DROPS Cotton Merino uni colour 50% Ull, 50% Bómull |
946.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Cotton Merino uni colour 50% Ull, 50% Bómull 946.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= sl | |
= br | |
= takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir | |
= 2 l slétt saman | |
= takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir | |
= sláið uppá prjóninn á milli 2 l |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Blue September |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll úr DROPS Cotton Merino með gatamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 165-46 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l á undan 1. og 3. prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið um 1 l á eftir 2. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. LASKALÍNA: Fækkið um 2 l í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Fækkið lykkjum þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og upp. KJÓLL: Fitjið upp 224-240-288-304-336-368 l á prjóna nr 4 með Cotton Merino. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið síðan A.1 yfir allar l (= 14-15-18-19-21-23 mynstureiningar á breiddina). Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 168-180-216-228-252-276 l í umf (stykkið mælist ca 26 cm). Prjónið 1 umf slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 168-182-210-224-252-280 l. Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 24-25-29-31-34-38 l, setjið 1. prjónamerki, prjónið 36-41-47-50-58-64 l, setjið 2. prjónamerki, prjónið 48-50-58-62-68-76 l, setjið 3. prjónamerki, prjónið 36-41-47-50-58-64 l, setjið 4. prjónamerki, prjónið þær 24-25-29-31-34-38 l sem eftir eru. Prjónamerki 1 og 2 eru á framstykki og prjónamerki 3 og 4 eru á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Í næstu umf er fækkað um 1 l við hvert prjónamerki – lesið ÚRTAKA = 4 l færri í umf. ATH: Lykkjufjöldinn við miðju að framan og við miðju að aftan verður sá sami, lykkjum er fækkað í hliðarlykkjum. Endurtakið úrtöku með 6 m millibili 4 sinnum til viðbótar = 148-162-190-204-232-260 l. Stykkið mælist nú ca 50 cm í öllum stærðum. Takið burt 4 fyrstu prjónamerkin. Setjið 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið, eitt í byrjun umf og eitt eftir 74-81-95-102-116-130 l (= hliðar). Þegar stykkið mælist 56 cm í öllum stærðum er aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= 4 l fleiri), endurtakið útaukningu með 4-4½-4½-5-5-5½ cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 164-178-206-220-248-276 l. Þegar stykkið mælist 71-72-73-74-75-76 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af fyrstu 4 l í umf, prjónið þar til 4 l eru eftir á undan seinna prjónamerki, fellið af næstu 8 l, prjónið þar til 4 l eru eftir í umf, fellið af þessar 4 l. Nú eru 74-81-95-102-116-130 l á bakstykki og framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 45-47-49-51-53-55 l á sokkaprjóna nr 4 með Cotton Merino. Prjónið 4 umf garðaprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Prjónið síðan þannig: 15-16-17-18-19-20 l sl, A.2 (= 15 l), 15-16-17-18-19-20 l sl. Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Aukið út um 3½-3-3-2½-2-2 cm millibili 11-12-13-14-16-17 sinnum til viðbótar = 69-73-77-81-87-91 l. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 51-50-50-49-49-48 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri laskalínu og víðara hálsmáls) fellið af 4 l hvoru megin við prjónamerkin = 61-65-69-73-79-83 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 270-292-328-350-390-426 l. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í sléttprjóni yfir l á fram- og bakstykki og mynstur og sléttprjón eins og áður yfir ermar, JAFNFRAMT í næstu umf byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 20-22-23-23-23-24 sinnum til viðbótar, síðan í hverri umf 0-0-1-3-6-7 sinnum. Eftir alla úrtöku eru 102-108-128-134-150-170 l eftir í umf. Prjónið 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 7-7-23-25-37-53 l jafnt yfir = 95-101-105-109-113-117 l. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (14)
Annette Kjeltoft wrote:
Hej - jeg skal til at strikke denne kjole Blue September til mit voksne barnebarn, men hun vil have kjolen helt glat uden mønsteret. Da indtagene jo er glemt i mønsteret i skørtet, har jeg lidt problemer med at finde ud af, hvordan jeg får taget ind, så det bliver pænt? Kan en hjælpe mig? Eller måske findes der en anden opskrift, men hun har jo købt garnet, så det må passe.\\r\\nPå forhånd tak Bedstemor
08.01.2019 - 12:31DROPS Design answered:
Hei Annette. Om du hadde strikket etter mønster hadde du strikket A.1 nederst på skjørtet, her er det lagt inn fellinger på omgang 37 og 59 - du kan se at det ikke er noen kast på sidene av fellingen (= 2 masker felt per A.1). Om du strikker i glattstrikk kan du likevel følge disse fellingene. Du feller altså 2 masker per rapport av A.1 på omgang 39 og 57, og det er 14-15-18-19-21-23 rapporter av A.1 i bredden. Videre kan du felle som forklart i oppskriften. God fornøyelse
15.01.2019 - 07:59Oana wrote:
Thank you :) Have a great weekend! and thank you for the amazing pattern
21.10.2016 - 14:18Oana wrote:
Hi there, I have a question regarding the cast off bit. I did cast off as per the pattern but my stitch remains in the middle of the 8 cast off stitches. So basically when I will need to slip the sleeve on the same circular needles as the dress I am not sure how to continue from there. Shouldn't the cast off start in the previous row and do 4 cast off before marker so that working stitch will remain just before the 8 cast off and not in the middle? Thank you.
21.10.2016 - 11:44DROPS Design answered:
Dear Mrs Oana, you can cast off the first 4 sts at beg of round + the 4 sts at the end of round, then pull thread through last st - or cast off the last 4 sts + the first 4 sts on round. Happy knitting!
21.10.2016 - 14:15Ariane wrote:
Hi and thanks for anothwr wonderful project! After the first dec on A1, the next round of pattern is on the ws. Meaning instead of k2tog i need to p2tog, and instead of ssk, it's ppk? Thanks in advance, a.
22.08.2016 - 11:10DROPS Design answered:
Dear Ariane, A.1 is worked in the round, so that all rows with dec and yos will be worked from RS. Happy knitting!
22.08.2016 - 13:06Ariane wrote:
Hi and thanks for anothwr wonderful project! After the first dec on A1, the next round of pattern is on the ws. Meaning instead of k2tog i need to p2tog, and instead of ssk, it's ppk? Thanks in advance, a.
21.08.2016 - 12:04DROPS Design answered:
Dear Ariane, diagram A.1 is worked in the round, so that every row in diagram will be worked from RS with K2 tog and ssk. Happy knitting!
22.08.2016 - 09:36Karin wrote:
Hoi, nog een vraagje, kleedje is bijna af maar de onderkant krult om door de ribbelsteek. Is dit op te lossen? Alvast bedankt voor je antwoord
08.12.2015 - 11:57DROPS Design answered:
Hoi Karin. Was de jurk volgens de aanwijzingen en laat hem plaat drogen, zorg dan ook voor om de rand in vorm te brengen en laten drogen. Is dat niet genoeg kan je de rand strijken (met een theedoek tussen)
08.12.2015 - 16:39Karolien wrote:
Hallo Is er een mogelijkheid om de hals anders te breien? De voorkant zit nl. even hoog als de achterkant, terwijl de achterkant hoger hoort te zitten en de voorkant lager. Alvast bedankt voor het antwoord. Groetjes van Karolien
03.12.2015 - 12:25DROPS Design answered:
Hoi Karolien. Natuurlijk, kijk eventueel op onze site voor het soort hals die je leuk vindt en pas het aan voor dit patroon.
09.12.2015 - 13:19Karin wrote:
Hartelijk bedankt, ik begrijp nu dat de minderingen niet naast mekaar, maar op een aantal steken van mekaar gebeuren. Deels op het achterpand en deels op het voorpand. Nog eens bedankt voor uw snelle reactie.
26.11.2015 - 16:57Karin wrote:
Hallo, Een vraagje. Volgens de uitleg mag er middenvoor en middenachter niet geminderd worden, enkel aan de zijkanten. Maar toch moet ik aan elke markeerder 1 steek minderen. Omdat er 4 markeerders zijn, denk ik toch dat er dan toch middenvoor en middenachter geminderd wordt. Ook tip voor het minderen zegt dat er aan elke markeerder 1 steek moet geminderd worden. Help!!! Ik zou graag verder breien. Alvast bedankt
25.11.2015 - 20:18DROPS Design answered:
Hoi Karin. Ik zal het proberen uitleggen. Je hebt 4 markeerders; 2 in het voorpand en 2 in het achterpand. Je mindert 1 st bij elke markeerder. Deze st moet alleen worden geminderd richting de zijkant en niet richting het midden. Dus als je breit begin je bij eerst markeerder voorpand, hier minder je VOOR en bij de tweede markeerder voorpand minder je NA de markeerder. Hetzelfde op het achterpand. Is het nu duidelijk wat er wordt bedoeld?
26.11.2015 - 15:48Karolien wrote:
Hallo! Is het mogelijk om dit jurkje op 2 nld. te breien ipv. rondbreinld? Hoe doe ik dat dan met de minderingen in het midden van het jurkje? Alvast bedankt!
06.11.2015 - 13:37DROPS Design answered:
Hoi Karolien. Het is in sommige gevallen mogelijk om het patroon aan te passen naar rechte naalden, lees meer hier. Bij deze jurk zou ik aanraden om gewoon te breien zoals beschreven voor het mooiste resultaat.
06.11.2015 - 15:36