DROPS Baby 14-29 |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með laskalínu, röndóttar buxur í stroffprjóni og tátiljur úr DROPS Alpaca. Stærð 1 mán - 4 ára.
DROPS Baby 14-29 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PEYSA: GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kant að framan. 1 hnappagat = prjónið 2. og 3. lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 mán: 2, 8, 14 og 20 cm STÆRÐ 6/9 mán: 2, 8, 15 og 21 cm STÆRÐ 12/18 mán: 2, 8, 14, 20 og 26 cm STÆRÐ 2 ára: 2, 9, 16, 23 og 30 cm STÆRÐ 3/4 ára: 2, 10, 18, 26 og 34 cm ATH: Fellið af fyrir síðasta hnappagatinu í kanti í hálsmáli. ÚRTAKA (á við um laskalínu): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í hverri skiptingu á milli erma, fram og bakstykkis (byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki): 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 132-138-150 (162-168) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með 2 þráðum ljós turkos. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 3-3-3 (4-4) cm, munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan – í hægri kanti að framan. Prjónið síðan sléttprjón en 5 kantlykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar áfram í garðaprjóni til loka. JAFNFRAMT í 1. umferð á eftir stroffi er lykkjum fækkað jafnt yfir til 118-128-140 (146-158) lykkjur – ekki fækka lykkjum yfir lykkjur í kanti að framan. Setjið eitt prjónamerki 32-34-38 (39-42) lykkjur inn frá hvorri hlið = 54-60-64 (68-74) lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Þegar stykkið mælist 5-5-6 (6-6) cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin í 3.-3.-3. (4.- 5.) hverjum cm alls 5 sinnum = 98-108-120 (126-138) lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 19-20-23 (27-30) cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá röngu – prjónið 3 umferðir slétt yfir allar lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af 6-8-8 (8-10) lykkjur í hvorri hlið fyrir ermi (þ.e.a.s. 3-4-4 (4-5) lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 38-42-46 (50-54) lykkjur á bakstykki og 24-25-29 (30-32) lykkjur efitr á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Ermin er prjónuð í hring. Fitjið upp 30-30-36 (36-36) lykkjur jafnt yfir á sokkaprjón 4,5 með 2 þráðum ljós turkos. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan stroff með 2 lykkjur slétt/4 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 3-3-3 (4-4) cm. Haldið áfram í sléttprjóni jafnframt sem lykkjufjöldinn er fækkaður til 28-28-30 (30-32) lykkjur í 1. umferð á eftir stroffi. Þegar stykkið mælist 8-6-6 (6-6) cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi með 7-4-3 (3-3½) cm millibili alls 2-4-5 (7-7) sinnum = 32-36-40 (44-46) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-20-21 (26-30) cm prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið, prjónið síðan 1 umferð slétt jafnframt því sem felldar eru af 6-8-8 (8-10) lykkjur mitt undir ermi = 26-28-32 (36-36) lykkjur eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt. AXLASTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 á fram- og bakstykki og setjið ermar inn á sama hringprjón þar sem fellt var af fyrir handvegi = 138-148-168 (182-190) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli erma og fram- og bakstykki (= 4 prjónamerki). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur og prjónið 1 umferð slétt frá röngu áður en laskalínan byrjar. LASKALÍNA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við öll prjónamerkin (= 8 lykkjur færri í hverri umferð með úrtöku) – sjá ÚRTAKA að ofan. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 7-8-8 (9-10) sinnum og síðan í annarri hverri umferð 0-0-2 (2-2) sinnum. HÁLSMÁL: Jafnframt þegar stykkið mælist 25-27-31 (36-40) cm setjið ystu 8-8-10 (10-10) lykkjur í hvorri hlið við miðju að framan á þráð. Haldið áfram að fækka lykkjum fyrir hálsmáli við miðju að framan í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum. Eftir allar úrtökur fyrir laskalínu og hálsmáli eru 54-56-56 (62-62) lykkjur eftir á prjóni og stykkið mælist ca 30-32-36 (41-45) cm upp að öxl. FRÁGANGUR: Prjónið upp ca 80-96 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þráðum að framan) á hringprjón 4 með 2 þráðum ljós turkos. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað jafnt yfir til 54-60-60 (66-66) lykkjur. Prjónið nú stroff þannig (umferð 1 = ranga): 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjur í garðaprjóni (frá réttu verða 5 kantlykkjur í garðaprjóni og 2 lykkjur slétt í hvorri hlið við miðju að framan). Eftir 1 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin í kanti að framan. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt laust af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- BUXUR: STROFF: * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*. RENDUR: Prjónið rendur eftir M.1, endurtakið mynsturteikninguna. ÚTAUKNING: Takið upp þráðinn frá fyrri umferð og prjónið það slétt eða brugðið eftir því sem passar inn í stroffið – 3 fyrstu lykkjurnar sem eru auknar út eru prjónaðar slétt, 3 næstu eru prjónaðar brugðið o.s.frv. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað frá miðju og niður. BUXUR: Fitjið upp 84-96-96 (108-108) lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum í litnum beige. Prjónið stroff. Eftir 2 cm byrjar randarmynstur – sjá M.1 (byrjið neðst í mynsturteikningu). Þegar stykkið mælist 10-13-14 (15-16) cm aukið út lykkju hvoru megin við 3 lykkjur slétt mitt fram – sjá ÚTAUKNING – aukið út í annarri hverri umferð alls 12 sinnum = 108-120-120 (132-132) lykkjur. Eftir allar útaukningar mælist stykkið ca 20-23-24 (25-26) cm. Í næstu umferð eru felldar af 5 lykkjur við miðju að framan og við miðju að aftan og hvor skálm er prjónuð til loka fyrir sig. SKÁLM: Setjið inn lykkjur af annarri skálminni á þráð. Skiptið lykkjum niður frá hinni skálminni á sokkaprjón 4 = 49-55-55 (61-61) lykkjur. Haldið áfram að prjóna í hring – JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 4 lykkjur brugðið innan á skálm í 3 lykkjur brugðið þannig að stroffið gangi jafnt upp = 48-54-54 (60-60) lykkjur. Haldið áfram með stroff og randarmynstur þar til skálmin mælist 18-21-24 (29-34) cm. Skiptið yfir í litinn beige og prjónið 6 cm stroff fyrir uppábrot. Fellið laust af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Setjið hina skálmina á sokkaprjón 4 og prjónið á sama hátt og fyrri skálm. FRÁGANGUR: Saumið saman op á milli skálma. Brjótið uppá 2 efstu cm í miðju saman tvöfalt að röngu og saumið niður. Þræðið teygju í mitti. Neðstu 6 cm á skálm eru brotnir upp. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR: Legnd fótar: 10-11-12 (14-15) cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til ofan frá og niður og saumað saman við miðju að aftan í lokin. TÁTILJA: Fitjið laust upp 14-16-16 (18-18) lykkjur á prjón 4 með 2 þráðum í litnum ljós turkos. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 3-3-3 (4-4) cm, setjið lykkjur á þráð og prjónið alveg eins stykki (= efst á tátilju). Setjið bæði stykkin á sama prjón og prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur = 28-32-32 (36-36) lykkjur - (op mitt í stykki = mitt framan á). Skiptið yfir á prjón 3,5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 3½-4 -4½ (5-5) cm. Setjið nú ystu 10-11-11 (12-12) lykkjur í hvorri hlið á þráð. Skiptið til baka yfir á prjón 4 og prjónið 4-5-6 (7-8) cm í garðaprjóni yfir 8-10-10 (12-12) lykkjur sem eftir eru mitt framan á. Fækkið síðan um 1 lykkju í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 2 sinnum = 4-6-6 (8-8) lykkjur efst á prjóni, klippið frá. Prjónið nú upp 10-11-13 (15-17) lykkjur hvoru megin við miðju stykki, í viðbót eru lykkjur settar til baka á prjóninn = 44-50-54 (62-66) lykkjur. Prjónið 3-3½-4 (4½-5) cm í garðaprjóni yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT eftir 1½-2-2½ (3-3½) cm er lykkjum fækkað í annarri hverri umferð þannig (til loka): Fækkið um 1 lykkju í byrjun og í lok umferðar, í viðbót er lykkjum fækkað við miðju að framan með því að prjóna saman 2 lykkjur slétt hvoru megin við miðju 2 lykkjur mitt framan á = ca 32-38-42 (50-54) lykkjur eftir á prjóni, fellið laust af. Saumið saum undir fæti og haldið áfram upp meðfram miðju að aftan – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. Leikföng: Skálmar og Þumall DROPS Baby 13-34 |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (31)
Knittacia wrote:
Nydelige farger
14.03.2006 - 07:11