Tanja |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima með áferðamynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 149-1 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf . GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna): * 1 l sl og 1 l br *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3 – ATH: Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Fækkað er l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið á peysunni, lykkjum er fækkað að utanverðu á A.1 á fram- og bakstykki og lykkjum er fækkað innan við garðaprjón í kanti að framan/kragi. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan prjónamerki /A.1/garðaprjón í kanti að framan/kragi þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki/A.1/ garðaprjón í kanti að framan/kragi þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING (á við um kraga): Aukið út að innanverðu við síðustu l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið fjórðu og fimmtu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellt er af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá neðri kanti þar sem er lengst): STÆRÐ S: 11, 18, 25, 32 og 39 cm. STÆRÐ M: 12, 19, 26, 33 og 40 cm. STÆRÐ L: 13, 20, 27, 34 og 41 cm. STÆRÐ XL: 12, 18, 24, 30, 36 og 42 cm. STÆRÐ XXL: 13, 19, 25, 31, 37 og 43 cm. STÆRÐ XXXL: 14, 20, 26, 32, 38 og 44 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. PEYSA: Fitjið upp 260-276-300-324-340-364 l (meðtaldar eru 6 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með Lima. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2 (= 26-26-29-29-31-31 l), A.1 (= 6 l), 30-34-37-43-45-51 l sléttprjón, setjið 1 prjónamerki (= hlið), 30-34-37-43-45-51 l sléttprjón, A.1 (= 6 l), A.2 (= 26-26-29-29-31-31 l), A.3 (= 26-26-29-29-31-31 l), A.1 (= 6 l), 30-34-37-43-45-51 l sléttprjón, setjið 1 prjónamerki (= hlið), 30-34-37-43-45-51 l sléttprjón, A.1 (= 6 l), A.3 (= 26-26-29-29-31-31) l og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ÚRTAKA í HLIÐUM: Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 8 cm millibili, 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 úrtökur hvoru megin við bæði prjónamerki). ÚRTAKA Í MYNSTRI MEÐ ÁFERÐ: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 10 cm – stillið af að næsta umf sé umf með útaukningu og úrtöku í A.2/A.3 – fækkið um 1 l að utanverðu við A.1 á fram- og bakstykki, þ.e.a.s. í mynstureiningunni í sléttprjóni rétt á eftir/rétt á undan A.1 – LESIÐ ÚRTAKA. Að auki er fækkað um 1 l aukalega í A.2 og A.3 á fram- og bakstykki þannig að mynstureiningin með skásettum röndum verða færri og færri. Fækkað er um 1 l í A.2 með því að prjóna 2 síðustu l á undan úrtöku alveg eins og úrtaka, þ.e.a.s. prjónið 2 l slétt saman. Fækkað er um 1 l í A.3 með því að prjóna 2 næstu l á eftir úrtöku alveg eins og úrtaka, þ.e.a.s. takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= alls 8 l færri í umf). Endurtakið þessa úrtöku í 8. hverri umf, 8-8-8-8-7-7 sinnum til viðbótar (= alls 9-9-9-9-8-8 úrtökur) – mundið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Eftir að úrtöku er lokið eru 172-188-212-236-260-284 l eftir á prjóni. Haldið áfram með mynstur eins og áður – LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! ÚTAUKNING Í MYNSTRI MEÐ ÁFERÐ: Þegar stykkið mælist ca 38 cm – stillið af þannig að næsta umf sé umf með útaukningu og úrtöku í A.2/A.3 – aukið út um 1 l aukalega í A.2 og A.3 á fram- og bakstykki þannig að mynstureiningin með skásettum röndum stækkar. Aukið út um 1 l í A.2 með því að prjóna 2 l í l á eftir útaukningu og aukið út umf 1 l í A.3 með því að prjóna 2 l í l á undan útaukningu (= 4 l fleiri í umf). Endurtakið útaukningu í 4. hverri umf, 5 sinnum til viðbótar (= alls 6 sinnum) og síðan í 8. hverri umf alls 6-6-6-6-5-5 sinnum. SJALKRAGI: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm (þ.e.a.s. 1 cm á eftir síðasta hnappagati í hægri kanti að framan), aukið út um 1 l í hvorri hlið fyrir sjalkraga – LESIÐ ÚTAUKNING. Í næstu umf er prjónað frá réttu þannig: Prjónið 2 umf garðaprjón fram og til baka yfir síðustu 7 l í umf (þ.e.a.s. kantur að framan + 1 útauknin l – aðrar l í umf eru ekki prjónaðar), snúið við og prjónið 1 umf frá réttu eins og áður yfir allar l, snúið við og prjónið 2 umf garðaprjón fram og til baka yfir síðustu 7 l, snúið við og prjónið til baka eins og áður aftur yfir allar l (þetta er gert til þess að líningin í hálsmál falli fallega þegar úrtaka fyrir hálsmáli byrjar – sjá útskýringu að neðan). Prjónið nú fram og til baka yfir allar l. JAFNFRAMT er haldið áfram með útaukningu fyrir sjalkraga innan við síðustu l í hvorri hlið í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), 5-5-6-6-7-7 sinnum til viðbótar (= alls 6-6-7-7-8-8 sinnum) og síðan í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu), alls 14-14-15-15-16-16 sinnum = 20-20-22-22-24-24 l fleiri í kraga og 26-26-28-28-30-30 l garðaprjón alls. LÍNING VIÐ HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm er fækkað um 1 l fyrir hálsmáli innan við l í garðaprjóni í kanti að framan + útauknu l fyrir kraga – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf, 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 sinnum) og síðan í 4. hverri umf alls 7-7-7-9-9-9 sinnum – ATH: Þegar fellt er af fyrir hálsmáli, færist útaukningin í sjálfu mynstri í A.2/A.3 á framstykki eftir úrtöku fyrir hálsmáli, þannig að útaukningin verður lengra inn á stykkinu. HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 51-52-53-54-55-56 cm, fellið af 4 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 2 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) og hvert stykkið er prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JÖFNUN Á SKÁSETTUM LÍNUM: Þegar stykkið mælist 64-64-64-64-62-62 cm (útaukning í A.2/A.3 á nú að vera lokið), fækkið lykkjum og aukið út í A.2 og A.3 í 8. hverri umf í stað 4. hverrar umf þannig að skásettu línurnar verða minni. Þetta er gert alls 3-3-3-3-4-4 sinnum, síðan er prjónað A.2/A.3 fram og til baka yfir miðju 58-58-64-64-68-68 l án útaukninga og úrtöku (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm er fellt af miðju 20-20-20-24-24-24 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 39-43-49-53-58-64 l eftir á öxl. Prjónið nú áfram þar til stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm og fellið af. Endurtakið á sama hátt á hinni öxlinni. HÆGRA FRAMSTYKKI: Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg JAFNFRAMT er aukið út fyrir sjalkraga og fellt af fyrir hálsmáli eins og áður. JÖFNUN Á SKÁSETTUM LÍNUM: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 64-64-64-64-62-62 cm (útaukning í A.2 á nú að vera lokið), fækkið lykkjum og aukið út í A.2 í 8. hverri umf í stað 4 hverri umf eins og á bakstykki, þannig að skásettu línurnar verða minni. Þetta er gert alls 3-3-3-3-4-4 sinnum, síðan er prjónað A.2 fram og til baka án útaukninga og úrtöku (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Eftir allar útaukningar og úrtökur eru 65-69-77-81-88-94 l á prjóni. Þegar stykkið mælist ca 70-72-74-76-78-80 cm – stillið af að næsta umf er prjónuð frá röngu, fellið af fyrstu 39-43-49-53-58-64 l á öxl, prjónið nú sl út umf yfir síðustu 26-26-28-28-30-30 l. KRAGI: Byrjið fyrir miðju að framan og prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þær l sem eftir eru fyrir kraga þannig: * Prjónið 2 umf yfir allar l, 2 umf einungis yfir síðustu 18-18-20-20-22-22 l (fyrir miðju að framan) *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 7-7-7-8-8-8 cm innst þar sem er stykkið er minnst, fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd (haldið áfram með A.3 í stað A.2 – aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Þegar axla-l eru felldar af er það gert frá réttu (í stað frá röngu). ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 46-48-50-52-54-56 l á sokkaprjóna nr 3 með Lima og prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 7-10-8-13-9-12 cm er aukið út um 2 l fyrir miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu með 2½-2-2-1½-1½-1 cm millibili, 16-17-18-19-22-26 sinnum til viðbótar (= alls 17-18-19-20-23-27 útaukningar) = 80-84-88-92-100-110 l. Þegar stykkið mælist 49-48-47-45-44-42 cm setjið 1 prjónamerki fyrir miðju undir ermi. Prjónið áfram fram og til baka þar til ermin mælist 50-49-48-46-45-43 cm og fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermi í innan við 1 kantlykkju – prjónamerki fyrir miðju undir ermi á að passa við prjónamerki í hlið á fram- og bakstykki. Saumið saman kraga fyrir miðju að aftan (passið uppá að saumurinn sjáist ekki þegar kraginn er brotinn saman niður) og saumið kraga við hálsmálið aftan í hnakka. Saumið tölur í. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (159)
Sabine wrote:
Absolut bürotauglich!
30.05.2013 - 17:30Hettybell wrote:
Very beautiful
30.05.2013 - 16:50Karin wrote:
Ik zou er zo mee willen beginnen. Erg leuk!
30.05.2013 - 16:45Jutta wrote:
Beautiful elegant lines...very nice indeed
30.05.2013 - 16:02Cristina Boni wrote:
Molto elegante
30.05.2013 - 15:51Birgit Hansson wrote:
Till jobb och representation - alltid helt korrekt!
30.05.2013 - 15:32Schmidt wrote:
Sehr elegant!! Da freut man sich auf das Muster!! Schade, dass ich nur 2 Hände habe!
30.05.2013 - 15:10Theising, Eva wrote:
Kann schon fast den blazer ersetzen
30.05.2013 - 14:41Ann Heidi Ripnes wrote:
Kolleksjonens fineste!
30.05.2013 - 14:30