Lavender Touch Cardigan |
|
|
|
Hekluð peysa úr DROPS Nepal með kústskaftsmynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 158-38 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta st í hverri umf er skipt út fyrir 3 ll. ÚRTAKA: Fækkið um 1 st með því að hekla 2 st saman þannig: Heklið 1 st í fyrstu l, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næstu l, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ÚTAUKNING: Aukið út með því að hekla 2 st í 1 st. MYNSTUR-1: Heklið 1 st aftan í lykkjubogann á hverjum st í hverri umf frá réttu og í fremri lykkjubogann á hverjum st í hverri umf frá röngu. KÚSTSKAFTSMYNSTUR: UMFERÐ 1 (= ranga): Setjið fyrstu ll á prjón nr 20, * takið upp 1 l með heklunál nr 5 í gegnum fremri lykkjubogann á næstu l og setjið l laust á prjóna nr 20 *, endurtakið frá *-* alla umf. Notið 2 prjóna nr 20 ef þörf er á. Allar l í umf liggja nú laust á prjónum nr 20. UMFERÐ 2 (= rétta): * Stingið heklunálinni í gegnum 5 fyrstu l á prjóni, heklið 1 kl (þessi bindur 5 l saman), takið l af prjóni og heklið 1 ll, 5 fl í gegnum 5 lykkjurnar, heklið 1 ll *, endurtakið frá *-* þar til 5 l eru eftir á prjóni, stingið nú heklunálinni í gegnum 5 l á prjóni, heklið 1 kl (þessi bindur 5 l saman), heklið 1 ll, takið l af prjóni og heklið 5 fl í gegnum 5 l. UMFERÐ 3 (= ranga): 3 ll – sjá HEKLLEIÐBEININGAR að ofan, 1 st framan í lykkjubogann í hverja fl frá fyrri umf (þ.e.a.s. ekki er heklað í ll og kl frá fyrri umf). UMFERÐ 4 (= rétta): 1 st aftan í lykkjubogann á hverjum st frá fyrri umf. Endurtakið umf 1-4. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: ---------------------------------------------------------- FRAM- OG BAKSTYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka frá miðju að framan. Heklið 203-212-235-250-277-296 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 5 með Nepal. Heklið næstu umf þannig: 1 st í 4. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 st í hverja og eina af næstu 1-4-3-0-3-4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu ll *, endurtakið frá *-* út umf = 167-175-194-206-229-245 st (3 fyrstu ll = 1 st). LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Setjið 1 prjónamerki eftir 48-50-56-59-66-70 st inn frá hvorri hlið (= 71-75-82-88-97-105 st á milli prjónamerkja á bakstykki). Heklið síðan MYNSTUR-1 – sjá útskýringu að ofan. Þegar 6 umf hafa verið heklaðar, heklið nú áfram með mynstur-1 yfir síðustu 10 l í hvorri hlið á stykki og st í gegnum báða lykkjubogana á l yfir þær l sem eftir eru. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Síðustu 10 st í hvorri hlið á stykki eru heklaðar með mynstur-1 til loka. Þegar stykkið mælist ca 13 cm er felldur af 1 st hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 l færri) – SJÁ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 13-7-6-4-3½-2½ cm millibili 2-4-5-8-10-14 sinnum til viðbótar. Eftir alla úrtöku eru 155-155-170-170-185-185 st eftir í umf, þ.e.a.s. nú eru 45-45-50-50-55-55 st á hvoru framstykki og 65-65-70-70-75-75 st á bakstykki. Heklið st saman þar til stykkið mælist ca 42-45-47-50-51-53 cm, stillið af að næsta umf sé frá röngu. Heklið nú KÚSTSKAFTSMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, yfir allar l. Þegar stykkið mælist 51-54-56-59-60-62 cm, stillið af að næsta umf sé umf 4 (= rétta) í kústskaftsmynstri, heklið nú hvort framstykki og bakstykki til loka hvert fyrir sig. HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið kústskaftsmynstur eins og áður þar til 5 st eru eftir á undan prjónamerki = 40-40-45-45-50-50 st (5 st = handvegur). Haldið áfram eins og áður yfir þessar l. Heklið þar til stykkið mælist 71-74-77-80-83-85 cm – passið að endað sé á umf 3 eða 4 í kústskaftsmynstri. Síðustu 20-20-22-22-24-24 l við handveg = öxl, ekki er lengur heklað yfir þessar. Heklið nú mynstur-1 yfir 20-20-23-23-26-26 l við miðju að framan (= kragi). Heklið 4 eða 5 umf, stillið af að næsta umf sé frá réttu. Heklið nú stuttar umferðir frá miðju að framan þannig: 1 st í hverja af 12-12-15-15-18-18 fyrstu st, * 1 hst í næsta st, 1 fl í næsta st og 1 kl í næsta st, snúið við með 1 ll. Hoppið yfir kl og heklið 1 kl í fl, 1 fl í hst, 1 hst í fyrsta st og st út umf *. Snúið við og heklið 1 st í hverja af 8-8-11-11-14-14 fyrstu st, endurtakið síðan í sömu umf, *-* 1 sinni til viðbótar. Klippið frá. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og hægra framstykki nema gagnstætt. Stuttu umf byrja frá röngu. BAKSTYKKI: Heklið kústskaftsmynstur eins og áður yfir miðju 55-55-60-60-65-65 st (5 st í hvorri hlið = handvegur). Þegar stykkið mælist 69-72-75-78-81-83 cm, stillið af að næsta umf sé umf 3 eða 4 í kústskaftsmynstri, heklið nú 1 umf með st yfir síðustu 20-20-22-22-24-24 st í hvorri hlið (miðju 15-15-16-16-17-17 st = hálmál). Klippið frá og festið enda. ERMI: Stykkið er heklað fram og til baka og er saumað saman í lokin. Heklið 44-44-44-50-50-50 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 5 með Nepal. Snúið við og heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni. Haldið áfram með 1 st í hverja af næstu 4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 5 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 35-35-35-40-40-40 st. Heklið síðan mynstur-1. Þegar heklaðar hafa verið 6 umf svona (stykkið mælist ca 8 cm) og síðasta umf sé frá réttu, heklið þá kústskaftsmynstur til loka. Þegar stykkið mælist 10 cm, stillið af að næsta umf sé umf 3 í kústskaftsmynstri, aukið út 2 st jafnt yfir í umf 3 í kústskaftsmynstri – lesið ÚTAUKNING að ofan. Aukið síðan út um 3 st jafnt yfir í næstu umf = 40-40-40-45-45-45 st. * Heklið 1 mynstureiningu af kústskaftsmynstri á hæðina. Heklið umf 1-2 af kústskaftsmynstri, aukið síðan út 2 st jafnt yfir í umf 3 í kústskaftsmynstri. Aukið síðan út um 3 st jafnt yfir í næstu umf = 5 st fleiri *, endurtakið frá *-* 2-2-3-2-3-3 sinnum til viðbótar á hæðina = 55-55-60-60-65-65 st. Heklið kústskaftsmynstur þar til stykkið mælist 55-56-55-56-56-57 cm á hæðina, stillið af að endað sé á umf 3 eða 4. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. VASI: Heklið 32 ll (meðtaldar 3 ll til þess að snúa við með) með heklunál nr 5 með Nepal. Heklið næstu umf þannig: 1 st í 4. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 st í hvern og einn af næstu 4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 5 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 25 st (3 fyrstu ll = 1 st). Heklið nú mynstur-1 þar til stykkið mælist 12 cm, stillið af að síðasta umf er frá réttu. Heklið umf 1 og 2 af kústskaftsmynstri (= 5 mynstureiningar). Klippið frá og festið enda. Heklið annan vasa á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið kragann saman við miðju að aftan kant í kant og saumið síðan kraga við hálsmál á bakstykki. Saumið saman ermar kant í kant. ATH: Einungis er saumað í st-umferð á ermi. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. ATH: Ermarnar eru einungis saumaðar við st-umf á fram- og bakstykki. Saumið vasa á framstykki. Saumið tölur í jafnt yfir niður á vinstri kant að framan – efsta talan á að saumast 1 cm niður á kústskaftsmynstri. Hneppið í gegnum st í hægri kanti að framan. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (21)
Britt-Marie Nilsson wrote:
Den här modellen gillar jag! Har virkat två liknande i Karisma, men vill ändå virka en till.
03.06.2014 - 07:18