Waiting for Snow |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Karisma með köðlum og áferðamynstri og eyrnaband prjónað fram og til baka með köðlum.
DROPS 195-1 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Eyrnaband: Sjá mynsturteikningu A.5 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 240 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 26) = 9,2. Í þessu dæmi er aukið út eftir ca 9. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum jafnt óðum eru prjónaðar (í þessu dæmi) ca 8. og 9. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg, síðan er framstykkið prjónað og bakstykki fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna upp að handveg, síðan er ermin prjónuð og axlir fram og til baka. Að lokum eru ermarnar saumaðar í handveg og axlir í fram- og bakstykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 214-230-246-266-286-308 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine eða Karisma. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – lesið útskýringu að ofan. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 5 cm eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út 26-26-26-30-30-36 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 240-256-272-296-316-344 lykkjur. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, eitt í byrjun á umferð og eitt á eftir 120-128-136-148-158-172 lykkjum (= í hvora hlið). Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið mynstur þannig: * Prjónið 23-27-31-32-37-39 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 22 lykkjur), A.2 (= 10 lykkur) yfir næstu 30-30-30-40-40-50 lykkjur (= 3-3-3-4-4-5 mynstureiningar á breidd), A.3 (= 22 lykkjur), 23-27-31-32-37-39 lykkjur með sléttprjóni, prjónamerki er staðsett hér *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með mynstur svona og endurtakið mynsturteikningu á hæðina. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm fellið af 6 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið (fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið) og hvort stykki er prjónað nú fyrir sig. BAKSTYKKI: = 114-122-130-142-152-166 lykkjur. Prjónið síðan fram og til baka á hringprjón. Haldið áfram með mynstur, sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni á hvorri hlið, JAFNFRAMT eru felldar af lykkjur í byrjun á hvorri hlið fyrir handveg þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-3-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 1-1-2-3-3-3 sinnum = 104-112-114-124-130-140 lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 18-18-18-22-22-25 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.1, A.2 og A.3 = 86-94-96-102-108-115 lykkjur. Fellið af. FRAMSTYKKI: = 114-122-130-142-152-166 lykkjur. Prjónað er fram og til baka á hringprjón. Haldið áfram með mynstur, sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið fyrir handveg alveg eins og á bakstykki = 104-112-114-124-130-140 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm fækkið um 10-10-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir miðju 38-38-46-46-46-46 lykkjur í umferð áður en þær eru settar á þráð fyrir hálsmáli (= 28-28-34-34-34-34 lykkjur á þræði fyrir hálsmáli) = 33-37-34-39-42-47 lykkjur fyrir öxl. Prjónið síðan hvora öxl til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli eru felldar af 2 lykkjur = 31-35-32-37-40-45 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 4-4-3-5-5-6 lykkjur jafnt yfir lykkjur í mynstri = 27-31-29-32-35-39 lykkjur. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRI ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 48-50-52-54-56-60 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Merino Extra Fine eða Karisma. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stykkið mælist 9 cm. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 1-1-1-1-1-1 lykkju í umferð = 47-49-51-53-55-59 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið mynstur þannig: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 7-8-9-10-11-13 lykkjurnar, prjónið A.4 yfir næstu 32 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.4, 7-8-9-10-11-13 lykkjur í sléttprjóni. Haldið áfram með mynstur upp úr, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-10-10-12-11-10 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út í 6.-5.-5.-4.-4.-4. hverri umferð alls 16-17-18-19-20-20 sinnum = 79-83-87-91-95-99 lykkjur. Þegar stykkið mælist 44-44-44-42-42-40 cm fellið af 6 lykkjur mitt undir ermi (fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 73-77-81-85-89-93 lykkjur. Prjónið síðan ermi fram og til baka á hringprjón og fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 6-8-10-10-12-12 sinnum og 1 lykkja 8-6-4-6-4-6 sinnum = 33 lykkjur eftir í öllum stærðum. Stykkið mælist nú 54-54-54-53-53-52 cm. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með mynstur yfir þær 33 lykkjur sem eftir eru þar til stykkið mælist 13-15-14-15-17-18 cm. Fellið síðan af í hægri hlið, í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: 17 lykkjur, 1 sinni, 2 lykkjur, 1 sinni, 1 lykkja 2 sinnum = 12 lykkjur. Prjónið síðan yfir þessar 12 lykkjur þar til stykkið mælist 20-22-23-24-26-27 cm. Fellið af. Öll ermin mælist ca 74-76-77-77-79-79 cm. VINSTRI ERMI: Prjónið á sama hátt og hægri ermi, en fellið af efst í gagnstæðri hlið, þ.e.a.s. í byrjun á hverri umferð frá röngu. FRÁGANGUR: Saumið saman ermar við miðju að aftan innan við affellingarkantinn á hvorri ermi. Saumið ermar í við fram- og bakstykki í ystur lykkju þannig: Saumið saum frá handvegi og upp meðfram öxl á bakstykki við miðju að aftan. Endurtakið í hinni hliðinni. Saumið alveg eins frá handvegi og upp meðfram öxl á framstykki upp að hálsmáli. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 94-94-108-108-108-108-108 lykkjur í kringum kant í hálsmáli (meðtaldar lykkjur af þræði) á stuttan hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine eða Karisma. Prjónið 4 umferðir garðaprjón, JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 22-22-26-26-26-26-26 lykkjur jafnt yfir = 116-116-134-134-134-134-134 lykkjur. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 8 cm eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón. Fellið af. Brjótið kantinn í hálsmáli tvöfaldan og saumið niður að innan verðu, garðaprjón við garðaprjón. ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan og er saumað saman í lokin. EYRNABAND: Fitjið upp 30 lykkjur á prjón 4 með Merino Extra Fine eða Karisma. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.5 (= 5 lykkjur í fyrstu umferð) alls 6 sinnum í umferð. Eftir fyrstu umferðina í A.5 hefur verið aukið út um alls 6 lykkjur = 36 lykkjur. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.6 (= 6 lykkjur) yfir hverja mynstureiningu A.5. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 26 cm er gerður kaðall á eyrnabandið við miðju að framan þannig: Prjónið fyrstu 18 lykkjur á kaðlaprjóni, prjónið hinar 18 lykkjurnar og síðan 18 lykkjur af kaðlaprjóni. Haldið síðan áfram með mynstur A.6 fram og til baka þar til stykkið mælist ca 49 cm – stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu af A.6 á hæðina (nú eru eftir ca 3 cm til loka). Prjónið nú A.7 yfir hverja mynstureiningu af A.6. Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka eru 30 lykkjur í umferð. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. Saumið eyrnabandið saman við miðju að aftan með því að sauma í lykkjur eina og eina innan við uppfitjunarkantinn og affellingarkantinn. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (57)
Heather Thompson wrote:
Thanks. So I decrease at the beginning AND end of each row on the sleeve?
13.12.2018 - 09:02DROPS Design answered:
Dear Mrs Thompson, you will bind off first 2 sts then 1 stitch at the beg of every row both from RS and from WS = on each side. Happy knitting!
13.12.2018 - 09:30Heather Thompson wrote:
When I decreased at the sleeve, with 73 stitches, I ended up with 53, not 33 stitches. Should I have decreased at both edges of the sleeve?
12.12.2018 - 23:09DROPS Design answered:
Hi Heather, Yes you decrease at the beginning of each row - so both sides of the sleeve, as described in the text, which will leave you with 33 stitches. Happy knitting!.
13.12.2018 - 08:00Lill. .grung wrote:
Får ikke til vridningen av pannebåndet.Setter 18 m.foran på hjelpep.Strikker de neste 18 og til sist de18 på hjelpep. Blir bare surr,Noe jeg har misforstått?
28.11.2018 - 21:05DROPS Design answered:
Hei Lill. Du setter 18 masker på hjelpepinne, så strikker du de siste 18 maskene. Nå legger du pinnen med de første 18 maskene på kryss over de siste 18, og strikker dem i den rekkefølgen du ville gjort om du strikket dem vanlig. Altså du strikker den masken ytterst til høyre først (når pinnen ligger flatt foran deg) - den første masken du satte på hjelpepinnen er den første masken du strikker. Du kan se på denne videoen som bruker samme teknikk: . God fornøyelse
29.11.2018 - 13:53Lone Oldager wrote:
Der er noget jeg ikke forstår. Man skal lukke af til ærmer efter 41 cm(str. small) og og derefter strikke videre og lukke af til hals når arbejdet måler 51cm. Hvad er det, jeg overser? --------- Jeg forstår ikke at man allerede skal lukke af til skulder efter 51cm, nå sweateren samlede længde skal være 60 cm
06.11.2018 - 13:03DROPS Design answered:
Hej Lone, jo det sidste stykke skulder strikker du sidst på ærmet. Se måleskitsen hvor arbejdet syes sammen. God fornøjelse!
07.11.2018 - 11:17DUVAL MARIE-THERESE wrote:
Bonjour, je tricote uniquement avec des aiguilles droites or, les explications sont fournies pour des aiguilles circulaires ; si je divise par deux le nombre de mailles au départ (et jusqu'aux emmanchures) est-ce je serai dans le bon calcul pour faire ce pull ? Sachant que je souhaite obtenir un pull dans lequel je ne serai pas serrée, à quelle lettre correspond ma taille (je fais du "46/48") XL ou XXL ? Merci.
03.11.2018 - 07:41DROPS Design answered:
Bonjour Mme Duval, vous trouverez ici des informations pour adapter un modèle sur aiguilles droites et là comment trouver votre taille. Bon tricot!
05.11.2018 - 08:48Gastin wrote:
Très beau modèle Explications complète et surtout une aide bien précieuse Merci
31.10.2018 - 08:42Gastin wrote:
Bonjour Ou peut on trouver les diagrammes A5 -A7? Merci
30.10.2018 - 23:27DROPS Design answered:
Bonjour Gastin, vous trouverez ces diagrammes en bas du modele, deuxieme rang des diagrammes, a gauche. Bon tricot!
31.10.2018 - 06:54Noor Wortel wrote:
Wat n prachtig patroon. Ik ben begonnen maar twijfel of het patroon van de kabels ook in het achterpand terugkomt. Zijn voor en achterpand gelijk qua patroon?
24.10.2018 - 18:12DROPS Design answered:
Dag Noor Wortel,
Ja hoor, het kabelpatroon zit zowel op het voor- als op het achterpand.
24.10.2018 - 20:42Joke Lankester wrote:
Ik kan niet rondbreien. Hebben jullie dit patroon ook voor 2 naalden?
15.10.2018 - 17:22DROPS Design answered:
Dag Joke, Dit patroon kun je inderdaad ook wel met rechte breinaalden breien. Lees hier meer informatie over het aanpassen van een patroon, zodat je deze met rechte naalden kunt breien.
15.10.2018 - 21:40Joke Lankester wrote:
Ik kan niet rondbreien. Hebben jullie dit patroon ook voor 2 naalden?
15.10.2018 - 17:21