Popsicle |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Heklað poncho úr DROPS Paris. Stærð S - XXXL.
DROPS 147-1 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta st í umf er skipt út fyrir 3 ll. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 - A.3. Randarmynstrið er misjafnt á milli stærða (1 rönd fleiri með litnum rauður í stærð XL/XXL/XXXL), fyrirsætan á ljósmynd er í stærð S/M/L. ST-HÓPUR: 1 st-hópur = um sama ll-boga eru heklaðir 2 st, 3 ll og 2 st. SÓLFJÖÐUR: 1 sólfjöður = um í sama ll-boga eru heklaðir 9 st. 1. st í 1. sólfjöður er skipt út fyrir 3 ll. LITASKIPTI: Til að ná fram fallegum litaskiptum er síðasti st í umf heklaður með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í síðustu ll frá byrjun umf, sækið þráðinn með nýja litnum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum lykkju á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður. PONCHO: Heklið 64-72 ll með heklunál nr 5 með litnum natur Paris og tengið í hring með einni kl í 1. ll. Heklið nú eftir A.1 þannig: UMFERÐ 1: Heklið 5 ll (koma í stað 1. st og fyrstu 2 ll), * 1 st um hringinn, 2 ll *, endurtakið frá *-* 31 sinnum til viðbótar – sjá mynsturteikningu A.1, endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 32 st og 32 ll-bogar. UMFERÐ 2: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 3 ll, um 1. ll-boga er heklaður 1 st, 3 ll og 2 st (= 1. st-hópur), * 1 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, í næsta ll-boga er heklaður 1 ST-HÓPUR * - sjá útskýringu að ofan, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 16 st-hópar. UMFERÐ 3: Heklið kl að ll-boga á 1. st-hóp, heklið 1 SÓLFJÖÐUR – sjá útskýringu að ofan – um boga, * 1 fl um næsta ll-boga (á milli st-hópa), 1 sólfjöður um ll-boga í næsta st-hóp *, endurtakið frá *-* , endið á 1 fl um síðasta ll-boga og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 16 sólfjaðrir. UMFERÐ 4: Heklið kl að miðju st á 1. sólfjöður, 1 ll, 1 fl í sama st, * 8 ll, 1 fl í miðju st á næstu sólfjöður *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 8 ll og 1 kl í 1. fl í byrjun umf = 16 ll-bogar. UMFERÐ 5: Heklið 5 ll (koma í stað 1. st og frystu 2 ll), * um næsta ll-boga er heklaður 1 st, 2 ll, 1 st og 2 ll, 1 st í næstu fl, 2 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn – en þegar endurtekið er í síðasta sinn er ekki heklaður síðasti st heldur 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 48 st og 48 ll-bogar. UMFERÐ 6: Heklið 3 ll, um 1. ll-boga er heklaður 1 st, 3 ll og 2 st (= 1. st-hópurinn), * 1 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, um næsta ll-boga er heklaður 1 st-hópur *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 24 st-hópar. UMFERÐ 7: Heklið kl að ll-boga í 1. st-hóp, heklið 1 sólfjöður um bogann, * 1 fl um næsta ll-boga (á milli st-hópa), 1 sólfjöður um næsta st-hóp *, endurtakið frá *-*, endið á 1 fl um síðustu ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 24 sólfjaðrir. UMFERÐ 8: Heklið kl að miðju st á 1. sólfjöður, 1 ll, 1 fl í sama st, * 8 ll, 1 fl í miðju st á næstu sólfjöður *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 8 ll og 1 kl í 1. fl í byrjun umf = 24 ll-bogar. Endurtakið nú UMFERÐ 5-8 1 sinni til viðbótar (= alls 3 umf með sólfjaðrir í natur) = 36 ll-bogar í síðustu umf (þ.e.a.s. 12. umf). Skiptið yfir í litinn ferskjubleikur í lok síðustu umf – LESIÐ LITASKIPTI. Endurtakið UMFERÐ 5-8 1 sinni til viðbótar með litnum ferskjubleikur = 54 ll-bogar í síðustu umf (þ.e.a.s. 16. umf), skiptið yfir í apríkósa í lokin á þessari umf. Endurtakið nú UMFERÐ 5-8 1 sinni til viðbótar með litnum apríkósa = 81 ll-bogar í síðustu umf (þ.e.a.s. 20. umf), skiptið yfir í litinn dökk bleikur í lok þessarar umf. STÆRÐ XL/XXL/XXXL: = 81 ll-bogar í síðustu umf. Heklið nú síðustu útaukningu með litnum dökk bleikur þannig: UMFERÐ 1: Heklið 5 ll (þær koma í stað fyrsta st og fyrstu 2 ll), *** um næsta ll-boga er heklaður 1 st, 2 ll, 1 st í næstu fl, 2 ll *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, um næsta ll-boga eru heklaður 1 st, 2 ll, 1 st og 2 ll (= 2 st og 2 ll-bogar um 3. ll-boga), 1 st í næstu fl, 2 ll ** - þ.e.a.s. það verða 7 st og 7 ll-bogar yfir 3 ll-boga frá fyrri umf, sjá mynstur A.2. Endurtakið frá **-** þar til 3 ll-bogar eru eftir í umf, heklið nú þannig: * Um næsta ll-boga er heklaður 1 st, 2 ll, 1 st og 2 ll (= 2 st og 2 ll-bogar um boga), 1 st í næstu fl, 2 ll *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar (þ.e.a.s. það verða 6 st og 6 ll-bogar yfir þessa 2 boga), um síðasta ll-boga er heklaður 1 st, 2 ll, 1 st og 2 ll (= 2 st og 2 ll-bogar um boga), endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 190 st og 190 ll-bogar. UMFERÐ 2: Heklið 3 ll, um 1. ll-boga er heklaður 1 st, 3 ll og 2 st (= 1. st-hópur), 1 ll, hoppið yfir næsta ll-boga, * um næsta ll-boga er heklaður 1 st-hópur, 1 ll, hoppið yfir 1 ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 ll og 1 kl í 3. ll boga í umf = 95 st-hópar. UMFERÐ 3: Heklið kl að ll-boga í 1. st-hópinn, heklið 1 sólfjöður um boga, * 1 fl um næsta ll-boga (á milli st-hópa), 1 sólfjöður um næsta st-hóp *, endurtakið frá *-*, endið á 1 fl um síðasta ll-boga og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 95 sólfjaðrir. UMFERÐ 4: Hekli kl að miðju st á 1. sólfjöður, 1 ll, 1 fl í sama st, * 8 ll, 1 fl í miðju st á næstu sólfjöður *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 8 ll og 1 kl í 1. fl í byrjun umf = 95 ll-bogar. Skiptið yfir í rauður í lok umf, heklið nú með litnum rauður til loka. ALLAR STÆRÐIR: = 81-95 ll-bogar í síðustu umf. Heklið nú án útaukninga (með litnum dökk bleikur í stærð S/M/L, með litnum rauður í stærð XL/XXL/XXXL) þannig: UMFERÐ 1: Heklið 5 ll (þær koma í stað fyrsta st og fyrstu 2 ll), * um næsta ll-boga er heklaður 1 st, 2 ll, 1 st í næstu fl, 2 ll * - sjá mynstur A.3, endurtakið frá *-* umf hringinn – en þegar endurtekið er í síðasta sinn er ekki heklaður síðasti st heldur 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 162-190 st og 162-190 ll-bogar. UMFERÐ 2: Heklið 3 ll, um 1. ll-boga er heklaður 1 st, 3 ll og 2 st (= 1. st-hópur), 1 ll, hoppið yfir næsta ll-boga, * um næsta ll-boga er heklaður 1 st-hópur, 1 ll, hoppið yfir 1 ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 ll og 1 kl í 3. ll boga í umf = 81-95 st-hópar. UMFERÐ 3: Heklið kl í ll-boga í 1. st-hópinn, heklið 1 sólfjöður í bogann, * 1 fl í næsta ll-boga (á milli st-hópa), 1 sólfjöður í næsta st-hóp *, endurtakið frá *-*, endið á 1 fl í síðasta ll-boga og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 81-95 sólfjaðrir. UMFERÐ 4: Hekli kl að miðju st á 1. sólfjöður, 1 ll, 1 fl í sama st, * 8 ll, 1 fl í miðju st á næstu sólfjöður *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 8 ll og 1 kl í 1. fl í byrjun umf = 81-95 ll-bogar. STÆRÐ S/M/L: Skiptið yfir í litinn rauður í lok umf. ALLAR STÆRÐIR: Endurtakið frá umf 1-3 1 sinni til viðbótar með litnum rauður (ATH: Endið á umf 3, nú eru alls 7-8 umf með sólfjöðrum) = 81-95 sólfjaðrir í síðustu umf, klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (338)
Françoise Follain wrote:
Superbe, j'aimerai me le faire pour ce printemps.
10.12.2012 - 15:34Sigríður Hrön Guðmundsdóttir wrote:
:)nice
10.12.2012 - 15:19Darlene Wainwright wrote:
On my list to make first for Spring and I'm mainly a knitter. Must have!
10.12.2012 - 15:15Zlata wrote:
It maybe spring/summer collection but this vibrant color reminds me to this years sweet Christmas time. Love it..
10.12.2012 - 14:46Breg wrote:
Très joli, les couleurs font penser à une corolle de fleur!
10.12.2012 - 14:39Patricia wrote:
Magnifique j'aime beaucoup
10.12.2012 - 14:23P Verhoef wrote:
Prachtig,Als ik het patroon kan krijgen ge ik hem maken!
10.12.2012 - 14:22Caroline wrote:
D'une délicatesse et d'une poésie ce modèle...
10.12.2012 - 14:16