Alpaca Cousins |
|
|
|
Heklað Alpaca eða Lama úr DROPS Nepal.
DROPS Children 35-10 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR-1: Umferðin er hekluð án skiptingar (eða eins og spírall). Þ.e.a.s: Heklað er í hring án þess að enda, það er prjónamerki sem sýnir hvar umferðin byrjar og endar – það er því engin keðjulykkja sem er hekluð í lok hverrar umferðar. HEKLAÐ SAMAN-1: 4 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN Í 1 STUÐUL ÞANNIG: * Bregðið bandinu 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni (= 3 stuðlar færri). HEKLAÐ SAMAN-2: 2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN Í 1 FASTALYKKJU ÞANNIG: * Stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (1 fastalykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- ALPACA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring ofan frá höfði og niður, síðan er fitjað upp út fyrir búk og heklað niður að fótum. Í lokin er Alpaca fyllt með vatti og saumað saman undir maga, að lokum er toppurinn á höfðinu heklaður saman jafnframt því sem eyrun eru hekluð. HÖFUÐ/BÚKUR: Heklið 19 loftlykkjur með heklunál 4 með lit á Alpaca. UMFERÐ 1: Heklið þessa umferð í hring með því að hekla 2 fastalykkjur í fyrstu hekluðu loftlykkjuna og síðan er hekluð 1 fastalykkja í hverja loftlykkju = 20 fastalykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR-1 að ofan. UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 3 lykkjum, 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, 2 stuðlar og 1 tvíbrugðinn stuðull í næstu lykkju, 1 tvíbrugðinn stuðull og 2 stuðlar í næstu lykkju, 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 13 lykkjum – nú hafa verið auknar út 4 lykkjur fyrir nef = 24 lykkjur í umferð. UMFERÐ 4 og 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 6: Heklið 4 fastalykkjur í hverja lykkju, næstu 4 lykkjurnar eru heklaðar saman í 1 lykkju sjá HEKLAÐ SAMAN-1 í útskýringu að ofan, næstu 4 lykkjurnar eru heklaðar saman í 1 lykkju sjá HEKLAÐ SAMAN-1 í útskýringu að ofan, heklið síðan 12 fastalykkjur í hverja lykkju – nú hefur verið fækkað um 6 lykkjur fyrir nefi = 18 lykkjur í umferð. UMFERÐ 7 til 18: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. UMFERÐ 19: Heklið 17 nýjar lykkjur, snúið stykkinu og heklið til baka í þessar loftlykkjur þannig: Í 2. lykkju frá heklunálinni eru heklaðar 2 fastalykkjur, í 3. lykkju frá heklunálinni eru heklaðar 2 fastalykkjur, í 4. lykkju frá heklunálinni eru heklaðar 2 fastalykkjur, þetta er dindillinn – nú eru 13 loftlykkjur eftir. Heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju og síðan eru heklaðar 18 fastalykkjur í kringum hálsinn, síðan er heklað áfram fastalykkjur að dindli í sömu loftlykkjuröð en á gagnstæðri hlið þannig: 1 fastalykkja í hverja og eina af 13 loftlykkjum að dindli. Umferðin byrjar og endar undir dindil og það eru 44 lykkjur í kringum búk. UMFERÐ 20: Lyftið dindlinum þannig að hægt er að hekla búkinn í hring, heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. UMFERÐ 21 til 32: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju = alls 12 umferðir fyrir búk. UMFERÐ 33 OG FRAM: Heklið nú fæturna á Alpaca, byrjið við miðju að aftan. FYRSTI FÓTUR = HÆGRI AFTURFÓTUR: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 9 lykkjunum, heklið 9 loftlykkjur. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu af 9 fastalykkjum, nú hefur myndast hringur og stykkið heldur áfram í hring með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 18 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. UMFERÐ 3 til 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. UMFERÐ 5: Heklið nú allar lykkjur saman 2 og 2 – sjá HEKLAÐ SAMAN-2 í útskýringu að ofan = 9 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 6 til 12: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá. Brjótið hringinn saman flatan og saumið gatið saman þannig að fóturinn verði flatur og breiður í sömu átt og búkurinn. ANNAR FÓTUR = HÆGRI FRAMFÓTUR: Hoppið yfir 4 lykkjur (= mitt undir maga) UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 9 lykkjunum á hægri hlið á búk og heklið síðan 9 loftlykkjur. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu af 9 fastalykkjum, nú hefur myndast hringur og stykkið heldur áfram í hring með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 18 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. UMFERÐ 3 til 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. UMFERÐ 5: Heklið nú allar lykkjur saman 2 og 2 – sjá HEKLAÐ SAMAN-2 í útskýringu að ofan = 9 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 6 til 12: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá. Brjótið hringinn saman flatan og saumið gatið saman þannig að fóturinn verði flatur og breiður í sömu átt og búkurinn. ÞRIÐJI FÓTUR = VINSTRI FRAMFÓTUR: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 9 lykkjunum á vinstri hlið á búk og heklið síðan 9 loftlykkjur. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu af 9 fastalykkju, nú hefur myndast hringur og stykkið heldur áfram í hring með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 18 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. UMFERÐ 3 til 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. UMFERÐ 5: Heklið nú allar lykkjur saman 2 og 2 – sjá HEKLAÐ SAMAN-2 í útskýringu að ofan = 9 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 6 til 12: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá. Brjótið hringinn saman flatan og saumið gatið saman þannig að fóturinn verði flatur og breiður í sömu átt og búkurinn. FJÓRÐI FÓTUR = VINSTRI AFTURFÓTUR: Hoppið yfir 4 lykkjur (= mitt undir maga) UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 9 lykkjunum lengst aftan á vinstri hlið á búk og heklið síðan 9 loftlykkjur. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu af 9 fastalykkju, nú hefur myndast hringur og stykkið heldur áfram í hring með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 18 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. UMFERÐ 3 til 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. UMFERÐ 5: Heklið nú allar lykkjur saman 2 og 2 – sjá HEKLAÐ SAMAN-2 í útskýringu að ofan = 9 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 6 til 12: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá. Brjótið hringinn saman flatan og saumið gatið saman þannig að fóturinn verði flatur og breiður í sömu átt og búkurinn. FRÁGANGUR: Saumið nú augu í Alpaca, nef og munn með litnum dökk grár – sjá e.t.v. mynd til að sjá staðsetningu og form. Fyllið síðan Alpaca með vatti og búkurinn er saumaður saman mitt undir maga. Fyllið höfuðið og nefið með vatti. Brjótið uppá gatið á toppnum á höfði flatt saman með andlitið fram. Heklið síðustu umferðina þar sem höfuðið er heklað saman og heklað er eitt eyra í byrjun og lokin þannig: Byrjið í fyrstu lykkjunni í hægri hlið: Í sömu lykkju eru heklaðar 4 loftlykkjur, 2 tvíbrugðnir stuðlar, 4 loftlykkjur, 1 keðjulykkja = 1 eyra. Heklið síðan gatið á toppnum á höfði saman þannig: Heklið fastalykkjur í gegnum bæði lögin á flata hringnum, 1 lykkja í hverja lykkju fram að og með næst síðustu lykkjunni. Í síðustu lykkjuna er heklað hitt eyrað þannig: 4 loftlykkjur, 2 tvíbrugðnir stuðlar, 4 loftlykkjur, 1 keðjulykkja. Klippið frá og festið enda. Hnýtið smá hár á toppinn á höfðinu með tvöföldum hnútum – með öðrum lit. TEPPI: Teppið er heklað fram og til baka með fastalykkjum – í hverri umferð með sitt hverjum litnum – látið vera eftir ca 10 cm þráð sem hangir út fyrir kögur í hvorum enda. Heklið 20 loftlykkjur með litur 1, * skiptið yfir í næsta lit, snúið stykkinu, heklið 1 umferð fastalykkjur með 1 lykkju í hverja lykkju, * endurtakið frá *-* þar til heklaðar hafa verið alls 10 umferðir. Teppið verður að vera heklað með jöfnum fjölda lykkja til að hægt sé að hnýta hnútana á hvorum enda 2 og 2 saman í kögur. Klippið kögrið til þannig að það verði 1 cm langt. HÚFA: Húfan er hekluð úr 2 þráðum í hring, ofan frá og niður – sjá HEKLLEIÐBEININGAR-1. Heklið 3 loftlykkjur með litnum rauður og tengið í hring með einni keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 1 loftlykkju og 6 fastalykkjur um loftlykkjuhriginn (= 7 lykkjur). Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og látið þetta prjónamerki fylgja með í stykkinu. Heklið síðan þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * heklið 2 fastalykkjur í næstu lykkju, heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* út umferðina = 10 fastalykkjur. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju í umferð. UMFERÐ 3: * Heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju, * heklið 2 fastalykkjur í næstu lykkju, heklið 1 fastalykkju í næstu 2 lykkjur *, endurtakið frá *-* út umferðina = 13 fastalykkjur. UMFERÐ 4: Heklið eins og umferð 2. UMFERÐ 5: * Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * heklið 2 fastalykkju í næstu lykkju, heklið 1 fastalykkju í næstu 3 lykkjur *, endurtakið frá *-* út umferðina = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 6 og 7: Heklið eins og umferð 2. Síðasta umferðin er hekluð þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 4 lykkjum. Nú er heklaður eyrnaleppur þannig: Heklið 8 loftlykkjur, í 6. loftlykkju er heklað 1 hálfur stuðull + 1 stuðull. Heklið 6 loftlykkjur. Haldið áfram að hekla 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 8 lykkjum, heklið hinn eyrnaleppinn þannig: Heklið 8 loftlykkjur, í 6. loftlykkju er heklaður 1 hálfur stuðull + 1 stuðull. Heklið 6 loftlykkjur og heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af síðustu 4 lykkjum. Festið umferð með einni keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð, klippið frá og festið enda. Dúskar: Notið afgangs garn í mismunandi litum. Setjið 4 þræði ca 5-6 cm saman og hnýtið þá saman í enda á hvorum eyrnalepp. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (4)
Elise wrote:
Hur ska man fortsätta efter att ha virkat svansen (efter varv 19)? Ska man virka på halsen eller nya svansen?
26.02.2023 - 14:13DROPS Design answered:
Hei Elise. Du skal hekle på de hver side av de 13 (av 17) nye luftmaskene samtidig som det hekles på de 18 maskene til halsen = 13+13+18 = 44 masker. Husk å løfte halen når du skal hekle rundt og rundt kroppen. mvh DROPS Design
06.03.2023 - 11:04Harma Hidskes wrote:
In der Anleitung steht der Schwanz anheben. W ie ist das gemeint. Einfach so lassen wie es ist und nur der Körper häkeln?
30.03.2022 - 10:32DROPS Design answered:
Liebe Frau Hidskes, der Schwanz muss von der Vorderseite sein, so man wird ihn hier anheben, so wird er nicht innerhalb sondern wirklich ausserhalb vom Alpaka sein/bleiben. Viel Spaß beim häkeln!
30.03.2022 - 11:14Christine wrote:
Wie werden die Beine gehäkelt? Ich habe 9 fM und 9 LM und diese zum Kreis geschlossen. Ist das richtig? Ich erhalte dadurch 4 offene Beine nach innen. Zum Ende habe ich diese dann zusammengenäht als Bauchunterseite. Vielleicht haben Sie hierzu ein Video. Alles in allem möchte ich sagen das dies ein ganz knuffiger Spielgefährte geworden ist. Dankeschön für die Anleitung. LG
07.05.2020 - 10:23DROPS Design answered:
Liebe Christine, ja genau, die je 9 fM sind diejenigen von der vorrigen Runde und die je 9 neue Luftmaschen sind innen, diese Luftmaschen sind dann unter dem Bauch zusammengenäht (2 by 2, dh die beiden Hinterbeinen zusammen und die beiden vorderbeinen zusammen). Viel Spaß beim häkeln!
07.05.2020 - 11:02Francine wrote:
J'ai suivis à la lettre les explications pour les pattes mais quand je veux fermer , je n'y arrive pas, les pattes sont séparées et ça ne fonctionne pas de coudre sous le ventre , j'ai peut-être mal suivi les indications pour les pattes. merci de me répondre . C'est le modèle alpaca cousins, 35-10
25.11.2019 - 21:48DROPS Design answered:
Bonjour Francine, pour chaque patte, on a fait 9 mailles en l'air en plus des 9 ms pour crocheter les pattes en rond, vous devez ainsi avoir une petite ouverture sous le ventre au niveau de ces 4 x 9 mailles en l'air pour chacune des pattes. C'est à ce niveau que l'on va rembourrer et que l'on va ensuite fermer par une couture. Bon crochet!
26.11.2019 - 09:40