Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= 1 ll | |
= 1 fl | |
= 4 tbst eru heklaðir saman í 1 tbst þannig: Heklið 1 tbst en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin, heklið 1 tbst í hverja og eina af næstu 3 fl alveg eins, dragið bandið í gegnum allar 5 l á heklunálinni. |
|
= 1 tbst | |
= kl (í lok umf) |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Tell Me |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Hekluð húfa, hálsskjól og vettlingar úr DROPS Nepal með gatamynstri.
DROPS 158-41 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 – 1. umf er hekluð frá réttu. HEKLLEIÐBEININGAR 1: Í byrjun á hverri umf með hst, skiptið út fyrsta hst með 2 ll. HEKLLEIÐBEININGAR 2: Í byrjun á hverri umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll og hver umf endar á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf. Í byrjun á hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll og hver umf endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. ÚRTAKA 1: Heklið 2 fl í 1 fl: Heklið 1 fl, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næstu fl, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni. ÚRTAKA 2: Heklið 2 st í 1 st: Heklið 1 st en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 þræðir á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið byrjar með hekluðu stroffi sem er heklað fram og til baka og saumað saman. Síðan er stykkið heklað í hring. STROFF: Heklið 8 ll með heklunál nr 4,5 með Nepal. Heklið 1. umf þannig: 1 hst í 3. ll frá heklunálinni (= 2 hst), 1 hst í hverja af næstu 5 ll = 7 hst, snúið við. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 1! Heklið nú hst fram og til baka þar til stykkið mælist ca 49-53 cm, klippið frá og saumið saman skammhliðar í hring – stroffið mælist ca 4 cm á breiddina. Festið enda. HÚFA: Heklið nú áfram í kringum stroff. Heklið * 1 fl í hverja af næstu 3 umf, heklið 2 fl í næstu umf *, endurtakið frá *-* umf hringinn – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 2! = ca 83-90 fl – heklið nú 1 umf með fl JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 80-85 fl – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 1! Heklið nú eftir 1. umf í mynstri þannig: A.1, A.2 alls 16-17 sinnum á breiddina. Endurtakið umf 2 og 3 af mynstri 2 á hæðina, nú mælist stykkið ca 11 með kanti. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið áfram með st, JAFNFRAMT er fækkað þannig: LESIÐ ÚRTAKA 2! Heklið 8-9 st jafnt yfir = 72-76 st. Í næstu umf er fækkað um 8-7 st jafnt yfir. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 4 sinnum = 40-48 st. Fækkið um 8-6 st jafnt yfir í hverri umf alls 1-2 sinnum = 32-36 st. Heklið nú fl með úrtöku þannig: LESIÐ ÚRTAKA 1 – Heklið fl 2 og 2 saman = 16-18 fl. Endurtakið úrtöku í næstu umf = 8-9 fl. Klippið frá, þræðið þráðinn upp og niður í gegnum l, herðið að og festið enda. Húfan mælist ca 24-25 cm á hæðina. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. HÁLSSKJÓL: Heklið 144-156 ll með heklunál nr 4,5 með Nepal og tengið saman í 1 hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 2 – Heklið 1 st í hverja af fyrstu 5 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 5 ll, * endurtakið frá *-* = 120-130 st. UMFERÐ 2: Heklið 1 st í hvern st. Heklið nú eftir umf 1 í mynstri þannig: A.1, A.2 alls 24-26 sinnum á breiddina. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Endurtakið umf 2 og 3 í mynstri á hæðina þar til stykkið mælist ca 36-38 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina – nú er heklað áfram þannig: 1 umf með 1 st í hverri fl, heklið nú 1 umf með st í hvern st. Klippið frá og festið enda. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. VETTLINGUR: Heklið 30-35 LAUSAR ll með heklunál nr 4,5 með Nepal og tengið saman í 1 hring með 1 kl í 1. ll. Heklið stroff eftir mynstri 1. umf þannig: A.1, A.2 alls 6-7 sinnum á breiddina. Heklið 1 sinni á hæðina, heklið nú 1 umf með 1 fl í hverja fl LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 2 = 30-35 fl. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið nú st í hring með 1 st í hverja l JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 27-30 st með því að hekla 2 st saman með jöfnu millibili – LESIÐ ÚRTAKA 2 – JAFNFRAMT þegar heklaðar hafa verið 3 umf með st er aukið út nú um 1 st fyrir þumal á hvorri hlið við 1. l frá byrjun umf – aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sama st. Endurtakið útaukningu hvoru megin við þessa l í hverri umf alls 4-5 sinnum = 35-40 st í umf (þumallykkja = 9-11 st). Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 kl í hvern af þessum 6-7 st í byrjun umf, 3 ll (= 1 st), heklið síðan 1 st í hvern af 25-28 næstu st, 1 ll og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 26-29 st og 1 ll í umf. Í næstu umf er heklaður 1 st í hvern st og 1 st í ll í lok umf = 27-30 st. Heklið nú st hringinn þar til vettlingurinn mælist 18-21 cm frá skiptingu við stroffi (mátið nú vettlinginn, nú eru ca 3 cm til loka mælingar). Heklið nú þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 st í hvern st JAFNFRAMT er annar hver og 3. hver st heklaðir saman = 18-20 st. UMFERÐ 2: Heklið 1 st í hvern st JAFNFRAMT eru 2 og 2 st eru heklaðir saman = 9-10 st. UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hvern st JAFNFRAMT eru 2 og 2 fl eru heklaðar saman. Klippið frá, þræðið þráðinn upp og niður í gegnum l, herðið að og festið vel. ÞUMALL: UMFERÐ 1: Heklið 1 kl í fyrstu af 9-11 þumallykkjur, 3 ll (= 1 st), heklið nú 1 st í hvern af 8-10 st, heklið nú 6 st fyrir aftan þumal, JAFNFRAMT eru þessir 6 st heklaðir saman 2 og 2 – sjá útskýringu að ofan = 12-14 st. UMFERÐ 2-3: Heklið 1 st í hvern st = 12-14 st. Mátið vettlinginn, nú er eftir ca 1 cm að loka máli á þumli. Heklið eina umf til viðbótar með 1 st í hvern st. NÆSTA UMFERÐ: Heklið 1 st í hvern st JAFNFRAMT eru 2 og 2 st heklaðir saman = 6-7 st. SÍÐASTA UMFERÐ: Heklið 1 fl í hvern st JAFNFRAMT eru 2 og 2 fl heklaðar saman. Klippið frá, þræðið þráðinn upp og niður í gegnum l, herðið að og festið vel. Heklið annan vettling á sama hátt, en passið uppá að útaukning fyrir þumal sé gerð hvoru megin við síðustu l í umf (í stað 1. l í umf). |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (25)
Laura wrote:
Hi, thanks for the pattern it looks amazing and i'm trying to make it but i don't understand how to "work veritcally" the patterns a1 and a2. are there any tutorials on this please or would you be so kind and explain? thank you
06.12.2015 - 09:21DROPS Design answered:
Dear Laura, A.1 only shows how to finish & start the round: replace 1st dc (UK-English) with 1 ch and 1st dtr with 4 ch. Finish round with a sl st in the 1st ch at beg of dc round /in the 4th ch at beg of dtr round. Repeat then A.2 around. Happy crocheting!
07.12.2015 - 10:30Erika wrote:
Ik lees het volgende in de 1e regel van de kroon: KROON: Haak nu verder langs de rand van het lint. Haak * 1 v in elke van de volgende 3 toeren, haak 2 v in de volgende toer *, herhaal van *-* de hele toer -moet hier toer niet het woord steek zijn?
07.10.2015 - 16:32DROPS Design answered:
Hoi Erika. Nee, omdat je haakt in de toeren van de LINT, haak je in elke toer (of steek van de toer)
13.10.2015 - 15:21Didier wrote:
Bonsoir, j'aimerais me faire expliquer comment faire le motif diagramme..... Je ne le connais pas et ne le comprend pas. Merci Didier
25.09.2015 - 03:45DROPS Design answered:
Bonjour Didier, le diagramme se lit tous les tours de droite à gauche, A.1 montre comment terminer chaque tour (mc dans la 1ère ml du tour) et comment le commencer (1 ou 4 ml). Répétez ensuite A.2 au-dessus des 5 m suivantes soit au rang 1: 1 ms dans chacune des 5 m suivantes, au rang 2, 2 ml, 4 DB écoulées ensemble, 2 ml, 1 DB dans la ms suivante. Au rang 3: 2 ms dans les 2 ml, 2 ms dans les 2 ml, 1 ms dans la DB. Reprenez ensuite au rang 1. Bon crochet!
25.09.2015 - 09:41Catia wrote:
Bonjour, je ne comprends pas cette partie du bonnet : Crocheter *1 ms dans chacun des 3 rangs suivants, 2 ms dans le rang suivant*, répéter de *-* tout le tour Qu'est-ce que vous appelez ''un rang'' dans ce passage? Merci de détaillez le plus possible votre réponse, Bonne journée
09.02.2015 - 22:28DROPS Design answered:
Bonjour Catia, on a tricoté juste avant la bordure du bonnet (dans le sens de la longueur) que l'on a cousu pour former un anneau (tour de tête). On crochète ensuite le long d'un des côtés de la bordure pour faire le haut du bonnet: vous crochetez alors dans les rangs de la bordure. Bon crochet!
10.02.2015 - 08:44Silvia wrote:
Hi, I don't understand this part of the hat pattern: "Work * 1 sc in each of the next 3 rows, work 2 sc in next row *, repeat from *-* the entire round " Does it mean I have to sc in each of the next 3 STICHES and then work 2sc in the next stitch, or does it mean I need to complete 3 rows around? thank you for your kind answer
05.02.2015 - 15:21DROPS Design answered:
Dear Silvia, you work the crown of the hat around the ribbon, the ribbon has been worked sideways, so that you crochet then along the end/beg of rows of ribbon. Happy crocheting!
05.02.2015 - 17:08Helianna wrote:
Hei! Jos tämä - viiva on ketjusilmukka niin mitä tuo | pystyviiva tarkoittaa mallikuviossa? Ja jos on välin näköinen kohta, kuuluuko siinä hypätä silmukan yli?
09.01.2015 - 21:12DROPS Design answered:
Myös pystyviiva on ketjusilmukka, eli kerroksen alkuun virkattavat ketjusilmukat. Jos tiettyyn kohtaan piirrokseen ei ole tehty merkkiä, siihen ei virkata mitään, eli jätät tämän silmukan väliin.
06.02.2015 - 17:31Line wrote:
Jeg forstår ikke diagrammet. Kan det forklares tydeligere hvor jeg begynder og hvilken vej i diagrammet, jeg skal hækle og hvad de lodrette stiplede linjer betyder?
01.01.2015 - 20:48DROPS Design answered:
Hej Line. Du starter nederst og haekler fra venstre mod höjre. Det gör du i hvor omgang, hvis du haekler rundt. Beskrivelse af symbolerne staar nederst i opskriften lige over diagrammet selv. Se ogsaa her hvordan du skal laese vores diagrammer
06.01.2015 - 17:01Ida Steen wrote:
Har nå heklet ferdig lua i str. s/m og brukte bare 100 g garn.
09.11.2014 - 21:36Jenny wrote:
How many yards or metres of yarn is required?
06.11.2014 - 18:35DROPS Design answered:
Dear Jenny, you will find at the right side of the picture the total amount of yarn for each size, for example for the hat, you need 150 g / 50 g a ball Nepal = 3 balls x 82 yds = 246 yds for the hat. Click on the shadecard to Nepal to learn more about the yarn. Happy crocheting!
07.11.2014 - 10:10Silvia wrote:
I don´t understand how should I adjust stitches during crocheting the neckwarmer. Thnx
23.09.2014 - 12:45DROPS Design answered:
Dear Silvia, work pattern for neckwarmer until stated measurements (36-38 cm approx) adjusting to finish after a whole repetition of the diagram in height. Happy crocheting!
23.09.2014 - 14:28