DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3168.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Beach Glass Top

Heklaður toppur úr DROPS Paris. Stykkið er heklað neðan frá og upp með röndum og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.

DROPS 240-9
DROPS Design: Mynstur w-889
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-200-250-250-300-300 g litur 17, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 30, gallabuxnablár
50-50-50-50-50-50 g litur 66, plóma
50-50-50-50-50-50 g litur 68, mandla
50-50-50-50-50-50 g litur 70, kirsuberjablóm
50-50-50-50-50-50 g litur 71, mandarína

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.

HEKLFESTA:
14 stuðlar á breidd og 8,5 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3168.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.
A.1 sýnir mynstur með stuðlahópum.
A.2 sýnir úrtöku við handveg. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

RENDUR:
Sjá mynsturteikningu A.3.
1 umferð í A.2 = 1 umferð í A.1/A.2.
A.3 er heklað þar til stykkið mælist ca 37-39-41-41-43-45 cm, síðan er heklað með litnum natur að loknu máli.
Klippið þráðinn í lok umferðar eftir þörf, þannig að allan tímann er heklað til skiptis 1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu – ATH: Passið uppá að þráðarendarnir séu nægilega langir þegar skipt er um lit til að hægt sé að nota endana til að sauma stykkið við frágang.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umferðir með stuðlum byrja með 3 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 stuðli í 3. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið og bakstykkið er heklað fram og til baka, neðan frá og upp.
Stykkið er saumað saman í hliðum og á öxlum.

BAKSTYKKI:
Heklið 56-64-68-72-80-88 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA að ofan, með heklunál 5 með litnum natur í DROPS Paris.
Snúið stykkinu, heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 55-63-67-71-79-87 fastalykkjur (þessi umferð er frá röngu).
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1a í fyrstu fastalykkju, heklið A.1b alls 13-15-16-17-19-21 sinnum, heklið A.1c í 2 síðustu fastalykkjurnar. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar heklaðar hafa verið 4-4-4-5-6-6 umferðir með stuðlahópum í litnum natur, heklið RENDUR – sjá útskýringu að ofan (stuðlahóparnir halda áfram eins og áður).

Þegar stykkið mælist ca 33-34-35-36-37-38 cm og næsta umferð er hekluð frá röngu, fækkið lykkjum fyrir handveg þannig - ATH: Byrjið í 2. umferð í mynsturteikningu! Heklið A.2c, haldið áfram með A.1b þar til 2-3-3-3-4-4 stuðlahópar eru eftir í umferð, heklið A.2a yfir síðustu lykkjurnar. Heklið síðan eins og útskýrt er að neðan.

STÆRÐ XS:
Haldið svona áfram með úrtöku fram og til baka þar til 2 síðustu umferðir í A.2 eru eftir. Skiptið yfir í litinn natur og heklið 2 síðustu umferðir í A.2, stykkið mælist ca 39 cm og það hefur fækkað um 2 stuðlahópa í hvorri hlið fyrir handvegi. Klippið þræðina og festið.

STÆRÐ S - M - L - XL - XXL:
Haldið svona áfram með úrtöku fram og til baka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 39-41-41-43-45 cm, enda rendurnar og heklað er með litnum natur að loka máli.
Þegar A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina, mælist stykkið ca 40-41-42-45-46 cm og fækkað hefur verið um 3-3-3-4-4 stuðlahópa í hvorri hlið fyrir handvegi. Haldið áfram fram og til baka með stuðlahópa eins og áður, þ.e.a.s. næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1a í fyrstu lykkju, heklið A.1b alls 9-10-11-11-13 sinnum, heklið A.1c yfir síðustu lykkjur.
Heklið þar til stykkið mælist 41-43-45-47-49 cm. Klippið þræðina og festið.

FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og bakstykki. Þegar framstykkið hefur verið heklað til loka á sama hátt og bakstykkið, mælist stykkið ca 39-41-43-45-47-49 cm. Ekki festa þræðina. Nú er heklað BAND Á ÖXL / HLÝRI í hvorri hlið eins og útskýrt er að neðan.

BAND Á ÖXL / HLÝRI:
Byrjið frá réttu og heklið þannig:
EF UMFERÐIN BYRJAR FRÁ RÉTTU: Heklið A.1a, heklið A.1b alls 2-2-2-2-2-3 sinnum, heklið A.1c.
EF UMFERÐIN BYRJAR FRÁ RÖNGU: Heklið A.1c, heklið A.1b alls 2-2-2-2-2-3 sinnum, heklið A.1a.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til bandið/hlýrinn mælist ca 20 cm í öllum stærðum (bandið/hlýrinn á öxlinni á að liggja yfir öxlina og er saumað við bakstykkið – mátið e.t.v. toppinn og stillið lengdina af). Klippið þráðinn.
Heklið alveg eins band/hlýra í hinni hliðinni.

FRÁGANGUR:
Saumið bandið á öxlinni / hlýrann við bakstykkið yst í hvorri hlið.
Saumið hliðarsauma – saumið ofan frá og niður kant í kant og saumið með litnum í hverri rönd. Endið sauminn þegar ca 14 cm eru eftir neðst í hvorri hlið (klauf).

KANTUR Í KRINGUM HÁLSMÁL:
Byrjið fyrir miðju á annarri öxlinni og heklið með heklunál 5 með litnum natur þannig: 1 fastalykkja um fyrsta stuðul, * 4 loftlykkjur, hoppið yfir 1 stuðul/stuðlahóp (ca 2 cm), 1 fastalykkja um næsta stuðul/loftlykkju *, heklið frá *-* meðfram bandi á öxl / hlýra og í kringum hálsmál og endið umferð með 4 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið þráðinn og festið.

KANTUR Í KRINGUM HANDVEG:
Byrjið í hlið undir ermi og heklið með heklunál 5 með litnum natur þannig: 1 fastalykkja í hliðarsaum, * 4 loftlykkju, hoppið yfir ca 2 cm, 1 fastalykkja um næsta stuðul/loftlykkju *, heklið frá *-* í kringum allan handveginn og endið umferð með 4 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið þráðinn og festið.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 05.04.2024
Uppskriftin hefur verið yfirfarin og uppfærð, mynsturteikningin hefur verið leiðrétt í A.2.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja
symbols = 1 keðjulykkja um loftlykkju / 1 keðjulykkja í lykkjuna fyrir neðan
symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð og sýnir einungis hvernig lykkjurnar eru heklaðar – byrjið í næstu umferð í mynsturteikningu
symbols = 1 stuðull um loftlykkju fyrir neðan
symbols = 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli)
symbols = litur natur
symbols = litur plóma
symbols = litur gallabuxnablár
symbols = litur mandarína
symbols = litur mandla
symbols = litur kirsuberjablóm
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Heléne wrote:

Hej igen, Tack för uppdaterat diagram. Stämmer det alltså att jag inte ska virka några smygmaskor på ena sidan, dvs A.2a? Allt väl :)

05.04.2024 - 12:48

DROPS Design answered:

Hei Heléne. Ja, det stemmer :) mvh DROPS Design

15.04.2024 - 07:41

country flag Helene wrote:

Hej, likt flera andra förstår jag inte A.2c och A.2a. Om det ska bli jämt måste jag börja (A.2a) och sluta (A.2c) samma varv (2:a varvet) med smygmaskor. Hur gör jag då med varv 3, fäster jag och börjar om med ny tråd/garn efter smygmaskorna? Förstår inte? Tacksam för hjälp :)

31.03.2024 - 14:46

DROPS Design answered:

Hej Helene, diagram A.2 er nu opdateret :)

05.04.2024 - 12:10

country flag Patricia wrote:

You have lovely patterns and some one is selling many on ebay co uk ( perhaps the original designer? ) this pattern is listed as Item number 385584358366 Seller lithiumsmummy

12.09.2023 - 01:41

DROPS Design answered:

Dear Patricia, thanks for noticing, please help us reporting the sale of our patterns to Ebay. Thank you.

12.09.2023 - 09:27

country flag Jay Y wrote:

Hi, Many thanks for your reply! I have worked mine, and they do look different & it's why I asked the question. One side has 7 stitches bound off as a lead in, the other side has only 4 stitches bound off as a lead in (on size 'M')? That's where my both sides don't match??? What am I doing wrong?!

30.07.2023 - 10:27

DROPS Design answered:

Dear Jay, yes, they each look different, but since as you join this piece with the front piece both of them will complement each other, making an armhole with 11 stitches on each side. So just continue as usual. Happy crochetting!

31.07.2023 - 18:48

country flag Jay Y wrote:

Hi, I'm really confused with the armhole shaping and am stuck! Why is the armhole shaping different on the lefthand and righthand side - the shaping (as per the diagram A.2c & A.2a) are different shapes both sides? I must be missing something, but can't work out what??? HELP would be much appreciated as I'm at a standstill! Thanks in advance.

28.07.2023 - 13:56

DROPS Design answered:

Dear Jay, the shaping is not different, A.2a simply includes some of the A.1b repeats so it seems bigger. Meanwhile A.2c only has the stitches to bind-off so it seems smaller. The armholes, once worked, will look the same, don't worry about it. Happy crochetting!

29.07.2023 - 17:02

country flag Monika wrote:

Vychází mi jedna strana vyšší než druhá. Návodu nerozumím. Když vlevo háčkuju krátké sloupky (A2c a A2a) a ve stejné řadě na konci háčkuju dlouhé sloupky, nemůžu mít obě strany stejně vysoké. Prosím o vysvětlení. Dekuji

08.07.2023 - 21:01

country flag Minna Peltonen wrote:

Moi kysyisin tälläistä ett voiko ton topin tehdä jämä-langoista, joita on jäänyt edellisistä virkkuu töistä? Kun multa löytyy sellainen iso kerä, johon oon kerinnyt jämä Paris langat yhteen niin ajattelin kysyä tälläistä ett voiko ton topin L-kokoiseksi käyttäen sitä lankakerää, koska tulisi käytettyä ne jämä langat johonkin.

20.06.2023 - 17:25

DROPS Design answered:

Voit tehdä topin jäännöslangoista, kunhan sinulla on riittävästi lankaa. Toppiin menee n. 450-500 grammaa lankaa, kun teet sen L-kokoiseksi.

20.06.2023 - 18:36

country flag Jillian Dunlop wrote:

How much yarn would I need use if I only used one colour. For an xs and s.

26.05.2023 - 15:54

DROPS Design answered:

Dear Jillian, for sizes XS/S you would need approx. 250-300gr of one colour. Happy crocheting!

28.05.2023 - 17:00

country flag Lilian wrote:

Now I get it!Thanks

20.04.2023 - 13:49

country flag Lilianne Vranic wrote:

My Question is ,is the pattern right if i work two different armholes on the Back part A2c and A2a are differently shaped they are armholes right?

19.04.2023 - 08:41

DROPS Design answered:

Dear Mrs Vranic, armholes will be right when working A.2a on one side and A.2c on the other side, both diagrams are decreasing the same number of stitches on each side but due to the pattern, they are worked a different way at the beginning and at the end of the row. Happy crocheting!

19.04.2023 - 10:48