DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 308.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2464.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Lizzy

Tunika með sólfjaðramynstri, bygjukanti og A-formi, hekluð ofan frá og niður úr DROPS Safran. Stærð S-XXXL.

DROPS 176-2
DROPS Design: Mynstur e-264
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
ATH! Veldu þá stærð sem þú notar venjulega. Yfirvíddin er stór, en flíkin fellur vel.

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
400-450-550-600-650-700 g litur 17, hvítur

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 tvíbrugðnir stuðlar og 8 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð. 1 mynstureining A.2 á að mælast 4,5 cm á breidd.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 308.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2464.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. (Mynsturteikning A.1a, A.2a, A.3a, A.4a og A.5a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar).

ÚTAUKNING 1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 180 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 74) = 2,4. Í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis í ca aðra hverja og 3. hverja lykkju.

ÚTAUKNING 2:
Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla um sömu loftlykkju.

ÚTAUKNING 3:
Aukið út einn auka loftlykkjuboga með því að hekla (1 stuðul og 5 loftlykkjur) um einn loftlykkjuboga.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Byrjun umferðar er fyrir miðju að aftan.
ATH! Veldu þá stærð sem þú notar venjulega. Yfirvíddin er stór, en flíkin fellur vel.

TUNIKA:
Byrjið með heklunál 3,5 með Safran, heklið 180-192-202-211-221-233 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkjun. Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* 28-30-32-33-35-37 sinnum til viðbótar, hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 4-4-2-5-3-3 loftlykkjum sem eftir eru = 150-160-168-176-184-194 stuðlar.

Heklið frá 2. umferð í mynsturteikningu þannig:
Heklið A.1a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.1b í kringum alla umferðina. Í 3. umferð er heklaður 1 stuðull í hvern stuðul og 1 stuðull um hverja loftlykkju og aukið líka út 74-96-104-128-136-142 stuðla jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING 1 (jafnt yfir) og ÚTAUKNING 2 = 224-256-272-304-320-336 stuðlar.

Heklið frá 2. umferð í mynsturteikningu þannig: Heklið A.2a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.2b (= 28-32-34-38-40-42 mynstureiningar). Þegar 5. umferðin hefur verið hekluð til loka á hæðina er þessi umferð endurtekin 3-3-4-5-6-6 sinnum til viðbótar (= alls 6-6-7-8-9-9 umferðir með sólfjöðrum). Heklið síðan 6. umferð og aukið líka út 4-0-6-2-8-14 loftlykkjuboga jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING 3 = 144-160-176-192-208-224 loftlykkjubogar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Stykkið mælist ca 14-14-15-16-17-17 cm frá fyrstu loftlykkjuumferð sem var hekluð.

Heklið frá 2. umferð í mynsturteikningu þannig: Heklið A.3a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.3b (= 72-80-88-96-104-112 mynstureiningar). Þegar 4. umferð hefur verið hekluð á hæðina er berustykkið lokið.
Stykkið mælist ca 18-18-19-20-21-21 cm frá kanti í hálsi og niður (og ca 28-29-30-32-33-34 cm frá öxl). Setjið eitt prjónamerki í stykkið – STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN!
Heklið 4. umferð í A.3b einu sinni til viðbótar þannig: Heklið yfir fyrstu 9-10-11-12-13-14 mynstureiningarnar (= hálft bakstykki), hoppið yfir 18-20-22-24-26-28 mynstureiningar (= ermi), heklið yfir næstu 18-20-22-24-26-28 mynstureiningar (= framstykki), hoppið yfir 18-20-22-24-26-28 mynstureiningar (= ermi), heklið yfir 9-10-11-12-13-14 mynstureiningar sem eftir eru (= hálft bakstykki) = 36-40-44-48-52-56 mynstureiningar fyrir fram- og bakstykki. Endurtakið 4. umferð í A.3 a og A.3b 2 sinnum til viðbótar (= alls 6 umferðir með sólfjöðrum). Heklið síðan 5. umferð og aukið líka út 0-2-4-0-2-4 loftlykkjuboga jafnt yfir = 144-162-180-192-210-228 loftlykkjubogar. Stykkið mælist ca 8 cm.

Heklið frá 2. umferð í mynsturteikningu þannig: Heklið A.4a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.4b (= 48-54-60-64-70-76 mynstureiningar). Í næstu umferð er haldið áfram frá 3. umferð í A.3a og A.3b. Þegar 4. umferð hefur verið hekluð til loka á hæðina er þessi umferð endurtekin 3 sinnum til viðbótar (= alls 6 umferðir með sólfjöðrum). Heklið síðan eins og útskýrt er að neðan og aukið líka út 3-0-6-1-1-4 loftlykkjuboga jafnt yfir: * heklið síðustu umferð í A.3b 1 sinni á breidd, heklið síðustu umferð í A.5b 1 sinni á breiddina *, endurtakið frá *-* = 171-189-216-225-246-270 loftlykkjuboga. Stykkið mælist ca 18 cm.

Heklið frá 2. umferð í mynsturteikningu þannig: Heklið A.4a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.4b (= 57-63-72-75-82-90 mynstureiningar). Í næstu umferð er haldið áfram frá 3. umferð í A.3a og A.3b. Þegar 4. umferð hefur verið hekluð til loka á hæðina er þessi umferð hekluð 3 sinnum til viðbótar (= alls 6 umferðir með sólfjöðrum). Heklið næstu umferð eftir mismunandi stærðum þannig:

Stærð S, M, L og XL:
Heklið eins og útskýrt er að neðan og aukið líka út 20-12-0-2 loftlykkjuboga jafnt yfir: Heklið A.3a, * heklið síðustu umferð í A.3b 1 sinni á breiddina, heklið síðustu umferð í A.5b 2 sinnum á breiddina *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 210-222-240-252 loftlykkjubogar.

Stærð XXL og XXXL:
Heklið A.5a, heklið síðan síðustu umferð í A.5b umferðina hringinn og aukið líka út 18-6 loftlykkjuboga jafnt yfir = 264-276 loftlykkjubogar.

Stykkið mælist ca 28 cm. Heklið áfram í öllum stærðum frá síðustu umferð í mynsturteikningu þannig: Heklið A.4a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.4b (= 70-74-80-84-88-92 mynstureiningar). Í næstu umferð er haldið áfram frá 3. umferð í A.3a og A.3b. Þegar 4. umferð hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið þessa umferð á hæðina þar til stykkið mælist ca 33-34-35-35-36-37 cm. Heklið síðustu umferð í mynsturteikningu. Tunikan mælist ca 63-65-67-69-71-73 cm frá öxl. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.03.2017
Yfirvídd hefur verið bætti við á teikningu með máli. Veldu þá stærð sem þú notar venjulega. Yfirvíddin er stór en flíkin fellur fallega
Yfirfarið á vefsvæði: 25.08.2017
Mynsturteikning A.2a, A.3a og A.5a hefur verið uppfærð.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 5 loftlykkjur
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = fyrsti stuðuli í umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar á 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar
symbols = fyrsta tvíbrugðna stuðli í umferð er skipt út fyrir 4 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju frá byrjun umferðar
symbols = fyrstu fastalykkju í umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju frá byrjun umferðar
symbols = umferðin byrjar með að heklaðar eru keðjulykkjur upp að fyrsta loftlykkjuboga, eftir það eru fyrsta tvíbrugðna stuðlinum skipt út fyrir 4 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun umferðar
symbols = í þessari umferð eru auknir út loftlykkjubogar jafnt yfir - sjá útskýringu í uppskrift
symbols = veljið þá stærð sem þú notar venjulega. Yfirvíddin er stór en fellur vel að
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (141)

country flag Ghislaine wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas le 3ième tour, en effet si je fais une bride dans chacune des brides du rang précédent plus une autre dans chacune des mailles en l air de ce même rang j' ai donc le double des 160 brides (160 + 159 ml = 319 brides ????) et en plus il faut augmenter 96 autres brides à intervalles réguliers donc ça ne fait pas le total de 256 brides (160 BRIDES + 96 =256) Merci de bien vouloir m'expliquer car j'ai surement mal compris quelque chose !!!

28.11.2019 - 17:51

DROPS Design answered:

Bonjour Ghislaine, au 1er rang de A.1b vous crochetez sur 2 m: (1 bride dans la bride, 1 ml, sautez 1 bride) tout le tour = le nombre de mailles reste le même (= 160 mailles au total brides et mailles en l'air comprises). Au 2ème tour, vous crochetez 1 bride dans chaque bride, 1 bride dans chaque arceau (= 160 brides), et en même temps, vous augmentez 96 brides à intervalles réguliers soit 160+96= 256 brides à la fin de ce rang. Bon crochet!

29.11.2019 - 08:22

country flag Margie wrote:

I do love your designs and I know that each and perfect. However; I started 3 and dropped out of them all....."Lizzi, red, and blue. none finished. as this last one I got me too and it was my favorite one...So I decided to contact you so you will know about what works most people:" WE LIKE WORDS"..THE Diargram is all over the pape e and nothing in order to follow....rythmn is the key. Why not just say: SKP NEXT DC , IN THE NEXT DC MAKE 1dc.ch2. 1dcc , 9 times??? we also like sums.

01.07.2019 - 04:02

DROPS Design answered:

Dear Margie, we understand that in certain countries, with different knitting/crochet traditions than Scandinavia, our patterns might be written in a way that differs from what some are used to. But of course we want everyone to understand our patterns, so that’s why we have created an extensive library of tutorial videos as well as step by step lessons that explain how to follow the techniques we use and how to read the diagrams in our patterns. Look also at our FAQ about crochet diagrams. Give them a try!

01.07.2019 - 08:10

country flag Mona wrote:

Wie erkenne ich denn jetzt welche Größe ich für mich wählen soll? ich trage gr 50...

16.06.2019 - 12:21

DROPS Design answered:

Liebe Mona, Hier lesen Sie mehr über Grössen - beachten Sie bitte nur das die Brustweite ist beim diesem Modell groß, gerne lassen Sie sich von Modellen selber Katalog inspirieren. Ihr DROPS Laden wird Ihnen auch mal gerne weiter helfen - auch telefonisch oder per Mail. Viel Spaß beim häkeln!

17.06.2019 - 08:05

country flag Jannie Jessen wrote:

Hvorfor skal der kun hækles fra 2. Omgang på alle mønstrene/rapporterne. Er gået helt i stå,

22.05.2019 - 22:48

DROPS Design answered:

Hei Jannie. Den første omgangen har du allerede heklet, og er kun med i diagrammene for å vise hvilke masker det hekles i. God fornøyelse

23.05.2019 - 07:15

country flag Coco wrote:

Bonjour, après le diagramme A1b et avoir fait les augmentations demandées j''obtiens bien mes 256 brides. Au diagramme d'après A2b il est dit de le répéter 32 fois or moi je peux le répéter 40 sur mon tour. Je fais forcément une erreur quelque part mais je ne comprends pas a quel moment.

06.05.2019 - 09:16

DROPS Design answered:

Bonjour Coco, si vous avez bien vos 256 brides après A.1b, vous avez suffisamment de mailles pour répéter 32 fois A.2b - A.2b se crochète sur 8 mailles, soit 8 x 32 =256 brides. Bon crochet!

06.05.2019 - 10:54

country flag Corinne wrote:

Bonjour besoin d'aide concernant A2b2 (32 fois) que faut- il répéter 32 fois s'il vous plaît le nombre de motif sur un tour ou le nombre de tour pour ce motif?

05.05.2019 - 21:55

DROPS Design answered:

Bonjour Corinne. Vous répétez le diagramme A.2b 32 fois sur le tour. Bon crochet!

05.05.2019 - 22:28

country flag Bernie wrote:

Is this available in a knit pattern? I don’t know how to crochet.

24.04.2019 - 06:28

DROPS Design answered:

Hi Bernie, If you search under tunics, there are a number of knitted patterns there you can choose from. Happy knitting!

24.04.2019 - 07:43

country flag Catherine wrote:

Bonsoir, Je suis perdue après le rang où l'on saute les arceaux. J'ai bien 2 fois 18 motifs espacés de 18 motifs. Jusque là tout va bien. Mais le tour suivant je ne comprends pas.... dois je faire le tour sur les arceaux des 2 tours précédents ? Merci d'avance

04.04.2019 - 21:39

DROPS Design answered:

Bonjour Catherine, quand vous avez sautez 2 x 18 arceaux pour les manches, vous crochetez maintenant uniquement le dos (2 x 9 arceaux) et le devant (18 arceaux). Vous avez donc 36 arceaux au total et vous crochetez maintenant 2 fosi le 4ème tour de A.3a et A.3b, puis le 5ème tyour de A.3a et A.3b = vous avez 144 arceaux et vous avez crocheté 8 cm depuis la séparation des manches. Continuez avec A.3a et A.3b etc. Bon crochet!

05.04.2019 - 09:52

country flag Martine wrote:

Tout va bien jusqu'à la fin des explications page 2 j ai bien 144 arceaux après j avoue ne plus comprendre du tout et je me retrouve avec beaucoup plus de motifs que prévu.. Si j agrandi votre modèle on saute des arceaux oui mais combien...1 sur deux?

01.04.2019 - 09:44

DROPS Design answered:

Bonjour Martine, vous crochetez ensuite le 2ème rang de A.4a (début du tour) et répétez A.4b en largeur tout le tour (= *1 double bride dans l'arceau (la 1ère fois, remplacez cette double-bride par 4 ml), 2 ml, 2 double-brides, 2 ml, 2 double brides dans l'arceau suivant, 2 ml*, vous répétez de *-* tout le tour pour terminer par 1 mc dans la 4ème ml du début du tour. On crochète ensuite le 3ème tour de A.3a/A.3b puis 4 fois le 4ème tour de A.3a/A.3b. Bon crochet!

01.04.2019 - 15:11

country flag Suzee Williams wrote:

I would really like to make this sweater it is cute and I like it a lot. I’ve had several mini strokes but a do fine with regular patterns. Is there anyway you could send the regular instructions cause I can’t seem to rap my brain around the instructions that are posted. Lol. Thanks in advance

12.01.2019 - 17:56

DROPS Design answered:

Dear Mrs Williams, this pattern is only with diagrams and written pattern explaining how to work the diagrams. You are welcome to ask any question here. Should you need any individual assistance, please contact the store where you bought your yarn. Happy crocheting!

14.01.2019 - 13:18