DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3300.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 151-34
DROPS Design: Mynstur nr ee-474
Garnflokkur E
-----------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL:
Mál:
Ummál að neðan: 62 cm.
Ummál að ofan: 58 cm.
Hæð: 26 cm.

Efni: DROPS SNOW frá Garnstudio
150 gr litur nr 80, grizzly

DROPS HEKLUNÁL NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 9 st og 6 umf verði 10 x 10 cm.

DERHÚFA:
Stærð: Ein stærð

Efni: DROPS SNOW frá Garnstudio
150 gr litur nr 80, grizzly

DROPS HEKLUNÁL NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 9 hst verði 10 cm á breiddina.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3300.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

2 LYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN:
Heklið fyrstu l – en dragið ekki þráðinn í gegn í lokin – heklið næstu l, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum fyrri og seinni lið í lykkju

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta hst í hverri umf er skipt út fyrir 2 ll. Hver umf endar á 1 kl í 2. ll frá byrjun umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

HÁLSSKJÓL:
Heklið 56 ll LAUST með heklunál nr 8 með Snow og tengið þær saman í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (kemur í stað 1. st), heklið 1 st í hverja ll = 56 st, endið á 1 kl í 3. ll.
Haldið svona áfram þar til heklaðar hafa verið 5 umf. Í umf 6 er fækkað um 4 l í umf með því að hekla 13. og 14. hverja l saman – sjá útskýringu að ofan = 52 st.
Haldið áfram með 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 26 cm. Klippið frá og festið enda.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

HÚFA:
Heklið 4 ll með heklunál nr 8 með Snow og tengið þær saman í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið 8 hst um hringinn. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 2: Heklið 2 hst í hverja l – en í framhaldinu er heklunálinni bara stungið í gengum aftari lykkjubogann – þar með kemur mynsturáferðin = 16 hst.
UMFERÐ 3: * Heklið 1 hst í fyrstu l, 2 hst í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 hst.
UMFERÐ 4: * Heklið 1 hst í hvora af fyrstu 2 l, 2 hst í næstu l *, endurtakið frá *-* = 32 hst.
UMFERÐ 5: * Heklið 1 hst í hverja af fyrstu 3 l, 2 hst í næstu l *, endurtakið frá *-* = 40 hst.
UMFERÐ 6 : * Heklið 1 hst í hverja af fyrstu 4 l, 2 hst í næstu l *, endurtakið frá *-* = 48 hst.
UMFERÐ 7 : * Heklið 1 hst í hverja af fyrstu 5 l, 2 hst í næstu l *, endurtakið frá *-* = 56 hst.
UMFERÐ 8 : * Heklið 1 hst í hverja af fyrstu 6 l, 2 hst í næstu l *, endurtakið frá *-* = 64 hst.
UMFERÐ 9-10: Heklið 1 hst í hverja l = 64 hst.
UMFERÐ 11 : * Heklið 6 hst, heklið nú 7. og 8. hst saman – sjá skýringu að ofan *, endurtakið frá *-* = 56 hst.
UMFERÐ 12: * Heklið 5 hst, heklið nú 6. og 7. hst saman *, endurtakið frá *-* = 48 hst.
UMFERÐ 13: * Heklið 4 hst, heklið nú 5. og 6. hst saman *, endurtakið frá *-* = 40 hst.
UMFERÐ 14-15: * Heklið 1 fl í hverja fl = 40 fl. Klippið frá og festið enda (þetta er fyrir miðju, aftan á derhúfunni).

DER:
Heklið nú der með tvöföldum þræði yfir 18 miðjulykkjur þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 hst í hverja l = 18 hst.
UMFERÐ 2-4: Snúið stykkinu, heklið 2 ll, heklið 2 næstu l saman, heklið út umf, en síðustu 2 l eru heklaðar saman = 12 hst eftir umf 4.
UMFERÐ 5: Heklið 1 umf með fl í kringum opið á húfunni og derinu (heklið 1 fl í hverja l, heklið nú í gegnum báða lykkjubogana).

SKRAUTRENDUR:
Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á húfunni í 14. umf (neðst niðri á húfunni). Heklið 1 kl í l við annað prjónamerkið, gerið l ca 1-1,5 cm langa, heklið 1 kl í 13. umf, gerið l ca 1-1,5 cm langa, heklið 1 kl í 12. umf – haldið svona áfram yfir efri hlutann á húfunni og niður að hinu prjónamerkinu. Skiptið niður þessum 2 röndum yfir húfuna. Klippið frá og festið enda.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (52)

country flag Batoul Fawaz wrote:

Hello!! if i want to work this pattern with a crochet hook 5 mm what is the nb of hdb that should i start with thank u

13.01.2016 - 10:21

DROPS Design answered:

Dear Mrs Fawaz, this pattern has been written for a tension of 9 tr x 6 rounds = 10 x 10 cm, you will have to adjust yarn/hook, or recalculate the pattern. We are not able to adapt each pattern to each individual request, but you can get help from the store where you bought your yarn. Happy crocheting!

13.01.2016 - 10:23

country flag HERIN Angélique wrote:

Bonjour, Doit-on faire tous les tours de la casquette dans le brin arrière des mailles ? J'ai fais la casquette mais elle ne donne pas l'effet tombant à l'arrière. La casquette s'arrête juste au dessus des oreilles. J'utilise la laine mentionner et mon échantillon fait bien 10x10 en échantillon avec 9 dB. Merci en avance de votre réponse.

05.12.2015 - 20:03

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Herin, pensez à bien conserver la même tension également pendant la réalisation de la casquette - vous pouvez ajuster la hauteur si nécessaire en rajoutant quelques tours supplémentaires, mais pour l'effet tombant c'est surtout sur la largeur qu'il faudra aussi bien conserver la même tension. Bon crochet!

07.12.2015 - 10:12

country flag HERIN wrote:

Bonjour, Doit-on faire tous les tours de la casquette dans le brin arrière des mailles ? J'ai fais la casquette mais elle ne donne pas l'effet tombant à l'arrière. La casquette s'arrête juste au dessus des oreilles. Merci en avance de votre réponse.

05.12.2015 - 19:31

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Herin, vous pouvez au choix crocheter dans le brin arrière des mailles à chaque tour ou dans les 2 brins - mais veillez à bien vérifier votre tension pour obtenir l'effet voulu. Bon crochet!

07.12.2015 - 10:10

country flag Andrea wrote:

Ich wollte mal nachfragen ob man bei der Mütze bei jeder Reihe ins hintere Maschenglied einstechen soll, oder nur die zweite Reihe so häkelt?

25.10.2015 - 20:16

DROPS Design answered:

Das gilt für alle weiteren Rd, damit das Strukurmuster entsteht. Viel Spaß beim Häkeln!

27.10.2015 - 22:14

country flag Anja wrote:

So, habe die Mütze mit ganzen Stäbchen gehäkelt und nun sitzt sie auch richtig bauschig am Kopf. Würde also empfehlen, die Mütze anstatt mit halben, mit ganzen Stäbchen zu häkeln. Der Schirm aber wieder mit halben, sonst wird er zu groß.

15.09.2015 - 11:47

country flag Anja wrote:

Muß mich leider der Petra anschließen. Trotz genauer Maschenprobe und Eskimo Wolle ist auch meine Mütze viel zu klein geworden. Nachdem ich nun alles wieder aufgerippelt habe, werde ich die Mütze anstatt mit halben, nun mit ganzen Stäbchen häkeln. Vielleicht ist das des Rätsels Lösung. Werde berichten, wie es mit der Mütze weiter geht.

07.09.2015 - 20:05

country flag DEBORAH COHEN wrote:

Bonjour,Je vous ai posé une question il y a quelques semaines et je n'ai toujours pas reçu de réponse!?Ma question était: Il me semble qu'il y a une erreur au tout début de la réalisation du modèle: J'ai fait 8 dB le 1er tour et en continuant les rangs suivants, le modèle forme comme un petit entonnoir au lieu d'être plat comme le fond d'un béret devrait l'être. Faut-il faire une maille en l'air entre chaque dB ? Merci Bien cordialement Déborah

29.01.2015 - 08:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cohen, on commence bien par 8 dB au 1er tour, essayez d'ajuster avec un rond magique au lieu d'une chaînette de départ, pensez bien à vérifier votre échantillon et essayez de "tirer" vos mailles moins haut en hauteur si nécessaire. Bon crochet!

29.01.2015 - 09:28

country flag DEBORAH COHEN wrote:

Bonjour, je ne sais pas si ma question a bien été envoyée... Donc je la renvoie et excusez moi si il y a un doublon... D'abord félicitations pour vos magnifiques modèles Grand Bravo aux stylistes! J'ai un problème avec la casquette numéro 151-34; Dès le début du travail, le tricot prend la forme d'un cône au lieu d'être bien plat...! J'ai pourtant commandé exactement la même laine; Merci pour votre aide Bien cordialement Déborah

15.01.2015 - 06:24

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cohen et merci - le départ de la casquette devrait être effectivement plat, sur un rond de départ de 8 dB (demi-brides), on va augmenter 8 dB tous les tours - essayez éventuellement de moins "tirer" vos dB en hauteur. Bon crochet!

15.01.2015 - 09:30

country flag Jinksy wrote:

Can you be more explicit with the instruction to 'work stitches in the back loop only'? There is more than one interpretation of these words...

08.01.2015 - 11:29

DROPS Design answered:

Dear Mrs Jinsky, the video below shows how to crochet both loops, front loop or back loop of sts. Happy knitting!

08.01.2015 - 13:35

country flag Jinksy wrote:

I'm disappointed - after following the pattern to the letter, using Drops Eskimo 'Grizzly', the resultant hat bears little resemblance to the photograph-pardon the pun! The finished hat seems more rigid than the floppy one in the image, and I suspect the pattern was not written by the person who crocheted the original in your photograph!

08.01.2015 - 11:25

DROPS Design answered:

Dear Mrs Jinsky, have you checked your tension ? you should get 9 htr = 10 cm in width to get same result as in the picture. Remember you can get individual assistance from your DROPS store if you need to. Happy crocheting!

08.01.2015 - 13:45