DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1001.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5005.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Violet Meadow

Prjónuð peysa / toppur úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með stuttum puffermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-55
DROPS Design: Mynstur ks-194
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-150-150-175-200-200 g litur 11, fjólublár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1001.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5005.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð fram og til baka, á hringprjóna í stykkjum, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar fram og til baka. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 93-103-113-125-135-149 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-20-22-26-26-30 lykkjur jafnt yfir = 77-83-91-99-109-119 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hvorri hlið þannig: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-3-4-5-7-9 sinnum og 1 lykkja 2-2-3-4-4-4 sinnum = 59-61-63-65-67-69 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, fellið af miðju 21-23-25-25-27-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 18-18-18-19-19-19 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 93-103-113-125-135-149 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-20-22-26-26-30 lykkjur jafnt yfir = 77-83-91-99-109-119 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-3-4-5-7-9 sinnum og 1 lykkju 2-2-3-4-4-4 sinnum = 59-61-63-65-67-69 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, setjið miðju 15-17-19-19-21-23 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 18-18-18-19-19-19 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

STUTTAR PUFFERMAR:
Fitjið upp 48-50-52-54-56-58 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 13 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 61-63-65-67-69-71 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: 12-13-11-12-10-11 lykkjur slétt, aukið síðan út um 12-12-14-14-16-16 lykkjur yfir næstu 36-36-42-42-48-48 lykkjur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju, endið með 13-14-12-13-11-12 lykkjur slétt = 73-75-79-81-85-87 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið. Prjónið síðan mynstur í næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3-0-2-3-5-2 lykkjur sléttprjón, A.1 alls 8-9-9-9-9-10 sinnum, endið með 4-1-3-4-6-3 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með A.1 á hæðina. Þegar stykkið mælist 9 cm eru fellda af 4 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum.
Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í A.1, eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið, fækkið lykkjum í umferð frá réttu með því að prjóna 3 fyrstu og 3 síðustu lykkjur í umferð slétt saman. Fækkið lykkjum svona í 8-.8.-6.-6.-6.-6. hverri umferð alls 3-3-4-4-4-4 sinnum = 53-55-55-57-61-63 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-20-21-22-24-25 cm prjónið 1 umferð brugðið frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 2-4-1-3-1-3 lykkjur jafnt yfir í umferð = 51-51-54-54-60-60 lykkjur. Í næst umferð eru allar lykkjur prjónaðar 3 og 3 slétt saman = 17-17-18-18-20-20 lykkjur. Fellið af. Stykkið mælist ca 21-21-22-23-25-26 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma innan við 1 kantlykkju.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið stuttan hringprjón 4 og 2 þræði DROPS Kid-Silk, byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 60 til 88 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði). Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið. Fellið af með sléttum lykkjum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-55

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Margareta wrote:

Hej, stämmer det att på bakstycket skall man bara maska av för halshålet, medan på framsidan skall man flytta maskorna på tråd?

18.03.2023 - 20:31

DROPS Design answered:

Det stämmer. Maskorna som sätts på en tråd mitt fram ska användas senare när halskanten stickas.

20.03.2023 - 17:07

country flag Pratheeksha wrote:

I am unable to understand sleeve instructions from here, please help me Bind off 4 stitches at the beginning of the next 2 rows for the armhole. The stitches which do not fit into A.1 are worked in stockinette stitch. When the sleeve measures 10 cm = 4” decrease 2 stitches on each side, decrease on a row from the right side, by knitting the first and last 3 stitches together.

27.12.2022 - 12:38

country flag Pratheeksha wrote:

I am unable to understand the sleeve instruction from here, please help me Bind off 4 stitches at the beginning of the next 2 rows for the armhole. The stitches which do not fit into A.1 are worked in stockinette stitch. When the sleeve measures 10 cm = 4” decrease 2 stitches on each side, decrease on a row from the right side, by knitting the first and last 3 stitches together.

27.12.2022 - 12:33

DROPS Design answered:

Dear Mrs Pratheeksha, you first cast off 4 sts at the beg of next 2 rows (= 4 sts on each side = 8 sts mid under sleeve) then continue working as before without decreasing/casting off, then when sleeve measures 4"/10 cm, decrease 2 sts on each side a total of 3-4 times on every 8-6 rows (see size) by working from RS: K3 tog, work until 3 sts remain, K3 tog (2 sts decreased on each side). Happy knitting!

02.01.2023 - 09:56

country flag Henriette wrote:

Hej jeg mangler stadig svar på mit spørgsmål vedr ærmerne,- Hvordan skal mønsteret strikkes når arbejdet måler 9 cm,- der hvor der skal tages 4 masker ind i hver side? Skal man stadig strikke 1 kantmaske, glatstrik og så A1?

24.11.2022 - 19:27

DROPS Design answered:

Hej Henriette, nej, kantmaskerne lukker du af, så du fortsætter mønsteret over de masker du har tilbage. Har du ikke nok masker til mønster i siderne skal maskerne strikkes i glatstrik :)

30.11.2022 - 13:51

country flag Wilmo wrote:

The sleeves are knitted flat? so I do not understand that part : "When the sleeve measures 10 cm decrease 2 stitches on each side, decrease on a row from the right side, by knitting the first and last 3 stitches together. " Do I knit knit 2 together on each side of the sleeve inside an edge stitch? Thanks for the answer.

23.11.2022 - 16:10

DROPS Design answered:

Dear Wilmo, you knit 3 stitches together after the edge stitch at the beg of the row and knit 3 stitches together before the edge stitch at th end of the row (= decrease 2 sts on each side = 4 sts on the same row every time you decrease). Happy knitting!

24.11.2022 - 09:18

country flag Henriette wrote:

Strikker trøjen i str M., og er kommet til pufærmerne. Når jeg begynder at lukke maskerne af i begyndelsen af pinderne til ærmegabet,- skal jeg så strikke (fra retsiden) 1 kantmaske og 2 ret og så A1 eller går jeg direkte til A1 ?

21.11.2022 - 16:00

country flag Joanne wrote:

Can you please explain the cast off for the armholes. I seem to have too many stitches when I follow the pattern. When the piece measures 32 cm, cast off at the beginning of each row etc. I am making size M Many thanks

02.10.2022 - 22:17

DROPS Design answered:

Dear Joanne, cast off 3 stitches at the beginning, one by one. Then, for size M, cast off 2 stitches 3 times. That is, cast off 2 stitches at the beginning, continue the whole row, turn and cast off the first 2 stitches at the beggining of the row on the wrong side. Cast off 2 and 2 stitches twice more. Then do the same when casting off 1 stitch on both sides twice. In total, you have cast off 22 stitches. Happy knitting!

03.10.2022 - 00:15

country flag Catalina wrote:

Hola. Tengo una duda respecto a esto: "Cuando la manga mida 10 cm disminuir 2 puntos a cada lado, disminuir en una hilera por el lado derecho tejiendo los primeros y los últimos 3 puntos juntos de derecho. Disminuir así cada 8ª-8ª-6ª-6ª-6ª-6ª hilera un total de 3-3-4-4-4-4 veces = 53" Se refiere a cada 8ª hilera de derecho o contando las hileras de reves también? Gracias.

10.08.2022 - 11:23

DROPS Design answered:

Hola Catalina, cada 8ª hilera significa 8 filas (incluyendo tanto las filas de derecho como las de revés).

14.08.2022 - 21:46

country flag Nicola Scott wrote:

When the piece measures 31-32-33-34-35-36 cm, cast off at the beginning of each row for the armholes as follows: 3 stitches 1 time, 2 stitches 2-3-4-5-7-9 times and 1 stitch 2-2-3-4-4-4 times on each side = 59-61-63-65-67-69 stitches. This implies casting off at the beginning of the first 10 rows and on each end for the last 4 rows (xxxlarge size) but the final number of stitches indicates cast of at each end of each row. Can you please clarify before I try to undo last 14 rows

30.06.2022 - 15:06

DROPS Design answered:

Dear Mrs Scott, in size XXXL you will cast off 3 sts at the beginning of next 2 rows, then 2 stitches at the beginning of the next 18 rows and finally 1 stitch at the beginning of next 8 rows. Now cast off 4 sts at the beginning of next 2 rows, and decrease now on every RS row by knitting together the stitches 2 by 2 or 3 by 3 a total of 6 times, then decrease evenly and finally knit all sts together 3 by 3. Happy knitting!

30.06.2022 - 16:56

country flag Rebecca wrote:

Jag har stickat en provlapp och får nu rätt antal maskor, men förstår inte hur jag ska överföra det till de mått som står i mönstret för att välja rätt storlek? De siffror som är angivna är det mått i cm? Eller antal maskor? Rebecca

13.05.2022 - 20:28

DROPS Design answered:

Hei Rebecca. Målene i målskissen er i cm. Om du scroller deg nederst på oppskriften og under Har du problemer med å forstå oppskriften? Klikk på bildet: Slik leser du en målskisse. mvh DROPS Design

16.05.2022 - 08:17