Taking Flight |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Heklaðar tátiljur fyrir börn með slaufu og sólfjaðrakanti úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stærð 0– 4 ára
DROPS Baby 25-15 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umf með fl er 1. fl skipt út fyrir 1 ll. Umf endar á 1 kl í ll frá byrjun umf (þegar heklað er í hring). Umf endar á 1 fl í 3. ll frá byrjun fyrri umf (þegar heklað er fram og til baka). Í byrjun á hverri umf með st er 1. st skipt út fyrir 3 ll. Umf endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (þegar heklað er í hring). Umf endar á 1 st í ll frá byrjun fyrri umf (þegar heklað er fram og til baka). ÚTAUKNING: Aukið út um 1 fl/st með því að hekla 2 fl/st í sömu l. ÚRTAKA: Heklið 1 fl/st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næstu fl/st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fl/st. HEKLLEIÐBEININGAR: Í umf eftir að st framan á tátiljunni hafa verið heklaðir saman 2 og 2 verður að hekla fast framan á tátiljunni, þ.e.a.s. að herða verður aðeins meira á þræðinum á milli hverra st sem eru heklaðir. Þetta er gert til þess að koma í veg fyrir að miðjustykkið framan á tátiljunni verði of laust. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ: * Heklið 1 umf fl (heklað frá röngu), 1 umf sl (heklað frá réttu) *, endurtakið frá *-* (1 umf fl + 1 umf st = 1 umferð með áferð). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og byrjið á sólanum – ATH: Heklið í hverja l (ekki á milli l). TÁTILJA: Heklið 12-14-16-19 (25-28) ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) með heklunál nr 3 með litnum púður. Fyrsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 fl í hverja af næstu 10-12-14-17 (23-26) ll = 11-13-15-18 (24-27) fl, snúið við. Heklið síðan 1 fl í hverja fl frá fyrri umf JAFNFRAMT er aukið út um 2 fl í byrjun og í lok fyrstu umf með því að hekla 3 fl í fyrstu og síðustu fl í umf = 15-17-19-22 (28-31) fl. Heklið fl fram og til baka þar til 1 umf er eftir áður en stykkið mælist 3-3-4-4 (4½-5) cm. Fækkið nú um 2 fl í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA = 11-13-15-18 (24-27) fl í umf – ATH: Í lok umf byrjar úrtaka þegar 4 fl eru eftir, síðan eru heklaðar 4 síðustu fl saman 2 og 2. Stykkið mælist ca 3-3-4-4 (4½-5) cm. Klippið frá og festið enda. Heklið nú st í kringum sólann þannig: UMFERÐ 1: Byrjið við miðju að aftan (= miðja á annarri skammhliðinni) – Heklið 1 fl í fyrstu l, 3 ll (= 3 st), heklið 1-1-2-2 (3-3) st fram að horni, 2 st í horni, 1 st í hverja af 11-13-15-18 (24-27) fl meðfram hlið, 2 st í hornið, 4-4-6-6 (8-8) st meðfram skammhlið (= tá), 2 st í hornið, 11-13-15-18 (24-27) st meðfram hlið, 2 st í hornið og 2-2-3-3 (4-4) st meðfram skammhlið við miðju að aftan, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 38-42-50-56 (72-78) st. NÆSTA UMFERÐ Í STÆRÐ 2 ÁRA + 3/4 ÁRA (þessi umf er ekki hekluð í öðrum stærðum): Heklið 1 umf með 1 st í hvern st = (72-78) st. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ Í ÖLLUM STÆRÐUM ÞANNIG: Heklið 1 st í hvern st, en fækkið um 1 st í hvoru horninu á þeim 2 hornum fram að tá – LESIÐ ÚRTAKA = 36-40-48-54 (70-76) st. HEKLIÐ SÍÐAN FRÁ MIÐJU AÐ AFTAN ÞANNIG (heklið 1 l í hverja l frá fyrri umf): UMFERÐ 1: 12-14-17-20 (27-30) fl, 1 hst, heklið 2 st saman – LESIÐ ÚRTAKA, 6-6-8-8 (10-10) st, heklið 2 st saman, 1 hst og 12-14-17-20 (27-30) fl = 34-38-46-52 (68-74) l. UMFERÐ 2: 11-13-16-19 (26-29) fl, 1 hst, heklið 2 st saman, 6-6-8-8 (10-10) st, heklið 2 st saman, 1 hst og 11-13-16-19 (26-29) fl = 32-36-44-50 (66-72) l. UMFERÐ 3: 10-12-15-18 (25-28) fl, 1 hst, heklið 2 st saman, 6-6-8-8 (10-10) st, heklið 2 st saman, 1 hst og 10-12-15-18 (25-28) fl = 30-34-42-48 (64-70) l. UMFERÐ 4 Í STÆRÐ 2 ÁRA + 3/4 ÁRA (þessi umf er ekki hekluð í öðrum stærðum): (24-27) fl, 1 hst, heklið 2 st saman, (10-10) st, heklið 2 st saman, 1 hst og (24-27) fl = (62-68) l. UMFERÐ 5 Í STÆRÐ 3/4 ÁRA (þessi umf er ekki hekluð í öðrum stærðum): (26) fl, 1 hst, heklið 2 st saman, (10) st, heklið 2 st saman, 1 hst og (26) fl = (66) l. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ Í ÖLLUM STÆRÐUM ÞANNIG: 9-11-14-17 (23-25) fl, 1 hst, heklið 10-10-12-12 (14-14) næstu st saman 2 og 2, 1 hst og 9-11-14-17 (23-25) fl = 25-29-36-42 (55-59) l. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ Í ÖLLUM STÆRÐUM ÞANNIG: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 7-9-12-15 (21-23) fl, 1 hst, heklið 2 st saman, 5-5-6-6 (7-7) st, heklið 2 st saman, 1 hst og 7-9-12-15 (21-23) fl = 23-27-34-40 (53-57) l. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ Í STÆRÐ 2 ÁRA + 3/4 ÁRA ÞANNIG (þessi umf er ekki hekluð í öðrum stærðum): (20-21) fl, 1 hst, heklið 2 st saman, (7-7) st, heklið 2 st saman, 1 hst og (20-21) fl = (51-55) l. ALLAR STÆRÐIR: = 23-27-34-40 (51-55) l. Heklið 1-1-1-2 (2-3) umf með 1 st í hvern st JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 24-24-30-30 (36-36) st í 1. umf – LESIÐ ÚTAUKNING/ÚRTAKA – ATH: Ef óskað er eftir stærra opi á tátilju er hægt að jafna lykkjufjöldann út að óskaðri stærð, en vegna sólfjaðramynsturs verður lykkjufjöldinn að vera deilanlegur með 6. SÓLFJAÐRAMYNSTUR: Skiptið yfir í natur og heklið 1 umf með fl í 1 fl í hverja l. Heklið síðan sólfjaðramynstur efst á ökkla eftir mynstri A.1, þ.e.a.s. heklið þannig: UMFERÐ 1: * 3 ll, hoppið yfir 2 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 3 ll og 1 kl í 1. ll frá byrjun umf = 8-8-10-10 (12-12) ll-bogar. UMFERÐ 2: Heklið kl að miðju á fyrsta ll-boganum, 3 ll (jafngilda 1 st), * 3 st + 2 ll + 3 st um næsta ll-boga, 1 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 3 st + 2 ll + 3 st um síðasta ll-bogann og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 4-4-5-5 (6-6) sólfjaðrir. UMFERÐ 3: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), * 4 st + 2 ll + 4 st um ll-bogann mitt í st-hópinn, 1 st í næsta st frá fyrri umf (þ.e.a.s. í st á milli sólfjaðra)* , endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf, klippið frá og festið enda. Heklið aðra tátilju á sama hátt. SLAUFA: Heklið 11 ll með heklunál nr 3 með litnum natur. Fyrsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 st í hverja af 7 næstu ll = 9 st í umf. Snúið við og heklið UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka þar til stykkið mælist ca 10 cm – endið eftir 1 umf með fl. Klippið frá og festið enda. Saumið saman skammhliðar í hring og vefjið þræði í kringum miðjuna á slaufunni þannig að hún dragist fallega saman fyrir miðju. Gerið aðra slaufu á sama hátt og saumið slaufurnar niður að utanverðu á hvora tátilju. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (24)
Luis wrote:
Que Es un patuco Es una oz dada o nombre
12.11.2014 - 03:15DROPS Design answered:
Hola Luis! Patucos se llama a los zapatitos de bebé.
12.11.2014 - 16:10Luis wrote:
Que sinifica patuco
12.11.2014 - 03:11Dianna wrote:
I am confused. The pattern 'taking flight'. . Do I crochet the sole in the round or go from side to side ? The instructions are not clear to my understanding. Please help ASAP
21.08.2014 - 05:50DROPS Design answered:
Dear Dianna, the sole is crochet back and forth (in rows) and then you work around the sole. Happy crocheting!
21.08.2014 - 11:59Monnier Cathy wrote:
Bonjour, il me semble qu'il y ait un souci à partir du tour 4, je le fais dans la taille 0-3 mois... merci de bien vouloir m'aider svp.. Cordialement. Cathy.
20.05.2014 - 15:52DROPS Design answered:
Bonjour Mme Monnier, dans les 3 premières tailles, après le tour 3, on passe directement à la partie "Tour suivant, toutes les tailles", le tour 4 ne s'applique qu'aux tailles 2 et 3/4 ans et le tour 5 à la taille 3/4 ans. Bon crochet!
21.05.2014 - 09:56