DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3432.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Plum Perfect

Prjónaður toppur úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni og með pífu. Stærð S - XXXL.

DROPS 232-20
DROPS Design: Mynstur r-792
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-300-350-350-400-450 g litur 09, muskat

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 1 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60-60-60-80-80-80 cm.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3432.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚRTAKA (jafnt yfir) :
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 192 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 12. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna 11. og 12. hverja lykkju slétt saman.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli fram og til baka frá miðju að aftan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 384-416-464-512-560-616 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Muskat. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónuð pífa þannig: Prjónið * 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-*. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 2 cm, fækkið allar 3 lykkjur brugðið til 2 lykkjur brugðið, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman = 288-312-348-384-420-462 lykkjur. Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið aðra hverja 2 lykkjur brugðið til 1 lykkju brugðið = 240-260-290-320-350-385 lykkjur. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið þeim 2 lykkjum brugðið sem eftir eru til 1 lykkja brugðið = 192-208-232-256-280-308 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16-16-20-24-24-28 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 176-192-212-232-256-280 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4.
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan). Prjónið sléttprjón hringinn.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 28 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið garðaprjón í hlið undir ermum þannig:
Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 33-36-39-43-47-52 lykkjur, prjónið GARÐAPRJÓN yfir næstu 22-24-28-30-34-36 lykkjur – sjá útskýringu að ofan, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 66-72-78-86-94-104 lykkjur, prjónið garðaprjón yfir næstu 22-24-28-30-34-36 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 33-36-39-43-47-52 lykkjur.
Nú hafa verið prjónaðar 4 umferðir garðaprjón yfir 22-24-28-30-34-36 lykkjur í hvorri hlið, prjónið næstu umferð þannig:
Prjónið sléttar lykkjur fram að garðaprjóni, prjónið 6-6-7-7-8-8 lykkjur garðaprjón (= hálft bakstykki), fellið af næstu 10-12-14-16-18-20 lykkjur fyrir handveg, prjónið 6-6-7-7-8-8 lykkjur garðaprjón, prjónið sléttar lykkjur fram að garðaprjóni í hinni hliðinni, prjónið 6-6-7-7-8-8 lykkjur garðaprjón (= framstykki), fellið af næstu 10-12-14-16-18-20 lykkjur fyrir handveg, prjónið 6-6-7-7-8-8 lykkjur garðaprjón, prjónið sléttar lykkjur út (= hálft bakstykki). Klippið þráðinn. Prjónið nú framstykki og bakstykki til loka hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 78-84-92-100-110-120 lykkjur.
Stillið af að byrjað sé frá röngu þannig að garðaprjón í hvorri hlið haldi áfram með sléttum lykkjum í öllum umferðum.
Prjónið sléttprjón með 6-6-7-7-8-8 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Jafnframt í næstu umferð frá réttu, byrjar úrtaka fyrir handveg. Prjónið þannig: 6-6-7-7-8-8 lykkjur garðaprjón, 3 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 11-11-12-12-13-13 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 3 lykkjur sléttprjón, endið með 6-6-7-7-8-8 lykkjur garðaprjón.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 7-9-11-14-17-21 sinnum og í 4. hverri umferð 5-5-5-5-4-4 sinnum, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-12-13-15-16-18 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg, setjið miðju 20-22-22-24-26-28 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl/band er prjónað til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 4-4-5-5-5-5 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2-2-2-2-3-3 sinnum = 7-7-8-8-9-9 lykkjur eftir fyrir band/öxl.
Haldið áfram fram og til baka með 6-6-7-7-8-8 lykkjur garðaprjón við handveg og 1 lykkju sléttprjón við háls þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg og 48-50-52-54-56-58 cm alls. Fellið af. Prjónið hina öxlina/bandið á sama hátt.

BAKSTYKKI:
= 78-84-92-100-110-120 lykkjur.
Stillið af að byrjað sé frá röngu þannig að garðaprjón í hvorri hlið haldi áfram með sléttum lykkjum í öllum umferðum.
Prjónið sléttprjón með 6-6-7-7-8-8 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið og fækkið lykkjum fyrir handveg alveg eins og á framstykki. JAFNFRAMT er prjónuð klauf mitt að aftan þannig:
Þegar stykkið mælist 2-4-5-7-8-10 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg, prjónið garðaprjón yfir miðju 8 lykkjurnar í umferð. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir þessar lykkjur, skiptist stykkið mitt í 8 lykkjum og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Prjónið sléttprjón með 6-6-7-7-8-8 lykkjur garðaprjón að hlið og 4 lykkjur garðaprjón við miðju að aftan/klauf (úrtaka fyrir handveg heldur áfram eins og áður). Þegar öll úrtaka fyrir handveg hefur verið gerð til loka eru 27-28-30-31-34-35 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 15-17-18-20-21-23 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Í næstu umferð frá miðju að aftan/klauf, er prjónað þannig: Fellið af fyrstu 20-21-22-23-25-26 lykkjur, prjónið 1 lykkju sléttprjón og endið með 6-6-7-7-8-8 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram fram og til baka eins og áður yfir 7-7-8-8-9-9 lykkjur þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg og 48-50-52-54-56-58 cm alls. Fellið af. Prjónið hina öxlina/bandið á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið böndin á öxlum innan við affellingarkantinn.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu mitt að aftan og prjónið upp lykkjur með DROPS Muskat á hringprjón 3 í kringum kant í hálsmáli þannig: Prjónið upp 117-121-131-137-147-151 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) innan við affellingarkantinn og innan við 1 lykkju sléttprjón á bandi á öxl. Prjónið þannig (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu): 1 kantlykkja garðaprjón, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið áfram fram og til baka svona þar til stroffið mælist 1½ cm.
Í byrjun á næstu umferð frá réttu, fellið af fyrir hnappagati þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið næstu 2 lykkjur snúnar slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umferðina eins og áður. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (það eiga að myndast göt). Haldið áfram með stroff eins og áður þar til stroffið mælist alls 3-3-3½-3½-3½-3½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Saumið tölu í kant á hálsmáli að aftan.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Plum Perfect

Monica, Italy

Plum Perfect

frraimee

Plum Perfect

Agnieszka, Poland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Tammy Meyer wrote:

Bell hem shell

15.01.2022 - 21:32

country flag Anna Wilks wrote:

Sophisticated Rose

15.01.2022 - 13:28

country flag Sarah Lerche wrote:

Spring Elegance

15.01.2022 - 08:31

country flag Senrag Crafts wrote:

Victorian T

14.01.2022 - 20:18

country flag Elisabetta wrote:

Romantico, fresco ed armonioso

14.01.2022 - 20:17

country flag TURPIN wrote:

Aronia

14.01.2022 - 16:18

country flag Yvonne Roug-Andersen wrote:

Princess

14.01.2022 - 14:12

country flag Selavi wrote:

Near and far

14.01.2022 - 13:15