Baby Duck |
|
|
|
Prjónuð peysa með laskalínu og sokkar fyrir börn úr DROPS Alpaca. Stærð fyrirburar - 4 ára.
DROPS Baby 31-9 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= alls 2 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. LASKALÍNA (á við um peysu): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum svona við hvert prjónamerki (= 2 lykkjur færri við hvert prjónamerki og alls 8 lykkjur færri í umferð). ÚRTAKA-1 (á við um sokka): Fækkið um 1 lykkju á undan 1 lykkju brugðið þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið um 1 lykkju á eftir 1 lykkju brugðið þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna. ÚRTAKA FYRIR TÁ (á við um sokka): Fækkið lykkjum 3 lykkjum á undan prjónamerki þannig: prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju yfir eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp. Fram- og bakstykki er fyrst prjónað fram og til baka. Síðan eru ermar prjónaðar í hring á sokkaprjóna áður en fram- og bakstykki og ermar eru sett saman og prjónað áfram fram og til baka. Kantur að framan er prjónaður á og kantur í hálsmáli er prjónaður í lokin. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp (90) 102-118-126-138 (146-162) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki, þar á kantur að framan síðar að prjónast upp) á hringprjón 2,5 með litnum gulur í DROPS Alpaca. Prjónið stroff þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist (2) 2-3-3-3 (4-4) cm. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist (9) 13-16-17-18 (21-23) cm fækkið síðan lykkjum fyrir ermi í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, (19) 22-25-27-30 (32-36) lykkjur sléttprjón (= hægra framstykki), fellið af næstu (6) 6-8-8-8 (8-8) lykkjur, prjónið (38) 44-50-54-60 (64-72) lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki), fellið af næstu (6) 6-8-8-8 (8-8) lykkjur, prjónið (19) 22-25-27-30 (32-36) lykkjur í sléttprjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (= vinstra framstykki) = (78) 90-102-110-122 (130-146) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring. Fitjið upp (36) 36-36-36-40 (40-44) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum gulur í DROPS Alpaca. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 2 cm, skiptið yfir á sokkaprjón 3, setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi) og prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með (2) 1½-1½-1-1 (1½-1½) cm millibili alls (3) 6-8-11-11 (13-14) sinnum = (42) 48-52-58-62 (66-72) lykkjur. Þegar stykkið mælist (9½) 13-15½-17-19½ (23-27) cm fellið af fyrstu og síðustu (3) 3-4-4-4 (4-4) lykkjur (= alls (6) 6-8-8-8 (8-8) lykkjur færri) = (36) 42-44-50-54 (58-64) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = (150) 174-190-210-230 (246-274) lykkjur. Í fyrstu umferð eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig, umferðin er prjónuð frá röngu: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, (22) 25-28-31-34 (36-40) lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki, (30) 36-38-42-46 (50-56) lykkjur með sléttprjóni, setjið 1 prjónamerki, (44) 50-56-62-68 (72-80) lykkjur með sléttprjóni, setjið 1 prjónamerki, (30) 36-38-42-46 (50-56) lykkjur með sléttprjóni, setjið 1 prjónamerki og endið með (22) 25-28-31-34 (36-40) lykkjur með sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið (3) 0-0-0-0 (0-0) umferð í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni á hvorri hlið á stykki. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir laskalínu hvoru megin við hvert prjónamerki – lesið LASKALÍNA! Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu (= önnur hver umferð) alls (8) 11-12-14-16 (18-21) sinnum = (86) 86-94-98-102 (102-106) lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um (10) 10-10-14-14 (14-14) lykkjur jafnt yfir = (76) 76-84-84-88 (88-92) lykkjur. Látið lykkjur verða eftir á hringprjóni, nú á að prjóna kant að framan á hvoru framstykki, síðan er prjónaður 1 kantur í hálsmáli yfir þessar lykkjur. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Stykkið er prjónað fram og til baka. Prjónið upp (42) 58-70-74-78 (90-102) lykkjur frá réttu innan við 1 kantlykkju með garðaprjóni við miðju að framan á hringprjón 2,5 með litnum gulur í DROPS Alpaca. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt. Þegar kantur að framan mælist ca 2 cm, fellið af allar lykkjur og passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið eins og vinstri kantur að framan, en fellið af fyrir (4) 5-6-6-6 (6-7) hnappagötum jafnt yfir þegar kantur að framan mælist ca 1 cm (síðar er fellt af fyrir 1 hnappagati á kanti í hálsmáli þannig að fellt er af fyrir fyrsta hnappagati á kanti í hálsi ca 3-4 cm niður frá hálsi. Fellið af fyrir hnappagötum með ca 4-5 cm millibili, passið uppá að það sé gert í brugðnum lykkjum). 1 hnappagat = 2 lykkjur brugðið saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 5 lykkjur í hvorum kanti að framan á hvorri hlið á stykki innan við 1 lykkju og setjið allar lykkjur á hringprjón 2,5 = (86) 86-94-94-98 (98-102) lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm – fellið af fyrir hnappagötum með því að prjóna fyrstu 2 lykkjurnar brugðið saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn (= frá réttu). Fellið af, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir hvorri ermi. Saumið tölur í vinstri kant að framan. --------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 40-44-48 (52-56) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum ljós beige í DROPS Alpaca. Prjónið stroff í hring (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 5-6-7 (9-10) cm. Setjið síðustu lykkju sem var prjónuð á sama prjón og fyrstu 19-19-23 (23-27) lykkjur í umferð = 20-20-24 (24-28) lykkjur á prjóni fyrir hæl. Aðrar 20-24-24 (28-28) lykkjur (= ofan á fæti) eru settar á þráð - stroff ofan á fæti kemur nú til með að byrja og enda með 1 lykkju brugðið. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 3-3-4 (4-4) cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki mitt í þessar lykkjur (= 10-12-12 (14-14) lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað þannig: UMFERÐ 1 (frá réttu): Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 18-18-22 (22-26) lykkjur. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið brugðið. UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið næstu 2 lykkjurnar sléttar saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 16-16-20 (20-24) lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru og saumið þær saman í ystu lykkjubogana (= mitt undir fæti). Prjónið síðan upp 24-24-28 (28-32) lykkjur í ystu lykkjubogana yfir hæl. Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn = 44-48-52 (56-60) lykkjur. Haldið áfram að prjóna hringinn. ATH: Prjónið stroff yfir 20-24-24 (28-28) lykkjur ofan á fæti og sléttprjón yfir 24-24-28 (28-32) lykkjur undir fæti. JAFNFRAMT í annarri hverri umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við stroff ofan á fæti – lesið ÚRTAKA-1! Fækkið lykkjum svona 2 sinnum = 40-44-48 (52-56) lykkjur. Þegar sokkurinn mælist 7½-8½-9 (11-12) cm frá aftast á hæl (nú eru ca 2½-2½-3 (3-4) cm til loka) skiptast lykkjurnar þannig að það verða 20-22-24 (26-28) lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – lesið ÚRTAKA FYRIR TÁ! Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-5-6 (6-7) sinnum = 20-24-24 (28-28) lykkjur. Prjónið allar lykkjur 2 og 2 saman = 10-12-12 (14-14) lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (34)
AUFFRET Marie wrote:
Bonjour, Comment fait-on pour assembler les manches au dos et devant ? Peut-on les assembler en tricotant sur l'envers puisqu'on a fini le dos et devant par un rang endroit pour rabattre les mailles des emmanchures.
09.11.2020 - 14:45DROPS Design answered:
Bonjour Mme Auffret, on glisse les mailles des manches sur la même aiguille circulaire que le dos et les devants, juste au-dessus des 6 ou 8 mailles rabattues pour les emmanchures à la fin du bas du gilet - cette vidéo montre comment faire, les premiers rangs peuvent paraître un peu difficile, mais après quelques rangs, c'est plus simple. Bon tricot!
09.11.2020 - 15:51Christiane wrote:
Hallo, wie muss ich die Maschen bei der Passe verteilen? Kann leider kein System erkennen, wie viele Maschen vom Rumpf und vom Ärmel jeweils gestrickt werden bis ein Markierer kommt. Ich habe insgesamt 246 Maschen, davon 34+1 jeweils außen am Rumpf, 68 in der Mitte vom Rumpf und jeweils 59 Maschen auf jedem Ärmel. Wo müssen die Markierer hin? Vielen Dank.
08.11.2020 - 01:47DROPS Design answered:
Liebe Christiane, mit 246 Maschen stricken Sie die Größe 2 Jahre - aber die Verteilung erfolft so: 1 Rand-M kraus rechts, 36 M glatt rechts stricken (= Vorderteil), 1 Markierer, 50 M glatt rechts stricken (= Ärmel), 1 Markierer, 72 M glatt rechts stricken (= Rückenteil), 1 Markierer, 50 M glatt rechts stricken (= Ärmel), 1 Markierer und 36 M glatt rechts und 1 Rand-M kraus rechts (= Vorderteil) - jetzt nehmen Sie für Raglan ab - siehe RAGLANABNAHMEN: in jeder 2. Reihe 18 Mal = 246 - (8 M x 18) = 102 M bleiben. Viel Spaß beim stricken!
09.11.2020 - 10:41Christiane Leischner wrote:
Ich möchte die Jacke in Gr. 122 stricken. Können Sie mir mit der Maschenzahl helfen? Danke
07.11.2020 - 09:31DROPS Design answered:
Liebe Frau Leischner, leider können wir jeder Anleitung nach jedem individuellen Frage anpassen und einzelne Modelle auf individuellen Wunsch hin umrechnen. Wenn sie Hilfe damit brauchen, wenden Sie sich bitte an dem Laden wo Sie die Wolle gekauft haben, dort hilft man Ihnen gerne weiter. Hier finden Sie alle unsere Anleitungen für Jacken für Kinder, hoffentlich kann es Ihnen etwas helfen. Viel Spaß beim stricken!
09.11.2020 - 09:33AUFFRET Marie wrote:
Bonjour "Rabattre les mailles restantes et les assembler dans le brin le plus à l'extérieur des mailles (= milieu sous le pied)."Je ne comprends pas bien: comment faire? Avez-vous une vidéo? Merci d'avance.
02.11.2020 - 10:12Christiane Beyer wrote:
Hallo! Ich verstehe die Größenangaben nicht ganz, ganz oben gibt es 5 verschiedene Größen, in der Anleitung selber werden aber immer 7 mögliche Größen angegeben. Welche sind denn jetzt welche? Außerdem wüsste ich gerne, wie breit denn der Ärmel bei Größe 68/74 am unteren und am oberen Ende sein soll. Mein Ärmel scheint mir recht groß (evtl. habe ich die Maschenprobe falsch hoch gerechnet), deswegen wäre eine Angabe in cm super. Viele Grüße Christiane
24.10.2020 - 23:13DROPS Design answered:
Liebe Frau Beyer, das Set ist nur für 5 Größen aber die Jacke ist in 7 Größe, dh die Größe 68/74 bei dem Set ist die 2. Größe = 6/9 Monate und bei der Jacke ist es die 4. Größe. Bei dieser Grösse haben Sie 36 M. am Anfang der Ärmel und 58 M am Ende, mit 24 M = 10 cm mist die Ärmel ca 15 cm und 24 cm. Viel Spaß beim stricken!
26.10.2020 - 08:14Karoline wrote:
Hej, jag undrar om det går lika bra att göra ärmarna på rundstickor som på strumpstickor ? Om ja, hur gör man då isåfall? På samma sätt som beskrivningen? Tack på förhand !
03.07.2020 - 15:11DROPS Design answered:
Hej Karoline. Ja du kan sticka på rundsticka om du hellre vill det och du stickar då på samma sätt som det står i beskrivningen. Eftersom det är så få maskor så är det nog enklast att använda sig av tekniken magic loop om du ska sticka på rundsticka. Lycka till!
06.07.2020 - 08:42Antonia wrote:
Ich möchte das Material für die Jacke bestellen. Welchen Durchmesser sollen die Knöpfe haben?
01.06.2020 - 21:14DROPS Design answered:
Liebe Antonia, hier finden Sie die Knöpfe, sie sind 15 mm durchmesser. Viel Spaß beim stricken!
02.06.2020 - 10:30Jacqueline wrote:
Kan ik aub de opmerkingen voor dit truitje in het Nederlands zien? Can I see the remarks for this cardigan in Dutch please?
28.04.2020 - 21:19DROPS Design answered:
Dag Jacqueline,
De opmerkingen en vragen bij patronen worden niet automatisch vertaald. Iedereen kan in zijn eigen taal een opmerking of vraag plaatsen. Eventueel kun je google translate gebruiken.
Verder kun je gerust je vraag stellen hoor, ook al staan er al een aantal in andere talen.
29.04.2020 - 08:57Julie wrote:
Hej. Jeg har lidt problemer med ærmerne. Jeg har lukket af på retsiden (altså den side jeg strikker ret), hvilket vil sige jeg skal sætte ærmerne på vangsiden. Men hvis jeg gør dette vil ærmerne vende forkert - altså sidde på inderside af jakke og ikke vende ud af. Hvad er det jeg gør forkert?
10.04.2020 - 10:50DROPS Design answered:
Hej Det går helt fint att sätta dit ärmarna på vrangsidan. Du stickar bara ärmarna från vrangsidan också så blir det riktigt. Lycka till! Mvh DROPS Design
22.04.2020 - 09:09Judith Mueller wrote:
Der Garnumrechner ist arg verbesserungswürdig, denn er lässt mich nicht alle Garne der Garngruppe A auswählen. Sehr benutzerunfreundlich! Warum liefert er nur eine begrenzte Auswahl an Garnen?\r\n\r\nIch werde die Jacke mit Drops Safran stricken und das benötigte Garn nun eben selbst ausrechnen.
21.03.2020 - 20:41