DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS 143-40
DROPS Design: Mynstur nr de-092
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL:
Stærð: Ein stærð
Ummál: ca 150 cm
Lengd: ca 36 cm

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
300 gr litur nr 10 ólífa/ryð/plóma

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 st verði 10 cm á breiddina (1 ferningur mælist ca 6 x 6 cm).

HÚFA:
Stærð: S/M - L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 - 58/60 cm
Ummál: 48-54 cm
Hæð: 24-25 cm

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
100-100 gr litur nr 10 ólifa/ryð/plóma

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 st verði 10 cm á breiddina (1 ferningur mælist ca 6 x 6 cm).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

UMFERÐ MEÐ ST:
Allar umf með st byrja á 3 ll (= 1. st), endið umf með 1 kl í 3. ll í byrjun umf.

LITASKIPTI:
Til að ná fram fallegum litaskiptum er síðasta kl í umf hekluð með nýja þræðinum. Haldið áfram næstu umf með nýja þræðinum.

ÚRTAKA 1 (á við um húfu):
Fækkað er um 1 st með því að hekla næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st, bíðið með að draga þráðinn í gegnum þann síðasta (= 2 l á heklunálinni), heklið næsta st, þegar þráðurinn er dreginn í gegn í lokinn er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni.

UMFERÐ MEÐ FL (á við um húfu):
Allar umf með fl byrja á 1 ll (ekki talin með sem 1. fl) – ATH! Hekluð er fl aftan í lykkjubogann í hverri fl, endið með 1 kl í 1. fl.

ÚRTAKA 2 (á við um húfu):
Fækkað er um 1 fl með því að hekla næstu 2 fl saman þannig: * Stingið heklunálinni í aftari hluta lykkjuboganns í næstu fl, náið í þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL:
FERNINGUR:
Heklið 6 ll með Delight með heklunál nr 3,5, tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. LESIÐ UMFERÐ MEÐ ST!
UMFERÐ 1: * Heklið 3 st um hringinn, 3 ll *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 12 st og 4 ll-bogar. Kl í næsta ll-boga, klippið frá og skiptið yfir í annan lit úr sömu hespu (= nýr litur í hverri umf) – LESIÐ LITASKIPTI!.
UMFERÐ 2: Um hvern ll-boga er heklað þannig: Heklið 3 st, 3 ll og 3 st, 1 ll = 24 st og 8 ll-bogar. Kl í næsta ll-boga, klippið frá og skiptið yfir í annan lit úr sömu hespu.
UMFERÐ 3: * Um næsta ll-boga er heklað þannig: Heklið 3 st, 3 ll og 3 st (= horn), 1 ll, um næsta ll-boga eru heklaðir 3 st, 1 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 36 st og 12 ll-bogar. Klippið frá og festið enda.
Heklið alls 25 ferninga. Heklið ferningana saman í eina lengju þannig: Setjið ferningana 2 og 2 á hvorn annan, stingið heklunálinni í gegnum ll-boga í hornið á báðum ferningunum, heklið 1 ll og 1 fl, * 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga á báðum ferningunum *, endurtakið frá *-*, klippið frá og festið enda.
Endarnir á lengjunni eru heklaðir saman á sama hátt til þess að mynda hring – ATH! Snúið lengjunni 1 sinni til að gera snúinn hring, áður en endarnir eru heklaðir saman.

HÁLSSKJÓL:
Stykkið er heklað frá miðju stykkinu = snúni hringurinn og út á móti ysta kant – þ.e.a.s það er heklað samtímis uppúr og niður. ATH! Hver umf byrjar með 3 ll (= 1. st).
Heklið 1. umf meðfram lengjunni þannig: Um hvern af þeim 4 ll-bogum á hverjum ferningi eru heklaðir 3 st og 1 ll, endið umf með 1 kl í 3. ll í byrjun umf (= 1. st), kl í næsta ll-boga. Heklið nú þannig: Um hvern ll-boga eru heklaðir 3 st, 1 ll, endið umf með 1 kl í 3. ll í byrjun umf (= 1. st), kl um næsta ll-boga. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 36 cm á hæðina (allt stykkið, ekki bara frá miðju og út). Klippið frá og festið enda.

--------------------------------------------------------

HÚFA:

FERNINGUR:
Heklið 6 ll með Delight með heklunál nr 3,5, tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. LESIÐ UMFERÐ MEÐ ST!
UMFERÐ 1: * Heklið 3 st um hringinn, 3 ll *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 12 st og 4 ll-bogar. Kl í næsta ll-boga, klippið frá og skiptið yfir í annan lit úr sömu hespu (= nýr litur í hverri umf) – LESIÐ LITASKIPTI!.
UMFERÐ 2: Um hvern ll-boga er heklað þannig: Heklið 3 st, 3 ll og 3 st, 1 ll = 24 st og 8 ll-bogar. Kl að næsta ll-boga, klippið frá og skiptið yfir í annan lit úr sömu hespu.
UMFERÐ 3: * Um næsta ll-boga er heklað þannig: Heklið 3 st, 3 ll og 3 st (= horn), 1 ll, um næsta ll-boga eru heklaðir 3 st, 1 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 36 st og 12 ll-bogar. Klippið frá og festið enda.
Heklið alls 8-9 ferninga. Heklið ferningana saman í 1 lengju þannig: Setjið ferningana 2 og 2 á hvorn annan, stingið heklunálinni í gegnum ll-boga í hornið á báðum ferningunum, heklið 1 ll og 1 fl, * 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga á báðum ferningunum *, endurtakið frá *-*, klippið frá og festið enda.
Endarnir á lengjunni eru heklaðir saman á sama hátt til að mynda hring.

HÚFA:
Stykkið er heklað í hring. Heklið meðfram annarri hliðinni á lengjunni þannig: Í hvern og einn af þeim 4 ll-bogum í hverjum ferningi eru heklaðir 3 st, endið með 1 kl í 3. ll (= 1. st) í byrjun umf = 96-108 st. Heklið nú UMFERÐ MEÐ ST! sjá útskýringu að ofan – þannig: Heklið 3 ll (=1. st), hoppið yfir 1. st frá fyrri umf, 1 st í hvern st, endið umf með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Haldið áfram þar til húfan mælist ca 16 cm frá neðri kanti.
Nú er fellt af þannig:
UMFERÐ 1: * Heklið 1 st í hvern af næstu 6-7 st, fækkið um 1 st – LESIÐ ÚRTAKA 1 *, endurtakið frá *-* út umf = 84-96 st (= 12 l færri).
UMFERÐ 2: * Heklið 1 st í hvern af næstu 5-6 st, fækkið um 1 st*, endurtakið frá *-* út umf = 72-84 st.
UMFERÐ 3: * Heklið 1 st í hvern af næstu 4-5 st, fækkið um 1 st*, endurtakið frá *-* út umf = 60-72 st.
UMFERÐ 4: * Heklið 1 st í hvern af næstu 3-4 st, fækkið um 1 st*, endurtakið frá *-* út umf = 48-60 st.
UMFERÐ 5: * Heklið 1 st í hvern af næstu 2-3 st, fækkið um 1 st*, endurtakið frá *-* út umf = 36-48 st.
UMFERÐ 6: * Heklið 1 st í hvern af næstu 1-2 st, fækkið um 1 st*, endurtakið frá *-* út umf = 24-36 st.
Stærð S/M: Heklið alla st í umf 2 og 2 saman = 12 st, klippið frá og aumið síðasta st saman með enda.
Stærð L/XL:
UMFERÐ 7: * Heklið 1 st í næsta st, fækkið um 1 st*, endurtakið frá *-* út umf = 24 st.
UMFERÐ 8: Heklið alla st í umf 2 og 2 saman = 12 st, klippið frá og saumið síðasta st saman með endanum.

KANTUR:
Heklið kant neðan á húfuna (meðfram langhliðinni á lengjunni með ferningunum) þannig: Heklið 1 ll, um hvern og einn af 4 ll-bogum á hverjum ferningi eru heklaðar 4 fl = 128-144 fl, endið með 1 kl í 1. fl í byrjun umf. Heklið nú UMFERÐ MEÐ FL – sjá útskýringu að ofan. Þegar kanturinn mælist ca 1 cm er fækkað um 16-20 fl jafnt yfir í umf – LESIÐ ÚRTAKA 2 = 112-124 fl. Haldið áfram þar til kanturinn mælist ca 2 cm, klippið frá og festið enda. Húfan mælist nú ca 24-25 cm á hæðina.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Magic Moebius

Chahla, Switzerland

Magic Moebius

Chahla, Switzerland

Magic Shawl

Sarah Hepworth, United Kingdom

Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-40

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (164)

country flag Katia wrote:

Buongiorno, sto lavorando lo scaldacollo, con colori diversi ma la resa è comunque molto bella, e se possibile chiederei un suggerimento per chiudere diversamente il lavoro; vorrei inserire una specie di "bordo" perché ho l'impressione che così come si presenta il lavoro ai bordi (3ma + 1cat) rischia di lasciarsi un po' andare ... qualche idea? Grazie mille

26.01.2015 - 09:45

DROPS Design answered:

Buonasera Katia. Potrebbe provare a lavorare gli ultimi giri con un uncinetto più piccolo in modo che questi giri risultino più sostenuti. Può anche decidere di aggiungere un eventuale bordo in un secondo momento, vedendo come si comporta il capo dopo averlo indossato alcune volte. Buon lavoro!

26.01.2015 - 22:16

Rachel Gardner wrote:

The pattern only list 1 color, but it looks like there were more colors used. Can you tell me what those colors are?

20.01.2015 - 03:10

DROPS Design answered:

Dear Mrs Gardner, you need only 1 colour since this has been "magic print" with different colour combinations - click here to see all available colours in the shadecard. Happy crocheting!

20.01.2015 - 10:24

country flag Carna wrote:

War is de reden voor draai in de sjaal bij het sluiten van de ring van vierkantjes?

02.12.2014 - 18:49

DROPS Design answered:

Hoi Carna. Dit is een moebius sjaal. Bij een moebius ring zit ook deze draai.

03.12.2014 - 16:18

country flag Jo wrote:

I'd like to try this pattern out, but the choice of yarn seems to be wrong for it. The multi-coloured yarn suggested in the pattern would not produce even results/colour transitions as seen in the photo. Is this really correct?

18.11.2014 - 15:10

DROPS Design answered:

Dear Jo, each square is worked with another colour from the same ball (cut the yarn at the end of round and start next round with next colour on ball). Happy crocheting!

19.11.2014 - 09:28

country flag Ida Costagliola wrote:

Rieccomi...dopo aver fatto e unito i quadrati non ho capito da che punto bisogna iniziare la lavorazione dello scaldacollo

07.11.2014 - 23:46

DROPS Design answered:

Buongiorno Ida. Dopo aver unito i quadrati, cuce le estremità dello scaldacollo formando un "otto". Adesso lavora in tondo iniziando il giro dalla cucitura, in uno degli angoli di un quadrato . Buon lavoro!

09.11.2014 - 12:19

country flag Ida Costagliola wrote:

Grazie mille :-)

31.10.2014 - 10:33

country flag Ida Costagliola wrote:

Ma il cambio colore si fa solo per i quadrati o anche per tutta la lavorazione?

31.10.2014 - 10:31

DROPS Design answered:

Buongiorno Ida. Deve tagliare il filo solo quando lavora i quadrati. Una volta uniti i quadrati, procede senza tagliare. Il colore cambierà da solo in base alle sfumature del filato. Buon lavoro!

31.10.2014 - 11:02

country flag Ida Costagliola wrote:

Ma il cambio colore si fa solo per i quadrati o anche per tutta la lavorazione?

30.10.2014 - 18:09

DROPS Design answered:

Buonasera Ida, il suggerimento per il cambio di colore vale per tutti i punti in cui è necessario cambiare colore. Buon lavoro!!

30.10.2014 - 21:22

country flag Ida Costagliola wrote:

Bene grazie mille quindi non è necessario prendere altro in più grazie mille ancora per tutti gli aiuti che ci fornite e credo che ci sentiremo spesso durante questo lavoro :-)

30.10.2014 - 12:10

country flag Ida Costagliola wrote:

Buongiorno volevo fare questo completo...leggendo istruzioni e commenti vari ho capito che bisogna tagliare spesso il filo per poter ottenere l effetto da foto...mi domandavo ma le quatità indicate bastano oer completare il lavoro dovendo fare tutti questi tagli?

30.10.2014 - 10:11

DROPS Design answered:

Buongiorno Ida. Nella quantità di filato indicata è stato tenuto conto anche del fatto che nella lavorazione si taglia spesso il filo. Buon lavoro!

30.10.2014 - 12:08