Sandy Shores |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður kjóll með hringlaga berustykki úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri, tölum og vösum. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-17 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.11. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.7). Byrjið að hekla í umferð með ör í mynsturteikningu. HEKLLEIÐBEININGAR: Í hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli í umferð skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Í hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum er fyrsta tvíbrugðna stuðli í umferð skipt út fyrir 4 loftlykkjur. Í hverri umferð með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 133 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 19. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla í ca 19. hvern stuðul. ÚTAUKNING-2: Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í eina lykkju. FRAMKANTUR: Heklið 1 stuðul í hverja af 5 lykkjum fyrir kant að framan, en í umferð með tvíbrugðnum stuðlum í A.8, heklið tvíbrugðna stuðla í kant að framan í stað stuðla – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR. ÚRTAKA: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). HNAPPAGAT: Heklið hnappagat í hægir kant að framan (þegar flíkin er mátuð). Heklið hnappagöt með því að skipta út 4. stuðli frá kanti með 1 loftlykkju. Í næstu umferð er heklaður 1 stuðull um loftlykkju. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í lok 1. umferðar á berustykki. Heklið síðan 9 næstu hnappagöt með ca 7½-7½-8-8-8½-8½ cm millibili – stillið af að hnappagötin komi í umferð með stuðlum og ekki í umferð með tvíbrugðnum stuðlum eða fastalykkjum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL MEÐ TÖLUM – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka, ofan frá og niður. Ermar eru heklaðar fram og til baka og festar undir ermi með 1 keðjulykkju í lok umferðar. BERUSTYKKI: Heklið 138-142-147-153-159-166 loftlykkjur með heklunál 4 með Cotton Merino. Snúið við og heklið þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Munið eftir HNAPPAGAT í lok þessarar umferðar – sjá útskýringu að ofan. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 5 næstu loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 22-22-23-24-25-26 sinnum, heklið 1 stuðul í hverja af 2-6-5-5-5-6 loftlykkjum = 114-118-122-127-132-138 stuðlar. UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 15-16-17-18-17-17 stuðlum – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, A.1 (= 2 stuðlar auknir til 3) yfir næstu 14-14-14-14-16-18 stuðla (= 7-7-7-7-8-9 stuðlar fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 4 stuðlum, A.1 yfir næstu 14-14-14-14-16-18 stuðlum (= 7-7-7-7-8-9 stuðlar fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 20-22-25-27-26-24 stuðlum, A.1 yfir næst 14-14-14-14-16-18 stuðlum (= 7-7-7-7-8-9 stuðlar fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 4 stuðlum, A.1 yfir næstu 14-14-14-14-16-18 stuðla (= 7-7-7-7-8-9 stuðlar fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af þeim 15-16-17-18-17-17 stuðlum sem eftir eru = 142-146-150-155-164-174 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Nú er stærð S og M lokið, heklið áfram frá næsta kafla að neðan. Í stærð L, XL, XXL og XXXL er heklað áfram þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af næstu 28-27-29-32 stuðla, A.1 yfir næstu 6-8-8-8 stuðla (= 3-4-4-4 stuðlar fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 12 stuðlum, A.1 yfir næstu 6-8-8-8 stuðla (= 3-4-4-4 stuðlar fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 46-45-50-54 stuðla, A.1 yfir næstu 6-8-8-8 stuðla (= 3-4-4-4 stuðlar fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 12 stuðla, A.1 yfir næstu 6-8-8-8 stuðla (= 3-4-4-4 stuðlar fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af þeim 28-27-29-32 stuðlum sem eftir eru = 162-171-180-190 stuðlar. Síðasta umferð sem er hekluð er hekluð frá réttu. Klippið frá þannig að næsta umferð komi einnig frá réttu (= 2 umferðir frá réttu á eftir hvorri annarri. Þetta er gert til að kúlurnar í mynstri sem koma síðar í stykkinu komi frá réttu). Allar stærðir. Heklið nú mynstur (frá réttu) þannig: Heklið A.2 (= kantur að framan), A.3 þar til 8 stuðlar eru eftir í umferð, jafnframt er aukið út um 1-7-1-2-3-3 stuðla jafnt yfir - sjá ÚTAUKNING-1, A.4 yfir næstu 3 stuðla, endið með A.2 yfir þá 5 stuðla sem eftir eru í umferð (= kantur að framan). Nú eru 143-153-163-173-183-193 stuðlar í umferð og nú er pláss fyrir 13-14-15-16-17-18 mynstureiningar A.3 á breiddina á milli A.2/A.4. Haldið áfram þar til mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, en í síðustu umferð í mynsturteikningu er aukið út um 1-0-1-0-1-0 stuðul í umferð – sjá ÚTAUKNING-2 = 209-223-239-253-269-283 stuðlar í umferð. Heklið nú áfram þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 5 stuðlum (= kantur að framan), heklið A.5 yfir næstu lykkju, A.6 yfir næstu 28-32-34-38-40-44 stuðla, A.7 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 10 stuðla, A.6 yfir næstu 22-22-24-26-26-28 stuðla, A.7 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 10 stuðla, A.6 yfir næstu 58-64-72-74-86-88 stuðla, A.7 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 10 stuðla, A.6 yfir næstu 22-22-24-26-26-28 stuðla, A.7 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 10 stuðla, A.6 yfir næstu 28-32-34-38-40-44 stuðla, 1 stuðul í hvern af næstu 5 stuðlum. Haldið áfram fram og til baka svona þar til mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina. Nú eru 249-271-287-317-333-355 stuðlar í umferð. Heklið nú áfram með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 14-16-18-20-22-24 cm (nú er eftir 1 umferð á berustykki + ein umferð með stuðlum þar til kantur í hálsmáli er lokið), JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 6-15-23-16-20-27 stuðla jafnt yfir = 255-286-310-333-353-382 stuðlar. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 38-41-44-49-54-58 stuðla (= hálft framstykki), heklið 8-8-10-10-12-14 lausar loftlykkjur, hoppið yfir næstu 57-65-72-76-79-83 stuðla (= ermi), heklið 1 stuðul í hvern og einn af næstu 65-73-77-87-95-105 stuðla (= bakstykki), heklið 8-8-10-10-12-14 lausar loftlykkjur, hoppið yfir 57-65-72-76-79-83 stuðla (= ermi), heklið 1 stuðul í hvern af þeim 38-41-44-49-54-58 stuðlum sem eftir eru (= hálft framstykki). Berustykkið mælist nú ca 15-17-19-21-23-25 cm frá kanti í hálsmáli og niður meðfram kanti að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul í hvern og einn af 8-8-10-10-12-14 nýjar loftlykkjur undir hvorri ermi = 157-171-185-205-227-249 stuðlar. Nú er mynstrið heklað fram og til baka þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 5 stuðlum (= kantur að framan), heklið A.8 þar til 6 lykkjur eru eftir, heklið fyrstu lykkju í A.8, 1 stuðull í hvern af þeim 5 stuðlum sem eftir eru (= kantur að framan). Haldið svona áfram fram og til baka, jafnframt er heklaður KANTUR AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan og í umferð með hvítri stjörnu er lykkjum fækkað jafnt yfir – sjá ÚRTAKA þannig: Stjarna-1: Fækkið um 6-6-6-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 151-165-179-199-221-243 lykkjur. Stjarna-2: Fækkið um 4-4-4-6-6-6 stuðla jafnt yfir = 147-161-175-193-215-237 lykkjur. Í umferð með svartri stjörnu er aukið út um 6-6-6-6-6-6 stuðla jafnt yfir (en ekki yfir 5 stuðla í kanti að framan í hvorri hlið) = 153-167-181-199-221-243 lykkjur. Aukið svona út með ca 2 cm millibili alls 10-10-10-10-11-12 sinnum = 207-221-235-253-281-309 lykkjur. Þegar A.8 hefur verið heklað til loka á hæðina er haldið áfram með stuðla þar til stykkið mælist 52 cm. Heklið 1 umferð þar sem aukið er út um 4-2-4-2-6-2 stuðla jafnt yfir = 211-223-239-255-287-311 stuðlar. Heklið nú kant þannig: A.9 (= kantur að framan), A.10 þar til 6 stuðlar eru eftir í umferð, A.11 yfir næsta stuðul, endið með A.9 (= kantur að framan). Haldið áfram fram og til baka svona þar til mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 80-82-84-86-88-90 cm frá öxl og niður. ERMI: Heklað er í hring, en snúið er við í hverri umferð og heklað fram og til baka í umferð til að áferðin verði eins allan tímann. Í hverri umferð er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Byrjið á að hekla mitt undir ermi. Byrjið í 5.-5.-6.-6.-7.-8. loftlykkju af 8-8-10-10-12-14 loftlykkjum sem heklaðar voru undir ermi. Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR. UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í hverja og eina af fyrstu 4-4-5-5-6-7 loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hvern og einn af stuðlum undir ermi (= 57-65-72-76-79-83 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af 4-4-5-5-6-7 loftlykkjum = 65-73-82-86-91-97 stuðlar. UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul. UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 22-22-21-23-23-24 stuðlum, heklið 2 og 2 stuðla saman – munið eftir ÚRTAKA, yfir næstu 22-30-42-42-46-50 stuðla (= 11-15-21-21-23-25 stuðlar færri), heklið 1 stuðul í hvern og einn af þeim stuðlum sem eftir eru í umferð = 54-58-61-65-68-72 stuðlar. UMFERÐ 4: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. VASAR: Heklið 29 loftlykkjur með heklunál 4 með Cotton Merino. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í næstu loftlykkju, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 23 stuðlar. Haldið svona áfram fram og til baka þar til vasinn mælist ca 13 cm. Klippið frá og festið enda. Heklið annan vasa alveg eins. Staðsetjið vasana ca 8-9-10-11-12-13 cm frá kanti að kanti að framan og með efri kant á vasa ca 24 cm frá skiptingu. Festið vasana með smáu ósýnilegu spori. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið í fyrstu lykkju frá réttu og heklið umferð með stuðlum þannig: Heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju, en hoppið yfir loftlykkjur sem hoppað var yfir í fyrstu umferð á berustykki = 114-118-122-127-132-138 stuðlar. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (17)
Angelina wrote:
Jätte fin och vackert
01.02.2019 - 23:24Danielle Provost wrote:
Très jolie modèle pour l'été
23.01.2019 - 09:18Beti wrote:
Dieses Kleid ist traumhaft, würde es gern nacharbeiten.
20.12.2018 - 13:23Eva wrote:
Tolles Häkelkleid!
16.12.2018 - 19:51Laura Waterfield wrote:
Beautiful Beautiful yoke and it's crochet. Thank you so much for making this one. It has to win.
14.12.2018 - 11:53Ma wrote:
Fin modell, skulle dock göra mindre halsringning.
12.12.2018 - 21:37Pia wrote:
I would make this in 2 or 3 colors, to give it some life.
12.12.2018 - 01:19