Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= sláið 1 sinni uppá hægri prjón, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið | |
= uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman | |
= uppslátturinn og lykkjan er prjónað brugðið saman | |
= brugðin lykkja | |
= 2 lykkjur brugðið saman | |
= prjónið 5 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem var prjónað í af prjóninum, * sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn 1 sinni til viðbótar slétt saman, án þess að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni *, prjónið frá *-* 2 sinnum, sleppið síðan sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni = 5 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri) |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Early Nap Pants |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónaðar buxur fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni. Stærð fyrirburar – 4 ára.
DROPS Baby 36-5 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá uppá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna/sokkaprjóna, ofan frá og niður. Byrjun umferðar er fyrir miðju að aftan. BUXUR: Fitjið upp (132) 144-156-180-192 (204-216) lykkjur á hringprjón 2 með BabyMerino. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn. Þegar stroffið mælist 4 cm, prjónið upphækkun að aftan þannig: Prjónið (32) 35-38-44-47 (50-53) lykkjur stroff, snúið, herðið á þræði, prjónið (64) 70-76-88-94 (100-106) lykkjur stroff til baka, snúið, herðið á þræði, prjónið (58) 64-70-82-88 (94-100) lykkjur stroff, snúið, herðið á þræði, prjónið (52) 58-64-76-82 (88-94) lykkjur stroff til baka. Haldið svona áfram með því að prjóna 6 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls (28) 34-40-40-46 (52-58) lykkjur. Nú er stykkið prjónað áfram í hring frá réttu. Skiptið yfir í hringprjón 2,5 og prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Þegar fyrsta umferðin hefur verið prjónuð eru (88) 96-104-120-128 (136-144) lykkjur í umferð. Haldið áfram hringinn í klukkuprjóns mynstri eftir A.1a. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist (12) 14-15-16-17 (18-19) cm mitt að framan, stillið af að næsta umferð sé umferð þar sem lykkjur eru prjónaðar slétt, prjónið þannig: Prjónið A.2 (= 2 lykkjur), A.1a yfir næstu (42) 46-50-58-62 (66-70) lykkjur eins og áður, A.2 yfir 2 lykkjur (= mitt að framan), A.1a yfir síðustu (42) 46-50-58-62 (66-70) lykkjur eins og áður. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru (120) 128-136-152-176 (184-192) lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist (15) 17-18-21-22 (23-24) cm (útaukning ætti nú að vera lokið), fellið af (12) 12-12-12-16 (16-16) lykkjur mitt að framan og mitt að aftan. Hvor skálm er prjónuð til loka fyrir sig, setjið lykkjur fyrir aðra skálmina á þráð. SKÁLM: = (48) 52-56-64-72 (76-80) lykkjur. Skiptið lykkjum niður á 4 sokkaprjóna nr 2,5 og haldið áfram með A.1a hringinn. Þegar skálmin mælist ca (9) 11-12-15-18 (23-28) cm (e.t.v. að óskaðri lengd, nú eru eftir ca (4) 6-8-8-8 (8-8) cm), skiptið yfir á sokkaprjón 2 og prjónið stroff með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður saman við lykkjuna). Þegar skálmin mælist ca (13) 17-20-23-26 (31-36) cm frá skiptingu, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Setjið til baka lykkjur frá hinni skálminni á prjóninn og prjónið eins og fyrri skálm. FRÁGANGUR: Saumið (12) 12-12-12-16 (16-16) lykkjur sem felldar voru af á milli skálma við hverja aðra. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (57)
Irina Kavonius wrote:
En ymmärrä, miten silkukoiden määrän pitäisi vähentyä kun tehdään mallineuletta A.1 tai sen jälkeisellä rivillä. Ohjeen mukaan kaksi silmukkaa neulotaan yhteen, mutta mallissa myös tehdään langankierto eli luodaan silmukka. Sillä ohjeella silmukkojen määrä ei vähene. Olenko ymmärtänyt jotain väärin?
20.12.2020 - 04:57DROPS Design answered:
Silmukat vähenevät koska seuraavalla kerroksella langankierto ja nostettu silmukka neulotaan yhteen.
22.03.2021 - 16:58Susanne Willumsen wrote:
Jeg skal nu strikke A1 - her slår man om, løfter maske løst af og strikker så 2 masker vrang sammen! Efter sådan en omgang er der i mit hoved nøjagtig det samme antal masker, som jeg startede med (156), men i opskriften står der, at jeg nu har 104 masker??? Det forstår jeg ikke?? Hvor er det reduktionen kommer fra? Og hvad er meningen med at reducere maskeantallet? De skal jo også tages ud igen eller??
12.12.2020 - 12:56DROPS Design answered:
Hei Susanne. Kastet som gjøres ved 1. ikon i diagram A.1 er ikke en økning, men tilhører patentmasken, slik at når du følger 1. rad i diagrammet strikker du 2. og 3. maske sammen (= minsker masker på 1. omgang i A.1). Når arbeidet måler 15 cm økes det ved å strikke A.2. God Fornøyelse!
16.12.2020 - 14:26Corot wrote:
Merci pour votre réponse je fais souvent vos modèles avec vos laines , je vais réessayer avec vos explications Merci
23.11.2020 - 20:53Corot wrote:
Bonjour , je ne comprends comment je dois avoir 44 mailles après avoir fait les tours pour la réhausse car je le retrouve avec 132 mailles ( pour la première taille ) . En faisant A1 j’ai beaucoup trop de mailles ?? Merci Florence
22.11.2020 - 23:04DROPS Design answered:
Bonjour Florence, je ne comprend pas votre question je suis navrée; dans la 1ère taille, vous avez 132 mailles et tricotez la réhausse à partir du milieu dos: 32 mailles sur l'endroit, 64 m sur l'envers, 58 m sur l'endroit, 52 m sur l'envers et continuez ainsi en tricotant 6 mailles en moins tous les rangs jusqu'à ce que vous ayez tricoté 28 m. Tricotez ensuite A.1 (= vous diminuez 1 m toutes les 2 m) = il reste 88 m après le 1er tour de A.1 (les jetés des mailles glissés ne comptent pas comme des mailles). J'espère que ces informations complémentaires pourront vous aider; n'hésitez pas à reposer votre question si ce n'est pas le cas. Bon tricot!
23.11.2020 - 10:08Johanna Wallburg wrote:
Hallo, ich komme gerade an die Stelle "A.2 (= 2 Maschen), A.1 über die nächsten (42) 46-50-58-62 (66-70) Maschen wie zuvor, A.2 über 2 Maschen (= vordere Mitte), A.1 über die letzten (42) 46-50-58-62 (66-70) Maschen wie zuvor." Hier müsste korrekterweise A1a stehen, oder übersehe ich etwas?
20.10.2020 - 23:20DROPS Design answered:
Liebe Frau Wallburg, ja genau, hier stricken Sie wie zuvor A.1a (die 1. Reihe in A.1 wird nur einmal gestrickt) . Viel Spaß beim stricken!
21.10.2020 - 08:13Noelle wrote:
Hallo! Ik heb een vraag: als ik begin met de meerdering volgens A.2 en dan 46 steken (bij maat 0/1 maanden) verder tel voor de tweede Needering (middenvoor) kom ik uit bij een overslag en niet bij een steek die recht samen gebreid moet worden. De meerdering kan alleen worden gemaakt bij een steek die recht samen gebreid moet worden, toch? Zo ja, moet ik dan in de voorgaande (na 45 steken) of de volgende (47 steken) de meerdering maken?Alvast bedankt!
05.09.2020 - 14:29DROPS Design answered:
Dag Noelle,
Als het goed is moet je meerderen boven het symbool waar je op de vorige naald 1 omslag maakte en 1 averechte steek op de rechter naald zette (dus het bovenste symbool). Nu ga je 5 steken meerderen in de stee en de omslag zoals beschreven bij de symbool uitleg.
11.09.2020 - 13:36Leah Tjemsland wrote:
I’m not sure I quite understand how a yarn over, a slipped stitch and a purl 2 together will equal any kind of decrease in A.1. Can you please clarify how this decrease works? If you’re continually adding a yo, won’t that negate the decrease that a p2tog creates? I don’t understand.
30.08.2020 - 20:29DROPS Design answered:
Dear Mrs Tjemsland, yarn overs worked over slipped stitches do not increase the number of stitches, these yarn overs belong the the stitches they are worked over, this means yarn over, slip 1 as if to P = 1 stitch - P2 tog = from 2 sts only 1 stitch remain. Hope this will help. Happy knitting!
31.08.2020 - 10:00Noelle wrote:
Hallo! Ik kom eigenlijk direct in de problemen na het breien van A.1. Ik maak maat 1-3 maanden en heb dus 156 steken. Na A. 1 1 naald gebreid te hebben zou ik er 104 over moeten houden. Hoe dan? Je bereidt er 2 averecht samen, maar je maakt ook een omslag. Per saldo blijkt het aantal steken dus gelijk. Zelf als je de overslag en de afgehaalde steek samen telt klopt het niet. Hoe kan dit? Alvast bedankt!
20.08.2020 - 20:48DROPS Design answered:
Dag Noelle,
Op de eerste naald in A.1 maak je 1 omslag op de rechter naald en je haalt 1 steek averecht af, dan brei je 2 averecht samen. Dit herhaal je steeds. Bij het tellen van de steken tellen de omslag en de afgehaalde steek samen als 1 steek, waardoor je in totaal 104 steken op de naald hebt.
21.08.2020 - 10:44Linda wrote:
Do you have a video of how to knit the front gusset as I don’t understand your chart.
17.08.2020 - 04:09DROPS Design answered:
Dear Linda, you will find how to read a diagram here - you will decrease in A.1 1 stitch by purling together every 2nd and 3rd stitch and increase 4 sts in A.2 (see here how to work 5 sts in same st in English rib). Happy knititng!
17.08.2020 - 09:37Kira wrote:
Es gibt einen Fehler in der cm Angabe bei der Grösse 6/9 Monate. Und zwar hier: Bei einer Länge von (12) 14-15-18-17 (18-19) cm, gemessen an der vorderen Mitte - daran angepasst, dass die nächste Runde eine Runde mit Rechtsmaschen ist... Ich nehme an es sollte hier 16 cm heissen für Grösse 6/9 Monate!? Ansonsten tolle Anleitung! Danke! Liebe Grüsse aus Basel
01.08.2020 - 14:56