DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 142-30
DROPS Design: Mynstur nr ee-422
Garnflokkur E
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
500-550-600-650-700-800 gr litur nr 47, ljós beige
100-100-100-150-150-150 gr litur nr 01, natur
100-100-100-150-150-150 gr litur nr 50, dökk rauður
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 09, ljós vínrauður

Eða notið:
DROPS Andes frá Garnstudio
600-300-700-700-800-900 gr litur nr 0619, beige
100-100-200-200-200-200 gr litur nr 0100, natur
100-100-200-200-200-200 gr litur nr 4090, bleikfjólublár
100-100-100-100-100-100 gr litur nr 4300, bleikur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 og 40 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l og 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 og 40 cm) NR 7 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 116-128-140-152-164-176 l á hringprjóna nr 7 með litnum ljós beige.
Skiptið yfir í litinn natur, prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 7 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið 1 umf slétt jafnframt er fækkað um 20 l jafnt yfir = 96-108-120-132-144-156 l. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu l í umf og 1 prjónamerki í 49.– 55.– 61.- 67.- 73.- 79. l (þetta merkir hliðar). Prjónið slétt og eftir A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram í sléttprjóni með litnum ljós beige.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, prjónið A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað er prjónuð 1 umf með litnum ljós beige jafnframt eru felldar af 7 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. l með prjónamerki + 3 l á hvoru megin við þau) = 82-94-106-118-130-142 l eftir á prjóni. Stykkið mælist nú ca 41-42-43-44-45-46 cm.
Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 28-28-32-32-36-36 l á sokkaprjóna nr 7 með litnum ljós beige.
Skiptið yfir í litinn natur, prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br. Þegar stykkið mælist 7 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna nr 8. Prjónið slétt og A.1, haldið áfram með litnum ljós beige og sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu l í byrjun umf (= miðja undir ermi). Þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 1 l á hvoru megin við l með prjónamerki, endurtakið útaukningu með 8-8-6-6-5-5 cm millibili 3-3-4-4-5-5 sinnum til viðbótar = 36-36-42-42-48-48 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 35 cm, prjónið A.2 – auknu l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstrið. Eftir A.2 er prjónuð 1 umf með ljós beige jafnframt eru felldar af 7 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. l með prjónamerki + 3 l hvoru megin við það) = 29-29-35-35-41-41 l eftir á prjóni. Stykkið mælist ca 43 cm í öllum stærðum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón nr 8 og fram- og bakstykki = 140-152-176-188-212-224 l. Setjið 1 prjónamerki í l við miðju að aftan – HÉÐAN BYRJAR UMF NÚNA! Prjónið 1 umf með litnum ljós beige, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út að 140-160-180-180-200-220 l. Prjónið 0-1-0-1-0-1 cm í sléttprjóni með litnum ljós beige. Prjónið og fækkið lykkjum samkvæmt A.3 – prjónið upp að ör í þinni stærð = 70-80-90-90-90-99 l. Prjónið 1 umf þar sem fækkað er um 10-20-26-26-22-31 l jafnt yfir = 60-60-64-64-68-68 l. Prjónið nú upphækkun að aftan þannig: Prjónið 8 l sl framhjá l með prjónamerki við miðju að aftan, snúið við og prjónið 17 l br til baka, snúið við og prjónið 25 l sl, snúið við og prjónið 33 l br, snúið við og prjónið 41 l sl, snúið við og prjónið 49 l br. Snúið við og prjónið 1 umf hringinn fram að miðju að aftan.

KRAGI:
Skiptið yfir á hringprjóna nr 7 og prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br þar til kraginn mælist 12-12-13-13-14-14 cm. Fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir höndum.

Mynstur

symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = litur ljós beige
symbols = litur natur
symbols = litur ljós vínrauður
symbols = litur dökk bleikur
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 142-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (86)

country flag Janine wrote:

Hallo, ik heb het licht gezien! Het zijn natuurlijk 4 of 5 rechte nldn zonder knop! Dezelfde manier zoals je sokken breit.Ik kies voor de rondbreinldn en ga mij verdiepen in de magic loop. Nogmaals bedankt voor de reactie.

30.12.2012 - 08:06

country flag Janine wrote:

Even samenvatten,want ik snap het niet helemaal. Je kan de mouw breien op rondbreinaalden of op rechte naalden? Dus ik heb niet de rondbreinldn en rechte nldn nodig? Bedankt voor de eerdere reactie

29.12.2012 - 23:04

DROPS Design answered:

Goed om te zien dat het is gelukt. Veel breiplezier.

06.01.2013 - 15:27

country flag Janine wrote:

Er staat bij benodigdheden rondbreinaald 8 mm ( 80 en 40 cm) ik kom in het patroon die van 40 mm niet tegen. Klopt dit? Zo ja, dan zijn dit onnodige kosten als dit op voorhand aangeschaft wordt.

28.12.2012 - 20:19

DROPS Design answered:

Ja, je gebruikt de korte rondbreinld 8 mm voor de mouwen, maar ken je de magic loop techniek of heb je al rechte naalden zonder knoop 8 mm, dan kan je ook zonder de 40 cm 8 mm (hetzelfde geldt dan ook voor de korte nld 7 mm)

29.12.2012 - 14:45

country flag Nicole wrote:

Wie spanne ich diesen Pullover wenn ich fertig bin? Ich habe im Index dazu keine Anleitung gefunden, nur bei der Anleitung für die Raglan-Technik steht, dass sich die Unregelmäßigkeiten beim spannen geben. Könnt ihr mir dabei helfen?

26.11.2012 - 10:21

DROPS Design answered:

Liebe Nicole, ich habe unser Video-Team informiert und sie machen bald einen kleinen Film dazu. Mein Tipp mittlerweile: spannen Sie den Pullover auf einem Frotteetuch (mit Stecknadeln fixieren) und legen Sie entweder leicht feuchte Tücher darauf oder besprühen ihn vorsichtig mit Wasser aus einem Wäschesprüher. Dann über Nacht trockenen lassen,

26.11.2012 - 14:07

country flag Nicole wrote:

Aaaaaah, das dachte ich mir schon, dass es heißen müßte "in DER nächsten Runde", und nicht "in DEN nächsten Runden". Danke!!

25.11.2012 - 11:14

country flag Nicole wrote:

Danke! Eine Frage noch: beim Raglan heißt es:"In den nächsten Rd nehmen Sie gleichmäßig verteilt x M ab". Ist das ein Tippfehler oder bezieht sich das tatsächlich auf die nächsten Runden? Wie soll ich die Anzahl der zu strickenden Maschen bei den verkürzten Runden anpassen, wenn ich dabei abnehme?

23.11.2012 - 16:28

DROPS Design answered:

Hallo Nicole, Sie stricken zunächst die Abnahmerunde und dann die verkürzten Reihen.

25.11.2012 - 09:28

country flag Nicole wrote:

Ich habe die Ärmelmaschen und den Rumpfteil auf der Nadel. Frage: Mit welchem Faden soll ich weiterarbeiten? Den, mit dem ich am Rumpfteil aufgehört habe? Was ist mit den übrigen Fäden? Die Runden beginnen ja nun in der Mitte der Rückseite des Rumpfteils. Soll ich dann den Faden dort neu ansetzen oder kann ich bis zu dieser Stelle stricken und dort dann die neue Runde beginnen lassen?

17.11.2012 - 13:15

DROPS Design answered:

Hallo Nicole, wenn es Sie nicht stört, eine halbe Reihe mehr mit hellbeigen zu haben, können Sie bis zur hinteren Mitte stricken. Ansonsten schneiden Sie den Faden ab und beginnen neu in der hinteren Mitte. Die übrigen Fäden werden vernäht.

18.11.2012 - 09:43

country flag Hetty Morien wrote:

In het telpatroon A2 zit een fout in de zigzag, deze dient over 4 naalden te worden gebreid anders komt ie niet mooi uit boven de sterretjes !

09.11.2012 - 11:12

DROPS Design answered:

Telpatroon is correct. Er is 1 ster per 2 puntjes net als op de foto

14.11.2012 - 20:10

country flag Natalia wrote:

Im trying to find the sizing chart for the sweater so i know the proper size to make it if you could tell me where to find it or post one. Thank you

22.09.2012 - 01:28

Dorina wrote:

I am in love with this one

23.08.2012 - 21:03