DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

Beth

Heklaður kjóll fyrir börn með laskalínu, stuttum ermum og sólfjaðramynstri, heklaður ofan frá og niður úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stærð 0–4 ára

DROPS Baby 25-16
DROPS Design: Mynstur nr bs-009-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio
100-100-100-150 (150-150) gr litur nr 1306, púður
50-50-50-50-(50-50) gr litur nr 0100, natur

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 st og 8 umferðir með áferð á hæðina verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA, NR 521: 3 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með fl er 1. fl skipt út fyrir 1 ll. Umf endar á 1 kl í ll frá byrjun umf (þegar heklað er í hring). Umf endar á 1 fl í 3. ll frá byrjun fyrri umf (þegar heklað er fram og til baka).
Í byrjun á hverri umf með st er 1. st skipt út fyrir 3 ll. Umf endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (þegar heklað er í hring). Umf endar á 1 st í ll frá byrjun fyrri umf (þegar heklað er fram og til baka).

UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ:
* 1 umf fl, 1 umf st *, endurtakið frá *-* (1 umf fl + 1 umf st = 1 umf með áferð).

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 fl/st með því að hekla 2 fl/st í sömu l.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá miðju að aftan og eftir klauf/opi við miðju að aftan, síðan er stykkið heklað í hring.

BERUSTYKKI:
Heklið 67-71-75-79 (79-83) ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) með heklunál nr 3,5 með litnum púður.
Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið síðan 1 fl í hverja ll út umf = 66-70-74-78 (78-82) fl í umf.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu þannig (byrjið við miðju að aftan – ATH: Heklið EKKI þar sem prjónamerkin eru): Hoppið yfir 9-10-11-12 (12-13) fl (= hægra bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fl, hoppið yfir 13 fl (= ermi), setjið 1 merkiþráð í næstu fl, hoppið yfir 18-20-22-24 (24-26) fl (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fl, hoppið yfir 13 fl (= ermi) og setjið síðasta prjónamerkið í næstu fl (nú eru 9-10-11-12 (12-13) fl á vinstra bakstykki eftir síðasta prjónamerki.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM!
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið næstu umf frá réttu þannig: Heklið 1 st í hverja fl, en í hverja fl með prjónamerki er heklað 2 st + 2 ll + 2 st = 78-82-86-90 (90-94) st í umf.
Heklið síðan UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ – sjá útskýringu að ofan (heklað er fram og til baka með 1 fl/st í hverja l frá fyrri umf, en í hverja umf með fl frá röngu eru heklaðar 2 ll yfir þær 2 ll frá fyrri umf í laskalínu). JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu (þ.e.a.s. í umf með st) er aukið út fyrir laskalínu þannig: Heklið 2 st + 2 ll + 2 st um hvern ll-boga í hverja laskalínu (= 16 st fleiri í umf – ATH: Heklið um báða ll-bogana). Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu, 3-3-4-4 (5-6) sinnum til viðbótar (= alls 4-4-5-5 (6-7) sinnum = 142-146-166-170 (186-206) l í umf. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er hekluð 1 umf með fl frá röngu eins og áður.
Næsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 st í hverja af fyrstu 19-20-23-24 (26-29) fl (= hægra bakstykki), hoppið yfir næstu 33-33-37-37 (41-45) fl (= ermi), heklið 6-8-6-10 (10-8) ll, heklið 1 st í hverja af næstu 38-40-46-48 (52-58) fl (= framstykki), hoppið yfir næstu 33-33-37-37 (41-45) fl (= ermi), heklið 6-8-6-10 (10-8) ll og heklið 1 st í hverja af síðustu 19-20-23-24 (26-29) fl (= vinstra bakstykki).
Ermarnar eru nú tilbúnar og stykkið er heklað áfram í hring.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið stykkið saman við miðju að aftan með réttu fram og heklið 1 umf með fl (heklið 1 fl í hvern st frá fyrri umf og 1 fl í hverja ll undir hvorri ermi – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR) = 88-96-104-116 (124-132) l í umf. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið = 44-48-52-58 (62-66) l á fram- og bakstykki. Haldið áfram hringinn með UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ.
Þegar stykkið mælist ca 2 cm frá prjónamerki undir ermum er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 1½-2-3-3 (3-3½) cm millibili, 5-6-6-7 (8-8) sinnum til viðbótar (= alls 6-7-7-8 (9-9) sinnum) = 112-124-132-148 (160-168) l. Þegar stykkið mælist ca 13-19-22-25 (28-31) cm frá prjónamerki (endið eftir 1 umf með st, útaukningu á nú að vera lokið), heklið 1 umf fl JAFNFRAMT er aukið út um 8-2-0-2 (2-0) fl jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 120-126-132-150 (162-168) fl. Klippið frá.
Skiptið yfir í litinn natur og heklið 1 umf fl til baka með 1 fl í hverja fl frá fyrri umf. Heklið síðan sólfjaðramynstur eftir mynsturteikningu A.1, þ.e.a.s. í næstu umf er heklað þannig:
UMFERÐ 1: * Heklið 3 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 3 ll og 1 kl í 1. ll frá byrjun umf = 40-42-44-50 (54-56 ll-bogar).
UMFERÐ 2: Heklið kl að miðju á fyrsta ll-boga, 3 ll (jafngilda 1 st), * 3 st + 2 ll + 3 st um næsta ll-boga, 1 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* þar til 1 ll-bogi er eftir, heklið 3 st + 2 ll + 3 st um síðasta ll-boga og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 20-21-22-25 (27-28) st-hópar með 1 st á milli hverra st-hópa.
UMFERÐ 3-4: Heklið 3 ll (= 1 st), * 3 st + 2 ll + 3 st um ll-boga mitt í næsta st-hóp, 1 st í næsta st*, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 3 st + 2 ll + 3 st um ll-boga mitt í síðasta st-hóp og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.
UMFERÐ 5: Heklið eins og umf 3-4, en í ll-boga mitt í hvern st-hóp er heklað 4 st + 2 ll + 4 st (í stað 3 st + 2 ll + 3 st). Endurtakið umf 5 þar til kanturinn mælist ca 6 cm í öllum stærðum (eða að óskaðri lengd). Heklið síðan síðustu umf alveg eins, en með 5 st + 2 ll + 5 st í ll-boga mitt í hvern st-hóp.

SNÚRA:
Klippið 3 þræði með litnum natur ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna tvöfalda og þá tvinnar hún sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður í gegnum st-umf, ca 2 cm undir handveg á kjólnum, með byrjun frá miðju að framan.

SLAUFA:
Heklið 11 ll með heklunál nr 3,5 með litnum natur. Fyrsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 st í hverja af 7 næstu ll = 9 st í umf. Snúið við og heklið UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka þar til stykkið mælist ca 10 cm – endið eftir 1 umf með fl. Klippið frá og festið enda. Saumið saman skammhliðar í hring og vefjið þræði í kringum miðjuna á slaufunni þannig að hún dragist fallega saman fyrir miðju. Saumið slaufuna niður við miðju framan á kjólinn beint yfir snúruna.

HÁLSMÁL:
Til þess að fá betra form er hekluð smá upphækkun að aftan við hnakka. Setjið 1 prjónamerki í hvert “horn” í hálsmáli, þ.e.a.s. í byrjun á hverri laskalínu og 1 prjónamerki við miðju að framan.
Heklið með heklunál nr 3,5 með litnum púður þannig: Byrjið við miðju að aftan og heklið 1 fl í hverja l þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, heklið 1 hst í næstu l, 1 st í l með prjónamerki og 1 hst í næstu l, heklið síðan 1 fl í hverja l þar til 1 l er eftir á undan næstu l með prjónamerki, 1 hst í næstu l, 1 st í l með prjónamerki og 1 hst í næstu l, heklið síðan 1 fl í hverja l þar til 4-4-5-5 (5-6) l eru eftir á undan prjónamerki við miðju að framan. Snúið við og heklið 1 fl í hverja fl til baka við miðju að framan, en við hvert prjónamerki eru heklaðar 3 fl saman, þ.e.a.s. heklið 1 fl í hst, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fl í st með prjónamerki, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fl í næsta hst, en nú síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 4 l á heklunálinni (= 2 fl færri). Klippið frá og endurtakið frá miðju að aftan að miðju að framan í hinni hliðinni.

TÖLUKANTUR AÐ AFTAN:
Heklið meðfram vinstra opi við miðju að aftan með litnum púður þannig: Heklið 1 fl í hverja fl-umf og 2 fl í hverja st-umf. Heklið alls 4 umf fl fram og til baka, klippið frá og festið end.a
Meðfram hægra opi við miðju að aftan eru hekluð hnappagöt þannig (byrjið frá réttu við hálsmál: Heklið 3 fl (1 fl í fl-umf og 2 fl í st-umf). 4 ll (= 1 hnappagat), hoppið yfir ca 1 cm, heklið síðan fl ca að miðju á tölukanti, 4 ll, hoppið yfir ca 1 cm, heklið fl þar til 1 cm er eftir á tölukanti, 4 ll og festið með 1 fl í síðustu l. Klippið frá og festið enda. Saumið tölur í tölukant í vinstri hlið.

HÁLSMÁL:
Heklið í kringum hálsmál með litnum natur þannig: Heklið 1 fl í fyrstu l, * 2 ll, hoppið yfir 2 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* út umf, klippið frá og festið enda.

SÓLFJAÐRAKANTUR Í KRINGUM ERMAR:
Heklið með litnum natur þannig: Heklið 1 fl í hverja af 6-8-6-10 (10-8) l við miðju undir ermi, heklið síðan sólfjaðrakant í kringum handveg þannig: * hoppið yfir ca 2 l, í næstu l er heklað 3 st + 2 ll + 3 st, hoppið yfir ca 2 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf (= ca 5-5-6-6 (7-7) sólfjaðrir meðfram ermi). Klippið frá og festið enda.
Endurtakið alveg eins í kringum hina ermina.

Mynstur

symbols = 1 fl
symbols = 1 ll
symbols = 1 kl
symbols = 1 st
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (47)

country flag Siebler wrote:

Danke, jetzt weiß ich, wo mein Rechenfehler liegt.

25.02.2016 - 11:57

country flag Siebler Magdalena wrote:

Bitte auf meine Frage vom 19. 2. antworten. Vielen Dank Magdalena

23.02.2016 - 13:36

DROPS Design answered:

Sie haben ja vor den ersten Raglanzunahmen 74 M. Dann nehmen Sie an jedem Markierer 3 Stb zu, d.h. 12 Stb zugenommen insgesamt, also 86 M. Dann nehmen Sie in jedem Lm-Bogen der Raglanlinie 4 Stb zu = 16 zugenommene Stb. Das machen Sie insgesamt 5 x = 80 zugenommene Stb, also 86 Stb + 80 Stb = 166 Stb.

24.02.2016 - 19:38

country flag Siebler Magdalena wrote:

Ich habe Probleme mit der Maschenzahl. Nach 5 Raglanaufnahmen komme ich bei Größe 6/9 nicht auf 166 Maschen. Bei mir sind es 154 Stäbchen plus 8 Luftmaschen. Ich weiß nicht wie ich weiterverfahren soll. Den Maßen nach würde alles schon passen.

19.02.2016 - 20:11

DROPS Design answered:

Antwort siehe oben! :-)

24.02.2016 - 19:46

country flag Martina wrote:

Habe es schon 3mal in orange gehäkelt. Kam immer gut an. Werde das Kleidchen bestimmt noch einige male verschenken.

16.02.2016 - 10:59

country flag Bianca wrote:

Wunderschön. Habe das Kleid als langes Taufkleid abgewandelt

30.01.2016 - 13:55

country flag Wynne Visker wrote:

Hi I'm really new to crocheting and reading patterns. I'm really confused on the crochet info part of this pattern, do I finish the row by connecting to the beginning of the row or do I turn around? Also what does RS and WS mean?

20.01.2016 - 22:07

DROPS Design answered:

Dear Mrs Visker, when working back and forth (yoke), turn at the end of row to work next row, replacing 1st st why the related number of chains - when working in the round later in piece (body), join with 1 sl st in 1st/3rd ch at beg of round and replace 1st st with 1/3 ch. Happy crocheting!

21.01.2016 - 10:30

country flag Lechien wrote:

Je réalise le modele taille 0/1 mois . J'ai monté les 67 mailles si j'augmente de 16 brides , j'obtiens 146 mailles . Non 142 , pourtant je suis la méthode . Pourriez vous m'aider à trouver mon erreur svp

05.01.2016 - 09:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lechien, dans la 1ère taille, on commence par 67 ml, et 66 ms au 1er rang, puis on augmente 12B (2B+2ml+2B dans chaque ms avec 1 marqueur) = 78 B - on augmente ensuite pour le raglan 4 fois 16 B au total soit (4x16=64) = 78+64=142B. Bon crochet!

06.01.2016 - 09:58

country flag Martine Grantin Rode wrote:

Hei, litt fersk på dette og forstår ikke helt når vi kommer til merketrådene. Skal jeg hekle fram til den FM som merketråden skal settes i, eller skal kun merketrådene settes også skal jeg først hekle strukturrader?

28.10.2015 - 17:25

DROPS Design answered:

Hej Martine, Du sætter først mærketrådene uden at hækle, når du har gjort det hækler du der fra hvor der står "Les hele neste avsnitt..... " God fornøjelse!

30.10.2015 - 08:11

country flag Anne-Lise Jensen wrote:

Hvor finder jeg opskriften til huen på babydrops 25-16

21.08.2015 - 00:09

DROPS Design answered:

Hej Anne-Lise, den ligger under DROPS Baby 25-14. God fornøjelse!

21.08.2015 - 09:02

country flag Manuela wrote:

Das ganze Ensemble mit Jacke, Haube und Schühchen ist einfach wunderschön und zauberhaft! Hab ich vor kurzem als Erstlingsgarnitur gestrickt. Das Kleid mit langen Ärmeln und Weste.

15.06.2015 - 10:44