Boo Blue |
|
|
|
Sett með buxum í garðaprjóni og vafningspeysa með hekluðum kanti fyrir börn og heklaður bangsi úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS Baby 20-24 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PEYSA: GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (á við um framstykki): Aukið út í annarri hverri og 3. hverri umferð þannig: Prjónið * 1 umferð án útaukninga, 1 umferð með útaukningu við miðju að framan, 2 umferðir án útaukninga, 1 umferð með útaukningu við miðju að framan *, endurtakið frá *-*. Aukið út um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur í ystu lykkju við miðju að framan. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á öðru framstykkinu, lykkjur eru fitjaðar upp fyrir ermi og prjónað er upp að öxl. Seinna framstykkið er prjónað og síðan eru bæði framstykkin sett á sama hringprjón og prjónað er niður yfir bakstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 26-29-33 (36-39) lykkjur á hringprjóna 4 með litnum ljós grágrænn. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! JAFNFRAMT í umferð 2 er fitjuð upp 1 ný lykkja við miðju að framan. Endurtakið útaukningu við miðju að framan til skiptis í annarri hverri og 3. hverri umferð – LESIÐ ÚTAUKNING – alls 16-18-22 (24-26) sinnum = 42-47-55 (60-65) lykkjur. Eftir síðustu útaukningu eru prjónaðar 8 lykkjur slétt. Stykkið mælist ca 11-13-15 (16-17) cm. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju við miðju að framan með því að prjóna 2 síðustu lykkjur slétt saman. Endurtakið úrtöku í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu): alls 0-2-8 (10-10) sinnum og síðan í annarri hverri umferð: alls 24-24-24 (24-29) sinnum (nú eru 24-26-32 (34-39) lykkjur færri). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-18-20 (21-23) cm fitjið upp nýjar lykkjur í lok umferðar á hlið fyrir ermi: 3 lykkjur 3-3-4 (4-4) sinnum, 5 lykkjur 2 sinnum, 7 lykkjur 0-0-0 (1-2) sinnum og 16-18-19 (21-22) lykkjur 1 sinni. Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 53-58-64 (76-84) lykkjur á prjóni fyrir öxl/ermi, prjónið síðan áfram. Þegar stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm setjið 1 prjónamerki = mitt á öxl – JAFNFRAMT er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok umferðar við hálsmál, endurtakið útaukningu í næstu umferð við hálsmál = 55-60-66 (78-86) lykkjur. Setjið allar lykkjur á þráð. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt – ATH: Passið uppá að endað sé í sömu hlið og á hægra framstykki (annað hvort frá réttu eða frá röngu) svo að prjónað sé frá sömu hlið þegar prjóna á bakstykki. BAKSTYKKI: Prjónið inn annað framstykki á hringprjón (prjónið frá yst á ermi og inn að hálsmáli), fitjið upp 12-12-16 (16-22) nýjar lykkjur (= aftan í hnakka) og prjónið inn hitt framstykkið á hringprjóninn (prjónið frá hálsmáli og út að ermi) = 122-132-148 (172-194) lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT FRÁ PRJÓNAMERKI Á ÖXLUM. Haldið nú áfram í garðaprjóni fram og til baka. Þegar stykkið mælist 6½-7½-8 (8½-9) cm fellið af lykkjur fyrir ermar. Fellið af í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið: 16-18-19 (21-22) lykkjur 1 sinni, 7 lykkjur 0-0-0 (1-2) sinnum, 5 lykkjur 2 sinnum og 3 lykkjur 3-3-4 (4-4) sinnum = 52-58-66 (72-78) lykkjur á prjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 26-28-31 (33-36) cm – brjótið stykkið saman tvöfalt við prjónamerki og passið uppá að framstykki og bakstykki séu jafn löng – fellið síðan af. FRÁGANGUR: Saumið hliðar- og ermasauma kant í kant í ystu lykkjubogana. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með litnum natur og heklunál 4 í kringum allt opið á peysunni þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju, hoppið yfir 3 lykkjur/6 umferðir garðaprjón, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-*. Þegar komið er að horni á framstykki er hekluð snúra þanig: 1 fastalykkja í hornið, heklið síðan loftlykkjur í ca 25 cm, snúið við og heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju til baka, heklið síðan 1 fastalykkju aftur í hornið á framstykki, haldið áfram að hekla kantinn í hring í kringum afganginn á peysunni. Heklið á sama hátt neðst í kringum ermar. Heklið nú 1 snúru samsvarandi þeirri sem er í hvoru horninu innan við hliðarsauma í hægri hlið og að utan verðu við hliðarsaum í vinstri hlið – passið uppá að snúran komi í sömu hæð og hornin á framstykki. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- BUXUR: GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚRTAKA: Fækkið um 3 lykkjur á undan prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 1 lykkja slétt. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru skálmar prjónaðar í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. Síðan eru skálmarnar settar á sama hringprjón og prjónað er í hring á hringprjóna. SKÁLM: Fitjið laust upp 38-42-44 (48-50) lykkjur á sokkaprjón 3,5 með litnum ljós grágrænn. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar = innan verðu á skálm. Prjónið stroff = 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í hring í 4-4-5 (5-5) cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og haldið áfram í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT í 1 umferð er aukið út um 6-6-6 (5-5) lykkjur jafnt yfir = 44-48-50 (53-55) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6-6-6 (7-7) cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 1,5-2-2,5 (3-4) cm millibili alls 7 sinnum = 58-62-64 (67-69) lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-19-22 (27-32) cm skiptist stykkið upp að innan verðu á skálm og stykkið er prjónað til loka fram og til baka (þetta er gert til að það verði auðveldara að setja skálmarnar á sama hringprjón í lokin). Fitjið upp 1 nýja lykkju í hvorri hlið fyrir saum = 60-64-66 (69-71) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-21-24 (29-34) cm fækkið lykkjum í næstu umferð frá réttu: Fækkið um 3 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum = 54-58-60 (63-65) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina skálmina á sama hátt. BUXUR: Setjið skálmarnar á sama hringprjón 4 = 108-116-120 (126-130) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki við miðju að framan. Prjónið síðan garðaprjón í hring – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki við miðju að framan – lesið ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 4-5-5 (4-4) sinnum = 100-106-110 (118-122) lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-34-38 (43-50) cm er skipt yfir á hringprjón 3,5 og haldið áfram með stroff = 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið. Fellið laust af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið þegar buxurnar mælast 36-42-46 (52-59) cm. FRÁGANGUR: Saumið saman op innan við hvora skálm innan við 1 kantlykkju. Saumið síðan op á milli skálma. SNÚRA: Klippið 2 þræði í lintum natur ca 3 metra og tvinnið þræðina saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður ca mitt í stroff í mitti á buxunum með ca 4-5 lykkju millibili – byrjið við miðju að framan. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- BANGSI: HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta fl í byrjun á hverri umf er skipt út fyrir 1 ll og hver umf endar með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. FL HEKLAÐAR SAMAN: 2 fl eru heklaðar saman í 1 fl þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BANGSI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Byrjað er á að hekla á höfði og síðan niður búkinn. Að lokum eru eyrun hekluð, hendur, fætur og hjörtu sem eru saumuð á búkinn í lokin. HÖFUÐ: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um hringinn. UMFERÐ 2: 2 fl í hverja fl = 12 fl. UMFERÐ 3: * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 4: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 5: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. UMFERÐ 6-11: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl. UMFERÐ 12: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, heklið síðan 2 næstu fl saman – sjá FL HEKLAÐAR SAMAN – að ofan *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 13: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl. UMFERÐ 14: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, heklið síðan 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 15: * 1 fl í fyrstu fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. Fyllið höfuðið með vatti og heklið áfram búkinn í hring án þess að klippa frá. UMFERÐ 16-18: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl. UMFERÐ 19: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 16 fl. Skiptið yfir í litinn natur. UMFERÐ 20: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 20 fl. Skiptið yfir í litinn ljós gráblár. UMFERÐ 21: Heklið 1 fl í hverja fl = 20 fl. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn. UMFERÐ 22: * 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. Skiptið yfir í litinn ljós gráblár. UMFERÐ 23: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn. UMFERÐ 24: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. Skiptið yfir í litinn natur. UMFERÐ 25: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl. Skiptið yfir í litinn ljós gráblár og heklið afganginn af búk þannig: UMFERÐ 26-29: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl. UMFERÐ 30: * 1 fl í hverja af fyrstu 9 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 33 fl. UMFERÐ 31-39: Heklið 1 fl í hverja fl = 33 fl. UMFERÐ 40: * 1 fl í hverja af fyrstu 10 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl. UMFERÐ 41-46: Heklið 1 fl í hverja fl = 36 fl. UMFERÐ 47: * 1 fl í hverja af fyrstu 10 fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 33 fl. UMFERÐ 48: Heklið 1 fl í hverja fl = 33 fl. UMFERÐ 49: * 1 fl í hverja af fyrstu 9 fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. UMFERÐ 50: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn 24 fl. UMFERÐ 51: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl. UMFERÐ 52: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 53: Heklið 1 fl í hverja fl = 18 fl. UMFERÐ 54: * 1 fl í fyrstu fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. UMFERÐ 55: Heklið saman allar fl 2 og 2 = 6 fl. Fyllið bangsann með vatti, þræðið þráð upp og niður í gegnum 6 fl, herðið að opinu og festið vel. FÓTUR: Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 8 fl um hringinn. UMFERÐ 2: * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl – ATH: Heklið í innri lykkjubogann. UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl – ATH: Heklið aftur í gegnum alla fl. UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja fl jafnframt eru fyrstu 2 og síðustu 2 fl í umf heklaðar saman = 10 fl. UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja fl jafnframt eru 5. og 6. fl heklaðar saman og 7. og 8. fl heklaðar saman = 8 fl. Heklið hinn fótinn á sama hátt. Fyllið fæturna með vatti og saumið neðan á búkinn. HÖND: Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 4 fl um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 8 fl. UMFERÐ 3-6: Heklið 1 fl í hverja fl = 8 fl. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn. UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja fl = 8 fl. Fyllið höndina með vatti, leggið stykkið flatt og heklið 1 fl í hverja fl í gegnum bæði lögin = 4 fl. Klippið frá og saumið stykkið efst á búkinn – saumið í efstu röndina með litnum ljós grágrænn. Heklið hina höndina á sama hátt og saumið í gagnstæða hlið. EYRA: Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um hringinn. UMFERÐ 2: * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 9 fl. UMFERÐ 3: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. UMFERÐ 4-6: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl. Leggið stykkið flatt og heklið 1 fl í hverja fl í gegnum bæði lögin = 6 fl, snúið stykkinu og heklið 2 og 2 fl saman = 3 fl. Klippið frá og saumið eyrað á höfuðið. Heklið hitt eyrað á sama hátt og saumið í gagnstæða hlið. LÍTIÐ HJARTA: Heklið 2 ll með heklunál nr 3 með litnum guacamole (finnið gula einingu á þræðinum) og heklið 3 fl í 1. ll, snúið stykkinu. Heklið 1 ll, heklið síðan 1 fl í hverja l = 5 fl (meðtaldar ll í byrjun og lok umf), snúið stykkinu. Heklið 3 ll, 1 st í 1. ll, festið með 1 fl í miðju fl, 3 ll, 1 st í 1. ll, festið með 1 kl í ll frá byrjun fyrri umf. Klippið frá og saumið hjartað framan á bangsann. STÓRT HJARTA: Heklið 2 ll með heklunál nr 3 með litnum guacamole (finnið gula einingu á þræðinum) og heklið 3 fl í 1. ll, snúið stykkinu. Heklið 1 ll, heklið síðan 1 fl í hverja l = 5 fl (meðtaldar ll í byrjun og lok umf), snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju = 6 lykkjur (meðtaldar loftlykkjur í byrjun á umferð), snúið stykkinu. Heklið 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, festið með 1 fastalykkju mitt á hjarta, 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, festið með 1 keðjulykkju frá byrjun á fyrri umferð. Klippið þráðinn og saumið hjartað á bangsann. Heklið annað hjarta á sama hátt og festið á bangsann. Saumið augu og munn á bangsann með litnum svartur. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (45)
Gudrun Penning wrote:
Was ist gemeint mit: 1R in der gegen in der vorderen Mitte aufgenommen wird. Dieser Satz ist mir nicht verständlich. Gegen der vorderen Mitte, was ist gemeint? Gibt es eine andere Erklärung? Entschuldigen Sie bitte die Frage. Liebe Grüße Gudrun Penning
09.04.2024 - 16:56DROPS Design answered:
Liebe Frau Penning, die vordere Mitte ist die rechte Seite vom rechten Vorderteil / die linke Seite vom linken Vorderteil, von der Vorderseite gesehen, dh Anfang der Hin-Reihen/Ende der Rück-Reihen beim rechten Vorderteil und Ende der Hin-Reihen/Anfang der Rück-Reihen beim linken Vorderteil. Viel Spaß beim Stricken!
10.04.2024 - 07:42Sif Klein wrote:
Hej Angående hæklekanten: hvordan hækler man om hjørner med picotkanten?
07.04.2024 - 13:50DROPS Design answered:
Hej Sif, på samme måde, du sørger bare for at det ikke bliver for stramt :)
09.04.2024 - 10:40Brigitte Martinez wrote:
Bonjour j ai du mal a comprendre les augmentations côté milieu devant. Que cela veut il dire. Merci de votre réponse.
05.04.2024 - 17:35DROPS Design answered:
Bonjour Mme Martinez, le côté "milieu devant" est celui de l'échancrure du devant pour le cache-coeur, autrement dit, pour le devant droit, c'est en début de rang sur l'endroit/en ifn de rang sur l'envers. Bon tricot!
08.04.2024 - 07:23Sif Klein wrote:
Hej Angående rygstykket på jakken: hvad betyder ' Luk af i beg af hver p i hver side således'?
23.11.2023 - 14:59DROPS Design answered:
Hej Sif, jo på samme måde som du slog nye masker op til ærmer i hver side, lukker du masker af yderst på ærmerne i starten af hver pind ifølge opskriften :)
24.11.2023 - 14:59Debi wrote:
Bei den Aufnahmen für den Ärmel steht Folgendes (ich stricke die Grösse für 6 Monate): 3 M. 3-3-4 (4-4) Mal, 5 M. 2 Mal, 7 M. 0-0-0 (1-2) Mal und 16-18-19 (21-22) M. 1 Mal. Bedeutet 7 M. 0 Mal aufnehmen, dass ich diese Reihen ohne Aufnahmen stricken soll, oder nach der letzten Aufnahme von 5 M. 2 Mal direkt mit der Aufnahme von 18 M. 1 Mal weiterfahren soll? Vielen Dank für die Hilfe und liebe Grüsse aus der Schweiz.
12.11.2023 - 13:31DROPS Design answered:
Liebe Debbi, in diese Größe nehmen Sie direkt 2 Mal die 18 Maschen 1 Mal nach den 5 Maschen 2 Mal dh keine Reihe ohne Zunahmen, es sind einfach 3 M. 3 Mal, 5 M. 2 Mal, und 18 M. 1 Mal. Viel Spaß beim stricken!
13.11.2023 - 08:16Sif Klein wrote:
Hej igen Angående overgangen fra forstykkerne til rygstykket, hæfter man så den ene tråd ellers går den vel op? Eller hvad gør man?
25.10.2023 - 20:33DROPS Design answered:
Ja du hæfter alle ender når du er færdig med trøjen - se videos som passer til opskriften nederst på siden :)
26.10.2023 - 14:04Sif Klein wrote:
Hvad gør man med tråden fra det ene forstykke? Der vil vel være en tråd fra hvert forstykke og som jeg kan forstå det strikker man forstykkerne sammen på én tråd fra det ene forstykke men hvad med den anden tråd fra det andet forstykke?
24.10.2023 - 16:32DROPS Design answered:
Hej igen, den klipper du bare af :)
25.10.2023 - 14:43Sif Klein wrote:
Hvordan strikker man de 2 forstykker sammen til rygstykket? Jeg forstår at tage ind og ud men jeg forstår ikke hvordan de skal strikkes sammen.
24.10.2023 - 14:43DROPS Design answered:
Hej, jo du strikker en pind over det ene forstykke (fra skulderen og ind mod halsen), slår det antal masker op som modsvarer din størrelse (12 i den mindste størrelse) og fortsætter med at strikke over det andet forstykke (fra halsen og ud mod skulderen). Nu har du samlet arbejdet og kan strikke rygstykket fra skulderen og ned (du måler nu fra mærket du satte tidligere) :)
24.10.2023 - 15:33Sif Klein wrote:
Hej Hvordan strikker man forstykkerne samme? Ved tråden samme side, betyder det begge til højre eller begge ind mod halsen? Mvh Sif
23.10.2023 - 09:26DROPS Design answered:
Hej Sif, du følger samme opskrift, men når du tager ud gør du det i den anden side, og altså mod midt foran på det andet forstykke :)
24.10.2023 - 09:20Irmgard Nüßlein wrote:
Wie stricke ich kraus rechts auf Nadelspiel?
03.08.2023 - 18:28DROPS Design answered:
Liebe Frau Nüsslein, für 1 Krausrippe wird man abwechslungsweise 1 Runde rechts und 1 Runde links stricken - siehe dieses Video. Viel Spaß beim stricken!
04.08.2023 - 08:02