Ballet in Blue |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð vafningspeysa með blöðruermum úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-49 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga), prjónið uppsláttinn snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan útauknar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (á við um mitt undir ermum): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru síðan prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA-1 (á við um handveg): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum fyrir handveg innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni eins og útskýrt er að neðan. Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 3 kantlykkjunum og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál að framan og að aftan): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 7 kantlykkjur eins og útskýrt er að neðan (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni á bakstykki og A.1/A.2 á framstykki). Fækkið lykkjum á eftir 7 kantlykkjum þannig: Takið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 7 kantlykkjum þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 7 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-3 (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR (á við um lengd á ermum): Hægt er að stilla af lengd á ermum að óskaðri lengd, en passið uppá að lengdin á að vera aðeins lengri en venjulega svo að ermin poki aðeins neðst niðri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VAFNINGSPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykki og framstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. Ermakúpurnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Síðan er afgangur af ermum prjónaður í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón ofan frá og niður. Stykkið er saumað saman og snúran er prjónuð í lokin. Allt stykkið er prjónað í 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). BAKSTYKKI: Fitjið upp 60-66-72-81-90-99 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4,5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff svona í 3 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjurnar eru prjónaðar í garðaprjóni). Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4-5-6-6-7-7 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 3-3-3½-4-4-4½ cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 68-74-80-89-98-107 lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-18-19-21-23-25 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 6-6-7-7-9-11 lykkjur í hvorri hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni eins og áður). Eftir 4 umferðir í garðaprjóni í hvorri hlið, fellið af 3-3-4-4-6-8 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 62-68-72-81-86-91 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ca 1 cm hefur verið prjónaður á eftir úrtöku fyrir handveg, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg (þetta er gert frá réttu) – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í hvorri hlið í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 2-4-6-9-11-13 sinnum = 58-60-60-63-64-65 lykkjur eftir. Prjónið síðan sléttprjón með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 33-35-37-40-43-46 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið nú garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-36-38-41-44-47 cm, fellið af miðju 12-14-14-15-16-17 lykkjurnar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með garðaprjón og fækkið um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli – sjá ÚRTAKA-2 = 22-22-22-23-23-23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 36-38-40-43-46-49 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar stykkið er mátað): Fitjið upp 47-50-56-62-68-74 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4,5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá miðju að framan): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni). Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 7 lykkjur), prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Að aukið á að auka út í hliðum, fækka lykkjum í hálsmáli og fækka lykkjum fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING Í HLIÐ: Þegar stykkið mælist 4-5-6-6-7-7 cm, aukið út um 1 lykkju í hlið – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 3-3-3½-4-4-4½ cm millibili alls 4 sinnum. ÚRTAKA FYRIR HÁLSMÁLI: Jafnframt þegar stykkið mælist 5 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 1 lykkju við miðju að framan – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 20-21-24-26-27-29 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 4-4-4-4-5-5 sinnum. ÚRTAKA FYRIR HANDVEG: Jafnframt þegar stykkið mælist 17-18-19-21-23-25 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 6-6-7-7-9-11 lykkjur í hlið. Í næstu umferð frá röngu (eftir 4 umferðir garðaprjón) eru felldar af 3-3-4-4-6-8 lykkjur fyrir handveg. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka, A.1 við miðju að framan og 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hlið við handveg. Þegar prjónaðir hafa verið ca 1 cm eftir úrtöku fyrir handvegi, fækkið um 1 lykkju í hlið fyrir handveg (þetta er gert frá réttu) – sjá ÚRTAKA -1. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2-4-6-9-11-13 sinnum. Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 22-22-22-23-23-23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 35-37-39-42-45-48 cm frá uppfitjunarkanti. Byrjið frá réttu og prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til aka yfir allar lykkjur. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Framstykkið mælist ca 36-38-40-43-46-49 cm frá uppfitjunarkanti. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 47-50-56-62-68-74 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjóni 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hlið): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni). Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með A.2 (= 7 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Að auki er aukið út lykkjum í hlið, lykkjum fækkað fyrir hálsmáli og lykkjum fækkað fyrir handvegi eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING Í HLIÐ: Þegar stykkið mælist 4-5-6-6-7-7 cm, aukið út um 1 lykkju í hlið – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 3-3-3½-4-4-4½ cm millibili alls 4 sinnum. ÚRTAKA FYRIR HÁLSMÁLI: Jafnframt þegar stykkið mælist 5 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 1 lykkju við miðju að framan – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 20-21-24-26-27-29 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 4-4-4-4-5-5 sinnum. ÚRTAKA FYRIR HANDVEG: Jafnframt þegar stykkið mælist 17-18-19-21-23-25 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 6-6-7-7-9-11 lykkjur í hlið. Í næstu umferð frá réttu (eftir 4 umferðir garðaprjón) eru felldar af 3-3-4-4-6-8 lykkjur fyrir handveg. Haldið áfram með sléttprjón fram og til baka, A.2 við miðju að framan og 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hlið við handveg. Þegar prjónaður hefur verið ca 1 cm eftir affellinguna fyrir handvegi, fækkið um 1 lykkju í hlið fyrir handveg (þetta er gert frá réttu) – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2-4-6-9-11-13 sinnum. Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 22-22-22-23-23-23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 35-37-39-42-45-48 cm frá uppfitjunarkanti. Byrjið frá réttu og prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Framstykkið mælist ca 36-38-40-43-46-49 cm frá uppfitjunarkanti. ERMI: Ermin er prjónuð ofan frá og niður. Fitjið upp 18-22-24-24-26-26 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið sléttprjón fram og til baka fyrir handveg og fitjið jafnframt upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, 2 lykkjur 2-2-3-3-2-2 sinnum í hvorri hlið, 1 lykkja 1-1-1-3-5-7 sinnum í hvorri hlið, 2 lykkjur 3-3-3-3-2-2 sinnum í hvorri hlið og að lokum 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum í hvorri hlið = 52-56-62-66-70-74 lykkjur í umferð. Stykkið mælist nú ca 8-8-9-11-12-14 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið stykkið saman og prjónið síðan í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (þ.e.a.s. þar sem stykkið var sett saman = mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum og auka út mitt undir ermi. Ermin mælist síðan frá þar sem prjónamerkið var sett í. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3-3-2-2-2-2 cm frá þar sem prjónamerkið var sett í, fækkið síðan um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-3: Fækkið lykkjum svona með 4-3-2-1½-1-1 cm millibili alls 3-4-6-7-9-10 sinnum = 46-48-50-52-52-54 lykkjur. Þegar ermin mælist 16-16-15-15-14-14 cm frá þar sem prjónamerkið var sett í, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 1½-1½-1½-1½-1-1 cm millibili alls 14-14-15-16-17-18 sinnum = 74-76-80-84-86-90 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 47-47-47-45-45-43 cm frá þar sem prjónamerkið var sett í (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna/ermina og prjónið að óskaðri lengd – sjá LEIÐBEININGAR). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað var um 8-4-8-6-8-6 lykkjur jafnt yfir = 66-72-72-78-78-84 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjurnar prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 33-36-36-39-39-42 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Ermin mælist ca 60-60-61-61-62-62 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju, en skiljið eftir smá op á vinstri hlið á peysu (þegar flíkin er mátuð) til að þræða snúruna í gegn – opið á að vera ca 2½ til 3 cm og byrjar beint yfir stroffið. Setjið ermarnar undir kant í garðaprjóni meðfram handveg og saumið fallega niður frá réttu (saumað er í ystu lykkju í garðaprjóni frá réttu, svo að kanturinn í garðaprjóni liggi fallega utan á ermi). SNÚRA: Prjóni upp 7 lykkjur frá réttu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram kanti með stroffi. Notið prjón 4,5 og 1 þráð af hvorri tegund. Prjónið garðaprjón fram og til baka þar til snúran mælist ca 75 til 100 cm, fellið af. Prjónið aðra snúru á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (13)
Veronica wrote:
È possibile utilizzare del drops Nepal per questo modello? Che quantità serve? Grazie
09.02.2020 - 22:56DROPS Design answered:
Buongiorno Veronica. Sì può usare il filato Nepal. A questa pagina trova le indicazioni per sostituire i filati. Il suo rivenditore Drops di fiducia è a disposizione per aiutarla. Buon lavoro!
17.02.2020 - 15:30Raymonde Villeneuve wrote:
J'aime, j'espère que ce model sera retenu.
14.07.2019 - 00:05Ellis wrote:
Nice oldfashioned bedjacket
09.06.2019 - 21:50