Flurb |
|
|
|
Heklað leikfang: Fabeldýr úr DROPS Fabel
DROPS Baby 19-35 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta fastalykkja í byrjun á hverri umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju og hver umferð endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN: 2 fastalykkjur eru heklaðar í 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu lykkju, sækið þráðinn og stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræði um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- FABELDÝR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Byrjað er á stykki á bakhlið á dýri og fram yfir að höfði og ranga. Eyru, fætur, hali og augu er heklað sér og saumað á í lokin. BÚKUR: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum bleikur draumur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í hverja og eina af fyrstu 3 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 4 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 7: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 5 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 42 fastalykkjur. UMFERÐ 8: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 6 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 fastalykkjur. UMFERÐ 9: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 7 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 54 fastalykkjur. UMFERÐ 10: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 8 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 60 fastalykkjur. UMFERÐ 11: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 9 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 66 fastalykkjur. UMFERÐ 12-14: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 66 fastalykkjur. UMFERÐ 15: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 10 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 72 fastalykkjur. UMFERÐ 16-21: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 72 fastalykkjur. UMFERÐ 22: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 11 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 78 fastalykkjur. UMFERÐ 23-33: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 78 fastalykkjur. UMFERÐ 34: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 11 fastalykkjum, heklið nú 2 næstu fastalykkjur saman (sjá útskýringu að ofan) *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 72 fastalykkjur. UMFERÐ 35-37: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 72 fastalykkjur. UMFERÐ 38: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 10 fastalykkjum, heklið nú 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 66 fastalykkjur. UMFERÐ 39-41: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 66 fastalykkjur. UMFERÐ 42: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 9 fastalykkjum, heklið nú 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 60 fastalykkjur. UMFERÐ 43-45: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 60 fastalykkjur. UMFERÐ 46: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 8 fastalykkjum, heklið nú 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 54 fastalykkjur. UMFERÐ 47-48: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 54 fastalykkjur. UMFERÐ 49: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 7 fastalykkjum, heklið nú 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 fastalykkjur. UMFERÐ 50-51: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 48 fastalykkjur. UMFERÐ 52: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 6 fastalykkjum, heklið nú 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 42 fastalykkjur. UMFERÐ 53-54: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 42 fastalykkjur. UMFERÐ 55: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 5 fastalykkjum, heklið nú 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 56: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 57: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 4 fastalykkjum, heklið nú 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 58: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 59: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 3 fastalykkjum, heklið nú 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. Fyllið búkinn með vatti og haldið síðan áfram að hekla höfuðið án þess að klippa frá. UMFERÐ 1: * 1 fastalykkja í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 32 fastalykkjur. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 32 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 3 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 40 fastalykkjur. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 40 fastalykkjur. UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 4 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 fastalykkjur. UMFERÐ 6: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 48 fastalykkjur. UMFERÐ 7: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 5 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 56 fastalykkjur. UMFERÐ 8-17: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 56 fastalykkjur. UMFERÐ 18: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 5 fastalykkjum, heklið nú 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 fastalykkjur. UMFERÐ 19: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 48 fastalykkjur. UMFERÐ 20: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 4 fastalykkjum, heklið nú 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 40 fastalykkjur. UMFERÐ 21: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 40 fastalykkjur. UMFERÐ 22: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 3 fastalykkjum, heklið nú 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 32 fastalykkjur. UMFERÐ 23 : Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 32 fastalykkjur. UMFERÐ 24: * 1 fastalykkja í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, heklið nú 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringin = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 25: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 26: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, heklið nú 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 16 fastalykkjur. Fyllið höfuðið með vatti og heklið síðan rana án þess að klippa frá. UMFERÐ 1-14: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 15: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 16-17: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 18: Heklið saman allar fastalykkjur 2 og 2 = 12 fastalykkjur. ATH! Heklið í innsta lykkjubogann. Fyllið ranann með vatti. UMFERÐ 19: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 20: Heklið saman allar lykkjur 2 og 2 = 6 fastalykkjur. Klippið frá og dragið bandið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. FÓTUR: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum bleikur draumur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 4 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 3: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 24 fastalykkjur. ATH! Heklið í innsta lykkjubogann. UMFERÐ 6: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 24 fastalykkjur. ATH! Heklið nú aftur í gegnum alla fastalykkjuna. UMFERÐ 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju jafnframt því að heklaðar eru 2 fyrstu og 2 síðustu fastalykkjurnar saman = 22 fastalykkjur. UMFERÐ 8: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju jafnframt því sem 8. og 9. fastalykkjurnar eru heklaðar saman, 10. og 11. fastalykkjurnar eru heklaðar saman, 12. og 13. fastalykkjurnar eru heklaðar saman og 14. og 15. fastalykkjurnar eru heklaðar saman = 18 fastalykkjur. Heklið síðan hringinn þar til fóturinn mælist ca 4,5 cm. Klippið síðan frá. Heklið annan fót á sama hátt. Fyllið fæturna með vatti og saumið þá framan á báðar hliðar undir búk – sjá mynd. Heklið 2 aftur fætur alveg eins nema endið þegar fæturnir mælast ca 2,5 cm. Fyllið þá síðan með vatti og saumið að aftan verðu á hliðum undir búk. EYRA: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum bleikur draumur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 3 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 4 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 7: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 4 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 42 fastalykkjur. UMFERÐ 8-18: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 42 fastalykkjur. UMFERÐ 16: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 5 fastalykkjum, heklið nú 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 17: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 4 fastalykkjum, heklið nú 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur. Leggið stykkið saman flatt og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju í gegnum bæði lögin = 15 fastalykkjur, snúið stykkinu og heklið 2 og 2 fastalykkjur saman = 8 fastalykkjur. Klippið nú frá og saumið eyrað á höfuðið. Heklið annað eyra á sama hátt og saumið það í gagnstæða hlið. HALI: Heklið 20 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum bleikur draumur. Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í 5. Loftlykkju frá heklunálinni. Heklið síðan 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja loftlykkju JAFNFRAMT eru 2 og 2 tvíbrugðnir stuðlar heklaðir saman út umferðina. ATH! Þegar 2 tvíbrugðnir stuðlar eru heklaðir saman er beðið með að draga þráðinn í gegn í lokin á fyrsta tvíbrugðna stuðli, heklið næsta tvíbrugðna stuðul saman og dragið þráðinn í lokin í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni. Saumið halann fyrir miðju aftan á dýrinu. AUGA: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum svartur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. Skiptið yfir í litinn natur. UMFERÐ 3: *1 fastalykkja í fyrstu lykkju, 2 lykkjur í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 4. * 1 fastalykkja í hvora af fyrstu 2 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. Klippið frá og saumið auga framan á höfði. Heklið annað auga á sama hátt nema skiptið yfir í litinn natur eftir umferð 1. Saumið augað framan á höfuðið. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (23)
Susan Lewer wrote:
Hallo, zunächst vielen Dank für diese tolle Anleitung! Ich habe nur ein Problem:ich verstehe die Anleitung der Ohren nicht. Ich habe den "Deckel"-das Ohr vor mir liegen und soll es glatt...ich habe die äußere Kante quasi zusammengehäkelt und dann?Was bedeutet drehen-in welche Richtung?Auf dem Bild sieht es so aus, als wäre die Ohrenspitze die Mitte-der Anfang...außerdem ist es so schön geformt...Vielleicht können Sie mir ja helfen!? Vielen Dank vorab und einen guten Start ins neue Jahr!
27.12.2011 - 22:33Mamenko wrote:
Il est adorable, ce petit monstre et je ne vais pas tarder à le tricoter ! Merci à sa créatrice !
21.09.2010 - 09:26Silke wrote:
Habe dieses süße Etwas für den Freund meines Sohnes gehäkelt. Ist total gut angekommen. War leicht zu häkeln. Die Anleitung ist sehr gut. Mache demnächst noch eins für meinen Neffen. Die Farben muß er sich noch aussuchen.DANKE für die tolle Anleitung!!Viele Grüße aus Niedersachsen
02.07.2010 - 19:11