DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS Children 24-40
DROPS Design: Mynstur nr db-005-bn
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------
HÁLSSKJÓL:
Stærð: 3/5 - 6/9 - 10/12 ára
Ummál efst: 47-51-56 cm
Ummál neðst: 60-64-69 cm
Hæð: 22-24-26 cm
Efni:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio
100-100-100 gr litur nr 01, rósargarður

EYRNABAND:
Stærð: 3/5 - 6/9 - 10/12 ára
Höfuðmál: 50/52 - 52/54 - 54/58 cm
Efni:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio
100-100-100 gr litur nr 01, rósargarður

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 14 fl verði 10 cm á breidd.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrstu fl í byrjun umf er alltaf skipt út fyrir 1 ll.

2 LYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN:
Heklið fyrstu l – bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin – heklið næstu l, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum fyrstu og aðra lykkju.
--------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL:
Stykkið er heklað í hring en eftir hverja umf er stykkinu snúið við, þannig að heklað er til skiptis frá réttu og röngu.
Heklið 84-90-96 lausar ll með heklunál nr 5 með Big Delight og tengið þær saman með hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í hverja ll – lesið HEKLLEIÐBEININGAR! = 84-90-96 fl, endið á 1 kl í fyrstu ll. Snúið við. Haldið svona áfram með 1 fl í hverja fl. Þegar stykkið mælist 6 cm er fækkað um 6 fl jafnt yfir í umf, endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 12 og 18 cm = 66-72-78 fl.
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 22-24-26 cm. Klippið frá og festið enda.
--------------------------------------------------------

EYRNABAND:
Heklið 14-15-16 ll (meðtalin 1 ll til að snúa við) með heklunál nr 5 með Big Delight. Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni. Heklið nú 1 fl í hverja ll = 13-14-15 fl. Haldið svona áfram fram og til baka með 1 fl í hverja fl – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR – þar til stykkið mælist ca 46-48-50 cm. Klippið frá. Saumið saman kant í kant að aftan.

HEKLAÐ BLÓM:
Heklið blóm með heklunál nr 5 með Big Delight. Heklið 4 ll og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: * Heklið 1 fl um hringinn, 3 ll, * endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 3 ll-bogar.
UMFERÐ 2: Heklið í hvern ll-boga þannig: Heklið 1 kl, 5 st og 1 kl = 3 blöð. Snúið við – næsta umf er hekluð frá bakhlið á blómi.
UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, heklið 1 fl í kringum fyrstu fl frá umf 1, 4 ll, heklið 1 fl neðst niðri fyrir miðju í fyrsta blaði frá umf 2, * síðan 4 ll, heklið 1 fl í kringum næstu fl frá umf 1, síðan 4 ll, heklið 1 fl neðst niðri fyrir miðju á næsta blaði frá umf 2, * endurtakið frá *-* þar það eru alls 5 ll-bogar, endið á 4 ll og 1 kl í fyrstu fl frá umf = 6 ll-bogar. Snúið við – næsta umf er hekluð frá framhlið á blómi.
UMFERÐ 4: Heklið í hvern ll-boga þannig: Heklið 1 kl, 6 st og 1 kl = 6 blöð. Klippið frá og festið enda.

Heklið 3 blóm, saumið 2 blóm á hálsskjólið og 1 blóm á eyrnabandið.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 24-40

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

Rachel wrote:

For the headband it says fasten off and sew edge to edge mid back, what does mid back mean?

07.02.2015 - 22:35

DROPS Design answered:

Dear Rachel, sew last row to first row, the seam of the head band will be then on mid back when work. Happy crocheting!

08.02.2015 - 19:12

country flag Linda Nielsen wrote:

Beklager mange gange,...jeg har desværre overset at der skal bruges 100 g garn til pandebånd og yderligere 100 g til halsrøret. Der var jeg lige for hurtigt ude,...undskyld!!! Er Iøvrigt meget glad for jeres opskrifter 😊

24.01.2015 - 23:01

country flag Linda Nielsen wrote:

Jeg begyndte at hækle pandebånd og blomst, fortsatte med halsrør, men er kun nået 16 cm i højden og har nu opbrugt de 100 g garn som opskriften fortæller jeg skal bruge. Jeg hækler str. 3/5 år og mangler altså stadig 6 cm i højden + 2 blomster. Jeg overholder hæklefastheden, så der må da være noget helt galt i jeres opskrift mht garnforbrug ??

24.01.2015 - 22:56

DROPS Design answered:

Hej Linda, ifølge opskriften skal du bruge både 100 g til halsen og 100 gr til pandebåndet. God fornøjelse!

29.01.2015 - 15:24

Marisa wrote:

Hello, I'm confused about how much wool to order for the different sizes. For example when the pattern reads: "100-100-100 g color no 01, rose garden" If I need size 10-12, does it mean I'll need 300g or does it stay 100g for all sizes? Thank you for your help! I love love love garnstudio by the way! Thank you for all the beautiful patterns and gorgeous wool!

05.11.2014 - 22:19

DROPS Design answered:

Dear Marisa, 100 g are required in all sizes to make neck warmer and same amount of yarn to make the head band. If you like to make the set with the 2 pieces, you will require 200 g Big Delight. Happy crocheting!

06.11.2014 - 08:34

country flag Buis wrote:

Une question sur le bandeau ? Faut-il raccourcir de 3 à 4 cm le tour de tête, ou faire exactement la dimension . Merci de votre réponse. Françoise

25.08.2014 - 13:51

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Buis, plus le bandeau sera petit, moins la marge sera grande, ainsi en taille 3/5 ans, on arrête à 46 cm pour un tour de tête de 47 cm, en taille 10/12 ans, à 50 cm pour un tour de tête de 56 cm. En fonction de votre tension en hauteur, vérifiez la longueur en étirant légèrement (sinon le bandeau serait trop serré) à celle que vous souhaitez. Bon crochet!

26.08.2014 - 10:13

country flag Janet wrote:

Hello Sorry Confused on measurements. Start decreasing when neck warmer measures 2 1/2" ? Seems kind of short. Total height of it is 9 1/2"? Thanks for your help.

18.12.2013 - 05:23

DROPS Design answered:

Dear Janet, first dec is done when piece measures 2½''and then you will dec once again when piece measures 4 3/4" and the last time when it measures 7". Happy crocheting!

18.12.2013 - 10:01

country flag Marie Pessrová wrote:

Dobrý den, chtěla jsem uháčkovat tenhle nákrčník a čelenku. Bohužel jsem objednala jen jedno klubíčko Big Delight 01 (100g, 200m) a rozhodně mi nestačilo. Kytičku mám jen jednu, další udělám z jiné příze a nákrčník má tak 15cm místo 22. Škoda, objednávat jedno klubíčko navíc extra plus poštovné je trochu drahý špás.

14.09.2013 - 15:35

country flag Armony wrote:

Bonjour, Pensez-vous que deux pelotes sont nécessaires pour réaliser l'ensemble bandeau et tour de cou ? Une seule suffirait-elle ? Merci.

12.09.2013 - 12:41

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Armony, pour réaliser l'ensemble, 2 pelotes de Big Delight seront nécessaires - le crochet est relativement gourmand en fil. Bon crochet!

12.09.2013 - 14:02

country flag Armony wrote:

Bonjour, Pensez-vous que deux pelotes sont nécessaires pour réaliser l'ensemble bandeau et tour de cou. Une pelote suffirait-elle ? Merci;

12.09.2013 - 12:39

country flag Frieda Guijt wrote:

De vorige opmerking gaat over de bloem

11.09.2013 - 09:45