DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 153-10
DROPS Design: Mynstur nr w-524
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
400-450-450-500-550 gr litur nr 32, ljós bláfjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 14 tbst og 5,5 umf verði 10 x 10 cm.
DROPS SILFURTALA, NR 534: 5 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrstu fl í hverri umf með fl er skipt út fyrir 1 ll.
Fyrsti tbst í hverri umf er skipt út fyrir 4 ll.

ÚTAUKNING:
Aukið út með því að hekla 2 fl í 1 fl.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er hekluð ofan frá og niður, fram og til baka við miðju að framan.

BERUSTYKKI:
Heklið 156-166-177-188-198 lausar ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) með heklunál nr 5 með Paris. Heklið 1. umf þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, * 1 fl í hverja af 3 næstu ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* og endið á 1 fl í hverja af 2-4-3-2-4 síðustu ll = 117-125-133-141-149 fl (= fyrsta umf í mynstri) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR.
Heklið nú þannig: A.4 (= kantur að framan), A.1, A.2 yfir næstu 96-104-112-120-128 fl (= 24-26-28-30-32 sinnum á breiddina), endið á A.3 og A.4 (kantur að framan). Heklið mynstur A.z 1 sinni á hæðina JAFNFRAMT í síðustu 2 umf er aukið út um 24-28-32-36-40 l jafnt yfir í hverri umf (= 48-56-64-72-80 l fleiri alls) – LESIÐ ÚTAUKNING að ofan. ATH: Aukið ekki út yfir A.4 = 165-181-197-213-229 l. Heklið nú A.z 1 sinni á hæðina (A.2 er heklað nú 36-40-44-48-52 sinnum á breiddina) JAFNFRAMT í 2 síðustu umf er aukið út um 22-26-30-34-38 l jafnt yfir í hverri umf (= 44-52-60-68-76 l fleiri alls). ATH: Ekki er aukið út yfir A.4 = 209-233-257-281-305 l.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið nú þannig:
A.4, A.1, A.2 yfir næstu 24-28-32-36-40 fl (= 6-7-8-9-10 sinnum á breiddina) (framstykki), 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 40-44-48-52-56 fl frá fyrri umf (handvegur, l notaðar síðar fyrir ermi), A.2 yfir næstu 60-68-76-84-92 fl (bakstykki), 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 40-44-48-52-56 fl frá fyrri umf (handvegur, l notaðar síðar fyrir ermi), A.2 yfir næstu 24-28-32-36-40 fl (framstykki) og endið á A.3 og A.4.
Heklið nú þannig: Heklið A.4, A.1, A.2 yfir næstu 24-28-32-36-40 fl (= 6-7-8-9-10 sinnum á breiddina) (framstykki), hoppið yfir 8 ll (undir ermi), A.2 yfir næstu 60-68-76-84-92 fl (bakstykki), hoppið yfir 8 ll (undir ermi), A.2 yfir næstu 24-28-32-36-40 fl (framstykki) og endið á A.3 og A.4. Haldið áfram með A.z þar til stykkið mælist ca 28-28-35-35-35 cm, endið eftir heila mynstureiningu af A.z. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist 46-48-56-58-59 cm frá öxl.

ERMI:
Stykkið er heklað í hring. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Ermin er hekluð ofan frá og niður. Byrjið að hekla undir ermi þannig: Heklið 2 fl í fyrstu ll (af þeim 8 ll), 1 fl í hverja af næstu 7 ll og 1 fl í hverja af 40-44-48-52-56 fl frá berustykki = 49-53-57-61-65 fl. Heklið nú þannig: 4 ll, A.1, A.2 yfir næstu 40-44-48-52-56 l (= 10-11-12-13-14 sinnum á breiddina), endið á A.3 og 1 kl í fjórðu ll. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 14-14-21-21-21 cm, endið á heilli mynstureiningu á A.z. Klippið og festið enda.

FRÁGANGUR:
Heklið fl-kant í kringum hálsmálið til þess að fá fallegan kant þannig: Heklið * 1 fl í hverja af næstu 3 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* og endið á 1 fl í hverja af 4-6-5-4-6 síðustu ll = 118-126-134-142-150 fl.
Saumið tölur í með ca 7 cm millibili í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = fl
symbols = ll
symbols = 1 tbst
symbols = 5 tbst um ll-boga
symbols = fl um ll-boga
symbols = umferðin er útskýrð í uppskrift
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (128)

Simone Baker wrote:

Hello, I just love the pictures of your garments, but I am having so much trouble understanding the pattern after the yoke start chain and first row of sc, Is there anyone that can help me understand better please, I really would like to make this cardigan and other items, Please help I'm confused

17.05.2016 - 14:55

DROPS Design answered:

Dear Mrs Baker, you have then to work following diagrams: start reading from the bottom corner on the right side towards the left: A.4 (= 6 sts = front band sts), A.1 (= 6 sts), repeat A.2 (= 4 sts repeat these 4 sts a total of 24-32 times in width, see size),then work A.3 1 time (= 3 sts) and finish with A.4 (= 6 sts = front band sts). Happy crocheting!

17.05.2016 - 16:12

country flag Karine wrote:

Bonjour, j'ai un problème à partir du DOS & DEVANTS: vous dites qu'il faut crocheter 6xA2 puis faire 8ml. Au 1er rang de Az, A2=1DB, 1ml, 1DB et 3ml. Donc pour moi, il y a 8+3= 11ml pour l'emmanchure ; seulement ensuite pour les manches vous parlez de 8ml uniquement. Où ce trouve l'erreur ? Merci

10.04.2016 - 17:38

DROPS Design answered:

Bonjour Karine, A.2 se crochète au-dessus de 4 m (1DB, 1 ml, 1 DB dans la 1ère m, sauter 3 ms) - pour le dos et les devants, vous crochetez 6 fois A.2 et sautez 40 m pour la manche, montez 8 ml pour l'emmanchure. Au rang suivant, sautez les 8 ml de l'emmanchure et continuez en point fantaisie avec A.2 tout du long. Ces 8 ml sont ensuite crochetées pour les manches. Bon crochet!

11.04.2016 - 11:32

country flag Josephine wrote:

Hello! First time using your patterns and must say they are beautiful! I have a question though on 153-10 yoke area. On the first row I do end up with 117 dc's then when I continue 2-4 rows I end up with 165 st, therefore if on rows 5 & 6 I must increase 24 on each row I will end up more than 165st. What am I doing/reading wrong?? Thank you so much for your help. Love that you have this support!!

25.03.2016 - 20:45

DROPS Design answered:

Dear Josephine, that's correct, you will inc 22 sts evenly on last 2 rows in A.z, ie 165+22 sts = 187 sts +22= 209 sts - you are now ready to divide for armholes. Happy crocheting!

29.03.2016 - 08:34

country flag Sixtine wrote:

Merci pour votre aide ....et votre patience!

10.03.2016 - 19:08

country flag Sixtine wrote:

Bonjour, je viens de trouver l'explication dans les commentaires dessous. Par contre ma confusion vient du fait que les explications ne sont pas claires on a l'impression qu'il faut faire A1+A2 sur les 96ms or en fait il ne faut faire que A2 et on obtient 24 motifs sur les 96ms. Merci

10.03.2016 - 17:17

DROPS Design answered:

Bonjour Sixtine, effectivement, on ne doit faire qu'une fois A.1 et répéter 24 fois A.2 (la virgule se voit à peine entre les 2 c'est vrai). Bonne continuation!

10.03.2016 - 17:32

country flag Sixtine wrote:

Bonjour, désolée encore moi! sur les 117 ms le shéma est : A4 et A1+A2 au dessus des 96ms suiv. et terminer par A3+A4. Pourquoi ne pas commencer par A4+A3 etc... alors qu'on finit par A3+A4? De plus si je fais le compte on a: 2xA4= 12ms; 117-12=105; 105-3 (A3)= 102; 102-96=6ms de trop??? Merci pour votre aide

10.03.2016 - 16:31

DROPS Design answered:

Bonjour Sixtine, au 1er rang, on commence par A.4 (= 6 m), puis A.1 (= 6 m), on répète 24 x A.2 (= 96 m au total), puis A.3 (= 3 m), et A.4 (= 6 m) soit: 6+6+96+3+6=117 ms. Au rang suivant, crochetez en sens inverse: A.4, A.3, répétez A.2, et terminez par A.1 et A.4. Bon crochet!

10.03.2016 - 16:43

country flag Sixtine wrote:

Bonjour, j'ai commencé la chaine avec les ml pour une taille S donc 156ml cela me donne une longueur de 92 cm. A quoi correspond cette partie? si j'en crois les explications disant que le modèle se construit de haut en bas alors les 156 ml correspondent au cou??? Merci pour votre aide.

09.03.2016 - 23:01

DROPS Design answered:

Bonjour Sixtine, quand vous avez montez vos 156 ml, vous crochetez le 1er rang en sautant des ml à intervalles réguliers, soit: 1 ms dans la 2ème ml à partir du crochet, *1 ms dans chacune des 3 ml suiv, sauter 1 ml*, répéter de *-*, et terminez par 1 ms dans chacune des 2 dernières ml = il reste 117 ms pour l'encolure. Bon crochet!

10.03.2016 - 09:04

country flag Sixtine wrote:

Bonjour, j'ai encore une question cette fois il s'agit des manches. Dans le 2ème paragraphe tout se brouille! vous dites: "Continuer ainsi: A.4, A.1, A.2 au-dessus des 24-28-32-36-40 ms suiv (= 6-7-8-9-10 fois en largeur) (= devant), sauter 8 ml (emmanchure)." Il me semble illogique de sauter 8ml il faut au contraire piquer dedans puisque les 8ml du rang précédent ont permis de sauter les 40 ms pour les manches et donc l'espace est déjà crée? ai-je bien compris? Merci pour votre aide

08.03.2016 - 19:44

DROPS Design answered:

Bonjour Sixtine, le rang cité pour les manches est le 2ème de la manche: on commence par 1 tour de ms tout autour de la manche (on a ainsi crocheté 1 ms dans chacune des 8 ml sous la manche) , puis 4 ml (= remplace la 1ère DB), puis A.4, A.1, A.2 etc.. et on termine par A.3 et 1 mc dans la 4ème ml du début du tour. Bon crochet!

09.03.2016 - 08:31

country flag Sixtine wrote:

Bonjour, je suis débutant et je n'arrive pas à comprendre les explications écrites sur le modèle Drop 153-10. Lorsque vous dites "et terminer par 1 ms dans chacune des 2-4-3-2-4 dernières ml = 117-125-133-141-149 ms (= 1er rang du diagramme) " ou encore "augmenter 24-28-32-36-40 m à intervalles réguliers sur chacun des 2 rangs (= 48-56-64-72-80 m augmentations au total)" que signifient ces explications? merci pour votre aide.

07.03.2016 - 17:37

DROPS Design answered:

Bonjour Sixtine, chaque nombre se réfère à la taille dans l'ordre indiqué, soit en taille S, vous terminez par 1 ms dans chacune des 2 dernières ml et vous aurez 117 ms - en taille M, vous terminez par 1 ms dans chacune des 4 dernières ml, et vous aurez 125 ms et ainsi de suite. Pour répartir des augmentations, voir ici. Bon crochet!

07.03.2016 - 18:13

Mitra wrote:

Hi, first of all I should say thank you for your good website. I have a problem with schematic, Although I read lesson about it I don't understand the numbers. I want to crochet blouses and tops but I cant. please help me thank you

31.12.2015 - 19:08

DROPS Design answered:

Dear Mitra, the numbers in pattern apply to the part of diagram to be worked: A.4 is worked over 6 sts, A.1 over 6 sts, A.2 over 4 sts and A.3 over 3 sts. Remember your DROPS store will also give you tips & advices. Happy crocheting!

02.01.2016 - 16:05