DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 120-3
DROPS Design: Mynstur nr U-592
--------------------------------------------------------

Mál: Breidd: ca 90 cm
Lengd: ca 110 cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
350 g nr 01, natur
150 g nr 30, ljós blár
150 g nr 37, dökk blágrænn
150 g nr 43, ísblár

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 15 st á breiddina verði 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LITASKIPTI:
Ferningur 1:
Umferð 1 - 2: ljós blár
Umferð 3: natur
Umferð 4 - 5: ísblár
Umferð 6 - 8: natur

Ferningur 2:
Umferð 1 - 2: dökk blágrænn
Umferð 3: ísblár
Umferð 4 - 5: ljós blár
Umferð 6 - 8: natur

Ferningur 3:
Umferð 1 - 2: ljós blár
Umferð 3: natur
Umferð 4 - 5: dökk blágrænn
Umferð 6 - 8: natur

Ferningur 4:
Umferð 1 - 2: ísblár
Umferð 3: ljós blár
Umferð 4 - 5: dökk blágrænn
Umferð 6 - 8: natur

Ferningur 5:
Umferð 1 - 2: dökk blágrænn
Umferð 3: ljós blár
Umferð 4 - 5: ísblár
Umferð 6 - 8: natur

Ferningur 6:
Umferð 1 - 2: ísblár
Umferð 3: dökk blágrænn
Umferð 4 - 5: ljós blár
Umferð 6 - 8: natur

FRÁGANGUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2 til að sjá staðsetningu á ferningum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Heklið alls 30 ferninga, 5 ferninga í hverri tegund – sjá LITASKIPTI! Ferningarnir eru síðan heklaði saman.

FERNINGUR:
Heklið 4 ll með 1 þræði Karisma með heklunál nr 5 og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll.

UMFERÐ 1: Heklið 4 ll (= 1 st + 1 ll), * 1 st um ll-hringinn, 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 7 sinnum, endið með 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 8 st. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

UMFERÐ 2: Heklið 3 ll (= 1 st), 1 st í 1. af 3 ll, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), 1 st í sömu ll, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 l á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum 3 l = 1 l á heklunálinni (= 1 st-hópur). Heklið * 1 ll, 1 st um næstu ll, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), 1 st um sömu ll, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 l á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum 3 l = 1 l á heklunálinni (= 1 st-hópur). Heklið * 1 ll, 1 st í næsta st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni, 1 st í sama st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 l á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum 3 l = 1 l á heklunálinni (= 1 st-hópur)*. Endurtakið frá *-* út umf, endið með 1 st-hóp um síðustu ll, 1 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 16 st-hópar. Klippið frá.

UMFERÐ 3: Skiptið um lit. Heklið 4 ll, * 3 st um næstu ll, 1 ll *, endurtakið frá *-*, endið með 2 st í síðustu ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Klippið frá.

UMFERÐ 4: Skiptið um lit. 1 ll, 1 fl um fyrstu ll, * 3 ll, 1 fl um næstu ll, 3 ll, 1 fl um sömu ll, 3 ll, 1 fl um næstu ll, 3 ll, 1 fl um næstu ll, 7 ll, 1 fl um sömu ll, 3 ll, 1 fl um næstu ll *, endurtakið frá *-*, endið með 1 kl í 1. fl frá byrjun umf. (Það eru fjórir 7-ll-bogar sem síðar mynda hornin).

UMFERÐ 5: Heklið 1 ll, 1 fl í fyrstu fl frá fyrri umf, * hoppið yfir 3-ll-boga, í næsta 3-ll-boga er heklað þannig: 4 st, 1 ll, 4 st. Hoppið yfir næsta 3-ll-boga, 1 fl í næstu fl, hoppið yfir næsta 3-ll-boga, í 7-ll-boga er heklað þannig: 6 st, 2 ll, 6 st. Hoppið yfir næsta 3-ll-boga, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-*, endið með 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf. Klippið frá.

UMFERÐ 6: Skiptið um lit. * 1 st (= kemur í stað 3 ll í fyrsta skipti) í 1. fl, 3 ll, 1 fl um ll í 8-st-hóp, 3 ll, 1 st í næstu fl, 5 ll, í horni (2-ll-bogann) er heklað þannig: 1 fl, 3 ll, 1 fl, 5 ll *, endurtakið frá *-*, endið með 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.

UMFERÐ 7: Heklið * 4 st (= kemur í stað 3 ll í fyrsta skipti) í 3-ll-boga, 4 st í næsta 3-ll-boga, 5 st í 5-ll-boga í horni (3-ll-bogann) er heklað þannig: 3 st, 2 ll, 3 st, 5 st í næsta 5-ll-boga *, endurtakið frá *-*, endið með 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.

UMFERÐ 8: Heklið 1 ll, 1 fl í hvern af næstu 16 st, * í horni (2-ll-bogi) er heklað þannig: 1 fl, 1 ll, 1 fl, 1 fl í 24 næstu st *, endurtakið frá *-* endið með 1 fl í hverja og eina af síðustu 8 fl, endið með 1 kl í 1. ll frá byrjun umf. Klippið frá. Festið alla enda.

FRÁGANGUR:
Staðsetjið ferninga eftir litum samkvæmt M.1 með 5 ferninga á breidd og 6 ferninga á hæð – sjá útskýringu að ofan! Heklið ferningana saman með natur með heklunál nr 5 samkvæmt M.2 – ferningarnir eru fyrst heklaðir saman á lengdina síðan á breiddina.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja
symbols = síðasta umferð í ferningi
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Seaside Blues

Silje Søstuen, Norway

Orange Range Bolero

Melissa, Canada

Vognteppe

Ingrid, Norway

Red....

Cheryl, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS 120-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (143)

Nadine wrote:

Im struggling with round 7 and 8. Can you please send me a video?

26.07.2016 - 13:55

DROPS Design answered:

Dear Nadine, there is no video yet to this square but click here to see step by step with picture how to crochet the square, including round 7 and 8. Happy crocheting!

26.07.2016 - 17:46

country flag Cristina Borghetti wrote:

Buonasera, vorrei realizzare questa bellissima coperta ma non riesco a trovare il filato nel colore 43, con quale potrei sostituirlo? e se volessi usare un filato di cotone? potete indicarmi colori che ottengano lo stesso splendido effetto? grazie

01.07.2016 - 22:45

DROPS Design answered:

Buonasera Cristina. Potrebbe usare il colore 68 al posto del 43. Per una coperta in cotone, può sostituire il filato Karisma con una delle seguenti qualità: Belle, Cotton Light, Cotton Merino, Muskat. Il suo rivenditore Drops di fiducia è disponibile per aiutarla nella scelta. Buon lavoro!

01.07.2016 - 23:05

country flag ANNE SYNNØVE GRØNDAHL wrote:

Hvor får eg kjøpt farge nr 43 isblå

22.04.2016 - 10:16

country flag Ingvild Seilen wrote:

Hvordan anbefaler dere å feste trådene for hver rute for at det skal bli både sterkt nok og fint? Blir jo 8 stk. tråder for hver rute.

21.02.2016 - 11:26

DROPS Design answered:

Hej Ingvild, du må feste dem ved at sy i samme farve for at det skal blive fint. Eller så hækler du rundt om trådene når du starter med en ny omgang. God fornøjelse!

23.02.2016 - 16:12

country flag Jessica Wilson wrote:

Can you tell me how big the squares are once finished before putting them together?

26.01.2016 - 22:00

DROPS Design answered:

Dear Mrs Wilson, we do not have these measurements but with 5 squares in width = 90 cm and 6 squares in height = 110 cm, they should be approx. 18x18 cm (including assembly). Happy crocheting!

27.01.2016 - 10:07

country flag Tess wrote:

Hej! Jag har letat hos olika webshoppar men kan inte hitta DROPS Karisma nr 43, isblå. Har den utgått? I så fall finns det någon annan liknande färg? Mvh Tess

15.04.2015 - 16:02

DROPS Design answered:

Hej Tess. Denne farve er desvaerre udgaaet. Du kan eventuelt bruge farve 68 lys himmelblaa. Se Karisma garnkortet her

15.04.2015 - 16:11

country flag Rosemary wrote:

I've seen several questions about the X that, according to the diagram, is supposed to be at the joining of 4 corners & watched the video tutorials suggested in response to those questions. However, in the tutorial video "how to crochet together granny squares" there is no X at the 4 corner join. It's a zig zag. There needs to be either a new photo/video tutorial for creating the X at the 4 corner join or modify the diagram so that it's consistent with the posted tutorials. Thanks!

07.02.2015 - 17:51

DROPS Design answered:

Dear Rosemary, you first crochet squares into stripes horizontally then vertically - clik here to see how to form the cross at the 4 corner join: you crochet tog first following red line then crochet following blue line and get the cross. Happy crocheting!

08.02.2015 - 19:01

Manuela wrote:

Hi! I crochet this blanket. But please check the information for the white yarn. 350 g is definetely not enough! I ran out of yarn 4 squares left and not crocheted together. Think i will need 100 g more. Regards Manuela

02.02.2015 - 09:45

country flag MackK wrote:

Reply to answer of previous question on Assembly (correction). Too late. As written, instructions for assembly appear to imply crocheting together vertical columns of squares first so that's what I did. Now if crochet those columns together, there is only 1 diagonal of stitches in the juncture of 4 squares and not an X. Is a Xmas gift that must be mailed so no time now to rip out and redo.

08.12.2014 - 18:54

DROPS Design answered:

Dear Mrs Mackk, you will find a picture showing how to crochet squares together - following the "blue" line first (= vertically), then the red one (= horizontally), you will get a cross between 4 squares as on the chart. Hope it will help. Happy crocheting!

09.12.2014 - 14:19

country flag MackK wrote:

Reply to question answered on Assembly: Too late. As written, the instructions appear to say crochet the squares horizontally first (rows of 5), and then the columns of crocheted squares (columns of 6) so that is what I already started doing.

08.12.2014 - 18:28