DROPS Belle uni colour 53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör |
682.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Change language:
Íslenska#gentlewavestop
DROPS Design: Mynstur vs-040
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Belle uni colour 53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör 682.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= slétt frá réttu, brugðið frá röngu | |
= brugðið frá réttu, slétt frá röngu | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn | |
= 2 lykkjur slétt saman | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman | |
= prjónið hnút þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt í sömu lykkju, steypið 2. lykkjunni yfir síðustu lykkju á hægri prjóni, steypið næstu lykkju yfir síðustu lykkju á prjóni og haldið áfram þar til 4 lykkjur hafa verið steyptar yfir ystu lykkjuna |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Gentle Waves |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónaður toppur með gatamynstri og A-formi, prjónaður ofan frá og niður úr DROPS Belle. Stærð S - XXXL.
DROPS 190-14 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki í hlið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið í hinni hliðinni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er fram- og bakstykki prjónað hvort fyrir sig, fram og til baka niður að handveg, síðan er fram- og bakstykki prjónað í hring. BAKSTYKKI: Prjónið hægri öxl þannig: Fitjið upp 16-17-17-18-19-20 lykkjur á hringprjón 4,5 með Belle. UMFERÐ 1 (= rétta): 3 lykkjur með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= að hálsmáli), 10-11-11-12-13-14 lykkjur slétt, 3 lykkjur garðaprjón (= að handveg). UMFERÐ 2: 3 lykkjur garðaprjón, brugðnar lykkjur þar til eftir eru 3 lykkjur, 3 lykkjur garðaprjón. Endurtakið umferð 1 og 2 8 sinnum til viðbótar (= alls 9 sinnum) = 18 umferðir. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju innan við 3 lykkjur í garðaprjóni að hálsi – lesið ÚTAUKNING-1 = 17-18-18-19-20-21 lykkja. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu og geymið stykkið. Stykkið mælist ca 8 cm frá uppfitjunarkanti og niður. Prjónið vinstri öxl þannig: Fitjið upp og prjónið eins og hægri öxl, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. þegar aukið er út um 1 lykkju við hálsmál er aukið út um 1 lykkju á undan 3 lykkjum í garðaprjóni að hálsmáli í 19. umferð. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Prjónið nú vinstri og hægri öxl saman þannig: Snúið stykkinu (= vinstri öxl) og prjónið eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp 35-35-37-37-39-39 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar, síðan eru prjónaðar 17-18-18-19-20-21 lykkjur frá hægri öxl inn á prjóninn = 69-71-73-75-79-81 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir háls við miðju að aftan eru prjónaðar í garðaprjóni, aðrar lykkjur á bakstykki eru prjónaðar í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í garðaprjóni yfir nýjar lykkjur fyrir hálsmáli er mynstur prjónað jafnframt því sem aukið er út fyrir handveg. Byrjið frá réttu og prjónið þannig: 3 lykkjur garðaprjón, 13-14-15-16-18-19 lykkjur í sléttprjóni, A.1 (= 7 lykkjur), A.2 (= 23 lykkjur), A.1, 13-14-15-16-18-19 lykkjur í sléttprjóni, 3 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 13-12-12-10-10-9 cm frá uppfitjunarkanti á öxl er aukið út um 1 lykkju innan við 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið fyrir handveg. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 3-5-7-10-12-16 sinnum = 75-81-87-95-103-113 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu á eftir síðustu útaukningu og geymið stykkið. Stykkið mælist 15-16-17-18-19-21 cm frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki. Þegar allar útaukningar fyrir handveg er lokið eru = 75-81-87-95-103-113 lykkjur í umferð. Á eftir síðustu útaukningu er prjónuð 1 umferð til baka frá röngu. Prjónið nú frá réttu þannig: Snúið og prjónið yfir allar lykkjur á framstykki, fitjið upp 4-6-8-10-12-14 nýjar lykkjur fyrir handveg, setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju lykkja (= 2-3-4-5-6-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið 75-81-87-95-103-113 lykkjur frá bakstykki inn á sama hringprjón og fitjið upp 4-6-8-10-12-14 nýjar lykkjur fyrir handveg, setjið eitt prjónamerki mitt í þessar nýju lykkjur (= 2-3-4-5-6-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 158-174-190-210-230-254 lykkjur. Prjónið síðan stykkið í hring á hringprjón. Prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður, en yfir miðju 10-12-14-16-18-20 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 5-6-7-8-9-10 lykkjur hvoru megin við prjónamerki á hvorri hlið) er prjónað garðaprjón. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir lykkjur inn í hvorri hlið er haldið áfram í sléttprjóni, A.1 og A.2 eins og áður. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 2 lykkjur hvoru megin á stykki – lesið ÚTAUKNING-2! Aukið svona út í 6.-6.-7.-7.-7.-7. hverri umferð alls 13 sinnum = 210-226-242-262-282-306 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 40-41-42-4.-44-44 cm (alls 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl). Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 309 vörulista og 11629 mynstur - 7155 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (14)
Tatiana Pohankova skrifaði:
Can you check pattern again? I am sure there is a mistake even on schematic for top. 16 cm for armhole in M size is really too small. The rest of dimensions from M size fits to my size.
10.08.2024 - 13:49DROPS Design svaraði:
Hello Tatiana, usually 16 cm is sufficient for size M - the armholes are cut out and the knitted straps are elastic, so you should take into account that the actual armhole will be larger when worn. Of course, feel free to make the shoulder straps longer to make the armholes longer. Happy knitting!
10.08.2024 - 14:36Tina skrifaði:
Hallo, welches Größensystem S-3XL liegt dieser Anleitung (die Maße in Italien sind andere als in UK, sind anders als in USA oder Deutschland)? Ich möchte diese Anleitung in eine US M stricken, entspricht es dieser angegebenen M? Danke, viele Grüße Tina
19.07.2022 - 21:35DROPS Design svaraði:
Liebe Tina, die genauen Maße finden Sie in der Maßskizze. Um die richtige Größe zu ermitteln, orientieren Sie sich am besten an einem Kleidungsstück, das Ihnen gut passt, messen es aus, vergleichen die Maße mit der Maßskizze und sehen dann, welche Größe die richtige ist. In unseren Anleitungen sind die Größen für die verschiedenen Länder alle gleich, d.h. es liegen dieselben Maße zugrunde. Viel Spaß beim Stricken!
25.07.2022 - 18:49Stora ärmhål skrifaði:
När jag tittar närmare på bilden ser man behån i ärmhålet. Ska ärmhålet vara så långt ned?
24.01.2022 - 18:51DROPS Design svaraði:
Hej. Om du ser på måttskissen så ser du hur många cm ärmhålet är så du kan mäta på dig själv hur långt ner det kommer hamna. Mvh DROPS Design
25.01.2022 - 09:24Hind skrifaði:
Hello, when i cast on new stitches for back/front/armhole I end up getting some loose stitches at the junction point even though i keep my yarn quite tight while casting .. is there anyway to avoid this?
30.06.2021 - 10:42DROPS Design svaraði:
Dear Hind, maybe this technique might help? Your yarn store might have even more tipps for you and will share them with you even per mail or telephone. Happy knitting!
30.06.2021 - 13:24Coco skrifaði:
Désolé mais j’ai encore une question. Au dos, voir dite de faire 2 côtes mousse, c’est bien 4 rangs endroit? Car vous notez 2 côtes mousses donc multiplier par 2? POINT MOUSSE (en allers et retours): 1 côte mousse = tricoter 2 rangs endroit. Avec tous mes remerciements
28.08.2020 - 11:06DROPS Design svaraði:
Bonjour Coto, tout à fait 2 côtes mousse = 4 rangs endroit, on tricote ces 2 côtes mousse sur les mailles de l'encolure seulement, pendant ces 4 rangs, les autres mailles seront tricotées comme avant. Bon tricot!
28.08.2020 - 13:08Coco skrifaði:
Bonjour, je souhaiterais savoir au début du tricot ( le dos) vous dites d’augmenter d’une maille tout les rangs endroits. Mais par la suite , doit on tricoter c’est augmentations au points mousse comme les 3 mailles de bordures ou en jerseys comme les mailles des épaules ? Merci pour votre aide. Cordialement
18.08.2020 - 23:04DROPS Design svaraði:
Bonjour Coco, les augmentations pour l'encolure et pour les emmanchures se tricotent en jersey à 3 mailles point mousse du bord- cf AUGMENTATIONS-1. Vous augmentez sur l'endroit en début de rang après les 3 premières mailles point mousse et augmentez en fin de rang avant les 3 dernières mailles point mousse. Bon tricot!
19.08.2020 - 08:11Dorthe Hansen skrifaði:
Hvor langt er ærmegabet ,? før de 2 stykker skal sættes sammen ? Det kan da ikke passe det kun er 15 cm målt fra stroppen .?
01.06.2020 - 15:57DROPS Design svaraði:
Hej Dorthe, Ja det stemmer, 15 cm i den mindste størrelse
05.06.2020 - 09:49Comnie skrifaði:
Når modellen er strikket oppefra og ned, skal jeg så strikke mønsterrsporten oppefra og ned, eller er der taget højde for det i opskriften, så jeg bare starter nedefra i diagrammet?
04.08.2019 - 18:57DROPS Design svaraði:
Hej Comnie, ja du starter bare nedefra i diagrammet som du plejer. God fornøjelse!
09.08.2019 - 09:07Barbara Krause skrifaði:
Moin wann beginnt das Muster? Ist Vorderteil wie Rückseite mit Muster? Dankeschön
29.06.2019 - 23:11DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Krause, Rücken und Vorderteil sind beide gleich, dh Sie stricken zuerst Rückenteil (1. Schulter, dann 2. Schulter, dann schlagen Sie die Maschen für den Halsauschnitt und stricken Muster in der Mitte und nehmen für die Armlöcher zu), Nach der letzen Zunahmen werden Sie beide Teile in der Runde stricken (und neuen Maschen für die Armlöcher dazwischen anschlagen). Viel Spaß beim stricken!
01.07.2019 - 07:05Margret skrifaði:
Hallo liebe Dropse,bei A1 sind doch die Rückreihen links gestrickt so wie abgebildetes Original zeigt.Dann wäre die Strickanleitungen. Falsch,da die Rückreihen fehlen(linke R) Oder sind nur die Hinreihen angegeben,dann wären es sicher aber nur 2rechte Reihen!? Komme gerad nicht klar bitte Info,danke und freundlichen Gruß Margret
10.06.2019 - 20:24DROPS Design svaraði:
Liebe Magret, die Diagramme zeigen alle Reihen, da bei den Rückreihen stricken Sie: 1 M re (= sieht wie eine linke Masche von der Vorderseite), 5 M links (= glatt rechts) und 1 M re (= sieht wie eine linke Masche von der Vorderseite). Viel Spaß beim stricken!
11.06.2019 - 12:06