DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Midnight Roads

Prjónuð peysa úr DROPS Fabel, prjónuð í vinkil í garðaprjóni með sjalkraga, prjónuð frá hlið. Stærð S - XXXL.

DROPS 173-14
DROPS Design: Mynstur nr fa-363
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
200-250-250-300-350-350 g litur nr 905, svartur/natur
200-250-250-300-350-350 g litur nr 400, svartur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 42 umf garðaprjón verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA, NR 525: 4-4-4-4-5-5 st

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
UMFERÐ 1: sl með litnum svartur/natur
UMFERÐ 2: sl með litnum svartur/natur
UMFERÐ 3: sl með litnum svartur
UMFERÐ 4: sl með litnum svartur

RENDUR Á ERMI:
Prjónið svona í 14 cm:
4 umf með litnum svartur
4 umf með litnum svartur/natur
Prjónið síðan til loka þannig:
2 umf litnum svartur
2 umf litnum svartur/natur

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Örvar í mynsturteikningu sýna prjónstefnu.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 46-49-51-55-57-59 l á hringprjóna nr 4 með litnum svartur/natur. Prjónið 1 umf slétt frá röngu yfir allar l. Setjið 1 prjónamerki í 7.-7.-7.-9.-9.-9. l – séð frá réttu. Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (frá réttu með litnum svartur/natur): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn 5-5-5-7-7-7 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 38-41-43-45-47-49 l sl. Snúið við = 50-53-55-59-61-63 l í umf.
UMFERÐ 2 (frá röngu með litnum svartur/natur): Prjónið sl yfir allar l.
Uppslátturinn er alltaf prjónaður slétt frá röngu, það eiga að myndast göt.
UMFERÐ 3 (frá réttu með litnum svartur/natur): Prjónið sl yfir fyrstu 8-8-8-10-10-10 l (fram að fyrri l með prjónamerki) snúið við.
UMFEÐR 4 (frá röngu með litnum svartur/natur): Herðið á þræði og prjónið sl til baka yfir 8-8-8-10-10-10 l.
UMFERÐ 5 (frá réttu með litnum svartur): Prjónið sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7-7-7-9-9-9 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 40-43-45-47-49-51 l sl. Snúið við = 54-57-59-63-65-67 l í umf.
UMFERÐ 6 (frá röngu með litnum svartur): Prjónið sl yfir allar l.
UMFERÐ 7 (frá réttu með litnum svartur): Prjónið sl yfir fyrstu 10-10-10-12-12-12 l (fram að fyrri l með prjónamerki), snúið við.
UMFERÐ 8 (frá röngu með svartur): Herðið á þræði og prjónið sl til baka yfir 10-10-10-12-12-12 l.

Prjónið þessa 8 umf (= mynstur, prjónið 8 umf yfir l á undan prjónamerki og 4 umf eftir l á eftir prjónamerki) alls 15-17-19-20-23-25 sinnum, nú eru 166-185-203-215-241-259 l í umf.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Í næstu umf frá réttu (prjónið eins og 1. umf í mynstri) fitjið upp 15-15-17-17-19-19 nýjar l í lok umf (= kragi) = 185-204-224-236-264-282 l.

Haldið áfram með mynstur 5-5-5-5-5-6 sinnum til viðbótar (þar til 8 umf í mynstri hafa verið prjónaðar alls 20-22-24-25-28-31 sinnum), fyrir hverja umf sem er prjónuð eins og um 1 eða 5 eru prjónaðar 2 l í síðustu l – nú eru 230-249-269-281-309-337 l í umf.

Setjið síðustu 144-155-167-173-189-205 l á þráð, prjónið nú einungis yfir fyrstu 86-94-102-108-120-132 l á prjóni (= neðri kantur). Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar l í 8-5-2-1-1-1 cm með RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan, endið eftir 2 umf með litnum svartur. Fellið af.

Prjónið upp 16-10-4-2-2-2 l við miðju að framan (meðfram skammhlið á 8-5-2-1-1-1 cm sem prjónuð var í neðri kanti) og setjið til baka 144-155-167-173-189-205 l af þræði á prjóninn = 160-165-171-175-191-207 l. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar l í 1 cm með RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI. Í næstu umf frá réttu er fellt af fyrir hnappagati þannig: Prjónið 16-18-18-18-10-10 l sl, * prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 16 l sl *, endurtakið frá *-* 3-3-3-3-4-4 sinnum, prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umf = 4-4-4-4-5-5 hnappagöt. Prjónið 1 cm yfir allar l, endið eftir 2 umf með litnum svartur. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 46-49-51-55-57-59 l á hringprjóna nr 4 með litnum svartur/natur. Prjónið 1 umf slétt frá röngu yfir allar l. Setjið 1 prjónamerki í 40.-43.-45.-47.-49.-51. l – séð frá réttu. Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (frá réttu með litnum svartur/natur): Prjónið 38-41-43-45-47-49 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 5-5-5-7-7-7 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 l sl = 50-53-55-59-61-63 l í umf.
UMFERÐ 2 (frá röngu með litnum svartur/natur) prjónið sl yfir fyrstu 8-8-8-10-10-10 l (= fram að fyrri l með prjónamerki), snúið við.
UMFERÐ 3 (frá réttu með litnum svartur/natur), herðið á þræði og prjónið sl til baka yfir 8-8-8-10-10-10 l.
UMFERÐ 4 (frá röngu með litnum svartur/natur): Prjónið sl yfir allar l.
Uppslátturinn er alltaf prjónaður slétt frá röngu, það eiga að myndast göt.
UMFERÐ 5 (frá réttu með svartur): Prjónið 40-43-45-47-49-51 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-7-7-9-9-9 sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 l sl, snúið við = 54-57-59-63-65-67 l í umf.
UMFERÐ 6 (frá rögu með litnum svartur) prjónið sl yfir fyrstu 10-10-10-12-12-12 l (= fram að fyrri l með prjónamerki),snúið við.
UMFERÐ 7 (frá réttu með litnum svartur): Herðið á þræði og prjónið sl til baka yfir 10-10-10-12-12-12 l.
UMFERÐ 8 (frá röngu með litnum svartur): Prjónið sl yfir allar l.

Prjónið þessar 8 umf (= mynstur, prjónið 8 umf yfir l frá fyrra prjónamerki og 4 l yfir l á eftir prjónamerki) alls 15-17-19-20-23-25 sinnum, nú eru 166-185-203-215-241-259 l í umf, í síðustu umf (= frá röngu) fitjið upp 14-14-16-16-18-18 nýjar l í lok umf (= kragi, þ.e.a.s. fitjið upp 1 lykkju færri fyrir kraga á vinstra framstykki til að fá réttan lykkjufjölda) = 180-199-219-231-259-277 l.

Haldið áfram með mynstur 5-5-5-5-5-6 sinnum til viðbótar (8 umf í mynstri hafa verið prjónaðar alls 20-22-24-25-28-31 sinnum) í lok hverrar umf sem umf 4 eða 8 hefur verið prjónuð eru prjónaðar 2 l í síðustu l í umf – nú eru 230-249-269-281-309-337 l í umf.

Setjið fyrstu 144-155-167-173-189-205 l á þráð, prjónið nú einungis yfir síðustu 86-94-102-108-120-132 l í umf (= neðri kanti). Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar l í 8-5-2-1-1-1 cm með RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan, endið eftir 2 umf með litnum svartur. Fellið af.

Setjið til baka 144-155-167-173-189-205 l af þræði á prjóninn og prjónið upp 16-10-4-2-2-2 l við miðju að framan (meðfram skammhlið á 8-5-2-1-1-1 cm sem prjónaðir voru í neðri kanti) = 160-165-171-175-191-207 l. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar l í 2 cm með RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI, endið eftir 2 umf með litnum svartur (ekki er fellt af fyrir hnappagati). Fellið af.

VINSTRA BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá hlið að miðju að aftan.
Fitjið upp 46-49-51-55-57-59 l á hringprjóna nr 4 með litnum svartur/natur. Prjónið 1 umf slétt frá röngu yfir allar l. Setjið 1 prjónamerki í 7.-7.-7.-9.-9.-9. l – séð frá réttu. Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (frá réttu með litnum svartur/natur): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 5-5-5-7-7-7 sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 38-41-43-45-47-49 l sl. Snúið við = 50-53-55-59-61-63 l í umf.
UMFERÐ 2 (frá röngu með litnum svartur/natur): Prjónið sl yfir allar l.
Uppslátturinn er alltaf prjónaður slétt frá röngu, það eiga að myndast göt.
UMFERÐ 3 (frá réttu með litnum svartur/natur): Prjónið sl yfir fyrstu 8-8-8-10-10-10 l (fram að fyrri l með prjónamerki), snúið við.
UMFERÐ 4 (frá röngu með litnum svartur/natur): Herðið á þræði og prjónið sl til baka yfir 8-8-8-10-10-10 l.
UMFERÐ 5 (frá réttu með litnum svartur): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7-7-7-9-9-9 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 40-43-45-47-49-51 l sl. Snúið við = 54-57-59-63-65-67 l í umf.
UMFERÐ 6 (frá röngu með litnum svartur): Prjónið sl yfir allar l.
UMFERÐ 7 (frá réttu með litnum svartur): Prjónið sl yfir fyrstu 10-10-10-12-12-12 l (fram að fyrri l með prjónamerki), snúið við.
UMFERÐ 8 (frá röngu með litnum svartur): Herðið á þræði og prjónið sl til baka yfir 10-10-10-12-12-12 l.

Prjónið þessar 8 umf (= mynstur, prjónið 8 umf yfir l á undan prjónamerki og 4 umf yfir l á eftir prjónamerki) alls 15-17-19-20-23-25 sinnum, nú eru 166-185-203-215-241-259 l í umf.

Prjónið 1. umf í mynstri = 170-189-207-219-245-263 l í umf. Í byrjun næstu umf (= 2. umf í mynstri) fellið af 4 fyrstu l í umf (= háls), prjónið síðan sl út umf = 166-185-203-215-241-259 l.

Haldið áfram með mynstur 5-5-5-5-5-6 sinum til viðbótar (8 umf er mynstri hafa verið prjónaðar alls 20-22-24-25-28-31 sinnum) – nú eru 202-221-239-251-277-303 l í umf.

Setjið síðustu 116-127-137-143-157-171 l af þræði á prjóninn, nú er einungis prjónað yfir fyrstu 86-94-102-108-120-132 l í umf (= neðri kantur), prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar l í 8-5-2-1-1-1 cm með RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan, endið eftir 2 umf með litnum svartur. Fellið af og fellið af l sem eru á þræði.

HÆGRA BAKSTYKKI:
Fitjið upp 46-49-51-55-57-59 l á hringprjóna nr 4 með litnum svartur/natur. Prjónið 1 umf slétt frá röngu yfir allar l. Setjið 1 prjónamerki í 40.-43.-45.-47.-49.-51. l – séð frá réttu. Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (frá réttu með litnum svartur/natur: Prjónið 38-41-43-45-47-49 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 l sl (= l með prjónamerki) sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 5-5-5-7-7-7 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 l sl = 50-53-55-59-61-63 l í umf.
UMFERÐ 2 (frá röngu með litnum svartur/natur) prjónið sl yfir fyrstu 8-8-8-10-10-10 l (= fram að fyrri l með prjónamerki), snúið við.
UMFERÐ 3 (frá réttu með litnum svartur/natur), herðið á þræði og prjónið sl til baka yfir 8-8-8-10-10-10 l.
UMFERÐ 4 (frá röngu með litnum svartur/natur): Prjónið sl yfir allar l.
Uppslátturinn er alltaf prjónaður slétt frá röngu, það eiga að myndast göt.
UMFERÐ 5 (frá réttu með litnum svartur): Prjónið 40-43-45-47-49-51 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-7-7-9-9-9 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 l sl. Snúið við = 54-57-59-63-65-67 l í umf.
UMFERÐ 6 (frá röngu með litnum svartur) prjónið sl yfir fyrstu 10-10-10-12-12-12 l (= fram að fyrri l með prjónamerki), snúið við.
UMFERÐ 7 (frá réttu með litnum svartur): Herðið á þræði og prjónið sl til baka yfir 10-10-10-12-12-12 l.
UMFERÐ 8 (frá röngu með litnum svartur): Prjónið sl yfir allar l.

Prjónið þessar 8 umf (= mynstur, prjónið 8 umf yfir l á undan prjónamerki og 4 umf yfir l á eftir prjónamerki) alls 15-17-19-20-23-25 sinnum, nú eru 166-185-203-215-241-259 l á prjóni.

Í byrjun næstu 1. umf í mynstri eru felldar af fyrstu 4 l í umf (= hálsmál), prjónið síðan umf út með útaukningu eins og áður = 166-185-203-215-241-259 l.

Haldið áfram með mynstur 5-5-5-5-5-6 sinnum til viðbótar (8 umf í mynstri hafa verið prjónaðar alls 20-22-24-25-28-31 sinnum) – nú eru 202-221-239-251-277-303 l á prjóni.

Fellið af fyrstu 116-127-137-143-157-171 l, nú er einungis prjónað yfir síðustu 86-94-102-108-120-132 l í umf (= neðri kantur), prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar l í 8-5-2-1-1-1 cm með RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan, endið eftir 2 umf með svartur. Fellið af.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 40-42-44-46-48-50 l á sokkaprjóna nr 4 með litnum svartur. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = mitt undir ermi. Prjónið síðan sléttprjón og RENDUR Á ERMI. Þegar stykkið mælist 8-8-8-12-12-10 cm aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki undir ermi. Aukið út um 2-2-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 19-21-22-23-24-25 sinnum = 78-84-88-92-96-100 l. Þegar stykkið mælist 51-50-49-48-46-44 cm prjónið stykkið áfram fram og til baka. Haldið áfram þar til ermin mælist 54-53-52-52-50-48 cm. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman við miðju að aftan. Saumið axlasauma. Saumið ermar í, efstu 3-3-3-4-4-4 cm l á ermi eru saumaðar við 7-7-7-9-9-9 l (= þar sem prjónamerkið er). Í uppfitjunarkant á framstykki/bakstykki. Saumið hliðarsauma yst í lykkjubogana. Saumið saman kragann fyrir miðju að aftan og saumið við bakstykki. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.02.2018
Leiðrétting á kraga undir hægra og vinstra framstykki.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (73)

country flag Marianne Langholm wrote:

Forstår ikke opskrift. Ville ønske at efter de første 8 omgange, ville fortælle om de næste 8, så man havde en ide om mønster. Der kommer 4 nye masker på hver 4 pind.. kan ikke se det med de 8 masker før man kan se de 4 efter mærke. Hvad med de nye masker. Samt der mangler billeder, så man bedre kan se siderne

04.03.2024 - 08:17

country flag Bendicte wrote:

Hvordan skal kraven monteres. Den kommer jo til at vende med vrangen udad, hvis den bare sys sammen midt bag og sys på rygstykkerne. Jeg kan ikke se det på billederne.

07.02.2024 - 18:08

DROPS Design answered:

Hei Benedicte. Du kan montere / sy sammen med usynlig maskesting. mvh DROPS Design

16.02.2024 - 09:25

country flag Karina Klemmensen wrote:

Hej. Jeg er meget i tvivl om hvordan jeg fortsætter. Jeg har strikket de første 8 pinde. Hvordan fortsætter man? Ved godt jeg skal strikke de 8p igen, men hvordan? Strikker man som der står så hullerne/omslag bliver forskudte eller skal man tælle ud fra mærketråd så omslagene kommer til at være samme sted. Det vil sige hvordan strikker jeg pind 1 anden gang? Hilsen Karina.

09.03.2022 - 10:16

DROPS Design answered:

Hej Karina, du skal have omslagene på samme sted, dvs du strikker 1r, 1omslag, 9-9-9-11-11-11 r, 1 omslag, 1 ret (mærketråd) osv... God fornøjelse!

14.03.2022 - 15:28

country flag Yvonne wrote:

Kunne man ikke lave et diagram. Det er mange gange lettere at gennemskue når man ser det grafisk. Opskriften virker noget rodet.

18.01.2022 - 20:46

country flag Yvonne Christensen wrote:

Jeg vil gerne stille det samme spørgsmål som Lillian stiller. Du skriver at vi bare skal gentage de 8 pinde til størrelsen passer. Vil det sige at hullerne bliver forskudte. Da I nævner før og efter m med mærketråd kan jeg ikke få det til at passe. Så hullerne skal måske ligge over hinanden? Det er en meget misvisende opskrift. Har strikket i 40 år.

18.01.2022 - 17:56

country flag Judith Hansen wrote:

Hej Er det rigtig at ærmerne at strikkes i glatstrik

29.12.2021 - 08:09

DROPS Design answered:

Hej Judith, ja ærmerne strikke i glatstrik :)

03.01.2022 - 15:51

country flag Jette Nielsen wrote:

Hej igen Tak for ingenting tænker jeg - jeg beder jo ikke om at omskrive en opskrift - men ved i hvad..... jeg har en mega god person på en strikkeside - som jeg ikke kender - som kan mere end i kan - for hun har lavet en hel side med tallene som jeg efterlyser - så ikke meget hjælp når man ydermere "køber" garn og opskrift og så ikke kan få hjælp til opskriften

08.10.2021 - 19:01

country flag Jette Nielsen wrote:

Er helt nystartet - måske en for stor mundfuld - men når jeg har lavet første omgang mønster - er der jo en masse tal/masker der skal passe - men jeg kan simpelthen ikke regne ud - hvor mange masker der skal stå de forskellige steder i de 19 gange jeg skal lave mønstret - altså p 1 skal der strikkes 5 masker osv. og når 2 omgang mønster skal i gang - hvad skal der så stå i stedet for 5 m. Skal alle antal masker være + 8 alle omgange igennem - kan simpelthen ikke regne det ud - Jette

30.09.2021 - 20:06

DROPS Design answered:

Hej Jette, det er en af de mere avancerede modeller, så er du "nybegynder" skal du nok prøve et par andre først. Vi har desværre ikke mulighed for at skrive den om. Vi kan svare på et helt konkret spørgsmål og da må vi vide størrelse, hvor du er i opskriften, hvor mange masker du skal have og hvor mange du har. Held og lykke!

06.10.2021 - 14:19

country flag Babette Ehlers wrote:

Jeg kan ikke se rettelser ? Er i gang med det sidste på højre del foran . Når jeg har lavet det sidste knaphul skal kraven så bare strikkes ret frem og tilbage uden udtagninger ? Eller skal der fortsættes med det ?

30.08.2021 - 06:50

DROPS Design answered:

Hei Babette. Rettelsen er allerede rettet inn i selve oppskriften på nett. Har du katalogen er ikke rettelsen der, man kan da klikke på den røde linken og lese hva rettelse er. Etter siste knappehull strikk 1 cm over alle maskene og avslutt etter 2 pinne med sort. Fell av. mvh DROPS design

30.08.2021 - 14:10

country flag Susanna wrote:

Jeg har også haft problemer med mønstret, da det ikke fremgår at man skal fortsætte med at tage ud på begge sider af mærketråden fortløbende, på for og bagstykke. Samtidig med farveskift mønsteret. Havde strikket to forstykker da jeg opdagede at det var forkert jeg havde gjort, da jeg troede at sidestykkerne var separate. Og er nu startet forfra, nu ser det ud til at jeg har løst problemet. Er en erfaren strikker. Mvh Susanna

10.04.2021 - 08:43