DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Super Sale

Blue Maze

Prjónuð peysa úr DROPS Delight og DROPS Alpaca prjónuð í vinkil í garðaprjóni með sjalkraga. Stærð S - XXXL.

DROPS 153-13
DROPS Design: Mynstur nr de-119
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
250-250-300-300-350-350 gr litur nr 07, beige/blár
Og einnig:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
250-250-300-300-350-350 gr litur nr 8105, ísblár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l og 45 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*

RENDUR:
*2 umf garðaprjón með Delight og 2 umf garðaprjón með Alpaca*, endurtakið frá *-* í gegnum allt stykkið.

MÁL:
Öll mál eru gerð þegar stykkinu er haldið uppi.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið er prjónað frá miðju að aftan eins og ferhyrningur. Síðan er prjónað áfram efst á berustykki og neðst á bakstykki. Framstykki er prjónað á sama hátt, en eins og helmingur af bakstykki. Þ.e.a.s. eins og hálfur ferningur, en með kant að framan og kraga. Ermar eru prjónaðar í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 8 l með Delight og skiptið þeim niður á 4 sokkaprjóna nr 3,5 (= 2 l á hverjum prjóni). Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna með GARÐAPRJÓN – og RENDUR – sjá útskýringu að ofan.
UMFERÐ 1: Prjónið slétt.
UMFERÐ 2: Prjónið br og setjið prjónamerki í fyrstu, þriðju, fimmtu og sjöttu l (= prjónamerki).
UMFERÐ 3: Prjónið slétt og aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við hvert prjónamerki umf hringinn.
UMFERÐ 4: Prjónið allar l og uppsláttinn br = 16 l.
UMFERÐ 5: Nú er umf færð til í byrjun um 1 l, þetta er gert til þess að litaskiptin koma í annað hornið á stykkinu þannig að litaskiptin verða fallegri. Færið nú fyrstu l í umf yfir á hægri prjón án þess að prjóna hana, þessi l er nú síðasta l í umf. Prjónið nú sl með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við hvert prjónamerki umf hringinn.
UMFERÐ 6: Prjónið allar l og uppsláttinn br = 24 l.
Endurtakið umf 5 og 6, skiptið l niður á prjóna eftir þörfum þannig að léttara verði að prjóna stykkið, skiptið yfir á hringprjóna eftir þörf.
Haldið áfram að prjóna svona þar til 456-496-536-568-624-680 l eru eftir á prjóni (= 56-61-66-70-77-84 útaukningar og 114-124-134-142-156-170 l meðfram hvorri hlið). Í næstu umf með br er prjónað þannig: Prjónið 114-124-134-142-156-170 br, fellið af næstu 114-124-134-142-156-170 l (= hlið á peysu), prjónið næstu 114-124-134-142-156-170 l og setjið síðan lykkjurnar á þráð (= neðri kantur á peysu) og fellið af næstu 114-124-134-142-156-170 l (= hlið á peysu). Prjónið garðaprjón og rendur fram og til baka yfir 114-124-134-142-156-170 l á prjóni fyrir berustykki. Þegar stykkið mælist 59-62-65-68-72-76 cm – LESIÐ MÆLING að ofan, fellið af miðju 14-14-16-16-18-18 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af í byrjun hverrar umf frá hálsmáli þannig: Fellið af 1 l 2 sinnum = 48-53-57-61-67-74 l eftir á öxl.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 61-64-67-70-74-78 cm og fellið af. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, setjið prjónamerki í hvora langhlið 26-27-29-30-31-32 cm niður frá hvorri öxl, prjónamerkin eru notuð þegar ermar eru saumaðar í. Setjið til baka þær 114-124-134-142-156-170 l inn af bandi frá kanti að neðan á hringprjóna nr 3,5 og prjónið garðaprjón og rendur fram og til baka þar til stykkið mælist 72-74-76-78-80-82 cm frá öxl, fellið laust af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið laust upp 12 l með Delight á sokkaprjóna nr 3,5. Skiptið yfir í Alpaca og prjónið 2 umf garðaprjón, skiptið yfir í Delight og prjónið 2 umf garðaprjón. Skiptið yfir í Alpaca og prjónið 1 umf slétt, snúið stykkinu réttsælis og prjónið upp 4 l meðfram hlið í garðaprjóni. Snúið stykkinu aftur og takið upp 12 l frá neðri kanti á uppfitjunarkanti = 28 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt til baka yfir allar l. Setjið prjónamerki í 13. og 16. l. Prjónið nú garðaprjón og rendur JAFNFRAMT er aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 13. og 16. l í hverri umf frá réttu (= 4 l fleiri), uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf þannig að það myndist litið gat. Skiptið yfir á hringprjóna þegar nægilegur fjöldi l er kominn á prjóninn. Haldið áfram að auka svona út þar til aukið hefur verið alls 56-61-66-70-77-84 sinnum og það eru 252-272-292-308-336-364 l á prjóni. Í næstu umf frá röngu eru fyrstu 69-74-79-83-90-97 l prjónaðar slétt og setjið þær síðan á þráð (= neðri kantur á peysu), fellið af næstu 114-124-134-142-156-170 l (= hlið á peysu). Prjónið garðaprjón og rendur fram og til baka yfir síðustu 69-74-79-83-90-97 l á prjóni fyrir berustykki, prjónið þar til stykkið mælist 61-64-67-70-74-78 cm. Í næstu umf frá röngu eru felldar af fyrstu 48-53-57-61-67-74 l. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, setjið það á langhlið 26-27-29-30-31-32 cm niður frá öxl, prjónamerkið er notað þegar ermin er saumuð í. Nú eru 21-21-22-22-23-23 l eftir á prjóni fyrir kraga. Prjónið nú garðaprjón og rendur fram og til baka yfir þessar l JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir þannig: Byrjið frá röngu við öxl. * Prjónið 1 umf sl yfir allar l, prjónið 2 umf garðaprjón einungis yfir 12 síðustu l frá miðju að framan, prjónið 1 umf slétt yfir allar l, skiptið um lit *, endurtakið frá *-*. Það verða 2 umf garðaprjón lengst inn og 4 umf garðaprjón lengst út með sama lit á eftir hvor öðrum á kraga. Prjónið þar til kraginn mælist ca 5-5-5,5-5,5-6-6 cm lengst inn þar sem stykkið er minnst og fellið af. Setjið til baka þær 69-74-79-83-90-97 l sem eru á bandi á prjóninn og prjónið garðaprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 72-74-76-78-80-82 cm frá öxl, fellið laust af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd þar til aukið hefur verið út alls 56-61-66-70-77-84 sinnum og það eru 252-272-292-308-336-364 l á prjóni. Prjónið 69-74-79-83-90-97 l sl frá réttu og setjið síðan á þráð (= neðri kantu rá peysu), fellið af næstu 114-124-134-142-156-170 l (= hlið á peysu). Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir síðustu 69-74-79-83-90-97 l fyrir berustykki, prjónið þar til stykkið mælist 61-64-67-70-74-78 cm. Í næstu umf frá réttu eru felldar af fyrstu 48-53-57-61-67-74 l, prjónið yfir síðustu 21-21-22-22-23-23 l. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, setjið það á langhlið 26-27-29-30-31-32 cm niður frá öxl, prjónamerkið er notað þegar ermin er saumuð í. Prjónið nú garðaprjón fram og til baka yfir þessar l JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umf þannig: Snúið stykkinu við og byrjið frá röngu við miðju að framan. * Prjónið 2 umf garðaprjón yfir síðustu 12 l frá miðju að framan, prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l, skiptið um lit *, endurtakið frá *-* . Það verða 2 umf garðaprjón lengst inn og 4 umf garðaprjón lengst út í saman lit á eftir hvor öðrum á kraga. Prjónið þar til kraginn mælist ca 5-5-5,5-5,5-6-6 cm lengst inn þar sem stykkið er minnst og fellið af. Setjið til baka þær 69-74-79-83-90-97 l sem eru á þræði á prjóninn og prjónið garðaprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 72-74-76-78-80-82 cm frá öxl, fellið laust af.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá öxl.
Fitjið upp 122-126-132-136-140-146 l á hringprjóna nr 3,5 með Delight og prjónið garðaprjón og rendur fram og til baka eins og áður þar til stykkið mælist ca 2 cm. Fellið nú af 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið með því að prjóna 2 l slétt saman.
Endurtakið með ca 1 cm millibili 13 sinnum til viðbótar (= alls 14 sinnum) = 94-98-104-108-112-118 l. Prjónið þar til stykkið mælist 17 cm og fellið síðan laust af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið yst í lykkjubogann þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið axlasauma. Saumið ermar í innan við prjónamerki á hlið. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt. Saumið saman kraga við miðju að aftan (saumurinn á að snúa út frá réttu, þannig að þegar kraginn er brotinn niður þá kemur saumurinn til með að liggja undir kraganum og þannig sést hann ekki). Saumið kraga við hálsmál aftan við hnakka. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (61)

country flag Brigitte Tönnies wrote:

Nachdem die angefangene Jacke nun leider 2 Jahre im Schrank lag, habe ich nun weiter gemacht. Allerdings habe ich jetzt das Problem, das ich wenn ich die benötigte Weite erreicht habe, einfach viel zu viel Länge habe. Kann ich Rücken und Vorderteile verbreitern ohne mehr Länge zu bekommen?

13.07.2023 - 22:52

DROPS Design answered:

Liebe Frau Tönnies, es wird zuerst als Quadrat gestrickt, dann werden das obere Teil (Schulter) und das untere Teil separat gestrickt, also wenn Sie die gewünschte Breite und Höhe bekommen haben, können Sie dann das Modell so anpassen - aber mit solchen Modellen ist es immer einfacher, die Anleitung genauso zu folgen (beachten Sie auch daß Ihre Maschenprobe (in der Breite sowie in der Höhe) stimmt. Viel Spaß beim stricken!

27.07.2023 - 10:40

country flag Brigitte Tönnies wrote:

Es geht sich um die 5. Rd. Dort muss ich die 1. Masche ungestrickt auf die andere Nadel legen. Meine Frage ist nun, da ich ja Rd. 5 und 6 immer wiederholen muss, ob ich jedesmal die 1. Masche auf die andere Nadel legen muss. Vielen lieben Dank

25.05.2021 - 16:43

DROPS Design answered:

Liebe Frau Tönnies, bei der 5. Runde wird die Rundbeginn verschoben, damit die Runden nun in die Ecke beginnen; dh ab 5. Runde beginnen alle Runde in einer Ecke. Viel Spaß beim stricken!

26.05.2021 - 09:33

country flag ARLENE NAZARÉ wrote:

Boa tarde, Para este modelo aplica-se ALPACA cor 8105 - azul glaciar. Contudo, esta cor consta da lista de produtos como lilás pálido... Está correto ou é um substituto recomendado por rutura de stock do azul glaciar? Obrigada.

05.01.2020 - 18:10

DROPS Design answered:

Boa tarde, Muito obrigado pela sua chamada de atenção. Com a introdução de novas cores nas gamas (neste caso, na gama do fio Alpaca); alguns nomes de cores são alterados para se adaptarem às novas cores introduzidas. Tal foi o caso, Já actualizámos o nome para lilás pálido. Bom tricô!

06.01.2020 - 19:28

country flag Nidaa wrote:

Thanks for your replying. I'm really fascinated by your amazing website. I follow your Instagram account sweetheart

31.12.2019 - 21:26

country flag Nidaa95 wrote:

It's a great pattern. I just have a question, can I use circular needle instead of pointed needles using magic circular technique?

31.12.2019 - 21:08

DROPS Design answered:

Hi, yes you can. Happy knitting!

31.12.2019 - 21:18

country flag Margherita wrote:

Nel testo non è indicato se lavorare le gettate ritorte quindi immagino che vadano lavorate normalmente per formare un buco

22.12.2019 - 18:49

DROPS Design answered:

Buonasera Margherita, se non è indicato si lavorano normalmente. Buon lavoro!

22.12.2019 - 21:00

country flag Margherita wrote:

Buonasera vorrei sapere se le maglie gettate devono essere lavorate ritorte oppure normalmente per creare un buco?

21.12.2019 - 23:11

DROPS Design answered:

Buonasera Margherita, di volta in volta è indicato nel testo come devono essere lavorati i gettati. Buon lavoro!

22.12.2019 - 17:48

country flag Ingrid Bahnsen wrote:

Skal der tages ud på hver eller hver 2. omgang på rygstykket? mvh Ingrid Bahnsen

25.06.2019 - 12:36

DROPS Design answered:

Hei ingrid. Du øker på annenhver omgang: Du øker først på omgang 3, og omgang 5, og øker ikke på omgang 2, 4 og 6. Videre skal du gjenta omgang 5 og 6 oppover. God fornøyelse

26.06.2019 - 08:10

country flag Lise Blomquist wrote:

Jeg arbejder p.t. med ryggen på denne og nærmer mig stedet, hvor der skal lukkes masker af til sider. Jeg er i tvivl om, hvilken maske aflukningen skal begynde med. Er det midtermasken ved omslagene eller omslaget før eller efter, der skal være starten for at få hulrækken i siden? Jeg har kigget på forstykkerne og forstår det sådan, at de strikkes frem og tilbage og ikke rundt. Er det korrekt forstået? Tak på forhånd.

04.06.2018 - 21:08

DROPS Design answered:

Hej Lise, det kommer helt af sig selv hvis du har det antal masker som står i opskriften. Hvis du strikker den mindste størrelse har du 456 masker på pinden, det vil sige 114 masker på hver side. Alle 114 masker lukkes af lang med siderne ifølge opskriften. Se videoen til venstre i opskriften, hvordan du starter på højre forstykke. God fornøjelse!

06.06.2018 - 15:51

country flag Donatella wrote:

Grazie per la risposta. La cosa più difficile di questa giacca è la misurazione. Dal diagramma il bordo superiore ed inferiore, una volta finito il quadrato con le diagonali è esattamente della stessa lunghezza. Deve essere così? Perché dalle mie misurazioni il superiore (quello dello sprone per intenderci) è venuto più corto dell'inferiore, così mi sono venuti dei dubbi. Non vorrei sbagliare la giacca è così bella! Grazie e scusate il disturbo.

04.10.2017 - 16:26

DROPS Design answered:

Buongiorno Donatella. Guardando la fotografia, sia del davanti che del dietro, la parte in basso è più lunga della parte in alto. Durante il lavoro, verifichi che la sua tensione non cambia. Terminato il primo davanti provi ad appoggiarlo al dietro per verificare che le misure combacino. Buon lavoro!

05.10.2017 - 09:46