DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS Baby 25-14
DROPS Design: Mynstur nr bs-010-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: fyrirburar 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Höfuðmál: ca 34/38 - 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50 - 50/52) cm

Efni:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio
50-50-50-50-(50-50) gr litur nr 1306, púður
50-50-50-50-(50-50) gr litur nr 0100, natur

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 st og 8 umferðir með áferð á hæðina verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð/röð með fl er 1. fl skipt út fyrir 1 ll. Umferðin endar á 1 kl í ll frá byrjun umf.
Röðin endar á 1 fl í 3. ll frá byrjun fyrri röð.
Í byrjun á hverri umferð/röð með st er 1. st skipt út fyrir 3 ll.
Umferðin endar með 1 kl í 3. ll frá byrjun umferðar.
Röðin endar með 1 st í ll frá byrjun á fyrri röð.

UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ:
* 1 umf fl frá röngu, 1 umf sl frá réttu *, endurtakið frá *-* (1 umf fl + 1 umf st = 1 umferð með áferð).

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 fl/st með því að hekla 2 fl/st í sömu l.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fyrst í hring frá miðju að aftan, síðan er heklað fram og til baka yfir höfuðið.

HÚFA:
Heklið 4 ll með heklunál nr 3,5 með litnum púður og tengið í 1 hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 12 st um hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í hvern st = 12 fl.
UMFERÐ 3: Heklið 2 st í hverja fl = 24 st.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hvern st = 24 fl.
UMFERÐ 5: * Heklið 1 st í fyrstu fl, 2 st í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 st.
UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hvern st = 36 fl.
UMFERÐ 7: * Heklið 1 st í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, 2 st í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 st.
UMFERÐ 8: Heklið 1 fl í hvern st = 48 fl.
Endið hér í stærð 0/1 + 1/3 mán.
UMFERÐ 9: * Heklið 1 st í hverja af fyrstu 3 fastalykkjum, 2 st í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 60 st.
UMFERÐ 10: Heklið 1 fl í hvern st = 60 fl.
Endið hér í stærð 6/9 + 12/18 mán.
UMFERÐ 11: * Heklið 1 st í hverja af fyrstu 4 fastalykkjum, 2 st í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 72 st.
UMFERÐ 12: Heklið 1 fl í hvern st = 72 fl.
Endið hér í stærð 2 + 3/4 ára.

ALLAR STÆRÐIR:
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 6-6-6-8 (8-8) l (séð frá réttu).
Byrjið frá réttu við prjónamerki í byrjun umf og heklið 1 st í hverja fl fram að öðru prjónamerki JAFNFRAMT er aukið út um 20-26-20-28 (20-22) st jafnt yfir þessar l – LESIÐ ÚTAUKNING = 62-68-74-80 (84-86) st í umf (ekki er heklað yfir 6-6-6-8 (8-8) fl á milli 2 prjónamerkja.
Heklið síðan UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, þar til stykkið mælist ca 8-9-10-11 (12-13) cm frá prjónamerki – endið eftir 1 umf með fl frá röngu. Klippið frá.

KANTUR FYRIR SNÚRU:
Heklið kant neðst niðri á húfunni með litnum púður þannig: Byrjið frá réttu og heklið fl meðfram annarri skammhliðinni neðst niðri á hettunni (heklið 1 fl í hverja fl-umf og 2-3 fl í hverja st-umf), heklið 1 fl í hverja af þeim 6-6-6-8 (8-8) fl á milli 2 prjónamerkja á hring og heklið fl meðfram annarri skammhliðinni (1 fl í hverja fl-umf og 2-3 fl um hverja st-umf). Snúið við og heklið 1 umf með fl JAFNFRAMT er fl-fjöldinn jafnaður út þannig að hann verði deilanlegur með 5 + 1. Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 ll, 1 fl í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, * hoppið yfir 2 fl, 2 ll, 1 fl í hverja af næstu 3 fastalykkjum *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir, hoppið yfir 2 fl, heklið 2 ll og 1 fl í hvora af síðustu 2 fastalykkjum.
Heklið 2 umf til viðbótar fram og til baka með fl (1 fl í hverja fl og 2 fl í hvern ll-boga). Klippið frá og festið enda.

SNÚRA:
Klippið 4 þræði með litnum natur ca 2,5 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna tvöfalda og þá tvinnar hún sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður í gegnum kant með götum neðst niðri á húfu.

SÓLFJAÐRAKANTUR:
Skiptið yfir í litinn natur og heklið 1 umf fl frá röngu og fram á húfuna JAFNFRAMT er aukið jafnt út til 64-70-76-82 (88-94) fl – LESIÐ ÚTAUKNING. Heklið síðan SÓLFJAÐRAMYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1, þ.e.a.s. heklið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): 1 ll, 1 fl í fyrstu l, * 3 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf = 21-23-25-27 (29-3) ll- bogar, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), 3 st + 2 ll + 3 st um fyrsta ll-boga, * 1 st um næsta ll-boga, 3 st + 2 ll + 3 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 1 st í fyrstu fl frá byrjun fyrri umf = 11-12-13-14 (15-16) st-hópar með 1 st á milli hverra st-hópa, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), 3 st + 2 ll + 3 st um ll-boga mitt í fyrsta st-hópinn, * 1 st um næsta st, 3 st + 2 ll + 3 st um ll-boga mitt í næsta st-hóp *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 1 st í 3. ll frá byrjun fyrri umf, klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.05.2019
Leiðrétting - ALLAR STÆRÐIR: Byrjið frá réttu við prjónamerki í byrjun umf

Mynstur

symbols = 1 fl
symbols = 1 ll
symbols = 1 st
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Lorraine wrote:

Hi on the bonnet front part its say to start with DC on (ws) and carry on with the textured pattern ut the pattern is on the (ws) and the last school on on the (rs)have a done this wrong

23.04.2019 - 14:21

DROPS Design answered:

Dear Lorraine, pattern has been edited to start this row from RS so that you can then continue in texture pattern. Happy crocheting!

07.05.2019 - 08:33

country flag Irene wrote:

Hej! Varför blir mössan lite ”toppig” i mitten där man startar? Känns som att det är för få stolpar eller gör jag ngt fel?

17.05.2018 - 10:02

DROPS Design answered:

Hej Irene, det kan have noget med hæklefastheden at gøre. Hækler du i DROPS Baby Alpaca Silk og har du 22 st på 10 cm?

17.05.2018 - 14:38

country flag KellyAnn wrote:

Im getting a point in the back is that normal?

07.02.2017 - 23:58

DROPS Design answered:

Dear KellyAnn, you may have a small one but remember to check and keep correct tension while working. Happy crocheting!

08.02.2017 - 09:12

country flag Susanne wrote:

Vil det så sige at jeg skal hækle feks 61 masker

07.03.2016 - 15:35

DROPS Design answered:

Ja det stemmer :)

07.03.2016 - 16:02

country flag Susanne wrote:

Jeg hækler i str 1/3 måneder og er kommet til hulkant til bindebånd, hvor man skal justere antallet så det er delbart med 5 +1, jeg forstår den ikke, hvordan skal jeg gøre det

07.03.2016 - 12:57

DROPS Design answered:

Jo du kan tage 1 m ud ifølge udtagningstipset, så 5 går op i maskeantallet og så lægger du 1 til. God fornøjelse!

07.03.2016 - 15:10

country flag Hana Mikulandová wrote:

Není možnost foto postup? Ze začátku mám kolečko,ale nechápu jak mám pak dělat ten rup a líc... Děkuju

02.02.2016 - 10:06

DROPS Design answered:

Seznam video-ukázek k tomuto návodu najdete v záložce vedle hlavní fotky modelu. Rubovou a lícovou řadu začnete háčkovat po dokončení kolečka, takto: označte si začátek kruhové řady a druhou značku vložte za 6. oko (od začátku kruhové řady). Práci otočíte a háčkujete od začátku kruhové řady (od 1. značky) rubovou řadu "zpátky" až ke 2. značce. Tam práci opět otočíte a háčkujete k 1. značce. Prostor mezi značkami (= 6 ok) zůstane bez háčkování - bude ležet vzadu na krku. Hodně zdaru! Hana

02.03.2016 - 11:10

country flag Hana Mikulandová wrote:

Dobrý den,chtěla bych se zeptat kolik řetízkových ok mám udělat na velikost 0/1 měsíců?

01.02.2016 - 13:09

DROPS Design answered:

Dobrý den, čepeček začínáme pro všechny velikosti stejně, tj. 4 řo. U nejmenší velikosti 0/1 měsíc končíme s rozšiřováním po dokončení 8. kruhové řady (= 48 KS), pak postupujeme podle popisu v odstavci VŠECHNY VELIKOSTI. Hodně zdaru! Hana

01.02.2016 - 18:23

country flag Bianca wrote:

Super tolle Anleitung, die Mütze gehört bei mir zu einem Taufkleid

30.01.2016 - 13:54

country flag Willow wrote:

Please disregard my earlier posts as I have already figured them out! Now, in the Fan Edge sec. do I start at the corner where at bottom of Eyelet sec. or 5 rows in to exclude the Eyelet sec.? With the eyelet sec. it is 72 stitches w/o it is 62. Either way, do I need to adjust my stitches for R1? 72 is a multiple of 3 with no room for first sc. 62 is multiple of 3 with 2 left over, should I just do sc in beginning and end. Please help.

07.12.2015 - 05:17

DROPS Design answered:

Dear Willow, the fan edge is worked along last row on hat, ie 62 sts in 1st size, inc 2 sts evenly on 1st row to get 64 sts: work then a total of 21 times (sc, ch3, skip 2 sts) (= 21 ch-loops) and finish with 1 sc in last st. Happy crocheting!

07.12.2015 - 11:40

country flag Willow wrote:

Please clarify the 5+1 under the eyelet section. I am just beginning the the eyelet section and I have 10, 6, and 10 (26). If I add 2dc in each dc, I will have 36 stitches. My stitches aren't working out on the "Work next row as follows: ch 1, 1 sc in each of the first 2 sc, * skip 2 sc, ch 2, 1 sc in each of the next 3 sc *, repeat from *-* until 4 sts remain, skip 2 sc, ch 2 and work 1 sc in each of the last 2 sc." Please help.

04.12.2015 - 04:40

DROPS Design answered:

Dear Willow, see below how to crochet this row over 36 sc. Happy crocheting!

04.12.2015 - 09:18