu á hvorri skálm innan við kantlykkju. Saumið síðan saman op í klofi – framstykki að bakstykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (31)
Birte wrote:
Meget sød - skynd jer med opskriften
20.11.2008 - 13:42Kristin Magnusdottir wrote:
Yndisleg peysa bið spennt eftir uppskrift.
19.11.2008 - 16:51Patricia wrote:
Beautiful pattern. Can't wait for directions.
16.11.2008 - 20:10Jorunn wrote:
Kjempefin!!
16.11.2008 - 13:56DOISY wrote:
Encore un magnifique modèle qu'on a envie de voir porter par nos bébés et à l'avance le plaisir de pouvoir le tricoter
10.11.2008 - 10:52Anne-Marie Jenkins wrote:
Lovely hope you consider making patterns to fit premature babies
05.11.2008 - 05:23Hhhh wrote:
Søøt
21.10.2008 - 20:28Marianne wrote:
Super sød
20.10.2008 - 17:02Krikri wrote:
Impossible de n'en choisir que 10
19.10.2008 - 20:40Annica Thomsson wrote:
Sockersöt med lusekofta.
17.10.2008 - 21:55