DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS 145-6
DROPS Design: Mynstur nr bs-039
Garnflokkur A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð:
Breidd efst: ca 134 cm
Hæð við miðju að aftan: ca 67 cm

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
150 gr litur nr 0100, natur
200 gr litur nr 8112, ísblár
250 gr litur nr 6235, gráblár

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 15 st og 9 umf með 2 þráðum verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GALDRAHRINGUR:
Þegar stykkið er heklað í hring er byrjað með þessari aðferð til að sleppa við göt í miðjunni (í stað þess að gera ll-hring): Haldið í endann á þræðinum og snúið þræðinum einu sinni í hring utan um vinstri vísifingur til þess að úr verði hringur. Haldið í hringinn með vinstri þumli og löngutöng, þráðurinn liggur yfir vinstri vísifingur. Heklunálinni er stungið inn í hringinn, þræðinum er brugðið um hana og dreginn upp úr hringnum, heklið 3 ll, heklið nú 11 st utan um galdrahringinn. Dragið í endann á þræðinum svo að hægt sé að draga hringinn saman. Festið endann á bakhlið.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta hst í byrjun umf er skipt út fyrir 2 ll.

RENDUR:
Rendur eru heklaðar þannig:
0-27 cm: 2 þræðir litur natur
27-37 cm: 1 þráður litur natur og 1 þráður litur ísblár
37-47 cm: 2 þræðir litur ísblár
47 -57cm: 1 þráður litur ísblár og 1 þráður litur gráblár
57-67 cm: 2 þræðir litur gráblár

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka.

SJAL:
Heklið sjalið með RENDUR – sjá útskýringu að ofan.
Gerið GALDRALYKKJU með 12 st með heklunál nr 5 – sjá útskýringu að ofan, snúið við.

UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 2 hst í fyrsta st, * 1 hst í hvorn af næstu 2 st, 2 hst í næsta st *, endurtakið frá *-* þar til 2 st eru eftir og endið með 1 hst í hvern og einn af 2 síðustu st = 16 hst, snúið við.

UMFERÐ 2: Heklið 2 hst í fyrsta hst, * 1 hst í hvern af næstu 3 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* þar til 3 hst eru eftir og endið með 1 hst í hvern af síðustu 4 hst = 20 hst, snúið við.

UMFERÐ 3: Heklið 2 hst í fyrsta hst, * 1 hst í hvern af næstu 4 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* þar til 4 hst eru eftir og endið með 1 hst í hvern af síðustu 4 hst = 24 hst, snúið við.

UMFERÐ 4: Heklið 2 hst í fyrsta hst, * 1 hst í hvern af næstu 5 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* þar til 5 hst eru eftir og endið með 1 hst í hvern af síðustu 5 hst = 28 hst, snúið við.

UMFERÐ 5: Heklið 2 hst í fyrsta hst, * 1 hst í hvern af næstu 6 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* þar til 6 hst eru eftir og endið með 1 hst í hvern af síðustu 6 hst = 32 hst, snúið við.

UMFERÐ 6: Heklið 4 ll, heklið 3 st í næsta hst, * hoppið yfir 3 hst, heklið 3 st + 1 ll + 3 st í næsta hst *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, hoppið yfir 3 hst, heklið 3 st + 1 ll í næsta hst, hoppið yfir 1 hst, heklið 1 st í síðasta hst, snúið við.

UMFERÐ 7: Heklið 4 ll, heklið 3 st um fyrstu ll, * hoppið yfir 6 st, heklið 3 st + 3 ll + 3 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, hoppið yfir 6 st, heklið 3 st + 1 ll um næstu ll, 1 st í síðasta st, snúið við.

UMFERÐ 8: Heklið 4 ll, heklið 3 st + 1 ll + 3 st um fyrstu ll, * hoppið yfir 6 st, heklið 3 st + 1 ll + 3 st + 3 ll + 3 st + 1 ll + 3 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, hoppið yfir 6 st, heklið 3 st + 1 ll + 1 st + 1 ll um síðustu ll og 1 st í síðasta st, snúið við.

UMFERÐ 9: Heklið 4 ll, heklið 3 st + 1 ll um fyrstu ll, hoppið yfir 3 st, heklið 3 st + 1 ll í næstu ll, * hoppið yfir 6 st, heklið 3 st + 1 ll um næstu ll, hoppið yfir 3 st, heklið 3 st + 3 ll + 3 st + 1 ll um næsta ll-boga, hoppið yfir 3 st, heklið 3 st + 1 ll um næstu ll *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, hoppið yfir 6 st, heklið 3 st + 1 ll um næstu ll, hoppið yfir 3 st, heklið 3 st + 1 ll um næstu ll og 1 st í síðasta st, snúið við.

UMFERÐ 10-11: Heklið eins og umf 9.

UMFERÐ 12: Heklið 4 ll, heklið 3 st + 1 ll + 3 st + 1 ll um fyrstu ll, hoppið yfir 3 st, heklið 3 st um næstu ll, * hoppið yfir 6 st, heklið 3 st + 1 ll um næstu ll, hoppið yfir 3 st, heklið 3 st + 1 ll + 3 st + 3 ll + 3 st + 1 ll + 3 st + 1 ll um næsta ll-boga, hoppið yfir 3 st, heklið 3 st um næstu ll *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, hoppið yfir 6 st, heklið 3 st + 1 ll um næstu ll, hoppið yfir 3 st, heklið 3 st + 1 ll + 3 st + 1 ll um síðustu ll og 1 st í síðasta st, snúið við.

UMFERÐ 13: Heklið 4 ll, heklið 3 st + 1 ll um fyrstu ll, hoppið yfir 3 st, heklið 3 st + 1 ll um næstu ll, hoppið yfir 3 st, heklið 3 st + 1 ll um næstu ll, * hoppi yfir 6 st, heklið 3 st + 1 ll um næstu ll, hoppið yfir 3 st, heklið 3 st + 1 ll um næstu ll, hoppið yfir 3 st, heklið 3 st + 3 ll + 3 st + 1 ll um næsta ll-boga, hoppið yfir 3 st, heklið 3 st + 1 ll um næstu ll, hoppið yfir 3 st, heklið 3 st um næstu ll *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, hoppið yfir 6 st, heklið 3 st + 1 ll um næstu ll, hoppið yfir 3 st, heklið 3 st + 1 ll um næstu ll, hoppið yfir 3 st, heklið 3 st + 1 ll um næstu ll og 1 st í síðasta st, snúið við.

UMFERÐ 14-15: Heklið á sama hátt og umferð 13.

Þegar heklaðar hafa verið 3 umf eins og umf 13 er aukið út alveg eins og í umf 12 (um ll-boga eru heklaðir 3 st + 1 ll + 3 st + 3 ll + 3 st + 1 ll + 3 st + 1 ll og heklið 3 st + 1 ll + 3 st + 1 ll um fyrstu og síðustu ll).

Næsta umf er hekluð á sama hátt og umferð 13, en heklið 3 st + 1 ll fleiri á milli toppa/botna í mynstri. Heklið svona alls 3 umf, aukið síðan aftur út. Haldið svona áfram, í 4. hverri umf er aukið út á hverjum toppi og í hvorri hlið. Haldið áfram þar til sjalið mælist 67 cm, mælt meðfram miðju á sjal. Klippið frá og festið enda.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Granny shawl

Trish, United States

Honey glazed drops

Arianne, United States

Granny shawl

Trish, United States

145-6 Edelweiss

Leyla, Russian Federation

Skrifaðu athugasemd um DROPS 145-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (189)

country flag Patricia wrote:

Bonjour. Dommage qu'il n'y est pas la suite pour ce magnifique châle !!!! 🙁

04.10.2019 - 19:37

country flag Elodie wrote:

Bonjour pour le rang numéro 9 on commence bien par 4ml 3b 1ml dans la ml du rang précédent puis on saute 3b 1 ml on saute 6b 3ml 1ml on saute 3b 3b 3ml 3b 1ml on saite 3b 3b 1ml et on répète on saute 6b 3b 1ml etc... est ce bien cela car cest dure a suivre les explications merci

17.09.2019 - 18:24

DROPS Design answered:

Bonjour Élodie, il vous manque 3 brdies, 1 ml dans votre description en comparaison du rang 9: 4 ml, 3 B + 1 ml dans la 1ère ml, on va ensuite sauter 3 B et crocheter 3 B + 1 ml dans la ml suiv, = début du rang, on va ensuite répéter 6 fois au total la partie suivante: * on saute 6 B, on crochète 3 B + 1 ml dans la ml suiv, on saute 3 B, on crochète 3 B + 3 ml + 3 B + 1 ml dans l'arceau suivant, on saute 3 B, on crochète 3 B + 1 ml dans la ml suiv *, pour terminer le rang, on va sauter 6 B, crocheter 3 B + 1 ml dans la ml suiv, sauter 3 B, crocheter 3 B + 1 ml dans la ml suiv et 1 B dans la dernière B. Bon crochet!

18.09.2019 - 07:46

country flag Lisette Corthouts wrote:

Hoe gaat het verder met rij 8 Jammer stopt de video En lukt het me niet uit te komen met het patroon Grtjs

28.08.2019 - 13:37

DROPS Design answered:

Dag Lisette,

In de video wordt inderdaad alleen het begin uitgelegd. De volgende toeren staan beschreven in het patroon. Bij toer 8 haak je eerst 4 lossen, 3 stokjes en 1 losse en 3 stokjes om de eerste lus. Dan herhaal je 6 keer wat tussen * staat. Vervolgens sla je 6 stokjes over en haak je nog 3 stokjes en 1 losse en 3 stokjes en 1 losse om de laatste losse en 1 stokje in het laatste stokje. Dan keer je het werk en ga je verder met toer 9.

31.08.2019 - 12:58

country flag Patricia wrote:

Pardon, oubliez ma question précédente. J’avais fait une erreur au 7e rang.

02.07.2019 - 19:59

country flag Patricia wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas le 8e rang. Si je suis les instructions, cela ne fonctionne: je n’aurai pas 6 répétition, mais 10 je crois. Je lis et relis les directives du 8e rang et je ne vois pas ce que je dois faire pour que cela fonctionne. Existe-t-il un schéma? Merci.

02.07.2019 - 19:37

DROPS Design answered:

Bonjour Patricia, vérifiez que votre rang 7 est correct, au rang 8, vous aurez 1 groupe de 3 b de chaque côté, et 4 groupes de 3 b espacés de 3 ml dans chacun des arceaux de 3 ml. Le rang 9 va ensuite former les pointes. Bon crochet!

03.07.2019 - 07:17

country flag Pernille wrote:

Hej! Har virkelig brug for hjælp😰 har valgt at strikke det med 1 tråd og nål 3,5 Er nu nået til række 8 og der begynder det at bøje op som en hagesmæk!!! Hvad gør jeg galt???🙏🏻

24.06.2019 - 21:30

DROPS Design answered:

Hei Pernille. Vær obs på at ved å endre heklefastheten kommer sjalet ditt til å bli mye mindre enn de målene som er angitt. Det kan høres ut som du hekler litt for stramt, da vil arbeidet bøye seg. Det er fort gjort å hekle luftmasker stramt, da disse ofte feilaktig hekles ytterst på nålen. 1 luftmaske skal være like lang som en stav er bred. Normalt ville jeg rådet deg til å kontrollere heklefastheten din, men siden du har endret den kan jeg ikke fortelle deg hvilken heklefasthet du burde ha på nål nummer 3,5 - da det er individuelt hvor løst/stramt man hekler på en gitt nålstørrelse. Forsøk å hekle luftmaskene løsere å se om det hjelper. God fornøyelse

26.06.2019 - 08:01

country flag Marjon wrote:

Heb problemen met toer 9. Het overslaan van 6 stokjes en hetgeen wat beschreven staat in patroon krijg ik niet gehaakt binnen de l-lus. Met als gevolg dat er totaal geen verband in patroon zit. Neem aan dat 6 stokjes overslaan elke keer op de zelfde plaateen hoort te gebeuren? Help!

21.06.2019 - 09:04

DROPS Design answered:

Dag Marjon,

Het overslaan van de 6 stokjes gebeurt inderdaad steeds op dezelfde plek, Op deze plek zal uiteindelijk de omslagdoek in de hoogte op zijn kortst zijn; dus het zijn de binnenste 'punten', als je begrijpt wat ik bedoel. In de volgende lus (dus nadat je de 6 stokjes hebt overgeslagen) haak je weer 3 stokjes. Misschien kun je het beter zien als je inzoomt op de detailfoto.

23.06.2019 - 20:11

country flag Pernille wrote:

Skal lige høre, Op billedet er der 5 forskellige farver på sjalet. Men under jeres menu til sjalet henviser i til 3?? Hvordan kan det være??

09.06.2019 - 22:48

DROPS Design answered:

Hej Pernille, det er fordi striberne er strikket i en kombination af de 3 farver. Se STRIBER: Der hækles striber således: 0-27 cm: 2 tråde naturhvid 27-37 cm: 1 tråd naturhvid og 1 tråd isblå 37-47 cm: 2 tråde isblå 47 -57cm: 1 tråd isblå og 1 tråd gråblå 57-67 cm: 2 tråde gråblå

10.06.2019 - 12:02

country flag Augusta Jensen wrote:

Hvad betyder. Næste række hækles som 13.række, men der hækles 3 st + 1lm mere "mellem hver spids/bund i mønsteret" ?

05.06.2019 - 17:19

DROPS Design answered:

Hei Augusta. Omgangen før så økte du som på rad 12, dvs at når du så skal hekle som rad 13 igjen så er det fler masker mellom spissen og "bunnen av spissen" i mønsteret. Altås på hver side av trekantene/spissene. Du må derfor hekle 3 staver + 1 luftmaske mer på hver side av spissene/trekantene enn det du gjorde sist gang du heklet som rad 13. God fornøyelse

06.06.2019 - 07:48

country flag Liesbeth Mennen wrote:

Ik heb deze omslagdoek gemaakt. Wat een mooi en super makkelijk patroon. Ben er heel blij mee. Ga er zeker nog 1 in najaarskleuren maken

05.06.2019 - 17:05