DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1716.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 153-36
DROPS Design: Mynstur nr r-661
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M (L/XL)
Höfuðmál: ca 54/56 (58/60) cm

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
150 (150) gr litur nr 09, ljós brúnn

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 st og 9 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1716.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsti st í byrjun umf með st er skipt yfir fyrir 3 ll. Hver umf með st endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (= fyrsti st).
Fyrsta fl í byrjun umf með fl er skipt út fyrir 1 ll. Hver umf með fl endar á 1 kl í ll frá byrjun umf.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 st eða 1 fl með því að hekla 2 st/fl í sömu l.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.3.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.
----------------------------------------------------------

HATTUR:
Heklið 5 ll með heklunál nr 4 með 1 þræði af Muskat og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 1: Heklið 10 (10) st um hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 st í hvern st = 20 (20) st.
UMFERÐ 3: * Heklið 1 st í fyrsta st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* = 30 (30) st.
UMFERÐ 4: * Heklið 1 st í hvorn af fyrstu 2 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* = 40 (40) st.
UMFERÐ 5-8 (5-9): Haldið áfram með útaukningu á saman hátt, þ.e.a.s. að aukið er út um 10 st í hverri umf – aukið út á sama stað og fyrri umf, þ.e.a.s. að það verði 1 st fleiri ámilli hverra útaukninga í hverri umf. Aukið út eins og áður að hekla 2 st í 1 st, JAFNFRAMT í umf 8 (9) er að auki aukið út um 5 (1) st jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 85 (91) st. Stykkið mælist nú 9 (10) cm.
UMFERÐ 9-10 (10-11): Heklið nú MYNSTUR þannig: Hekli A.1, heklið nú A.2 alls 13 (14) sinnum og endið á A.3.

Í næstu umf er heklað þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í fyrstu fl frá fyrri umf, hoppið yfir 1 tbst, 1 fl í hvorn af næstu 2 tbst, * 1 fl í hvern af næstu 3 tbst, hoppið yfir 1 tbst, 1 fl í næstu fl, hoppið yfir 1 tbst, 1 fl í hvorn af næstu 2 tbst *, endurtakið frá *-* þar til 4 tbst eru eftir í umf, 1 fl í hvern af þeim 4 tbst sem eftir eru = 85 (91) fl í umf.
UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, * 1 fl í næstu fl, 1 ll, hoppið yfir 1 fl *, endurtakið frá *-* alla umf og endið á 1 kl í 1. ll í umf.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í næstu ll, * 1 fl í næstu fl, 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-* alla umf hringinn, samtímis er aukið út um 6 (12) jafnt yfir í umf = 91 (103) fl. Endið á 1 kl í 1. fl frá byrjun umf.

BARÐ:
Heklið nú barð þannig:
UMFERÐ 1: Heklið nú MYNSTUR þannig: Heklið A.1, heklið nú A.2 alls 14 (16) sinnum og endið á A.3.
UMFERÐ 2-5: Haldið áfram með mynstur A.1, A.2 og A.3, JAFNFRAMT er aukið út um 1 tbst í hvern tbst-hóp (þ.e.a.s. í 2. umf eru heklaðir 8 tbst í tbst-hópa). Haldið síðan áfram alveg eins og aukið út um 1 tbst í hvern tbst-hóp fyrir hverja umf. Þegar 5. umf af barðinu hafa verið heklaðar, heklið 1 fl í hvern tbst í fyrri umf. Klippið frá og festið enda.

SNÚRA:
Klippið 8 þræði ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna tvöfalda saman og þá tvinnar hún sig aftur. Hnýtið hnút í annan endann og þræðið snúruna með endanum sem er án hnúts og þræðið upp og niður á milli gata sem hekluð voru í 2. umf á eftir fyrstu mynstureiningunni með st-hópum. Stillið af lengdina á snúrunni eftir óskaðri lengd og hnýtið hnút á hinn endann.

Mynstur

symbols = 1 ll
symbols = 1 fl
symbols = 1 tbst
symbols = 1 kl
symbols = 1 st
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (83)

country flag Lisa wrote:

Hej! Jag hakar upp mig på varv 8 när jag ska virka. Det står att man ska öka 5 stolpar, utöver de 10 man ökar per varv, men var ska de placeras? Tack på förhand!

16.04.2018 - 21:06

DROPS Design answered:

Hej, dessa 5 stolpar ska ökas jämnt fördelat, du kan göra ökningarna i vartannat mellanrum mellan de övriga ökningarna.

24.04.2018 - 13:59

country flag Frøydis wrote:

Jeg mener å ha forstått oppskriften og diagrammet. Men hatten får feil fasong, og blir altfor kort. Utifra bildet kan jeg heller ikke se at jeg gjør feil i mønsteret.

13.07.2017 - 21:32

DROPS Design answered:

Hei Frøydis. Har du målt din heklefasthet? Du skal ha 9 rader med staver for å få 10 cm i høyden. Det er fort gjort å hekle for stramt og da blir hatten for kort.

07.08.2017 - 11:07

country flag Linda Cook. wrote:

Hej drops jeg kan ikke forstå hvad det er jeg skal efter 11 omgang. De 3 næste omgange kan jeg slet ik se for mig hvordan de skal laves.der står jeg efter mønster 3a skal lave en fm i første fm fra forrig omgang, men den starter jo med 3 lm .Er der en mere forståelig forklaring eller video?

28.03.2017 - 23:08

DROPS Design answered:

Hej

How to crochet the fan pattern in DROPS 153-36 from Garnstudio Drops design on Vimeo.

Linda, har du set videoen nederst i opskriften

29.03.2017 - 08:31

country flag Carole Gencay wrote:

It would be so helpful to see a full video of someone doing this entire Glimpse of Spring Cloche hat. I really needed it for the crown.

11.07.2016 - 20:43

DROPS Design answered:

Dear Mrs Gencay, video in the previous answer should help you to work the diagram. Happy crocheting!

12.07.2016 - 09:47

country flag Carole Gencay wrote:

My crown portion was a perfect FLAT disc until I worked round 9-10 (using diagram A.1 to A.3). Would that be correct? I felt I did rounds 1 through 8 with great precision, ending with the correct # stitches each round. I am done Round 1 of the Brim now... Second question: My head is slightly smaller than the regular size of 54/56; how can i accommodate this? Thanks!

11.07.2016 - 20:41

DROPS Design answered:

Dear Mrs Gencay, you can see in the video below how to work A.1-A.3 keeping correct shape - the hat maybe a bit smaller so that it fit on the head. Happy crocheting!

12.07.2016 - 09:41

country flag Femke wrote:

Ik wil dit hoedje graag voor mijn nichtje maken (2 1/2 jaar oud). Heeft u een tip hoe ik het patroon van dit hoedje het beste aan kan passen?

06.07.2016 - 16:41

DROPS Design answered:

Hoi Femke. Ik zou beginnen zoals het patroon en dan minder toeren stk haken voordat het patroon begint. Als het kan pas de hoed aan je nichtje zodat je weet wanneer je kan beginnen met het telpatroon en brem. Of meet ongeveer hoe hoog de hoed moet zijn

07.07.2016 - 17:12

country flag DROPS Design wrote:

Hej Lisa. Der er lavet en video paa viftemönstret nu, pröv og se om det ikke hjaelper dig videre. God fornöjelse:

27.06.2016 - 10:55

country flag Lisa Lebrija wrote:

Hej igen, Jeg forstår godt du ikke forstår noget! Det gør jeg heller ikke. Nu har jeg fundet en hækleekspert som også siger det er det værste rod af en opskrift hun længe har set. Hun har måtte ændre i den så det passer. Og opskriften svinger mellem mønster og diagram. Hvorfor er der altid så mange fejl i Jeres opskrifter? Er det derfor de er gratis? Så vil jeg langt heller købe en opskrift og få en hvor det hele fungerer. Jeg er simpelthen grædefærdig med den her møg opskrift.

20.06.2016 - 20:02

DROPS Design answered:

Kaere Lisa. Det er ikke mönstret jeg ikke forstaar, men dit problem. Jeg pröver det bedste jeg kan at hjaelpe dig, men tror ikke vi kommer videre paa denne facon. Jeg har sat et önske paa om at faa lavet en video med mönstret. Jeg kan ikke sige hvor lang tid der vil gaa, men en video kan maaske hjaelpe dig med at forstaa mönstret.

21.06.2016 - 10:46

country flag Lisa Lebrija wrote:

Hej igen! Når jeg hækler 10. række, får jeg kun 8 hele vifter (stangmaskegrupper). Så et eller andet er forkert i 9. række hos mig. Jeg har hæklet 9. række sådan her: 3 lm, spring en fm over, 2 stgm 1 lm, spring 1 fm over, 1 stgm 1 lm, spring 1stgm over, 2 stgm osv. Det giver mig 8 viftemønstre. Hvad har jeg gjort forkert??? Hilsen Lisa

11.06.2016 - 22:41

DROPS Design answered:

Hej Lisa. Jeg forstaar overhovedet ikke hvad du haekler. Du laeser diagrammet fra höjre mod venstre: 3 lm, 3 dbl-st i förste st, spring 2 st over = A.1, og saa gentager du A.2 13 eller 14 gangen: 1 fm i naeste st, spring 2 st over, vifte af 7 dbl-st i nest st, spring 2 st over, Du afslutter med A.3: v i st, spring 2 st over, 3 dbl-st i sidste st.

16.06.2016 - 15:56

country flag Lisa Lebrija wrote:

Hej Drops Jo men den fastmaske kommer jo først efter række 10. Hvordan skal række 10 så være? Det er lidt uforståeligt, synes jeg. Hilsen Lisa

07.06.2016 - 14:09

DROPS Design answered:

Hej Lisa. Jeg kan ikke se hvad du mener. Du har heklet st ned til du starter med mönstret. Raekken med vifterne (anden raekke paa diagrammet), de haekles med dbl-st og 1 fm imellem hver vifte, dvs, du starter fra höjre med 4 lm, 3 dbl-st, 1 fm i st, 7 dbl-st, 1 fm i st osv. I neste omg fortsaetter du, men viften hekles nu i fm fra sidste omg og fm i 4 dbl-st i viften fra sidste omg. Osv.

07.06.2016 - 17:55