Memories |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað teppi úr DROPS Delight með ömmuferningum, hring-ferningum og kanti með kúlum.
DROPS 163-1 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. HEKLLEIÐBEININGAR: A.7 sýnir byrjun á umf í A.3 og kemur í viðbót við mynstureiningu (þ.e.a.s. 3 ll koma ekki í stað st). KÚLA: Heklið 6 st um sömu ll, heklið síðan 1 kl í fyrstu af 6 st. 2 HST SAMAN: Bregðið þræði um heklunálina, stingið heklunálinni undir ll-bogann og sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina, stingið heklunálinni undir sama ll-boga og sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 5 l á heklunálinni. 3 HST SAMAN: Bregðið þræði um heklunálina, stingið heklunálinni undir ll-bogann og sækið þráðinn, * bregðið þræðinum um heklunálina, stingið heklunálinni undir sama ll-boga og sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræði um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 7 l á heklunálinni. 2 ST SAMAN: Heklið 1 st um ll-boga, en bíðið með að bregða þræði um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið næsta st um sama ll-boga, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. 3 ST SAMAN: Heklið 1 st um ll-boga, en bíðið með að bregða þræði um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið næsta st um sama ll-boga, en bíðið með að bregða þræði um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið síðasta st um sama ll-boga, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar 4 l á heklunálinni. 4 ST SAMAN: Heklið 1 st um sama ll-bogann, en bíðið með að bregða þræði um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, * heklið næsta st um sama ll-boga, en bíðið með að bregða þræði um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, heklið síðasta st um sama ll-boga, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar 5 l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Teppið samanstendur af ömmuferningum í miðju sem saumaðir eru saman einn og einn. Síðan er kantur heklaður með kúlum að utanverðu við þessa ferninga. Heklaðir stórir hring-ferningar sem saumaðir eru saman einn og einn sem mynda “ramma” sem síðan er saumaður við kant á teppi, áður en kantur er heklaður í lokin í kringum allt teppið með kúlum og sólfjöðrum. ÖMMUFERNINGAR: Heklið 4 ll með heklunál nr 5 með Delight og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. Heklið síðan í hring, en til skiptis frá réttu og frá röngu eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.1. Þ.e.a.s. heklið þannig: UMFERÐ 1: 3 ll (jafngilda 1 st), 2 st um ll-boga, * 3 ll, 3 st um sama ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið á 3 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf, snúið við. UMFERÐ 2: 3 ll (jafngilda 1 st), 2 st + 3 ll + 3 st um sama ll-boga (= horn), * 1 ll, um næsta ll-boga er heklað 3 st + 3 ll + 3 st (= horn) *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið á 1 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf, snúið við. UMFERÐ 3: 3 ll (jafngilda 1 st), 2 st um sama ll-boga, * 1 ll, 3 st + 3 ll + 3 st um næsta ll-boga(= horn), 1 ll, 3 st um næsta ll-boga*, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 1 ll, 3 st + 3 ll + 3 st um næsta ll-boga (= horn), 1 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf, snúið við. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 4: 3 ll (jafngilda 1 st), 2 st um sama ll-boga, * 1 ll, 3 st + 3 ll + 3 st um næsta ll-boga (= horn), 1 ll, 3 st um næsta ll-boga, 1 ll, 3 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 1 ll, 3 st + 3 ll + 3 st um næsta ll-boga (= horn), 1 ll, 3 st um næsta ll, 1 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf, snúið við. UMFERÐ 5: 1 ll, heklið síðan 1 fl um hverja ll og 1 fl í hvern st umf hringinn (um ll-boga í hvert horn eru heklaðar 3 fl), endið umf á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Heklið alls 32 ömmuferninga. Staðsetjið 4 ferninga á breiddina og 8 raðir á hæðina. Saumið saman ferningana kant í kant með smáu spori – ATH: Saumið með einu spori í hverja fl og passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur (saumið með einum þræði frá dokkunni sem passar við lit á ferning til þess að sleppa við skarpar línur). KANTUR MEÐ KÚLUM: UMFERÐ 1: Byrjið á 1 kl í síðustu af 3 fl í einu horni á teppinu, heklið 3 ll (= mynstur A.7) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.3, þ.e.a.s. heklið þannig: * 1 ll, hoppið yfir 3 fl, 3 st í næstu fl *, endurtakið frá *-* meðfram kant á teppi – ATH: Í hverri skiptingu á milli 2 ferninga er heklað eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.4, þ.e.a.s. heklið 3 st í fyrstu af 3 fl í horni á fyrsta ferning, 1 ll, 3 st í 3. fl af 3 fl í horni á næsta ferning. Í hvert horn á sjálfu teppinu er heklað eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.2, þ.e.a.s. heklið 1 ll, 3 st í fyrstu af 3 fl í horni, 3 ll, 3 st í þriðju fl af 3 fl í sama horn (þ.e.a.s. síðasta skipti er heklað í sömu fl og 3 ll frá byrjun umf). Endið umf á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 2: 3 ll (= A.7), * (3 st um ll, 1 ll), ofan frá (-) fram að horni, heklið 3 st + 3 ll + 3 st um ll-boga í horni, 1 ll *, endurtakið frá *-* í kringum allt teppið og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 3: 3 ll, * (3 ll, hoppið yfir 3 st, 1 KÚLA – sjá útskýringu að ofan, um næstu ll), endurtakið frá (-) fram að horni, heklið 3 ll, 3 st + 3 ll + 3 st um ll-bogann í horni *, endurtakið frá *-* í kringum allt teppið og endið umf á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 4: 3 ll, heklið síðan 3 st um hvern ll-boga og 1 ll á milli hverra st-hópa umf hringinn (hornið er heklað eins og áður með 3 st + 3 ll + 3 st) og umf endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 5: 3 ll, *(3 ll, hoppið yfir 3 st, 1 kúla um næstu ll), endurtakið frá (-) fram að horni, heklið 3 ll + 3 st + 3 ll + 3 st um ll-bogann í horni *, endurtakið frá *-* í kringum allt teppið og endið umf á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 6-7: Heklið st-hóp eins og umf 4. Klippið frá og festið enda. HRING-FERNINGUR: Heklið 4 ll með heklunál nr 5 með Delight og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. Heklið síðan eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.5, þ.e.a.s. heklið þannig: UMFERÐ 1: 4 ll (jafngildar 1 st + 1 ll), * 1 st um ll-hringinn, 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 15 sinnum og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (= 16 st með 1 ll á milli hverra). UMFERÐ 2: 1 kl um fyrstu ll, 2 ll (jafngilda 1 hst), heklið 2 HST SAMAN um sama ll-boga – sjá útskýringu að ofan, * 1 ll, 3 HST SAMAN um næsta ll-boga – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* alls 15 sinnum og endið á 1 ll og 1 kl í 2. ll frá byrjun umf (= 16 hst-hópar með 1 ll á milli hverra). UMFERÐ 3: 1 kl í fyrsta ll-boga, 3 ll (jafngilda 1 st), 2 ST SAMAN um sama ll-boga – sjá útskýringu að ofan, * 2 ll, 3 ST SAMAN um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 15 sinnum og endið á 2 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (= 16 st-hópar með 2 ll á milli hverra). UMFERÐ 4: 1 kl um fyrsta ll-boga, 3 ll (jafngilda 1 st), 3 st saman um sama ll-boga, * 3 ll, 4 ST SAMAN um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 15 sinnum og endið á 3 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (= 16 st-hópar með 3 ll á milli hverra). UMFERÐ 5: 1 kl umf fyrsta ll-boga, 3 ll (jafngilda 1 st), 2 st saman + 2 ll + 3 st saman um sama ll-boga, * 1 ll + 3 st saman + 2 ll + 3 st saman um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 15 sinnum og endið á 1 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (32 st-hópar í umf). UMFERÐ 6: 1 kl um fyrsta ll-boga, 4 ll (jafngilda 1 tbst), 2 tbst + 3 ll + 3 tbst um sama ll-boga (= fyrsta horn), * 1 ll, 3 st um næstu 2-ll-boga, 1 ll, 3 hst um næstu 2-ll-boga, 1 ll, 3 st um næstu 2-ll-boga, 1 ll, 3 tbst + 3 ll + 3 tbst um næstu 2-ll-boga (= horn) *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en endið síðustu endurtekninguna með 1 kl í 4. ll frá byrjun umf (í stað 3 tbst + 3 ll + 3 tbst um næstu 2-ll-boga). UMFERÐ 7: 1 ll (jafngilda 1 fl), heklið síðan 1 fl í hverja l og 1 fl um hverja ll umf hringinn (umf ll-boga í hvert horn eru heklaðar 3 fl), endið umf með 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf. Klippið frá og festið enda. MEIRI FRÁGANGUR: Heklið alls 26 hring-ferninga. Staðsetjið ferningana þannig að þeir mynda “ramma”. Það eiga að vera 4 hring-ferningar meðfram hvorri skammhlið á teppinu, 7 hring-ferningar meðfram hvorri langhlið á teppinu og 1 hring-ferningur í hverju horni. Saumið ferningana saman tvo og tvo með smáu spori – saumið kant í kant með einu spori í hverja fl og passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur. Heklið 1 umf með fl að innanverðu á rammanum (heklið 1 fl í hverja l). Leggið rammann í kringum teppið og saumið niður fl-umf á ramma við kant með kúlum – saumið kant í kant með smáu spori og passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur. KANTUR Í KRINGUM TEPPIÐ: Byrjið frá réttu með 1 kl í síðustu af 3 fl í einu horni á teppinu. Heklið síðan umf 4-7 í KANTUR MEÐ KÚLUM (þ.e.a.s. heklið 1 umf með st-hópum, 1 umf með kúlum og 2 umf með st-hópum). SÓLFJAÐRAKANTUR: Heklið kl fram til og með ll á undan fyrsta st-hóp, heklið 1 ll, heklið síðan eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.6, þ.e.a.s. heklið þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í hvern st og 1 fl um hverja ll frá fyrri umf, endið umf á 1 kl í ll frá byrjun umf. UMFERÐ 2: * hoppið yfir 3 fl, 10 st í næstu fl (= 1 sólfjöður), hoppið yfir 3 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en passið uppá að það verði ein sólfjöður í hverju horni á teppinu (eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.6A). Klippið frá og festið alla enda. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (50)
Elizabeth wrote:
Beautiful design
19.06.2015 - 13:56Maria wrote:
Elegante combinación y maravilloso trabajo.Un 10.
14.06.2015 - 21:07Auður Þorvaldsdóttir wrote:
Mjög fallegt :)
10.06.2015 - 13:00Ann wrote:
Een prachtig stuk pachwork in wol. Weet nog niet of ik er durf aan te beginnen... Zoveel combinaties dan heb je wel een heel duidelijk schema nodig.
07.06.2015 - 23:58Pauliina / Liljan Lankakauppa wrote:
DROPS Delight sävy 18. Upea peitto yhdellä sävyllä toteutettuna. Reunan ympyräpalat on IIHANAT! Täytyiskö kokeilla samantien.
03.06.2015 - 12:47Uta Kothen wrote:
Mit dieser kuscheligen Decke kann man Farbe in graue Wintertage zaubern. :) :) :)
02.06.2015 - 07:24Uta Kothen wrote:
Wunderschöne Kuscheldecke mit der man Farbe in graue Wintertage zaubern kann.
02.06.2015 - 06:59Connie Comstock wrote:
Awesome colours and design .
29.05.2015 - 19:44Maju wrote:
Beautiful pattern
28.05.2015 - 18:21Sylvie wrote:
Ce plaid est absolument superbe ! J'aime les grannies et j'aime ici l'originalité du modèle, en particulier les bordures intermédiaire et terminale, ainsi que les couleurs. Un grand bravo pour ce merveilleux modèle !
28.05.2015 - 13:55