Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= snúin slétt lykkja frá réttu, snúin brugðin lykkja frá röngu |
|
= brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu | |
= slétt lykkja | |
= lyftið næstu 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri) | |
= þessi lykkja = miðjulykkja mitt að framan |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Skyscraper Vest |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónað vesti / slipover úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað með V-hálsmáli, köntum í stroffprjóni og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-3 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 119 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 12 lykkjur) og deilið þeim 107 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 5,3. Í þessu dæmi eru prjónaðar til skiptis ca 4. og 5. hver lykkja og 5. og 6. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkjum í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 12 lykkjur garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚRTAKA-3: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í byrjun umferðar þannig: Fækkið um 1 lykkju á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni og 3 lykkjur slétt þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Fækkið 1 lykkju á undan 3 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni (= 1 lykkja færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykki og framstykki er prjónað fram og til baka hringprjón upp þar til klaufin hefur verið prjónuð til loka, síðan eru bæði stykkin sett inn á sama hringprjón og prjónið er í hring á hringprjón upp að handveg. Stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað fram og til baka til loka hvort fyrir sig. Að lokum er kantur í handvegi og í hálsmáli prjónað í hring á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 119-129-139-151-165-179 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Karisma. Prjónið síðan stroff þannig: 6 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1, 6 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 9 cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þanngi: Prjónið sléttprjón eins og áður yfir fyrstu 6 lykkjurnar, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 107-117-127-139-153-167 lykkjur og fækkið jafnframt um 20-22-24-26-28-30 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1, prjónið garðaprjón eins og áður yfir síðustu 6 lykkjur = 99-107-115-125-137-149 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið nú sléttprjón og 6 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, geymið stykkið. Prjónið framstykki. FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og bakstykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið lykkjur á framstykki og bakstykki á sama hringprjón = 198-214-230-250-274-298 lykkjur. Byrjið umferð á undan 12 lykkjur garðaprjón í annarri hliðinni. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og 12 lykkjur í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 20 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 12 lykkjur í garðaprjóni – sjá ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm = 190-206-222-242-266-290 lykkjur. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af 12-12-14-16-18-20 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 12 lykkjur í garðaprjóni og 0-0-1-2-3-4 lykkjur hvoru megin við lykkjur í garðaprjóni). Prjónið síðan framstykki og bakstykki til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 83-91-97-105-115-125 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Jafnframt í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-3. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 1-1-3-7-12-18 sinnum síðan í 4. hverri umferð 7-9-8-6-4-1 sinnum (= 8-10-11-13-16-19 lykkjur færri fyrir handveg í hvorri hlið) = 67-71-75-79-83-87 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm. Fellið nú af miðju 33-33-35-35-37-37 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan í næstu umferð frá hálsmáli er fækkað um 1 lykkju = 16-18-19-21-22-24 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist alls 63-65-67-69-71-73 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 83-91-97-105-115-125 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Jafnframt í næstu umferð byrjar úrtaka fyrir handveg alveg eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 lykkjur, setjið miðju lykkju á framstykki á þráð (= miðjulykkja) og setjið allar lykkjur eftir þessa miðju lykkju á þráð (= hægra framstykki). Lykkjur á undan miðjulykkju eru enn á prjóninum (= vinstra framstykki). Vinstra framstykki: Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið og úrtaku fyrir handveg eins og áður, jafnframt í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir við háls, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 3 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 11-11-11-11-11-11 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 6-6-7-7-8-8 sinnum (= 17-17-18-18-19-19 lykkjur fyrir V-hálsmáli) = 16-18-19-21-22-24 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 63-65-67-69-71-73 cm. Fellið af. Hægra framstykki: Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, 1 kantlykkja í garðaprjón í hvorri hlið og úrtöku fyrir handveg eins og áður, jafnframt í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 3 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 11-11-11-11-11-11 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 6-6-7-7-8-8 sinnum (= 17-17-18-18-19-19 lykkjur færri fyrir hálsmáli) = 16-18-19-21-22-24 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 63-65-67-69-71-73 cm. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkanta. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið frá réttu þar sem stykkið skiptist fyrir handveg. Notið hringprjón 3,5 og prjónið upp ca 132 til 154 lykkjur í kringum allan handveginn (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff eftir mynsturteikningu A.1 hringinn í 4½-5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið mitt ofan á annarri öxlinni með hringprjón 3,5 og DROPS Karisma og prjónið upp 158 til 188 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í kringum alla kantinn í hálsmáli meðtalin miðjulykkja á þræði mitt að framan (lykkjufjöldinn verðu að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff eftir mynstri A.2 hringinn í umferð – stillið mynstrið af þannig að mynstrið sé prjónað eftir A.3 yfir 14 lykkjur mitt að framan (lykkja með stjörnu í A.3 á að vera miðjulykkja mitt að framan) og að mynstrið gangi jafnt upp með 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið hringinn í fyrstu umferð sem er prjónuð. Haldið áfram hringinn og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í A.3 þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, jafnframt er lykkjum fækkað eins og áður yfir miðju 3 lykkjur mitt að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (57)
Sasha wrote:
Guten Morgen, mache ich die Maschenprobe auf der 3,5 oder der 4,5 Nadel, wenn in der Anleitung steht, dass ich beide Nadelstärken benutzen soll?
14.04.2024 - 07:31DROPS Design answered:
Liebe Sasha, Maschenprobe stricken Sie Glattrechts mit den grösseren Nadeln, die Bündchen wird mit den kleineren Nadeln gestrickt. Viel Spaß beim Stricken!
15.04.2024 - 07:53Luisa wrote:
Das heißt ich muss den Faden neu ansetzen? Oder nehme ich den Faden so wie er ist und fange dementsprechend mit 6 kraus rechten Maschen an?
02.04.2024 - 15:22DROPS Design answered:
Liebe Luisa, enden Sie das Vorderteil mit einer Rückreihe, wenden Sie und bei der nächsten Hin-Reihe stricken Sie alle Maschen vom Vorderteil rechts, dann die Maschen vom Rückenteil auch rechts aber bis 12 Maschen vor Ende vom Rückenteil übrig sind, dann stricken Sie die nächsten 24 Maschen links (kraus rechts in der Runde) dh die letzten 12 Maschen vom Rückenteil + die ersten 12 Maschen vom Vorderteil, dann glatt rechts bis die 12 letzten Maschen vom Vorderteil, dann stricken Sie links die nächsten 24 Maschen (kraus rechts in der Runde) und glatt rechts bis die krausrechte Maschen an der anderen Seite. Viel Spaß beim Stricken!
03.04.2024 - 08:20Luisa wrote:
Ich habe Rücken- und Vorderteil jetzt bis zu dem Punkt fertig an dem beides zusammengefügt und in Runden weiter gestrickt werden soll. Meine Frage ist wie ich weiter vorgehe. Die runde soll ja vor den Randmaschen beginnen. Auch frage ich mich ob man den Faden dann neu ansetzt bzw wie es generell weiter geht.
31.03.2024 - 17:00DROPS Design answered:
Liebe Luisa, die 1. Runde stricken Sie rechts bis 6 Maschen vor dem Anfang der Runde übrig sind, dann stricken Sie die nächsten 12 Maschen links (= krausrechts in Runden), dann glatt rechts bis die 6 letzten Maschen vom 1. Teil, dann stricken Sie 12 M links (krausrechts in Rundne) und glatt rechts bis Anfang der Runde. Viel Spaß beim Stricken!
02.04.2024 - 14:43Cruz wrote:
Para hacer el remate del escote no entiendo el diagrama A3
23.03.2024 - 22:53Charlotte wrote:
I have the front and back pieces done but I am not sure how to join them. Both have a working yarn so how do I end one without casting off?
18.03.2024 - 02:51DROPS Design answered:
Dear Charlotte, work the front piece finishing with a row from right side, then just work the stitches of back piece and join after the stitches for back piece are worked, then continue in the round. Happy knitting!
18.03.2024 - 09:37Mari Cruz wrote:
20 en total no queda bien la forma de la sisa se pasa de empezar disminuyendo un punto y después de la cuarta vuelta 9 de golpe
15.03.2024 - 23:53Mari Cruz wrote:
´cuantos menguados lleva la sisa
13.03.2024 - 21:49Cruz wrote:
´cuantos menguados lleva la sisa
13.03.2024 - 21:42Ursula Frau Kessler wrote:
Danke ins Strickstudio, es macht wirklich Spass! Dann muss ich also in jeder 4.Reihe 9Mal 1Masche abnehmen? Freundliche Grüsse Ursula
04.03.2024 - 09:44DROPS Design answered:
Liebe Frau Kessler, es wird beidseitig 1 masche abgenommen, dh 2 Maschen pro Reihe = 1 am Anfang + 1 am ende der Reihe - siehe ABNAHMETIPP-3:. Viel Spaß beim Stricken!
04.03.2024 - 10:16Ursula Kessler wrote:
Grüezi ins Strickstudio, \r\nich verstehe die Abnehmen für die Armausschnitte nicht. für Grösse M: beidseits in jeder 2.Reihe 1xM abnehmen, wieviel mal, 1x1M? am Ende jeder 4.Reihe 9x abnehmen, 1x9M? ich muss gemäss Anleitung beidseitig je 10M abnehmen=20M. aber wie…ist mir völlig unklar?? bitte um genaue Angaben.\r\nFreundliche Grüsse \r\nUrsula Kessler
01.03.2024 - 20:57DROPS Design answered:
Liebe Frau Kessler, es wird beidseitig zuerst in jeder 2. Reihe 1 Mal abgenommen, dann in jeder 4. Reihe 9 Mal (= je 10 Maschen beidseitig abgenommen für die Armausschnitte) = so sind es 91-20= 71 Maschen. Viel Spaß beim Stricken!
04.03.2024 - 07:31