Stained Glass Top |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður toppur með ferningum úr DROPS Paris. Stykkið er heklað í hring frá miðju og út í röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 240-10 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. A.1 sýnir 4 fyrstu umferðir á ferningi. A.2 sýnir mynstrið í hvorri hlið á ferningi þegar heklað er fram og til baka. A.3 sýnir úrtöku. RENDUR: Sjá mynsturteikningu A.4. 1 umferð í A.4 = 1 umferð í A.1/A.2/A.3. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur. Þessar 3 loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul. Þegar heklað er í hring endar umferðin með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. LEIÐBEININGAR: Það kemur til með að vera op ca 12-16 cm mitt aftan á toppnum, sem fer eftir því hversu mikið toppurinn er dreginn saman með snúrunni. Mátið toppinn og stillið e.t.v. lengdina á hliðarstykkjunum að óskuðu máli þannig: LENGRA HLIÐARSTYKKI: Haldið áfram með A.2 fram og til baka yfir 4 stuðlahópana að óskuðu máli. STYTTRA HLIÐARSTYKKI: Endið mynstrið við óskaða lengd, í nokkrum af stærðunum kemur til með að verða fleiri en 4 stuðlahópar í lok umferðar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er heklaður einn ferningur, í hring frá miðju og út. Þessi ferningur er framstykkið á toppnum. Síðan eru hliðarstykkin hekluð – eitt hvoru megin við ferninginn. Hliðarstykkin eru hekluð fram og til baka. Að lokum er heklaður kantur í kringum allan toppinn, snúra fyrir axlaband og snúra til að hnýta mitt að aftan. FERNINGUR: Heklið 4 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan, með heklunál 5 með litnum mandarína í DROPS Paris og tengið loftlykkjur saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið síðan A.1 hringinn til skiptis með 1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu – JAFNFRAMT eru heklaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! ATH: 4 fyrstu umferðirnar eru teiknaðar inn í A.1. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka, heklið alveg eins þar til heklaðar hafa verið alls 10-11-12-13-14-15 umferðir (A.4 er endurtekið á hæðina). Heklið síðan síðustu umferð með litnum natur. Klippið þræðina og festið. Ferningurinn mælist ca 26-28-31-33-35-38 cm meðfram hvorri hlið. HLIÐARSTYKKI: Nú á að hekla fram og til baka meðfram annarri hlið á ferningnum. Heklið meðfram þeirri hlið á ferningnum þar sem byrjun á umferðinni er fyrir miðju, þannig að byrjunin á umferðinni verði falin mitt í umferð. Haldið áfram með rendur eins og útskýrt er í A.4. A.4 er endurtekið á hæðina að loknu máli. Byrjið frá réttu í hornboga á ferningnum og heklið meðfram hliðinni á ferningnum ofan frá og niður þannig: Heklið A.2a, heklið A.2b alveg fram að næsta hornboga, heklið A.2c í hornbogann, snúið. Heklið til baka eins og útskýrt er í A.2 (munið eftir að skipta um lit). Nú byrjar úrtaka í annarri hliðinni á hliðarstykkinu, þ.e.a.s. næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.3 (byrjið á umferð með ör), haldið áfram með A.2b þar til 1 lykkja er eftir, heklið A.2c. Haldið svona áfram fram og til baka þar til 4 stuðlahópar eru eftir í umferð, þ.e.a.s. það eru heklaðar alls 16-18-20-22-24-26 umferðir. Hliðarstykkið mælist nú ca 19-21-24-26-28-31 cm og er lokið í stærð S, M og L – sjá LEIÐBEININGAR. STÆRÐ XL, XXL, XXXL: Heklið A.2 fram og til baka yfir 4 stuðlahópana þar til hliðarstykkið mælist 28-32-36 cm – lesið LEIÐBEININGAR. Heklið hliðarstykkið alveg eins meðfram gagnstæðri hlið á ferningi, ofan frá og niður, en byrjið frá röngu, þannig að úrtakan kemur á sama stað og á hinu hliðarstykkinu. HEKLAÐUR KANTUR: Byrjið í einu horninu á stykkinu og heklið kant í kringum allan toppinn með heklunál 5 með litnum natur þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 4 loftlykkjur, hoppið yfir ca 2 cm, 1 fastalykkja um næsta stuðul / á milli 2 stuðlahópa *, heklið frá *-* í kringum allan toppinn og endið með 4 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. SNÚRA Í HÁLSMÁLI: Heklið loftlykkjuröð ca 100-100-110-110-120-120 cm með heklunál 5 með litnum natur. Leggið snúruna saman tvöfalda og hnýtið hnút í endann. Þræðið lykkjunni á snúrunni í gegnum annan hornbogann efst á ferningi eða á milli 2 stuðlahópa yst að horni (mátið toppinn og stillið staðsetninguna af eftir eigin ósk), þræðið endana í gegnum lykkjuna. Gerið aðra snúru og festið alveg eins um hinn hornbogann / á milli 2 stuðlahópa yst að horni efst á ferningi. Snúrurnar eru hnýttar saman aftan í hnakka. SNÚRA MITT AÐ AFTAN: Heklið loftlykkjuröð ca 70-75-80-85-90-95 cm með heklunál 5 með litnum natur. Leggið snúruna saman tvöfalda og hnýtið hnút í endann. Þræðið lykkjunni á snúrunni í gegnum hornið efst á hliðarstykki mitt að aftan og þræðið endana í gegnum lykkjuna. Gerið aðra snúru og festið alveg eins um hornið efst á hinu hliðarstykkinu. Snúrurnar eru hnýttar saman mitt að aftan. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (6)
Antonelli Antonella wrote:
Buonasera, sto realizzando il modello drops 240-10, ma non riesco a trovare la parte A.2, e' mancante o sono io che non capisco? gentilmente potreste aiutarmi? grazie, Antonella
22.08.2023 - 18:08DROPS Design answered:
Buonasera Antonella, il diagramma A.2 è di fianco al diagramma A.4, sopra lo schema delle taglie. Buon lavoro!
22.08.2023 - 22:24Caro wrote:
Hallo liebes Drops Design Team, ich habe die Vorderseite erfolgreich gehäkelt. Nun komme ich bei den Seitenteilen nicht weiter. Ich verstehe nicht wie ich beginnen soll (A.2a) und wie die Reihe abgeschlossen wird ( A.2c). Auch eure Hilfe zur Hakelschrift konnen mir leider nicht helfen. Ich freue mich wenn ihr mir einen Tipp geben könnt damit ich dieses wunderschöne top doch noch fertig häkeln kann. Herzlichen Dank im Voraus :) Gruß Caro
17.06.2023 - 16:20DROPS Design answered:
Liebe Caro, die Reihe mit dem Sternchen zeigt die letzte Reihe vom Quadrat; dann häkelnSie A.2a =3 Luftmaschen um den Lm-Bogen in der Ecke; wierdholen Sie A.2b (= 3 Stb zwischen den Stb-Gruppen von vorrigen Runde, dh wie zuvor) und enden Sie die Reihe mit A.2c = 1 Stäbchen in die nächste Ecke/um die Luftmaschenbogen; bei den Rückreihen häkeln Sie A.2c am Anfang der Reihe, dann wiederholen Sie A.2b und enden Sie mit A.2a. Viel Spaß beim häkeln!
19.06.2023 - 08:34Emily wrote:
Hi, where is chart A2? the side portion is very confusing
19.05.2023 - 01:13DROPS Design answered:
Dear Emily, you will find diagrams A.2 just above measurement chart, next to the diagram A.4 (for stripes) - you will just work with dc groups as before but only along one side of square, starting with A.2a, repeating A.2b and ending with A.2c from right side (start with A.2c and end with A.2a from wrong side). Happy crocheting!
19.05.2023 - 08:48Karolina wrote:
If made with only one colour, how many grams of DROPS Paris are needed?
06.05.2023 - 22:06DROPS Design answered:
Dear Karolina, you'd need approx. 150-200gr for the smallest size and 250-300 for the larger sizes. Take into account that for these approximate measurements we are using the gauge of the pattern; if your gauge is different you may need more or less yarn. Happy crocheting!
07.05.2023 - 13:27Vanessa wrote:
I'm unable to see the diagram A2, how many rows do I have to make for the side section? Thanks
24.04.2023 - 08:55DROPS Design answered:
Dear Vanessa, you should work a total of 16-18-20-22-24-26 rows with A.2 (decreasing until 4 double crochets groups (US-English) remain), this should measure approx. 19-21-24-26-28-31 cm; continue A.2 without decreasing in the 3 larger sizes. Happy crocheting!
24.04.2023 - 10:31Amber wrote:
Summer dream
18.01.2023 - 21:00