DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2992.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 152-17
DROPS Design: Mynstur nr cl-027
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio
400-450-500-550-600-650 gr litur nr 28, gulur

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 st og 8 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2992.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á nýrri umf er 1 st skipt út fyrir 3 ll.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.5.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Það er byrjað og endað á ör í miðju mynstri af A.x

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 st með því að hekla næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st, en bíðið með því að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Heklið 83-90-100-107-121-132 lausar ll með heklunál nr 4,5 með Cotton Light.
UMFERÐ 1: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, (= 2 st), síðan er heklaður 1 st í hverja af næstu 2-2-5-5-5-2 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* 10-11-12-13-15-17 sinnum til viðbótar = 70-76-85-91-103-112 st.
Heklið nú 5-5-5-4-5-5 umf til viðbótar með 1 st í hvern st (= alls 6-6-6-5-6-6 umf með st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Haldið síðan áfram með MYNSTUR þannig: Heklið A.1 yfir 4 st, A.2 þar til 3 st eru eftir, A.3 yfir þær 3 l sem eftir eru frá fyrri umf. Haldið áfram með mynstur A.1-A.3 fram og til baka í 8 umf, nú eru 8 göt á ská á hæðina (fyrsta rönd með gatamynstri) og 1 röð með st. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Nú er haldið áfram með rendur í st og gatamynstur á sama hátt, en nú er heklað eftir A.x, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-32-32-40-41-41 cm og hekluð er ein mynstureining með st er sett eitt prjónamerki í hvora hlið fyrir handveg. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 49-50-51-60-62-63 cm byrjar úrtaka fyrir hálsmáli og hvor öxl er hekluð til loka fyrir sig frá réttu: Heklið 1 umf með st yfir fyrstu 21-24-27-30-36-39 st, snúið við og fækkið um 1 st – LESIÐ ÚRTAKA! Heklið út umf. Þegar stykkið mælist 51-52-53-62-64-65 cm er bakstykkið klárt. Klippið frá. Heklið hina öxlina á sama hátt, nema gagnstætt!

FRAMSTYKKI:
Heklið eins og bakstykki. Þegar stykkið mælist 43-43-43-53-54-54 cm byrjar úrtaka fyrir hálsmáli og hvor öxl er hekluð fyrir sig.
Heklið vinstri öxl frá réttu þannig:
Heklið ll-boga eins og áður (með 2 st á milli hverra fl í fyrstu umf með ll-bogum) yfir fyrstu 27-30-33-36-42-45 st, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli með því að fækka um 1 ll-boga í gatamynstri eftir mynstri A.4.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Í næstu umf eru heklaðir 4 st í fyrsta ll-boga, 3 st í hvern og einn af næstu ll-bogum þar til 1 ll-bogi er eftir og 4 st í síðasta ll-boga í umf = 20-23-26-29-35-38 st eftir á öxl. Haldið síðan áfram með stykki með 1 st í hvern st. Þegar stykkið mælist alls 51-52-53-62-64-65 cm er framstykkið klárt. Klippið frá.
Heklið hina öxlina á sama hátt, nema gagnstætt og notið mynsturteikningu A.5 í stað A.4. Saumið axlasauma.

ERMI:
Ermar eru heklaðar frá handveg og niður.
UMFERÐ 1: Byrjið neðst niðri við annað prjónamerki fyrir handveg og heklið upp ll-boga yfir handveg þannig: 1 fl, * 5 ll, 1 fl *, endurtakið frá *-* þar til þú hefur 20-21-23-23-25-26 ll-boga (hver ll-bogi nær yfir 1½-2 cm). Haldið síðan áfram fram og til baka með mynstur A.x þar til heklaðar hafa verið alls 3 mynstureiningar á hæðina – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hverri mynstureiningu með st þannig: 1. og 2. skipti sem A.x er heklað er fækkað um 1 st í hvorri hlið á stykki í 1., 3. og 5. umf með st í A.x = 6 st færri í hvorri hlið. Nú eru 48-51-57-57-63-66 st eftir.
Í 3. skiptið sem A.x er heklað er lykkjum fækkað þannig: Fækkið um 1 st í hvorri hlið á stykki í 4-5-5-5-5-5 fyrstu umf með st = 40-41-47-47-53-56 st eftir. Haldið síðan áfram með 4-3-2-2-1-0 umf með st. Ermin mælist nú ca 36-35-34-34-33-32 cm. Klippið frá og festið enda.

HÁLSMÁL:
Heklið kant í kringum hálsmál frá miðju að ofan uppi á öxl þannig: Heklið 1 fl, * 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* umf í kringum allt hálsmálið og endið á 1 kl í 1 fl í umf. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma og sauma undir ermum í eitt yst í lykkju í umferð.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.03.2014
BAKSTYKKI (bætt hefur verið við texta ca fyrir miðju í dálk)... Haldið áfram með mynstur A.1-A.3 fram og til baka í 8 umf, nú eru 8 göt á ská á hæðina (fyrsta rönd með gatamynstri) og 1 röð með st. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! ... + Nýtt mynstur A.X hefur verið bætt við í 1 umf efst með st.
Yfirfarið á vefsvæði: 03.10.2014
BAKSTYKKI:... Heklið nú 5-5-5-4-5-5 umf til viðbótar með 1 st í hvern st (= alls 6-6-6-5-6-6 umf með st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!

Mynstur

symbols = st
symbols = ll
symbols = fl í l
symbols = fl um ll-boga
symbols = þessi röð er útskírð í mynstri
symbols = mynstur á ermi byrjar hér. Þegar A.x hefur verið heklað einu sinni á hæðina, haldið áfram með alla mynstureininguna af A.x út ermina
symbols = þessi röð er útskírð í fyrstu röð í ermi
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 152-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (84)

country flag Brona wrote:

Please help i\'m stuck after row 6, don\'t understand diagram. Need written version or explaination please.

13.11.2018 - 18:48

DROPS Design answered:

Dear Brona, each symbol in diagram represents 1 stitch - see diagram key. Start working from RS at the bottom corner on the right side (see 1 = row 1) and work A.1 over the first 4 sts, then repeat A.2 until 3 sts remain at the end of the row and work A.3. From WS read diagram from the left towards the right: A.3, repeat A.2 and finish with A.1. Happy crocheting!

14.11.2018 - 08:04

country flag Monique wrote:

Ich bin gerade beim Vorderteil (Größe L) in Höhe der 43cm, wo ich nun die Schultern einzeln häkeln soll, und bin mit der 4. Bogenreihe gerade fertig. Muss ich erst einmal normal weiter häkeln, bis ich eine Stäbchenreihe haben, bevor ich die Schultern beginne (so ähnlich wie auf dem Foto)? Ich bin mir unsicher, ob das gut aussieht, wenn ich in einer Bogenreihe mit den Schultern starte. Außerdem sind in A4 und A5 Stäbchenreihen als erste Reihe.

30.07.2018 - 19:44

DROPS Design answered:

Liebe Monique, Die Schultern beginnen mit einer Bogenreihe, aber gerne können Sie anpassen, jenach dem Sie Bogenreihe oder Stb häkeln (damit Muster gleich wie beim Rückenteil wird), einfach über die ersten 33 Stb häkeln für die erste Schulter. Viel Spaß beim häkeln!

31.07.2018 - 09:54

country flag Katharina wrote:

Hallo, ich bin beim Vorderteil bei Diagramm A4, Größe L. Über die ersten 33 Stäbchen sollen Lfm-Bögen, macht 11 Bögen. Dann 2 Bögen abketten in den nächsten Reihen macht 9 Bögen. Dann sollen 4 stb in den ersten Bogen, danach je 3 stb pro Bogen und am Ende nochmal 4 stb. Das sind bei mir allerdings 29 stb und nicht wie in der Anleitung benötigt 26. Was mache ich falsch? Liebe Grüße!

15.05.2018 - 21:37

DROPS Design answered:

Liebe Katharina, arrangieren Sie die Maschenanzahl bei der 1. Reihe mit Stb so daß Sie die richtige Breite bekommen - Ihr Hinweis wird unser Designteam weiterleitet. Viel Spaß beim häkeln!

16.05.2018 - 09:01

country flag Nadia Trappeniers wrote:

Hallo, wat geeft het beste resultaat: voor- en achterpand aan elkaar naaien of aan elkaar haken. Dankuwel

11.08.2017 - 20:01

DROPS Design answered:

Hallo Nadia, In dit geval is in elkaar naaien met kleine steekjes het mooist (althans naar mijn smaak ;)

15.08.2017 - 17:23

country flag Gaby wrote:

Liebes Drops-Team, habe die ersten 8 Lochmusterreihen gehäkelt, und das Teil wellt sich wie ein Regenbogen, das heißt der Lochmusterstreifen misst 10cm mehr als der Stäbchenstreifen. Sollte ich das Lochmuster mit einer dünneren Häkelnadel probieren, oder ist das normal am Anfang? Auch wenn ich das Lochmuster in die Höhe ziehe, ist es immer noch recht wellig.

25.04.2017 - 21:33

DROPS Design answered:

Liebe Gaby, beachten Sie Ihre Maschenprobe und, passen Sie mal auf, das Lochmuster nicht zu locker zu häkeln, damit Sie die richtige Breite behalten. Viel Spaß beim häkeln!

26.04.2017 - 09:32

country flag Kerry wrote:

Hello! I have just started crocheting this and am already confused on the second row! It says to work one rebbe in every treble. Do I miss the chain spaces from the previous row? If I don't then I end up with 81 stitches and this doesn't fit with the A.1, A.2 and A.3 pattern for the third row. If I miss the chain space then the piece is becoming u-shaped! Do I need to still have 70 trebles on rows 1-6? Thanks!

28.03.2017 - 14:46

DROPS Design answered:

Dear Kerry, on very first row, you are crocheting trebles, skipping chains evenly = 70-112 tr (see size). On 2nd row, work then 1 tr in every tr, number of tr should be now the same, ie 70-112 tr. Work a total of 6-5 row with tr. Then work following diagrams A.1 (1 time), repeat A.2 and finish with A.3 starting on row 1 (row with the star shows the last tr-row). Happy crocheting!

28.03.2017 - 16:45

country flag Jean wrote:

I am stuck on Left Shoulder. "Work chain spaces as before" = where did I do this before? (with 2 dc between every sc on first row with chain spaces). I don't understand what this means. Thank you

23.03.2017 - 22:07

DROPS Design answered:

Dear Jean, just crochet same pattern as before but over the first 27-45 dc only (leave the remaining sts on row unworked, these are for neck and right shoulder). at the same time, decrease for neck as shown in diagram A.4, ie work the last of these 27-45 dc as in A.4. Happy crocheting!

24.03.2017 - 09:02

country flag Jean wrote:

Is there a video available for this pattern?

23.03.2017 - 22:05

DROPS Design answered:

Dear Jean, there is no specific video to this pattern, just read the diagram starting from the bottom corner on the right side towards the left from RS and from left towards right from WS. Happy crocheting!

24.03.2017 - 08:57

country flag Maaike wrote:

Waarom moet je volgens de beschrijving van toer 1 bij maat xl 4 toeren haken om vervolgens 7 toeren met stokjes te krijgen? Dat klopt toch niet?

04.01.2017 - 00:21

DROPS Design answered:

Hoi Maaike. Waar ben je precies in het patroon? Panden of mouwen en welk telpatroon? Bvd.

12.01.2017 - 15:03

country flag Ellen wrote:

Hi there, Am starting diagram A1,2 and 3. Please confirm: is that ch6 over first four stitches and ch5 over every three stitches thereafter? Repeat back and forth? Will likely have another question when I reach Ax. Not a diagram gal ...so far!

09.08.2016 - 01:21

DROPS Design answered:

Dear Ellen, on 1st row in A.1 work ch 6 (=1st ch = 1st sc), skip 3 dc, 1 sc in next dc - A.2 = ch5, skip 2 dc, 1 sc in next dc - A.3 ch 5, skip 2 dc, 1 sc in last dc. Row 2 = ch 6, 1 sc in 1st ch-space - A2= Ch 5, 1 sc in next ch-space - A.3= 3 ch, 1 dc in 1st ch from beg of previous row. Then continue reading diagrams from the right towards the left from RS and from the left towards the right from WS. Happy crocheting!

09.08.2016 - 09:05