Morning Rays |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónað sjal í garðaprjóni og gatamynstri úr DROPS BabyAlpaca Silk og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum.
DROPS 210-38 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Prjónað er eftir mynsturteikningu sem sýnir útaukningu í annarri hlið á stykki, JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir. SJAL: Fitjið upp 192 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði Kid-Silk í litnum natur og 1 þræði BabyAlpaca Silk í litnum ljós gráfjólublár. Prjónið 1 umferð slétt (= ranga). Prjónið síðan 4 stykki með stuttum umferðum þannig: FYRSTI HLUTI: Prjónið eftir mynsturteikningu A.1 og A.2 þannig: Frá réttu: Prjónið mynsturteikningu A.1 yfir 6 lykkjur, prjónið eftir mynsturteikningu A.2 þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð. Herðið á þræði og snúið stykkinu. Frá röngu: Prjónið mynsturteikningu A.2 þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið A.1 yfir 7 lykkjur (munið eftir að prjóna svarta uppsláttinn í mynsturteikningu frá fyrri umferð snúinn svo að ekki myndist gat). Snúið stykkinu. Haldið svona áfram að prjóna mynsturteikningu, en í hverri umferð frá réttu á að snúa stykkinu 6 lykkjum áður en fyrri umferð. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina, hafa verið auknar út 3 lykkjur og prjónaðar hafa verið alls 8 umferðir garðaprjón (uppfitjunarkanturinn ekki talinn með) = 195 lykkjur. Haldið áfram að prjóna mynsturteikningu með stuttum umferðum þar til mynsturteikningin hefur verið prjónuð 3 sinnum á hæðina. Nú eru 201 lykkjur í umferð og prjónaðar hafa verið 24 umferðir garðaprjón (uppfitjunarkanturinn ekki talinn með). Skiptið yfir í 1 þráð Kid-Silk í litnum natur og 1 þráð BabyAlpaca Silk í litnum natur. Prjónið eftir mynsturteikningu A.3 og A.4 þannig: Frá réttu: Prjónið mynsturteikningu A.3 yfir 6 lykkjur, prjónið A.4 fram að 6 lykkjum áður en snúið var við í fyrri umferð. Snúið stykkinu. Frá röngu: Prjónið mynsturteikningu A.4 þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið A.3 yfir 7 lykkjur (munið eftir að svarti uppslátturinn í mynsturteikningu á að prjónast snúinn brugðinn svo að ekki myndist gat). Haldið svona áfram að prjóna þar til mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina. Nú hafa verið auknar út 6 lykkjur og það eru alls 8 gataumferðir = 207 lykkjur. Haldið svona áfram alveg eins með því að prjóna stuttar umferðir yfir 6 lykkjur í hvert skipti þar til mynsturteikning hefur verið prjónuð 2,5 sinnum á hæðina (sjá ör í mynsturteikningu sem sýnir hvar í mynsturteikningu á að enda mitt í mynstureiningu). Nú eru 216 lykkjur í umferð og það hafa verið prjónaðar 40 umferðir gatamynstur. Skiptið yfir í 1 þráð Kid-Silk í litnum natur og 1 þráð BabyAlpaca Silk í litnum ljós gráfjólublár. Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur í umferð, passið uppá að herða á þræði þar sem stykkinu er snúið við, svo að ekki myndist of stór göt. Snúið og prjónið 1 umferð slétt frá röngu. ANNAR HLUTI: Prjónið á sama hátt og fyrsti hluti, en prjónið mynsturteikningu og stuttar umferðir öðruvísi. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Mynsturteikning A.1 og A.2 er prjónuð 4 sinnum á hæðina með 1 þráð Kid-Silk í litnum natur og 1 þráð BabyAlpaca Silk í litnum ljós gráfjólublár, síðan er mynsturteikning A.3 og A.4 prjónuð með 1 þræði Kid-Silk í litnum natur og 1 þræði BabyAlpaca í litnum natur 2 sinnum á hæðina – JAFNFRAMT á að snúa við í fyrsta skipti þegar 7 lykkjur eru eftir á prjóni, haldið nú áfram að snúa við 7 lykkjum fyrr í hvert skipti sem snúið er við alls 24 sinnum (meðtalið fyrsta skipti sem snúið var við), eftir það á að snúa við 6 lykkjum fyrr alls 8 sinnum. Nú eru 240 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í 1 þráð Kid-Silk í litnum natur og 1 þráð BabyAlpaca Silk í litnum ljós gráfjólublár. Prjónið nú áfram yfir allar lykkjur í umferð þannig: Prjónið yfir allar lykkjur í umferð, passið uppá að herða á þræði þegar stykkinu er snúið við, svo að það myndist ekki of stór göt. Snúið og prjónið 1 umferð slétt frá röngu. ÞRIÐJI HLUTI: Prjónið á sama hátt og fyrsti og annar hluti, en prjónið mynsturteikningu og stuttar umferðir öðruvísi. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Mynsturteikning A.1 og A.2 er prjónuð 5 sinnum á hæðina með 1 þræði Kid-Silk í litnum natur og 1 þræði BabyAlpaca Silk í litnum ljós gráfjólublár, síðan er mynsturteikning A.3 og A.4 prjónuð með 1 þræði Kid-Silk í litnum natur og 1 þræði BabyAlpaca í litnum natur 1,5 sinnum á hæðina (sjá ör í mynsturteikningu sem sýnir hvar í mynsturteikningu á að enda mitt í mynstureiningu) – JAFNFRAMT á að snúa við í fyrsta skipti þegar 8 lykkjur eru eftir á prjóni, haldið nú áfram að snúa við 8 lykkjum fyrr í hvert skipti sem snúið er við alls 16 sinnum (meðtalið fyrsta skipti sem snúið var við), eftir það á að snúa við 7 lykkjum fyrr alls 16 sinnum. Nú eru 264 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í 1 þráð Kid-Silk í litnum natur og 1 þráð BabyAlpaca Silk í litnum ljós gráfjólublár. Prjónið nú áfram yfir allar lykkjur í umferð þannig: Prjónið yfir allar lykkjur í umferð, passið uppá að herða á þræði þegar stykkinu er snúið við, svo að það myndist ekki of stór göt. Snúið og prjónið 1 umferð slétt frá röngu. FJÓRÐI HLUTI: Prjónið á sama hátt og fyrsti, annar og þriðji hluti, en prjónið mynsturteikningu og stuttar umferðir öðruvísi. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Mynsturteikning A.1 og A.2 er prjónuð 8 sinnum á hæðina með 1 þræði Kid-Silk í litnum natur og 1 þræði BabyAlpaca Silk í litnum ljós gráfjólublár – JAFNFRAMT á að snúa við í fyrsta skipti þegar 9 lykkjur eru eftir á prjóni, haldið nú áfram að snúa við 9 lykkjum fyrr í hvert skipti sem snúið er við alls 8 sinnum (meðtalið fyrsta skipti sem snúið var við), eftir það á að snúa við 8 lykkjum fyrr alls 24 sinnum. Nú eru 288 lykkjur í umferð. Prjónið nú áfram yfir allar lykkjur í umferð þannig: Prjónið yfir allar lykkjur í umferð, passið uppá að herða á þræði þegar stykkinu er snúið við, svo að það myndist ekki of stór göt. Snúið og prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið laust af með sléttum lykkjum í næstu umferð frá réttu. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (25)
Véronique wrote:
Sensualité .
28.12.2019 - 21:58Anne Birgitte Ploug wrote:
Wow, det er flot! Håber, opskriften bliver tilgængelig.
16.12.2019 - 21:24Frances Brown wrote:
Sunstreak is the perfect name for this pattern. I wish I had thought of it.
11.12.2019 - 07:15Souquet Sergine wrote:
Envole...lui irai parfaitement.
10.12.2019 - 18:38Geneviève wrote:
Original
10.12.2019 - 16:52